Morgunblaðið - 22.06.2002, Side 18
AKUREYRI
18 LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
www. .is
ÍBÚÐIR TIL SÖLU • ÍBÚÐIR TIL LEIGU • TÆKJALEIGA • ÚTBOÐ
KÍKTU
Á NETIÐ
sími 462 2900
Brúðargjafirnar
fást hjá
okkur
Erum líka á
Glerártorgi
Sími 462 2901
Blómin
í bænum
FYRIRTÆKIN Ístak hf. og
Nýsir hf. hafa kært til kæru-
nefndar útboðsmála útboð á
rannsókna- og nýsköpunarhúsi
við Háskólann á Akureyri.
Tvö tilboð bárust í fram-
kvæmdina, að undangengnu lok-
uðu útboði í forvali, annars veg-
ar frá Ístaki og Nýsi og hins
vegar frá Íslenskum aðalverk-
tökum hf., ISS á Íslandi ehf. og
Landsafli hf. Um er að ræða
svonefnda einkaframkvæmd,
sérstök valnefnd fór yfir tilboðin
og varð tilboð þeirra síðar-
nefndu fyrir valinu.
Mat byggt á tilfinningum,
ekki útboðsgögnum
Stefán Þórarinsson, rekstrar-
stjóri Nýsis, sagði í samtali við
Morgunblaðið að Ístak og Nýsir
hafi boðið upp á mjög góða
byggingu og ódýrari en hinir að-
ilarnir buðu upp á.
„Við teljum að það mat sem
lagt var á okkar lausnir hafi ekki
byggst á útboðsgögnum, heldur
einhverjum tilfinningum manna.
Útboðsgögn voru mjög afger-
andi um hvernig byggingin ætti
að vera og eftir þeim fórum við
en það gerðu hinir aðilarnir
ekki. Okkur var gefið niður úr
öllu valdi fyrir lausnina og þótt
við hefðum boðið upp á 13%
ódýrari byggingu dugði það ekki
til.“
Stefán sagði að einkafram-
kvæmd sem þessi snerist ekki
um arkitektúr, heldur um hag-
kvæmni, útsjónarsemi og að
uppfylla ákveðnar þarfir.
„Við teljum að þessi vinnu-
brögð nefndarinnar hafi ekki
verið nógu vönduð og að hún
hafi heldur ekki farið eftir þeim
útboðsgögnum sem hún gaf út
sjálf. Það er reyndar ekki í
fyrsta skipti sem slíkt kemur
fyrir þar sem við eigum hlut að
máli. Við kærum þetta, þar sem
við teljum klárlega á okkur brot-
ið, þó það verði ekki til annars
en að menn vandi sig betur
næst. Það virðist reyndar allt í
kringum þetta mál frá upphafi
vega vera afskaplega klúðurs-
legt og það ætlar engan enda að
taka.“
Kostnaður við útboðið nem-
ur allt að 15 milljónum kr.
Stefán sagði að fyrirtækin
hefðu eytt miklum fjármunum
og vinnu í tilboðið og að ekki
væri óvarlegt að áætla þann
kostnað upp á 12–15 milljónir
króna. Bætur til tilboðsgjafa
hefðu lítið að segja í þá upphæð.
„Við erum því mjög ósáttir og
gerum þá kröfu að þessir menn
vandi sig, sem við teljum að þeir
hafi ekki gert nægilega vel í
þessu tilviki.“
Stefán Friðfinnsson, fram-
kvæmdastjóri Íslenskra aðal-
verktaka, hafði ekki frétt af
kæru Ístaks og Nýsis þegar
Morgunblaðið hafði samband við
hann í gær. „Við gerum fastlega
ráð fyrir því að undir samninga
verði skrifað og að við byggjum
þetta hús,“ sagði Stefán en vildi
að öðru leyti ekki tjá sig um
málið.
Útboð á rannsókna- og nýsköp-
unarhúsi við Háskólann
Ístak og Nýsir
kæra útboðið
MIKIL uppbygging er nú hafin á
Möðruvöllum í Hörgárdal, en
heimamenn hafa í hyggju að end-
urnýja tvær sögufrægar byggingar
á staðnum. Það er ætlunin að koma
upp safnaðarheimili, flóru- og
sögusafni og aðstöðu fyrir ferða-
fólk.
Hafist var handa við að end-
urnýja svokallað Leikhús, en það
var leikfimihús Möðruvallaskóla.
Skólahúsið sjálft brann fyrir 100
árum síðan, árið 1902.
Skólinn var byggður árið 1880
og Leikhúsið var einnig byggt
sama ár. Nauðsynlegt þótti að
styrkja undirstöður þess þegar
hafist var handa við að endurnýja
húsið og var minjavörður Norður-
lands eystra, Sigurður Berg-
steinsson, fenginn til að fylgjast
með greftri fyrir þeim. Fljótlega
komu í ljós miklar hleðsluleifar. Til
að valda sem minnstu raski á forn-
leifum við framkvæmdirnar var
ákveðið að láta húsið hvíla á stoð-
um og þótti nauðsynlegt að forn-
leifafræðingar sæju um að grafa
og rannsaka holur fyrir stoðirnar.
Í ljós hafa komið fjögur bygging-
arskeið, það yngsta er brunarústir
frá því bærinn brann árið 1712. Við
vegghleðslu frá næstelsta skeiðinu
fundust leifar eftir sá, en sáir eru
stór keröld sem grafin voru niður í
gólf og í þeim voru geymd mat-
föng, súrmatur og skyr.
Aldursgreiningar á elstu bygg-
ingarskeiðunum liggja enn ekki
fyrir, en líklegt þykir að þau nái að
minnsta kosti aftur til klausturs-
tímans, 1296 til 1551.
Mikil uppbygging hafin á Möðruvöllum í Hörgárdal
Hleðsluleifar komu í ljós
við endurnýjun húsa
Morgunblaðið/Kristján
Sigurður Bergsteinsson minjavörður við hleðsluleifar sem komu í ljós við uppgröft á Möðruvöllum.
JÓNSMESSUGANGA verður far-
in annað kvöld, sunnudagskvöldið
23. júní, kl. 22 frá þjónustuhúsinu í
Kjarnaskógi. Hún er á vegum
Minjasafnsins og Skógræktar-
félags Eyfirðinga.Rölt verður um
skóginn fram yfir miðnætti meðan
leiðsögumenn fræða göngumenn
um gróður og fugla skógarins og
miðla þjóðlegum fróðleik um
Kjarnasvæðið og Jónsmessuna. Í
göngunni verða einnig fulltrúar
Listasumars, Norræna félagsins
og Leikklúbbsins Sögu sem leggja
sitt af mörkum til þess að auka á
dulúðina.
Félagar í Leikklúbbnum Sögu
hafa ásamt Agnari Jóni Egilssyni
sett saman sýningu sem gestir í
Kjarnaskógi geta fylgst með hér
og þar í skóginum. Sýningin bygg-
ist á goðsögnum frá Jónsmessunótt
og inn í þær fléttast saga um af-
drifaríka atburði.
Jónsmessu-
ganga og
sýning í
Kjarnaskógi
SÖNGVAKA verður í Minjasafns-
kirkjunni næstkomandi mánudags-
kvöld, 24. júní, og hefst hún kl.
20.30.
Flutt verða nokkur sýnishorn ís-
lenskrar tónlistarsögu svo sem
dróttkvæði, þjóðlög og danskvæði,
trúarlegir söngvar, tvísöngur,
rímnalög, stemmur og söngvar frá
nítjándu og tuttugustu öld.
Flytjendur verða Hjörleifur
Hjartarson og Íris Ólöf Sigurjóns-
dóttir. Þetta er þriðja söngvaka
sumarsins.
Söngvaka
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN í
norðausturkjördæmi efnir til sumar-
ferðar til Grímseyjar laugardaginn
29. júní næstkomandi.
Lagt verður af stað frá Dalvík kl.
12 á hádegi og komið til baka kl. 23
um kvöldið. Ýmislegt verður til gam-
ans gert, bæði um borð í skipinu og í
eynni. Farið verður í skoðunarferð
undir leiðsögn og haldin grillveisla.
Sérstakir gestir í ferðinni verða Geir
H. Haarde varaformaður Sjálfstæð-
isflokksins og Inga Jóna Þórðardótt-
ir. Öllum er heimil þátttaka og er
hægt að skrá sig í ferðina hjá Gunn-
ari Ragnars, Alfreð Almarssyni eða
Jónasi Þór Jóhannssyni eða á net-
fangið xd@aey.is.
Sjálfstæðisflokkurinn í
norðausturkjördæmi
Sumarferð
í Grímsey
SAMNINGUR um að tölvurekstr-
arfyrirtækið Anza hf. taki að sér að
hýsa og reka nýtt miðlægt bóka-
safnskerfi fyrir allt landið var und-
irritaður á Amtsbókasafninu á Ak-
ureyri nýlega að viðstöddum
menntamálaráðherra, Tómasi Inga
Olrich. Samningurinn, sem gildir í
fjögur ár, markar nokkur tímamót í
tölvuvæðingu bókasafna hér á
landi.
Nýja bókasafnskerfið mun gera
landsmönnum kleift að nálgast upp-
lýsingar flestra bókasafna á Net-
inu. Anza mun hýsa og reka kerfið
fyrir Landskerfi bókasafna hf. í
starfsstöð sinni á Akureyri.
Markmiðið með sameiginlegu
landskerfi bókasafna er að tryggja
landsmönnum aðgang að upplýs-
ingum um bækur, tímarit og önnur
aðföng sem nýtast í námi, leik og
starfi. Kerfið þjónar skólum, al-
menningsbókasöfnum og sérfræði-
söfnum og verður það aðgengilegt
almenningi á Netinu þegar það
verður komið í fulla notkun. Mun
það hafa mikið hagræði í för með
sér fyrir notendur sem geta skoða
bókakost flestra bókasafna landsins
á einum stað í vefskoðara.
Hugbúnaðurinn sem notaður er
getur hýst upplýsingar um tvær
milljónir titla og fimm milljonir ein-
taka af bókum og tímaritum auk
þess að halda utan um allt að fimm
milljónir útlána á ári. Gert er ráð
fyrir að flest bókasöfn landsins
muni nýta sér þjónustu landskerf-
isins þegar fram líða stundir, enda
mun það leiða til verulegs vinnu-
sparnaðar og bættrar þjónustu.
Anza hýsir miðlægt landskerfi bókasafna á Akureyri
Upplýsingar um bókakost
aðgengilegar á Netinu
Morgunblaðið/Kristján
Skrifað undir samninginn í húsnæði Amtsbókasafnsins, f.v.: Páll Grét-
arsson, Tómas Ingi Olrich, Guðni B. Guðnason, Árni Sigurjónsson og
Kristján Þór Júlíusson. Gert er ráð fyrir að flest bókasöfn landsins muni
nýta sér þjónustu landskerfisins er fram líða stundir.
♦ ♦ ♦