Morgunblaðið - 22.06.2002, Síða 21
Morgunblaðið/Steinunn
Jónas Hallgrímsson og Helgi Arngrímsson. Fyrir hönd Ferðamálahóps
Borgarfjarðar eystri tók Helgi við frumkvöðlaverðlaununum.
AÐALFUNDUR Markaðsstofu
Austurlands var haldinn á Fosshót-
eli Reyðarfirði nýverið. Auk hefð-
bundinna aðalfundarstarfa voru
kynntar nýjustu breytingar á vefn-
um www.east.is, sem rekinn er af
Ferðamálasamtökum Austurlands.
Þá samþykkti fundurinn að í ljósi
breyttra aðstæðna, sem leitt geta af
sér mikla fjölgun ferðamanna á
svæðinu, beiti Markaðsstofan sér
fyrir endurskoðun á skipulagi
ferðamála á Austurlandi. Þannig
verði endurskoðuð tengslin við
Ferðamálasamtök Austurlands og
Þróunarstofu, með það að markmiði
að starf Markaðsstofunnar verði ár-
angursríkara. Stjórn Markaðsstof-
unnar var endurkjörin en stjórn-
arformaður er Jónas Hallgrímsson
á Seyðisfirði.
Á fundinum kom fram að starf-
semi Markaðsstofunnar hefur verið
öflug og á síðasta starfsári voru t.d.
haldnir 13 fundir í framkvæmdaráði
þar sem tekið var á ýmsum málum.
Bátamálin svokölluðu brunnu þar
heitast á mönnum og kom fram að
stjórn Markaðsstofunnar hafði mik-
ið beitt sér til að stuðla að áfram-
haldandi siglingum með ferðamenn
á Austurlandi, hvort sem er á sjó,
vatni eða ám. Það væri þó ljóst að
mikið og margt þyrfti að koma til
svo rekstrarumhverfi siglinganna
batnaði.
Frumkvöðlaverðlaun veitt
Jóhanna Gísladóttir fram-
kvæmdastjóri MA rakti fjölmörg
verkefni sem Markaðsstofan vann
að á síðasta ári og sagði frá mik-
ilvægum haustfundi um kynning-
armál á Breiðdalsvík og árangurs-
ríku málþingi um gönguleiðir á
Borgarfirði. Þá kom fram í máli
hennar að á sl. ári komu um 50
manns frá innlendum og erlendum
ferðaskrifstofum í kynnisferðir til
Austurlands á vegum Markaðsstof-
unnar, með stuðningi Flugfélags Ís-
lands og tuga ferðaþjónustufyrir-
tækja á Austurlandi.
Á fundinum voru frumkvöðla-
verðlaun Markaðsstofunnar veitt í
þriðja sinn. Að þessu sinni fóru
verðlaunin til Ferðamálahóps
Borgafjarðar eystri og veitti Helgi
M. Arngrímsson formaður hópsins
þeim viðtöku. Ferðamálahópurinn
var stofnaður árið 1996 og hefur
síðan unnið ótrúlega öflugt starf við
uppbyggingu gönguleiða á svæðinu
umhverfis Borgarfjörð og útgáfu
kortsins Gönguleiðir á Víknaslóð-
um. Nú er sú vinna farin að skila
þeim árangri að ferðamenn koma í
stórum stíl inn á svæðið og skilja
þar eftir umtalsverða fjármuni. Í
fyrra komu á annað þúsund manns
til Borgarfjarðar í skipulagðar
gönguferðir.
Þetta hefur verið Markaðsstof-
unni hvatning til að kynna Austur-
land sem paradís göngumannsins
og í farvatninu er frekari kynning á
Austurlandi sem gönguleiðasvæði.
Endurskoða á skipulag
ferðamála á Austurlandi
Egilsstaðir
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2002 21
KENNARAR og starfsfólk grunn-
skólanna í Borgarbyggð sátu fyrsta
hluta námskeiðs um sjálfsmat skóla
í Þinghamri á Varmalandi fyrir
skemmstu. Það voru þeir Ingvar
Sigurgeirsson og Ólafur Helgi Jó-
hannsson frá Kennaraháskóla Ís-
lands sem sáu um námskeiðið.
Þeir byrjuðu á að kynna þær
hugmyndir sem liggja að baki
sjálfsmati skóla og hvað sjálfsmats-
hugtakið þýðir. Síðan var fjallað
um formlegar forsendur sjálfsmats,
rætt um sjálfsmatsaðferðir og
álitamál um námsmat.
Í lögum um grunnskóla nr. 66
frá 1995 segir að sérhver grunn-
skóli skuli innleiða aðferðir til að
meta skólastarfið, þar á meðal
kennslu- og stjórnunarhætti, sam-
skipti innan skólans og tengsl við
aðila utan skólans. Að frumkvæði
menntamálaráðuneytisins er síðan
gerð úttekt á sjálfsmatsaðferðum
skóla.
Skólarnir í Borgarbyggð fengu
úthlutað styrk að upphæð 235 þús-
und kr. frá Endurmenntunarsjóði
grunnskóla til þess að fara af stað
með sjálfsmat skóla. Styrkurinn
verður notaður til þess að greiða
fyrir utanaðkomandi aðstoð við að
koma þessum verkefnum áfram, og
í ágúst er fyrirhugað þriggja daga
samfellt áframhaldandi námskeið
um sjálfsmat.
Sjálfsmat skóla á
vornámskeiði á
Varmalandi
Borgarnes
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Áhugasamir kennarar og starfsfólk skóla á námskeiði.
SJÁ EINNIG LANDIÐ BLS 54
ÓVENJULEGT brúðkaup átti sér
stað er sr. Sighvatur Karlsson,
sóknarprestur á Húsavík, gaf sam-
an breskt par á þilfari skonnort-
unnar Hauks á Skjálfandaflóa á
dögunum. Um sönginn sá kór höfr-
unga sem léku sér í kringum skonn-
ortuna meðan athöfnin fór fram.
Þau sem gefin voru saman komu
frá Englandi til Húsavíkur í tilefni
opnunar Hvalasafnsins, en þau
heita Richard Charles Sabin og
Clarie Alexandra Valentine. Rich-
ard Sabin er yfirmaður spen-
dýradeildar breska náttúru-
fræðisafnsins í London og hefur
komið hingað áður og starfað þá
með Ásbirni Björgvinssyni hjá
Hvalasafninu.
Séra Sighvatur hafði á orði þeg-
ar hann var stiginn á land aftur að
þetta hefði verið mjög skemmtileg
athöfn og þarna væri kannski kom-
inn nýr valkostur í þeirri öflugu
ferðaþjónustu sem rekin væri á
Húsavík í dag.
Ljósmynd/Páll Stefánsson
Höfrungahópur lék undir
við óvenjulegt brúðkaup
Húsavík
Verk-
fræðistof-
an Hnit
opnar
útibú
Ólafsfjörður
VERKFRÆÐISTOFAN Hnit
mun á næstunni opna útibú í
Ólafsfirði, og mun einn starfs-
maður verða þar til að byrja
með. Með starfsstöð sinni
mun verkfræðistofan Hnit
veita viðskiptavinum sínum í
Ólafsfirði verkfræðiráðgjöf á
sviði mannvirkjahönnunar,
verkefnastjórnunar og verk-
eftirlits, kortagerðar og mæl-
inga, landupplýsingatækni og
hugbúnaðargerðar. Starfs-
stöðin verður búin öllum
nauðsynlegum tölvu- og
tækjabúnaði.
Þegar hefur verið samið við
bæinn um uppbyggingu
gagnagrunns fyrir Ólafsfjarð-
arbæ, sérstaklega með lagna-
kerfi bæjarins í huga.
Kerfið verður byggt ofan á
grunn- og myndkort sem unn-
in eru eftir loftmyndum
Hnits, teknum úr 1500 og
4000 metra hæð sumarið
2001. Gögnin munu verða að-
gengileg stjórnendum og að
hluta til almenningi í gegnum
Netið. Fyrstu áfangar kerf-
isins felast í að skrá allar
vatns-, hita- og frárennslis-
lagnir bæjarins á stafrænt
form. Þar með fást upplýs-
ingar um legu allra lagna í
bæjarfélaginu ásamt m.a.
upplýsingum um aldur þeirra
og efnisgerð. Hús verða einn-
ig tengd við heimilisföng og
þar með er hægt að tengja
þau t.d. við gögn fasteigna-
mats, byggingarfulltrúa og
Hagstofu.