Morgunblaðið - 22.06.2002, Qupperneq 27
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2002 27
50+10 lítra, þrír litir
í Skútuvogi
Tvíbreið vindsæng 3.595 kr.
Bakpoki 8.995 kr.
Tilboð í verslun
Skútuvogi 16,
í dag laugardag.
Opið10-16
137x191x13 cm
Verð áður: 5.800 kr.
Sumartilboð
16 hlutir í boxi
Útilegubox 2.290 kr.
Einkaumboð
Fæst í
öllum helstu sport-
og veiðivöruverslunum
landsins
og Bensínstöðvum Esso
um land allt
10
63
B
/
T
A
K
T
ÍK
1
9.
6´
02
Nælon lína
Stangveiðisett
hannað fyrir íslenskar
aðstæður
Flugubox
Dropasökkur
Klippur
IG-síld
STJÓRNARANDSTAÐAN í Perú
krafðist þess í gær að ríkisstjórn
landsins segði af sér eftir að hún
ákvað að fresta umdeildri sölu
tveggja raforkufyrirækja í suður-
hluta landsins sem seld voru belgísku
fyrirtæki á uppboði fyrir viku. And-
stæðingar einkavæðingar í Perú boð-
uðu til verkfalls í sólarhring á mið-
vikudag til að mótmæla sölunni á
raforkufyrirtækjunum tveimur og að-
gerðirnar urðu til þess að Alejandro
Toledo, forseti Perú, ákvað að fresta
sölunni. Innanríkisráðherra Perú
sagði af sér í kjölfar ákvörðunar rík-
isstjórnarinnar, sem var tekin að
loknum 12 tíma fundi með leiðtogum
mótmælenda.
Hefur ríkisstjórnin ákveðið að bíða
eftir úrskurði dómara um lögmæti
sölunnar til belgíska fyrirtækisins
Tractebel, en andstæðingar hennar
segja raforkufyrirtækin eign lands-
svæðisins sem þau eru á og vilja að
gengið verði til kosninga um söluna.
Með sölunni þótti Toledo hafa svikið
loforð sitt frá því í kosningunum í
fyrra um að þau yrðu ekki seld.
Lourdes Flowers, leiðtogi banda-
lags hægriflokka, sem eru í stjórnar-
andstöðu, sagði að kúvending stjórn-
arinnar sýndi að hún væri ekki fær
um að stjórna landinu og krafðist
þess að hún segði af sér. „Deilan
snýst ekki um einkavæðingu eða
minni miðstýringu, heldur um getu
ráðamannanna til að stjórna.“
Óeirðir í suðurhluta
Perú og víðar
Eftir að tilkynnt var um söluna á
raforkufyrirtækjunum fyrir viku
blossuðu upp óeirðir og breiddust
þær út um mestan hluta Suður-Perú,
en fyrirtækin eru í borgunum Are-
quipa og Tacna. Óeirðirnar náðu að
landamærum Chile í suðri en einnig í
norðurátt til höfuðborgarinnar Lima.
Toledo lýsti yfir 30 daga neyðar-
ástandi og setti á herstjórn í Arequipa
og var útgöngubann sett á yfir nóttina
í borginni. Mótmælendur ögruðu því
banni með því að berja í tóma potta og
hrópa vígorð gegn ríkisstjórninni.
Einn mótmælandi lést af völdum
táragass í uppþotum á laugardag í
síðustu viku og yfir 100 manns slös-
uðust meðan á götumótmælum stóð í
borginni. Í ofanálag boðuðu vöru-
flutningabílstjórar um land allt til
tveggja sólarhringa verkfalls til að
mótmæla áformum ríkisstjórnarinn-
ar um breytingar á tryggingalöggjöf
vörubílstjóra.
Í samkomulaginu sem náðist milli
stjórnvalda og mótmælenda á mið-
vikudag er kveðið á um að neyðar-
ástandi verði aflétt innan tveggja sól-
arhringa og hvetja báðir aðilar
borgara til að stöðva strax öll ofbeld-
isverk.
Toledo gaf út opinbera yfirlýsingu
þar sem hann baðst afsökunar á því
að hafa ekki útskýrt á fullnægjandi
hátt einkavæðingarstefnu stjórnar
sinnar.
Toledo hefur átt í vök að verjast í
forsetaembættinu að undanförnu.
Hann var kjörinn forseti Perú fyrir
rúmu ári og hlaut þá tæp 53% at-
kvæða í síðari umferð forsetakosning-
anna. Var kjöri hans lýst sem sigri
lýðræðisins eftir tíu ára valdatíma Al-
bertos Fujimoris sem tók sér nánast
alræðisvöld í landinu.
Síðan Toledo var settur í embætti
hafa vinsældir hans hins vegar
snarminnkað og nýjustu kannanir
sem gerðar voru í Lima áður en óeirð-
irnar hófust gáfu til kynna að fylgi
hans meðal höfuðborgarbúa væri 30%
og þaðan af minna. Ákvörðunin um
frestun á sölu raforkufyrirtækjanna
gæti orðið til þess að erlendir fjár-
festar hugsuðu sig tvisvar um áður en
þeir legðu út í fjárfestingar í Perú.
Mótmæli gegn einkavæðingarstefnu stjórnvalda í Perú
Hægrimenn krefjast
afsagnar stjórnarinnar
Lima, Arequipa. AFP, AP.
STAÐFEST var í gær að 111
menn hefðu farist í slysi í kola-
námu í Norðaustur-Kína og
var þá enn fjögurra manna
saknað. Lokuðust flestir
mannanna inni er gasspreng-
ing varð í námunni á fimmtu-
dag en ástand öryggismála í
kínverskum námum þykir öm-
urlegt. Í Kína farast um 10.000
námamenn árlega samkvæmt
opinberum tölum en þeir eru
taldir vera miklu fleiri. Fyrir
tæpu ári flæddi inn í tinnámu í
Guangxi-héraði og í heila viku
var því haldið fram, að einn
maður hefði farist. Síðan var
birt talan 70 en fjölmiðlar
segja að um 200 manns hafi
látið lífið.
Klögumálin
ganga á víxl
RAUF Denktash, leiðtogi
Kýpur-Tyrkja, kveðst enga
ábyrgð bera ef viðræður um
sameiningu
Kýpur í eitt
ríki fara út
um þúfur.
Sakaði hann
Glafcos
Clerides,
forseta
Kýpur-
Grikkja, um
að reyna að
spilla við-
ræðunum. Clerides svaraði og
sagði að ekki þyrfti að kenna
Denktash klækina. Hefði hann
hingað til verið einfær um að
eyðileggja viðræður milli þjóð-
arbrotanna á eyjunni. Líklegt
er að Kýpur-Grikkir fái aðild
að Evrópusambandinu 2004
hvort sem þá verður um að
ræða eitt ríki eða tvö á Kýpur.
Hefur það rekið á eftir viðræð-
unum og var stefnt að sam-
komulagi fyrir júnílok. Á því
eru nú litlar líkur.
Abu Sayyaf-
foringi
felldur
ABU Sabaya, einn af foringj-
um Abu Sayyaf, skæruliða-
hreyfingar múslima á Filipps-
eyjum, féll í átökum við
filippeyska sjóliða í gær. Kom
filippeyskt herskip að báti með
honum og nokkrum manna
hans við strönd Mindanao-eyj-
ar og var bátnum sökkt eftir
nokkur vopnaviðskipti. Segja
hermennirnir að Sabaya hafi
fallið í sjóinn er hann var skot-
inn en lík hans hafði þó ekki
fundist í gær.
Vandlifað
í Bangladesh
FORSETI Bangladesh, Badr-
uddoza Chowdhury, sagði af
sér í gær að kröfu stjórnar-
flokksins í landinu. Var hann
sakaður um að hafa sýnt stofn-
anda flokksins óvirðingu með
því að vera ekki viðstaddur at-
höfn við grafreit hans. Sonur
forsetans sagði í gær, að um
hefði verið að ræða athöfn á
vegum stjórnarflokksins, eins
flokks af mörgum í landinu, og
því forsetaembættinu óviðkom-
andi.
STUTT
Yfir 100
náma-
menn
fórust
Denktash