Morgunblaðið - 22.06.2002, Side 41
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2002 41
Sterkar kalk + D-vítamín
Styrkir bein og tennur
400 mg af kalki töflur til að gleypa.
Nýtt frá Biomega
Fæst í apótekum
Rafmagnssláttuvél
1100W rafmótor
27 ltr grashirðupoki
Silent 33
tilbo›: 16.900
Silent 45 Combi
Bensínsláttuvél
4 hestafla B&S mótor
55 ltr grashirðupoki
tilbo›: 44.900
Euro 45
tilbo›: 32.900
Bensínsláttuvél
4 hestöfl B&S mótor
55 ltr grashirðupoki
Garden Combi
tilbo›: 215.000
Bensínsláttuvél 12,5 hestöfl B&S mótor
170 ltr grashirðupoki fáanlegur
Estate President
tilbo›: 354.000
Bensínsláttuvél 13,5 hestöfl B&S mótor
250 ltr grashirðupoki
Park Comfort
tilbo›: 490.000
Bensínsláttuvél 15,5 hestöfl B&S mótor
Sláttubúnaður að framan
Vetrarsól • Askalind 4 • Kópavogi • Sími: 564 1864
Hágæða sláttuvélar
ÍSLENSK stjórn-
völd vilja að mannrétt-
indi víki fyrir viðskipt-
um, ofstæki stjórn-
valda er notað til þess
að verða við þessum
kröfum. Nú hefur hinn
umdeildi svarti listi
lengst og lengist enn.
Íslensk nöfn eru kom-
in á hann eftir mót-
mælin. Aðferðir ís-
lenskra stjórnvalda
sögðu menn að væru
til þess að tryggja ör-
yggi kommúnistaleið-
togans, en ekki til að
koma í veg fyrir mót-
mæli. Alls staðar fékk
lögreglan að vernda kommúnista-
áróðurinn og varð við öllum kröfum
starfsmanna kínverska sendiráðs-
ins, aðrir urðu að víkja af staðnum
fyrir þeim og horfa á áróðurinn án
þess að fá nokkuð að gert fyrir utan
hina merkilegu gulu línu.
Það hefði ekki komið neinum á
óvart að sjá allt lögregluliðið í kín-
verskum lögreglubúningum alls
staðar þar sem Jiang Zemin var og
hún hagaði sér að öllu jöfnu í sam-
ræmi við það. Menn spurðu lögregl-
una ákaft hvort hún væri orðin al-
veg heilaþvegin af þessum komm-
únistaáróðri. Menn höfðu það á orði
að við værum núna með kínversk
lög og stefnuskrá sem íslenska lög-
reglan varð að framfylgja í einu og
öllu og þjóna þannig bæði kín-
verska áróðursliðinu og sendi-
ráðinu hér í hvívetna. Gúlagið í
Njarðvík og áróðurssetrið í Leifs-
stöð var eitt af mörgum vopnum
sem beitt var því eins og Davíð
sagði „að það þurfti að hafa aga á
herbúðum“.
Ef við gefum okkur það að aðrir
þjóðarleiðtogar kæmu hingað eins
og t.d. Gaddafhi eða Kim Jong Il og
sendu sína svörtu lista myndu þá ís-
lensk stjórnvöld hegða sér eins, og
stöðva menn erlendis og hafa uppi
strangt eftirlit og nota Gúlag eins
og gert var í þessari heimsókn?
Eftirlitið var mikið hjá kínverska
sendiráðinu og menn ljósmyndaðir,
hundeltir á bílum því það þurfti að
finna menn og koma þeim á svarta
listann sem allra allra fyrst.
Þannig var þetta á Geysissvæð-
inu þar sem ég sagði við ljósmynd-
ara frá kínverska sendiráðinu að ég
væri fyrir löngu kominn á svarta
listann og filman þeirra hlyti að
vera búin. Eftir það settist ég niður
við hliðina á eldri konu sem spurði á
ensku hvað gengi á, en ég sagði
konunni að Stóri meistarinn og
stríðsherrann Jiang Zemin væri á
leiðinni. Við það var tekin mynd af
mér og ókunnu konunni og manni
hennar. Sagði ég henni þá að nú
væri þau komin á svarta listann.
Síðan kom eitthvað sem líktist
stórum svörtum smalahundum og
smalaði okkur út af svæðinu. Vinur
minn Mike Chen var síðan handtek-
inn og hafður í haldi í meira en
klukkustund. Ekki talaði lögreglan
við Mike hvað þá leitaði að vopnum
á honum. Allt var
þetta gert án dóms og
laga.
Eftir þetta mætti
okkur rauða áróðurs-
maskínan með sinn há-
vaða og óþægilega
bumbuslátt. Síðan
horfði Jiang Zemin og
fylgdarlið hans á okk-
ur eins og við værum
geimverur. En bak við
tjöldin hafði kínverska
sendiráðið stöðugar
ábendingar í frammi
sem íslenska lögreglan
hlýddi án þess að
spyrja, rétt eins og í
öðrum kommúnista-
ríkjum. Að vísu eru til dæmi um
undantekningar þar sem kurteisar
lögreglur sýndu mönnum virðingu.
Auðvitað vilja íslensk stjórnvöld
ekkert kannast við svarta listann
eða segja okkur nákvæmlega hvað-
an hann er kominn. Eru þeir ekki
með þessu sem hér er nefnt beinlín-
is að taka þátt í og styðja að menn
séu ofsóttir og að mótmæli séu ekki
leyfð eins og í Kína? Yfir 1.600
pyntuð til dauða, 100 þúsundum
varpað í fangelsi, yfir 25 þúsundir
sendar í vinnubúðir, og 1.000 settir
á geðveikrahæli. Yfir 200 kaþólskir
prestar eru í fangelsum, kirkjur og
Biblíur brenndar, nema sú biblía
sem kínversk stjórnvöld viður-
kenna og er ekkert í samræmi við
þá Biblíu sem við þekkjum. Eins er
það með önnur trúarbrögð, eins og
t.d. buddista, en þeir sem stunda
þau fræði eru fangelsaðir og stöð-
ugt er verið að handtaka fólk með
trúarrit þar á meðal Biblíu smygl-
ara og þeir settir í fangelsi án dóms
og laga.
Samkvæmt skýrslu Amnesty Int-
ernational 5. mars 2002 – fyrirskip-
un frá Jiang Zemin „drepið Falun
Gong-iðkendur án miskunnar“.
Þetta hefur leitt til þess að yfir
fimm þúsund manns hafa horfið og
yfir hundrað látist síðustu tvær vik-
ur.
Á CNN var tilvitnun í Jiang
Zemin: „Notið öll tiltæk ráð til að
útrýma Falun Gong-hreyfingunni
að öðrum kosti verður hún stór-
kostlegur veikleiki fyrir kommún-
istaflokkinn.“
Yfirlýsing af 53. fundi UN þar
sem tilkynnt er um mannréttinda-
brot: „Ríkisstjórnin (kínverska), í
stöðu sinni til að svara ógn, leitaðist
við að réttlæta skipulagða herferð
sína gegn Falun Gong með því að
uppnefna þau „evil cult“ sem veldi
dauðsföllum og sundrungu fjöl-
skyldna. Samkvæmt okkar rann-
sókn hins vegar hafa einu dauðs-
föllin verið af völdum kínverskra
stjórnvalda sjálfra.“
Frá Mannréttindasamtökunum
Human Right Watch: „Melimir
Falun Gong eru friðsamir og lög-
hlýðnir borgarar og það fyrirfinn-
ast alls engar réttlætingar á þeim
ofsóknum sem þetta fólk hefur mátt
þola. Sú fullyrðing að kínverskum
stöðugleika standi ógn af Falun
Gong stenst einfaldlega ekki. Einn-
ig sú fullyrðing að það að aðhyllast
Falun Gong sé ógn við heilsu
manna er jafn röng. Hin raunveru-
lega ógnun við heilsu Falun Gong-
iðkenda er þegar lögregla og fanga-
verðir leggja hendur á þá,“ segir
Sidney Jones, yfirmaður hinnar as-
ísku mannréttindadeildar.
Í The New York Times 6. des
1999 segir: Clinton þáverandi
Bandaríkjaforseti gagnrýndi harð-
lega alla aðför að Falun Gong og
sagði að hún væri byggð á staðlaus-
um forsendum. Hann kallaði þetta
ógnvekjandi dæmi er ríkisstjórn
réðist gegn þeim „sem þreyttu bar-
áttu frelsis“. Hann sagði að stefna
Falon Gong væri ekki pólitísk og
kenningar þeirra og iðkun væri
okkur framandi. „En stefnan ætti
engu að síður ætíð að vera sú sama,
frelsi og réttur væru þau grunnat-
riði sem máli skiptu.“
Mönnum er bannað að vera með
mótmæli í sínu heimalandi og næst-
um því alveg hérna á Íslandi. Menn
hér heima þykjast hafa talað við
Jiang Zemin um mannréttindi og að
sjálfsögðu trúir því ekki nokkur
maður þar sem ekkert er sagt nán-
ar frá því. Við könnumst öll við
þennan sýndarleik. Auðvitað mun
Davíð Oddsson ekki tala við frið-
sama mótmælendur Falun Gong
þar sem hann er svona hliðhollur Ji-
ang Zemin. Því maðurinn er bara í
því að réttlæta gerðir íslenskra
stjórnvalda með frekar lélegum og
barnalegum skýringum.
Opið bréf til ís-
lenskra ráðamanna
Þorsteinn Sch.
Thorsteinsson
Mótmæli
Menn spurðu lögregl-
una ákaft, segir Þor-
steinn Sch. Thor-
steinsson, hvort hún
væri orðin alveg heila-
þvegin af þessum
kommúnistaáróðri.
Höfundur er formaður samstarfs-
nefndar trúfélaga fyrir heimsfriði.
S
U
N
D
F
Ö
T
undirfataverslun
Síðumúla 3-5