Morgunblaðið - 22.06.2002, Qupperneq 44
MINNINGAR
44 LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Þorstína MaríaÁrnadóttir fædd-
ist í Holti í Vestur-
Aðalvík 3. des. 1922.
Hún andaðist á
Hrafnistu í Hafnar-
firði 16. júní síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru Árni
Finnbogason, f. 14.
okt. 1889. d. 16. marz
1933, og Hallfríður
Ingveldur Guðna-
dóttir, f. 15. maí
1893, d. 16. des 1981.
María var fjórða í
röðinni af sjö systk-
inum, en þau eru: 1) Sigrún, f. 15.
nóv. 1914, maki Oddur Oddson
lögregluþjónn á Ísafirði, nú látinn
2) Kristín, f. 3 maí 1917, látin, eft-
irlifandi maki er Grímur Sam-
úelsson smiður á Ísafirði. 3) Finn-
ey Rakel, f. 8. jan 1919, maki Guðni
Ólafsson bifreiðastjóri og verslun-
armaður í Súgandafirði, nú búsett
í Hafnarfirði. 5) Rannveig, f. 1.
des. 1925, maki Bragi Halldórsson,
búsett í Reykjavík. 6) Margrét, f.
15. sept. 1929, maki Sigurbjörn
Bjarnason, búsett í Hafnarfirði,
þau eiga þrjú börn og fimm barna-
börn. 3) Magnús Theodór, f. 14.
maí 1949, maki Kristbjörg Magna-
dóttir, búsett á Akureyri, þau eiga
þrjú börn og þrjú barnabörn. 4)
Árni Ingvi, f. 4. maí 1951, maki
Elsa Jónsdóttir, búsett á Selfossi,
þau eiga tvær dætur og tvö barna-
börn. 5) Bjarni Sveinn, f. 2. ág.
1960, maki Gunnhildur Hreins-
dóttir, búsett í Kópavogi, þau eiga
þrjá syni.
María og Benedikt Vagn bjuggu
á Flateyri, fyrst að Brimnesvegi 16
til 1960 er þau fluttu að Grund-
arstíg 4. Á jóladag 1982 varð
Benedikt Vagn bráðkvaddur, að-
eins 58 ára að aldri. María flutti þá
að Hjallavegi 8 og bjó þar til 1992
að hún flutti á dvalarheimilið Hlíf
á Ísafirði. Árið 1996 flutti hún sig
svo til Hafnarfjarðar, fyrst að Sól-
vangsvegi 3 en síðustu 3 árin bjó
hún á Hrafnistu í Hafnarfirði.
María var félagslynd og tók virkan
þátt í starfi kvenfélagsins Brynju á
Flateyri, starfaði í mörg ár með
kirkjukór Flateyrarkirkju, vann í
verslun og brauðgerð, við fisk-
vinnu, en síðustu ár hennar á Flat-
eyri vann hún í mötuneyti Hjálms
hf.
Útför Maríu fer fram frá Flat-
eyrarkirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 14.
Sigurðsson, látinn, bú-
sett á Blönduósi. 7)
Herbert, fv. lögreglu-
þjónn í Keflavík, f. 27.
des. 1930, maki Birna
Sófaníasdóttir, búsett
í Keflavík. María ólst
upp hjá foreldrum sín-
um til 4 ára aldurs en
var þá sett í fóstur til
móðursystur sinnar
Halldóru Vigdísar og
manns hennar Jóns
Þorkelssonar í
Stakkadal í Aðalvík,
en Jón lést ári eftir að
María kom til þeirra
og ólst hún upp hjá Halldóru Vig-
dísi og sonum hennar til ung-
lingsára. Hinn 30. sept. 1945 giftist
María Benedikt Vagni Gunnars-
syni skipstjóra og útgerðarmanni
á Flateyri, f. 15. júlí 1924, d. 25.
des. 1982. Börn þeirra eru: 1)
Gunnar Ásgeir, f. 29. júní 1944,
maki Hafdís Magnúsdóttir, búsett í
Þorlákshöfn. Með Jónu Guð-
mundsdóttir á Gunnar þrjú börn
og þrjú barnabörn. 2) Alda Snædís,
f. 13. apríl 1946, maki Sveinn
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
(Þórunn Sig.)
Hvíl í friði, elsku mamma, takk
fyrir allt og allt.
Þín dóttir,
Alda.
Tengdamóðir mín, María Árna-
dóttir, andaðist á hjúkrunardeild
Hrafnistu í Hafnarfirði 16. júní sl.
Lokið var löngu og ströngu stríði
við sjúkdóm svo illskeyttan og
óvæginn sem hægt og bítandi
braut niður þrek hennar og vilja.
Síðastliðin þrjú ár voru henni og
ástvinum hennar mjög erfið, ekk-
ert var hægt að gera til að stöðva
hina hægfara hnignun sem að lok-
um vann sigur. Ég viðurkenni það
fúslega að oft fann ég til reiði í
garð lífslögmálsins vegna vanmátt-
ar míns gagnvart veikindum henn-
ar og að geta ekkert gert henni til
hjálpar, og ég skil ekki í dag hver
tilgangurinn er, né hvaða lærdóm
við ástvinir hennar eigum að draga
af baráttu hennar, þó svo að ég sé
þess fullviss að hinn hæsti höf-
uðsmiður muni í fyllingu tímans
veita mér þau svör sem ég leita.
Kynni mín af Maríu hófust í maí
1970 þegar ég kom í fyrsta sinn
sem tilvonandi tengdasonur á
heimili hennar og manns hennar
Benedikts Vagns Gunnarssonar,
skipstjóra og útgerðarmanns, á
Grundarstíg 4 á Flateyri. Synir
þeirra tveir þeir elstu höfðu fyrir
þá heimsókn mína lagt mér regl-
urnar um hvað ég mætti segja,
gera og hvernig ég ætti að haga
mér í návist móður þeirra. Átti ég
af þeim sökum von á því að hitta
fyrir hið mesta hex og var því tölu-
verður beygur í mér. Það kom
fljótt í ljós að ótti minn var
ástæðulaus, ég hafði einungis fallið
á bragði þeirra bræðra. Maja og
Benni tóku mér strax sem einum
úr fjölskyldunni og átti ég í þeim
góða félaga og sanna vini öll þau
ár sem samferð okkar stóð.
En hvernig manneskja var
tengdamóðir mín? María var fædd
í Aðalvík og sett í fóstur aðeins
fjögurra ára, hún mótaðist af þeim
aðstæðum sem hún ólst upp við, og
bar með sér heimaland uppvaxtar
og þroskaára frá Aðalvík þar sem
lífsbaráttan gat verið hörð og nátt-
úruöflin ekki alltaf ábúendum hlið-
holl, með sína löngu dimmu vetr-
armánuði og stuttu og votviðra-
sömu sumur. Samskipti okkar voru
alltaf ánæguleg og áttum við oft
saman stundir þar sem við gátum
hlegið að vitleysunni hvort í öðru,
og kannski var það einmitt þessi
þáttur, húmorinn, í skapgerð okk-
ar beggja sem gerði það að verk-
um að við náðum vel saman og
gátum alla tíð talað saman, hvort
heldur sem um var að ræða per-
sónuleg málefni eða brauðstrit
hins daglega lífs eins og það birtist
okkur á hverjum tíma. En tengda-
móðir mín var ekki allra, hún gat
verið mjög dómhörð á menn og
málefni og lá ekkert á skoðun sinni
ef svo bar við, skipti þá ekki máli
hvort um var að ræða fjöl-
skyldumeðlimi og vini eða ein-
hvern bráðókunnan, og ef hún
hafði bitið eitthvað í sig voru
möguleikarnir á því að fá hana til
að skipta um skoðun álíka miklir
og að reyna að flytja fjöllin úr
stað. Hún var félagslynd og hafði
mjög gaman af söng og tónlist,
starfaði lengi með kirkjukór Flat-
eyrarkirkju og í kvenfélaginu
Brynju, og er mér minnisstætt
hversu undrandi ég var á því hvað
hún hafði mikið að gera í heim-
sóknum og félagsstarfi á ekki
stærri stað en Flateyri. Hún var
mikil húsmóðir og bar heimili
hennar þess glöggt vitni. Allt var
hreint og fágað, hver hlutur á sín-
um stað og alltaf nóg til að bíta og
brenna. Er mér ekki grunlaust um
að þessi ríka þörf hennar til að
skapa eiginmanni sínum og börnum
athvarf sem best var á kosið hafi
verið sprottin úr brunni minninga
æskuáranna og aðstæðna á uppeld-
isárum hennar í Aðalvík og eins
þeim árum þegar Benedikt var
langtímum fjarri heimili vegna
vinnu sinnar sem sjómaður og
skipstjóri.
Á þeim tíma sem ég kynntist
þeim voru þau hjón komin fyrir
vind, eins og sagt er, börnin flest
búin að festa ráð sitt nema það
yngsta, Bjarni Sveinn. Fram undan
voru tímar þar sem meiri tími gæf-
ist til þess að ferðast, heimsækja
vini og njóta lífsins. En almættið
hafði önnur áform, höggið kom og
það var þungt. Á jóladag 1982 varð
Benedikt bráðkvaddur á heimili
sínu, aðeins 58 ára að aldri. Við
þessi straumhvörf urðu miklar
breytingar í lífi tengdamóður minn-
ar, kom hún þó oftar hingað suður
og naut nálægðar barna og vina.
Hún bjó tvo ef ekki þrjá vetur hjá
sinni góðu vinkonu Pálmeyju
(Pöllu) í Kópavoginum, og ferðuð-
ust þær þónokkuð saman erlendis
ásamt fleiri vinum. Um 1991 var
hún ein eftir á Flateyri. Flutti hún
þá að Hlíf á Ísafirði þar sem hún
bjó þar til hún kom alfarin hingað
suður og bjó í þjónustuíbúð aldr-
aðra á Sólvangsvegi 3 í Hafnarfirði.
Víst er að sjúkdómur sá er hafði
sigur að lokum var farinn að angra
hana áður en hún kom hingað suð-
ur, en ekki fór að bera á alvar-
legum afleiðingum hans fyrr en
tæpu ári eftir að hún kom. Lífið er
einkennilegt, það fer oft í hringi. Í
hennar tilfelli var barátta í upphafi
og enda. Við leiðarlok okkar sam-
ferðar í þessari tilveru vil ég þakka
þér, tengdamóðir mín, fyrir allt og
allt, vertu sæl uns við sjáumst aft-
ur. Börnum þínum, barnabörnum
og öðrum ástvinum sendi ég mínar
dýpstu samúðarkveðjur.
Margur villtur sporlaus spyr
er speki Drottins vís,
að bakvið læstar dauðans dyr
dagur aftur rís?
Í von og trú ég fögnuð fann
sem friðar kramið hjarta,
því Guðs á vegi gengur hann
gegnum myrkrið svarta.
(P. Þ.)
Þinn tengdasonur,
Sveinn Bjarnason.
Hún elsku amma mín er dáin,
eftir erfið veikindi. Eftir situr í
huganum minning um yndislega
konu. Það var alltaf gott að koma
til hennar ömmu á Flateyri. Þegar
afi dó var ég mörgum stundum hjá
henni ömmu, gisti hjá henni á vet-
urna, og áttum við margar ynd-
islegar stundir saman sem aldrei
úr minningunni verða teknar.
Ég er alveg viss um það, elsku
amma mín, að hann afi tekur bros-
andi á móti þér. Elsku amma mín,
megi guð geyma þig og varðveita
þig, takk fyrir allar yndislegu
stundirnar.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfin úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
María Árnadóttir.
Elsku Mæja amma er látin og
farin til Benna afa. Minningar mín-
ar um ömmu eru ljúfar og þær
stundir sem við áttum saman á
mínum yngri árum hverfa aldrei.
Amma missti Benna afa, maka
sinn, fyrir um 20 árum og reyndist
það okkur öllum erfitt. En nú eru
þau saman á ný og vaka yfir okkur.
Mæja amma var alltaf mjög dug-
leg, iðjusöm og vel til höfð. Ég man
eftir því þegar að hún vann í mötu-
neyti Hjálms hf. á Flateyri, með
Steina, hvað var gott að koma
þangað. Amma vildi að ég kæmi í
kaffitímanum og fengi mér smurt
brauð og kökur svo ég yrði örugg-
lega ekki svöng. Hún amma tók
alltaf vel á móti mér og það var svo
gott að koma til hennar og þá sér-
staklega fá að gista yfir nótt, sem
ég fékk oft að gera. Á kvöldin þeg-
ar krakkarnir á Flateyri voru úti í
leikjum fór ég stundum frekar til
ömmu að spila rommí og olsen. Við
spiluðum oft og skemmtum okkur
mjög vel og amma sat ekki á bakk-
elsinu.
Amma var orðin mikið veik og
barátta hennar var erfið. Síðustu
ár hafði heilsu hennar hrakað
mjög. Þrátt fyrir veikindin fylgdist
hún alltaf vel með öllum í kringum
sig. Þegar ég eignaðist dóttur mína
fylgdist hún með því og beið alltaf
eftir að pabbi segði henni nýjustu
fréttirnar af okkur. Ég á eftir að
sakna ömmu mikið en ég veit líka
að hún er hvíldinni fegin.
Elsku amma mín, ég bið engla
Guðs um að leiða þig til afa og ég
veit að endurfundirnir verða ljúfir.
Minningarnar um þig lifa að eilífu.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Hvíl í friði, elsku Mæja amma.
Anna Kristín Gunnarsdóttir.
MARÍA
ÁRNADÓTTIR
Kann ég ekki deili á
fólki hans, því kynntist
ég ekki. Hann átti
tvær systur, Selmu
sem er látin fyrir
nokkrum árum og
Ölmu sem býr í Reykjavík.
Hann fór í heimsókn til þeirra
svo lengi sem hann gat til Reykja-
víkur.
Þú áttir þína sjúkrasögu sem
versnaði með vetrinum. Mig langar
bara að pára þessar línur og þakka
þér liðlegheit í minn garð. Alltaf
var hann að bjóða mér að kaupa
eitthvað er hann fór í útréttingar,
en svo vil ég kalla það. Hann vann
með mikilli alúð fyrir Ás og vildi
öllum gott gera. Nú er ekki mitt að
ANDRÉS
ÁSMUNDSSON
✝ Andrés Ás-mundsson fædd-
ist í Reykjavík 11.
apríl 1924. Hann
andaðist á Landspít-
alanum við Hring-
braut 4. júní síðast-
liðinn og var útför
hans gerð frá Foss-
vogskapellu 12. júní.
segja um líf hans, ég
kynntist því lítið, en
ég vissi að hann var
barngóður og hafði
gaman af að hitta
krakkana þegar þeir
fóru í skólann. En þá
var hann frískur og
var í svokallaðri póst-
ferð niður í bæ. Nú ert
þú laus við þjáningar
og kominn í bjarta til-
veru sem við öll gerum
um síðir. En hér á Ási
veit ég að honum leið
vel enda búið vel að
fólki hér. Mig langar
bara að skrifa þessar fátæklegu lín-
ur og minnast góðs drengs. Við
þökkum öll fyrir að hafa kynnst
Andrési, hann var sérstaklega góð-
ur í umgengni á sinn hátt.
Votta ég fólki hans samúð mína.
Vaktu minn Jesú vaktu í mér,
vaka láttu mig eins í þér.
Sálin vaki þótt sofni líf
sé hún ætíð í þinni hlíf.
(Hallgr. Pét.)
Hólmfríður Thorlacius.
Allir fá einhvern
tímann að kenna á
erfiðleikum í lífinu,
stuttum eða löngum.
Hún Unna vinkona
mín fékk svo sannar-
lega að kenna á þeim.
Hún barðist mestalla ævi sína við
illvígan sjúkdóm eins og margir úr
hennar fjölskyldu og missti hún
ófáa úr þessum sjúkdómi.
Unna vorkenndi sér samt aldrei
og bar þessa byrði með meiri
djörfung en maður getur ímyndað
sér.
Hún varð þeirrar gæfu aðnjót-
andi að eignast góðan mann, Ólaf
Kristófersson, sem gerði mikið fyr-
ir hana og hjálpaði henni meira en
nokkurn grunar að ganga í gegn
UNNA SVANDÍS
ÁGÚSTSDÓTTIR
✝ Unna SvandísÁgústsdóttir
fæddist í Reykjavík
10. desember 1940.
Hún lést í Reykjavík
7. júní síðastliðinn og
fór útför hennar
fram frá Laugarnes-
kirkju 18. júní.
um þetta lífskeið.
Hann fór með hana til
margra landa og sýndi
henni margar af fal-
legustu perlum lífsins
sem er hægt að finna í
fjarlægum löndum og
Unna hefði sennilega
aldrei fengið að upp-
lifa ef Ólafur maður
hennar hefði ekki far-
ið með hana.
Mér er minnisstæð
ferð til suðurhluta
Englands sem við, ég
og börnin mín, fórum
með þeim og þá sáum
við staði, kastala, garða og margt
fleira fallegt sem mig hefði ekki
einu sinni dreymt um að væri til.
Ólafur maður hennar hefur átt í
miklum erfiðleikum með heilsu
sína, og sýndi Unna þá svo sann-
arlega að hún stóð með honum og
studdi hann á hvern þann hátt sem
hægt var.
Hún var börnum mínum afskap-
lega góð eins og Ólafur maður
hennar og tóku þau þeim sem kær
frændsystkinum, sem var þó ekki
og þótti þeim ákaflega vænt um
þau bæði.
Undanfarin ár hefur ekki verið
um samgang að ræða hjá okkur,
þar sem við fluttum í annað bæj-
arfélag og eins og gerist þá heldur
maður alltaf að maður hafi nógan
tíma til að hafa samband en svo er
bara stundum ekki og þetta svip-
lega fráfall Unnu sýnir mér og
minni fölskyldu það svo sannar-
lega.
En allavega áttum við margar
stundirnar saman og nutum fé-
lagsskaps þeirra hjóna.
Missir Ólafs er mikill og ekki
síður fyrir það að hann er nýbúinn
að missa einkabróður sinn og móð-
ur. Elsku Óli minn, ég, Stefán og
Helena vottum þér og fjölskyldu
þinni alla okkar samúð. Með inni-
legri þökk fyrir þær samveru-
stundir sem við áttum með ykkur
Unnu. Og Unna mín, þakka þér
fyrir allar ánægjustundirnar sem
við áttum með ykkur Óla, það verð-
ur aldrei frá okkur tekið. Á meðan
þú varst betri til heilsunnar tókstu
að þér barnagæslu og ég veit að
þau börn elskuðu ykkur Óla og
fannst þið vera sem aðrir foreldrar.
Við biðjum guð að vera með þér og
blessa Unnu á nýja staðnum sem
hún er nú komin á. Guð blessi þig,
Óli minn, og þakka ykkur fyrir allt.
Þóra.