Morgunblaðið - 22.06.2002, Page 55
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2002 55
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Verð kr. 58.150
Flug og hótel í 6 nætur, m.v. 2 í herb-
ergi, Expo, 3 stjörnur. Innifalinn
morgunverður, íslensk fararstjórn og
skattar.
Heimsferðir bjóða nú spennandi viku-
ferð yfir Verslunarmannahelgina til þessarar heillandi borgar þann 30.
júlí, í 6 nætur. Hér getur þú kynnst fegurstu borg Evrópu, gamla
bænum, Hradcany kastala, Karlsbrúnni, Wenceslas torginu, og farið í
spennandi kynnisferðir með farar-
stjórum Heimsferða sem gjörþekkja
borgina. Gott úrval hótel í boði.
Verð kr. 40.450
Flugsæti með sköttum.
Aðeins 28 sæti laus
Verslunarmannahelgin í
Prag
30. júlí - 6 nætur
frá kr. 40.450
SENNILEGA finna fuglarnir það
á sér hverjir eru vinveittir þeim
og gera sér hreiðurstæði í nálægð
þeirra. Ágúst H. Guðjónsson,
verktaki á Hólmavík, vissi ekki
hvað skógarþrösturinn vildi hon-
um, sem lét svo ófriðlega, þegar
hann gangsetti krana sem hann
ætlaði að fara að vinna á en hafði
staðið óhreyfður um nokkurn tíma
við Þverárvirkjun.
„Ég sá mér ekki annað fært en
að slökkva á vélinni og athuga
hverju þetta sætti því þrösturinn
ætlaði bara að ráðast á mig. Þegar
ég athugaði undir vélarhlífina var
þar þrastarhreiður með sjö ung-
um rétt við viftuspaðana.“ Ágúst
segir vindstyrkinn á hreiðrið hafa
verið mjög sterkan meðan vélin
var í gangi en svo vel hafi það ver-
ið vafið að það haggaðist ekki.
„Ég mun ekki hreyfa kranann
fyrr en ungarnir hafa yfirgefið
hreiðrið,“ sagði Ágúst.
En þetta er ekki eini staðurinn í
nálægð Ágústs þar sem þröstur
hefur verpt því á dögunum fylgd-
ist hann með þresti út um
gluggann heima hjá sér sem færði
ungum sínum æti í hreiður sem
var uppi á krana við heimkeyrsl-
una. En eins dauði er annars
brauð því köttur í götunni gerði
sér lítið fyrir og náði þeim öllum
meðan ungamamman sótti mat.
Svo fljótur var þrösturinn að gera
sér annað hreiður að daginn eftir
hafði hann lokið við hreiðurgerð
ofan á hliðinu við innganginn í hús
Ágústs. Svo sannarlega vita fugl-
arnir hvar þeim er óhætt og dýra-
vinir búa.
Sjö ungar undir
vélarhlíf krana
Morgunblaðið/Arnheiður Guðlaugsdóttir
Ágúst H. Guðjónsson við hreiðrið undir vélarhlíf kranans.
Strandir
Morgunblaðið/Aðalheiður
Blómum
skrýdd
tilvera
Hella
Í GÓÐA veðrinu fyrir stuttu
mættu konur úr Kvenfélaginu
Unni á Rangárvöllum í sína ár-
legu gróðursetningarferð á Dval-
arheimilið Lund á Hellu, en þær
hafa í nokkur ár fært heimilinu
sumarblóm sem þær gróðursetja í
garði heimilisins og í blómaker á
stéttar.
Þær mæta einnig með bakkelsi
og tertur og gera sér glaðan dag
með heimilismönnum, sem kunna
vel að meta góðan hug og gjafir
þeirra.
Á myndinni eru nokkrir heim-
ilismenn fyrir utan Lund ásamt
hluta kvenfélagskvenna að loknu
góðu verki og vel útilátnum
trakteringum.
FRAMKVÆMDUM er nú að ljúka
við eldhúsbyggingu á Sænautaseli
í Jökuldalsheiðinni. Eldhúsið er
byggt í hlöðutóft við fjárhús sem
endurbyggt var fyrir tveimur ár-
um. Fjárhúsið verður síðan notað
sem veitingasalur sem tekur allt
að fjörutíu manns í sæti.
Farið var út í þessar fram-
kvæmdir til að hægt væri að
ganga að ýtrustu kröfum heil-
brigðiseftirlits varðandi eldhús
sem veitingar eru seldar úr, en
heilbrigðiseftirlitið samþykkti ekki
veitingasöluna í gamla bænum sem
rekin hefur verið síðustu tíu ár.
Eldhúsbyggingin er byggð úr
timbri en hlaðið er torfi að veggj-
unum og sett torf á þakið, eldhús-
ið lítur þess vegna út eins og
gamall torfbær með burstir.
Rekstraraðili á Sænautaseli
verður Lilja Óladóttir eins og ver-
ið hefur frá upphafi.
Lilja segir að nýja eldhúsið og
veitingasalurinn geri kleift að
taka á móti hópum en það var
tæplega hægt í gamla bænum.
Enn verða á boðstólum lummur
og kaffi í gamla bænum eins og
áður.
Eini munurinn verður sá að
þær verða bakaðar í nýju eldhúsi
samþykktu af heilbrigðiseftirliti.
Framkvæmdir á Sænautaseli
Nýtt eldhús
í hlöðutóft
Norður-Hérað
ÞEIR voru búralegir Árni Bjarna-
son og Þórhallur Björgvinsson
þegar Rannveig Þórhallsdóttir
safnstjóri færði þeim engjakaffið
á starfsdögum Minjasafns Austur-
lands, undir heysátu sem þeir
höfðu lagt á reipi í flekknum.
Árni og Þórhallur sögðu líka sög-
ur af því þegar vinnukonur komu
með engjakaffið í þá gömlu og
góðu daga, þegar læðst var með
þær bak við heysátuna.
Morgunblaðið/Sig. Aðalsteinsson
Engjakaffi á starfsdögum
Norður-Hérað