Morgunblaðið - 22.06.2002, Side 59
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2002 59
STEINÞÓR Þórðarson sendir mér
tilskrif í Morgunblaðinu 14. júní sl.
og er greinilega fastur í því farinu
að hann geti haft sína hentisemi
með útlagningu Heilagrar ritningar.
Hann segir að ég hafi hneykslast
mikið á grein hans frá 7. maí sl. Ég
myndi fremur orða það svo, að ég
hafi orðið dapur og hryggur yfir því
hvernig hann leyfir sér að túlka
ritninguna. Hvers er að vænta af
nemendunum ef kennararnir eru
svona? Steinþór kveðst ekki hafa
ætlað sér að svara gagnrýni minni,
enda ekki talið mikla þörf á því.
Virðast mér þessi orð hans vitna um
nokkurt yfirlæti gagnvart leikmanni
sem hefur vogað sér að andmæla
honum. En svo segir Steinþór, að
hann hafi séð sig tilneyddan til að
svara, þar sem hann hafi engan frið
fengið fyrir miklum fjölda áhuga-
samra lesenda bréfa okkar. Því seg-
ist hann láta til leiðast að koma með
fáeinar ábendingar.
Það virðist sem Steinþór vilji
bara fá að koma fram með boðskap
sinn og geri kröfu til þess að allir
taki við honum. Hann verður fúll
þegar honum er andmælt og telur
ekki þörf á því að svara. Hann hafi
talað og það eigi að vera nóg. Ég
skrifaði bréf mitt ekki beinlínis sem
svar til hans, heldur vildi ég vara
kristið fólk við kenningum þeim sem
hann setur fram um gyðinga og
benti því á að lesa ritninguna. Leið-
sögn Steinþórs Þórðarsonar í þeim
efnum virðist mér vera andleg óholl-
usta fyrir þá sem vilja leita sann-
leikans í hinni helgu bók. Ég fagna
því hins vegar innilega að áhugi
komi fram á því sem ritningin segir.
Tímarnir sem við lifum á eiga að
sýna andlega vakandi fólki hvert
stefnir. Guð er vissulega að kalla
sitt fólk í viðbragðsstöðu vegna þess
sem framundan er. Hið endurreista
Ísraelsríki er einn sterkasti vitnis-
burðurinn sem við höfum fengið fyr-
ir því.
Steinþór segist alls ekki hafa
sniðgengið þau vers sem fjalla um
heimkomu Ísraels og ég benti á.
Þau voru samt hvergi í grein hans.
Hann segist hafa samið grein upp á
17.000 áslætti en Morgunblaðið hafi
takmarkað hann við 6.000 áslætti.
Mér þykir þessi viðbára lítilmann-
leg. Á nú að kenna blaðinu um?
Ég hef haft allnokkur skipti við
Morgunblaðið og veit að það hefur
sínar reglur varðandi lengd greina.
Langlokugrein Steinþórs er langt
fyrir utan þann ramma. Hann gat
því varla vænst þess að hún birtist
óstytt. En greinin hlýtur að hafa
birst eins og hún kom með sam-
þykki höfundar. Ég kannast ekki
við önnur vinnubrögð af hálfu
Morgunblaðsins gagnvart greinar-
höfundum.
Ástæðan fyrir því að versin um
heimkomu Ísraels voru hvergi
nefnd er því vafalítið sú, að höf-
undur hefur ekki kært sig um að
nefna þau.
Undarlegt þykir mér að Steinþór
skuli gera sér far um að gera lítið úr
gamla Testamentinu og vitnisburði
spámanna þess. Hann ræðir í því
sambandi um að þeir hafi verið uppi
svo og svo mörgum árum og öldum
fyrir Krist. Hvað kemur það málinu
við? Biblían er Heilög ritning, inn-
blásin af anda Guðs. Hún er óháð
tíma og heilagur andi talar sitt orð í
fullu samræmi frá Alfa til Omega.
Hann talar í gegnum spámenn
gamla Testamentisins og postula
nýja Testamentisins. Heilagur andi
er sjálfum sér samkvæmur í öllu.
Jesús lagði út af gamla Testament-
inu og gerði auðvitað aldrei lítið úr
því. Steinþór Þórðarson virðist ein-
göngu nálgast ritninguna með
fræðilegri hugsun guðfræðingsins
og hann tekur sér sýnilega kenni-
mannlegt vald til að útskýra textann
að eigin vild. Ég nálgast ritninguna
í trú leikmannsins sem veit og við-
urkennir að Guð er sá sem kemur til
með að hafa síðasta orðið í öllu.
Drottinn gaf okkur handbók sem á
að vera okkur til leiðsagnar í lífinu.
Hann gerði hana þannig úr garði að
hún getur fullkomlega nýst okkur
með beinum hætti. En kennimann-
leg guðfræði bindur þar stundum
hnúta sem engir voru fyrir.
Margt fleira mætti nefna til and-
svara hér, en ekki er svigrúm til
þess.
RÚNAR KRISTJÁNSSON,
Bogabraut 21, 545 Skagaströnd.
Látum ekki afvegaleiðast
Frá Rúnari Kristjánssyni:
JÓN Brynjólfsson sendir mér tón-
inn þann 16. júní í grein sem ber tit-
ilinn „Um beinin 2“ og telur mig
ómaklega vega að sér þegar ég
gagnrýni harkalega blaðaskrif hans
frá 6. júní sem ber titilinn „Um
beinin“. Jón lætur að því liggja að
þær staðreyndir sem ég nefni til
sögunnar séu rugl. Auðvitað er ég á
öðru máli og eftirfarandi telst kór-
rétt samkvæmt fræðum næringar-
fræðinnar:
1. D-vítamín í fæðu er ekki gervi-
efni!
2. Skortur á magnesíum er ekki
talin algengasta ástæða beinþynn-
ingar.
3. Óhófsneysla próteina sem og of
lítil neysla ýtir undir beinþynningu.
4. Helstu áhættuþættir bein-
þynningar tengjast erfðum, hækk-
andi aldri og kynferði. Og næring-
arþættir sem tengjast ónógri
kalkneyslu og of lágu magni D-vít-
amíns í líkama eru taldir meiri
áhrifavaldar á þróun beinþynningar
en nokkru sinni magnesíum enda
skortur á magnesíum talinn mjög
sjaldgæfur.
Jón biður mig um að taka fleiri
rangfærslur, sem finna má í grein
hans frá 6. júní, til „meðferðar“: Ég
mun ekki verða við þeirri bón en
nefni þó tvær rangfærslur til sög-
unnar:
1. Eftirfarandi fullyrðing er röng:
„Þriðjungur manna með beinþynn-
ingu er með mjólkuróþol.“
2. Eftirfarandi fullyrðing er röng:
„Skortur á magnesíum er mjög al-
varlegur og einn mesti sjúk-
dómsvaldur á Vesturlöndum og
veldur því líka, að ál leitar í heilann
og veldur heila- og taugasjúkdóm-
um.“
Í lok greinar sinnar segist Jón
sérstaklega hlakka til að heyra álit
mitt á gosdrykkjum!
Til að svala fróðleiksþorsta Jóns
get ég upplýst hann um að mikil
neysla gosdrykkja er að sjálfsögðu
áhyggjuefni, ekki síst vegna þess
að kannanir hafa sýnt að þeir sem
þamba mikið gos drekka litla
mjólk!
ÓLAFUR GUNNAR
SÆMUNDSSON,
næringarfræðingur
og stjórnarmaður í Beinvernd.
Mjólk er holl 2
Frá Ólafi Gunnari Sæmundssyni:
ÉG HEF búið alla mína tíð í lönd-
um sem kenna sig við lýðræði og
málfrelsi. Er orðin góðu of vön,
það hefur gert mig bæði lata og
eigingjarna. Tek mannréttindum
mínum sem sjálfsögðum hlut, eins
og súrefninu sem ég anda að mér.
Ég hef þó mjög sterkar skoðanir
gegn mannréttindabrotum sem
framin eru um allan heim. Það eru
skoðanir mínar sem forréttinda-
manneskju; stundum barnalegar,
stundum einfaldar en alltaf sannar.
Það er skömm frá því að segja,
en ég hefði hvorki rifið mig upp
eldsnemma til að mótmæla fyrir
utan Stjórnarráð okkar Íslendinga
vegna mannréttindabrota úti í
heimi né heimsóknar Jiang Zemin,
forseta Kína. Ég hefði ekki end-
urskipulagt daga mína til að geta
tekið þátt í mótmælum ef málefnin
hefðu ekki snert mig beint og per-
sónulega.
Þótt margir stjórnmálamenn
þessa lands hafi að mínu mati oft
verið ýmist latir, gráðugir, hroka-
fullir eða jafnvel óhæfir, hefur lýð-
ræðið og málfrelsið, sem ég trúi að
við búum við í skjóli þessara sömu
manna, verið mér mikilvægara og
ég beðið kosninga með að láta álit
mitt í ljós. En nú er mér ofboðið.
Það skiptir mig persónulega
engu máli hver bauð forseta Kína
til Íslands. Það sem hins vegar
skiptir mig máli og snertir mig
beint er að sú ákvörðun var tekin
að takmarka aðgang að landinu og
þeirri ákvörðun framfylgt. Það
skiptir mig máli að notaður var
svartur listi til að ákveða hver
væri ekki velkominn. Listi sem
enginn vill útskýra hvernig er til-
kominn.
Það skiptir mig máli að ráð-
herrar ríkisstjórnarinnar lýstu yfir
ábyrgð á forseta Kína og settu
hana ofar ábyrgð sinni á lýðveldinu
Íslandi og þegnum þess.
Það skiptir mig máli að ráða-
menn vilja ekki kannast við að
hafa tekið margar afdrifaríkar
ákvarðanir í sambandi við heim-
sókn forseta Kína og benda hver á
annan og tala um að hafa aðeins
hlýtt tilskipunum.
Það skiptir mig máli að dóms-
málaráðherra, Sólveig Pétursdótt-
ir, telur aðgerðirnar mikilvægar í
ljósi viðskipta landanna tveggja.
Það skiptir mig máli að utanrík-
isráðherra, Halldór Ásgrímsson,
tjáir sig ekki frekar um málið en
að það sé viðkvæmt.
Það skiptir mig máli að forsætis-
ráðherra, Davíð Oddsson, afsaki
hegðun sína og ákvarðanir með
þeim rökum að lýðræði og mann-
réttindi séu bæði erfið og flókin
viðureignar.
Það skiptir mig máli að sami
ráðherra bregst við mótmælum
þegna Lýðveldisins Íslands með
hroka og dónaskap.
Það skiptir mig máli að ég hef
misst trúna á ríkisstjórn Íslands
og er full fyrirlitningar á ofan-
greindum aðgerðum ráðherra
hennar.
Ég krefst opinberrar rannsókn-
ar á málinu öllu, ekki síst aðildar
lögreglu, og ég krefst þess að for-
sætisráðherra biðji þjóðina afsök-
unar.
ELÍSABET
RONALDSDÓTTIR,
kvikmyndagerðarmaður,
Vesturvallagötu 3,
101 Reykjavík.
Opið bréf til forsætisráð-
herra, dómsmálaráðherra
og utanríkisráðherra
Frá Elísabetu Ronaldsdóttur:
ÍSLENSKU liðin hafa staðið sig
afbragðsvel á Evrópumótinu í
Salsomaggiore það sem af er en
mótið er rétt tæplega hálfnað þeg-
ar þetta er skrifað. Í opna flokkn-
um hafa Íslendingar verið í hópi
efstu þjóða allan tímann og aðeins
tapað tveimur leikjum nokkuð af-
gerandi. Þetta sannar hve breiddin
hér á landi er í raun mikil en að-
eins tveir af íslensku spilurunum
hafa spilað í landsliði í opnum
flokki áður.
Þegar 15 umferðum var lokið af
37 í opnum flokki höfðu Íslend-
ingar 262 stig og voru í 7. sæti.
Ítalir voru komnir með afgerandi
forustu, 323 stig, Norðmenn voru í
2. sæti með 288 stig og Búlgarar
voru í 3. sæti með 274 stig. Hol-
lendingar höfðu 265 stig, Pólverjar
og Spánverjar 263 stig, Frakkar
259, Ísraelsmenn 258 og Austur-
ríkismenn voru í 10. sæti með 254
stig.
Íslenska kvennaliðið hefur einn-
ig staðið sig ágætlega það sem af
er en aðeins eitt par í liðinu hefur
keppnisreynslu á alþjóðamótum á
borð við þetta. Íslensku konurnar
höfðu 78 stig eftir 5 umferðir og
voru í 12. sæti eftir 5 umferðir.
Það stefnir í mikla baráttu um sig-
ur á mótinu milli Evrópumeistara
Englendinga, sem höfðu 109 stig,
og heimsmeistara Þjóðverja, sem
höfðu 107 stig.
Reynslan
sagði til sín
Íslenska liðið í opna flokknum
hefur vakið talsverða athygli í
Salsomaggiore og spilað nokkrum
sinnum á sýningartöflu, m.a. gegn
Skotum í 6. umferð. Íslendingar
náðu snemma nokkru forskoti en
Skotunum tókst að jafna muninn
undir lokin og knýja fram jafntefli.
Þetta var spennandi spil úr leikn-
um:
Austur gefur, NS á hættu.
Norður
♠ ÁK8
♥ G9
♦ Á102
♣ÁK976
Vestur Austur
♠ 5 ♠ DG632
♥ KD852 ♥ 1043
♦ 9854 ♦ D63
♣G103 ♣82
Suður
♠ 10974
♥ Á76
♦ KG6
♣D54
Við annað borðið sátu Snorri
Karlsson og Karl Sigurhjartarson
í NS og Miroslav Dragic og Derek
Diamond í AV. Þar opnaði vestur á
multi 2 tíglum í þriðju hönd,
Snorri í norður doblaði og austur
stökk í 3 hjörtu til hindrunar. Karl
í suður hefði getað doblað til út-
tektar þótt ekki væri enn ljóst
hvorn hálitinn vestur átti, en
reynslan bauð honum að segja 3
grönd enda síðasta tækifærið til að
koma fyrirstöðunum í hálitunum
að. Þetta reyndist happadrjúg
ákvörðun og Karl fékk 11 slagi í 3
gröndum, 660 til Íslands.
Við hitt borðið sátu Steinar
Jónsson og Stefán Jóhannsson AV
og John Matheson og Malcolm
Cuthbertson í NS. Þar byrjaði
Stefán á veikum 2 hjörtum í vest-
ur. Norður doblaði, Steinar pass-
aði og nú fannst suðri hann þurfa
að sýna 4-lit í spaða og góð spil og
stökk í 3 spaða. Norður var þá
kominn upp að vegg og í raun
neyddur til að lyfta í 4 spaða.
Þetta var ekki alvondur loka-
samningur og hefði væntanlega
unnist með spaðanum 4-2. Stefán
byrjaði á laufagosa og sagnhafi
drap með ás í blindum og spilaði
hjartagosa og gaf slaginn. Stefán
fékk á drottningu og spilaði lauf-
aþristi sem sagnhafi drap heima,
tók ÁK í spaða, spilaði hjarta á ás-
inn, trompaði hjarta í blindum og
spilaði laufakóng. Í nokkur spenn-
andi augnablik velti Steinar fyrir
sér stöðunni. Ef sagnhafi átti ekki
lauf eftir virtist geta verið hættu-
legt að trompa slaginn en eftir
smá útreikninga komst Steinar að
þeirri niðurstöðu að þá myndi
sagnhafi alltaf vinna spilið hvort
eð er. Hann trompaði því með sex-
unni og tók tvo slagi á tromp. Einn
niður, 100 og 13 stig til Íslands.
Einvígi varnar
og sóknar
Skemmtilegt einvígi var háð í
þessu spili milli varnar og sóknar
en sagan gerist í leik Norðmanna
og Búlgara í 14. umferð Evrópu-
mótsins. Norðmaðurinn Geir Helg-
emo og Búlgarinn Vladimir Mihov
glímdu þar hart og höfðu ýmist
betur.
Norður
♠ G74
♥ 8642
♦ ÁK74
♣104
Vestur Austur
♠ D75 ♠ 963
♥ K7 ♥ G103
♦ G1082 ♦ 963
♣Á753 ♣KG82
Suður
♠ ÁK102
♥ ÁD95
♦ D5
♣D96
Við bæði borð var lokasamning-
urinn 4 hjörtu í suður og við annað
borðið tapaði norski sagnhafinn
spilinu þegar hann svínaði hjarta-
drottningu. Við hitt borðið var
Mihov sagnhafi eftir að hafa opnað
á sterku laufi og síðan sýnt 17-18
jafnskipta punkta.
Tor Helness í vestur spilaði út
tígulgosa sem Mihov drap með ás í
borði. Leikurinn var sýndur beint
á Netinu og þátttakendur á spjall-
rásum töldu að Mihov myndi nota
innkomuna til að svína hjarta. En
Mihov sá lengra og byrjaði á að
spila litlu laufi úr borði.
Nú var komið að Helgemo í
austur. Hann sá að laufakóngurinn
væri gagnslítill ef sagnhafi ætti
ÁD og því stakk hann kóngnum
upp án umhugsunar, spilamennska
sem bar ríkulegan ávöxt síðar í
spilinu. Inni á laufakóng skipti
Helgemo í spaða gegnum blindan.
Mihov stakk upp spaðaás og án
mikils hiks tók hann nú tígul-
drottningu og hjartaás og spilaði
litlu hjarta. Helness varð að drepa
með kóng og var nú í raun enda-
spilaður, valdi á endanum að spila
blindum inn á tígulkóng.
Áhorfendur voru að vonum
hrifnir og lýstu því yfir að nú væri
spilið unnið. Mihov gæti fríað
laufaslag með svíningu fyrir gos-
ann, hent niður spaða í blindum og
trompað spaða. Þegar bent var á
að Mihov ætti enn eftir að hitta á
laufið töldu flestir að staðan væri
augljós: allir ættu að vita að Helg-
emo ætti ekki ásinn líka því með
ÁK í laufi hefði hann frekar stung-
ið upp ásnum.
Mihov henti spaða í tígulkóng og
spilaði laufi úr borði. Helgemo lét
lítið án hiks og eftir nokkra um-
hugsun stakk Mihov upp drottn-
ingunni, reiknaði með að Helgemo
ætti ÁK. Nú var spilið tapað því
Helness drap með ás og spilaði
enn tígli og fékk á endanum á
spaðadrottninguna.
„Mihov hefur greinilega ekki
spilað nógu oft við Helgemo,“ var
lokadómur áhorfenda.
Íslendingar í
toppbaráttu á
EM í brids
BRIDS
Evrópumótið í brids er haldið í Sals-
omaggiore á Ítalíu, dagana 16.-29. júní.
Ísland tekur þátt í opnum flokki og
kvennaflokki. Heimasíða mótsins er
http://www.eurobridge.org.
Guðm. Sv. Hermannsson