Morgunblaðið - 22.06.2002, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2002 65
DV
Kvikmyndir.is
Mbl
Kvikmyndir.com
J I M C A R R E Y
T H E M A J E S T I C
1/2kvikmyndir.is
1/2
kvi myndir.is ÓHT Rás 2ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 7.15 og 10. Vit 380.
1/2 kvikmyndir.is 1/2 kvikmyndir.com
Tímaritið Sánd Rás 2
Yfir 30.000 áhorfendur
Sýnd. kl. 7.30 og 10. Vit 384.
Sýnd kl. 7.15 og 10. B. i. 16. Vit 381.
Frá framleiðendum I Know What You Did Last
Summer og Urban Legend.
Sýnd kl. 8. Vit 367 Sýnd kl. 4 og 5.30. Ísl tal. Vit 358.
Skilin milli heima hinna lifenda og dauðra er um það
bil að bresta. Tryllingsleg og yfirnáttúruleg spenna.
Sýnd kl. 9.30 og 11.10. B.i. 16. Vit 388.
Sýnd kl. 4, 6, 7, 8, 9, 10 og 11. Vit 393.
Sýnd kl. 4 og 6. Ísl tal. Vit 370.
kvikmyndir.is
MBL
Þær eru fjarska fallegar
En ekki koma of nálægt
Vinsælasta myndin á Íslandi í dag
Eina leiðin til að verða einn af strákunum aftur... er að verða “ein” af
stelpunum! Ekki missa af þessum geggjaða sumarsmell!
Sýn
d á
klu
kku
tím
afre
sti
Kvikmyndir.is
Hverfisgötu 551 9000
www.regnboginn.is
Yfir 47.000 áhorfendur!
1/2
kvikmyndir.com
Radíó X
1/2HK DV
Sýnd kl. 5.30. B.i. 10.
Leitin er
hafin!
Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i 16.
1/2 RadióX
Hún er ein af milljón
og möguleikar hans
á að finna hana
eru engir!
1/2 kvikmyndir.is
Sánd
Sýnd kl. 6 og 8.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Almenn forsýning kl. 10.30.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i 16.
Frumsýning Forsýning
Menn eru dæmdir
af verkum sínum.
Bruce Willis
í magnaðri
spennumynd.
Þegar pabbinn neitar að
borga enn eitt skólaárið
fyrir son sinn, tekur
partýdýrið Van til sinna
ráða... Drepfyndin grínmynd
með Ryan Reynolds úr Two
Guys and a Girl og Töru
Reid úr American Pie 1 & 2.
Íshestar bjóða sérferðir fyrir hópa.
Tímasetning, lengd ferðar og veitingar
eru ákveðin í samráði við hvern hóp
enda er lögð áhersla á að mæta þörfum
hvers og eins. Sérstakir hópafslættir
eru fyrir 10 og fleiri.
Sími 555 7000 - frá kl. 8:00 til 22:00 alla daga
Hestamiðstöð Íshesta
Vina- og starfsmannahópar
- Sérferðir hvenær sem er.
NÚ sjöunda sumarið í röð geta Reyk-
víkingar og gestir borgarinnar þóst
vera í útlöndum með því að fara á
Jómfrúna í Lækjargötu. Á laugardög-
um kl. 16 eru nefnilega allir boðnir
velkomnir á ókeypis djasstónleika og
margir fá sér svo ekta danskt smur-
brauð með sem rennur ljúflega niður
með einum Tuborg (0,0%) eða svo. Og
toppurinn er svo þegar hægt er að
færa samkomuna út á Jómfrúartorgið
í sumarið og sólina, en það gerist í
svona helmingi tilvika, að sögn Sig-
urðar Flosasonar, saxófónleikara og
skipuleggjanda tónleikaraðarinnar,
og Jakobs Jakobssonar, eiganda
Jómfrúarinnar.
Fólkið veit af djassinum
„Það er oftast mjög mikið stuð hjá
okkur, já í rauninni alltaf,“ segir Jak-
ob. „Við Guðmundur Guðjónsson,
meðeigandi minn, lærðum í Dan-
mörku þar sem lifandi djass úti og
inni á sumrin er mjög algengur. Við
vildum koma á sömu stemningunni á
Jómfrúnni, þessari dönsku stemn-
ingu, þegar við byrjuðum með stað-
inn,“ segir Jakob um upphafið.
„Og aðsóknin er orðin mjög góð,
sérstaklega núna í seinni tíð,“ bætir
Sigurður við. „Þetta er orðið svo fast í
hugum borgarbúa að það þarf ekki
mikla kynningu, fólk bara veit af
þessu.“
„Fólk mætir sérstaklega á tónleika
og situr þá, líka þegar við erum inni,“
skýtur Jakob inn. „Það er samt alltaf
skemmtilegra að vera úti,“ finnst Sig-
urði, „þá getum við verið í blekking-
arleik að við búum í suðurlöndum. En
fólk kemur samt þó það sé rigning og
það er iðulega fullt.“
Hátt í hundrað tónleikar
Félagarnir segjast ná um þrettán
tónleikum á sumri, og núna í sumar
verði þeir fimmtán talsins.
„Fyrstu tónleikar þessa sumars
voru áttugustu tónleikarnir í sumar-
tónleikaröðinni, fyrir utan alla aðra
tónleika sem við höfum haldið,“ upp-
lýsir Jakob.
– Og hvað er Sigurður búinn að
spila á mörgum af þeim?
„Það er nú misjafnt,“ svarar Sig-
urður með glott á vör. „Sum sumur
mikið, önnur næstum ekki neitt. Það
eru líka orðnir svo margir sem vilja
spila, og ég reyni að hafa eins fjöl-
breytta dagskrá og ég get og að gefa
ólíku fólki tækifæri.“
– Er mikið sama fólkið sem kemur
á tónleikana?
„Það er mikið af útlendingum sem
kemur, en auðvitað viss kjarni djass-
áhugafólks sem kemur alltaf,“ segir
Jakob. „Annars eru tónleikarnir
hugsaðir frjálslegri en aðrir tónleikar.
Hér er glasaglamur og jafnvel um-
ræður.“
„Tónlistin er í léttari og aðgengi-
legri kantinum, við erum ekki með
þann mest krefjandi djass sem sumir
okkar eru að leika stundum,“ útskýrir
Sigurður. „Þetta er tónlist sem okkur
finnst skemmtilegt að spila og fólkinu
á götunni finnst gaman að hlusta á.“
Fjölbreytt flóra listamanna
– Og hvernig lítur sumarið út?
„Bara vel. Þetta verður fjölbreytt
flóra af ólíkum listamönnum sem
kemur fram. Bæði eldri og reyndari
spilarar og fullt af ungu fólki. Gjarnan
þeir sem eru úti að læra og koma með
erlenda félaga sína með sér heim í
sumar. Það er skemmtilegt fyrir hið
íslenska djasslíf og stemninguna
hér,“ fullyrðir Sigurður. „Kvartett
Kára Árnasonar spilar í dag og loka-
atriði sumarsins verður síðan sjálf
Helena Eyjólfsdóttir sem kemur að
norðan.“
– Og er sérstakt djasssmurbrauð á
boðstólnum?
„Nei, allur seðillinn er í boði. Við
vorum að hugsa um að vera með
djassmatseðil sem við værum þá fljót-
ari að framreiða, en viljum frekar
geta boðið upp á það allra besta,“ seg-
ir Jakob ákveðinn.
– Og að lokum?
„Við færum þjóðinni gleði og von-
umst til að sem stærstur hluti hennar
komi og gleðjist með okkur,“ segir
Sigurður og skálar að lokum við Jak-
ob í seinasta bjórsopanum (0,0%).
Við færum þjóðinni gleði
Morgunblaðið/Golli
„Það er alltaf stuð á Jómfrúnni,“ fullyrða Sigurður og Jakob.
hilo@mbl.is
Djass og dönsk stemning á Jómfrúnni
KRYDDPÍAN Mel B
hefur fengið hlutverk í
nýjum sjónvarpsþætti á
BBC-sjónvarpsstöðinni.
Þáttaröðin, sem kallast
Burn It, verður að
hluta byggð á hinum
vinsælu þáttum This
Life sem sýndir voru
árið 1997 og fjalla um
hóp vina í Manchester.
Mel B leikur hjúkr-
unarkonu í þáttunum.
Mel B hefur þegar
reynt fyrir sér við
þáttastjórnun í sjón-
varpi auk þess sem hún
kom nýlega fram í
verkinu Píkusögum á
West End.
Mel B stillt
og prúð að
vanda.
Sjónvarpskrydd