Morgunblaðið - 24.07.2002, Síða 4
FRÉTTIR
4 MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Átök og ófriður við þjóðveginn er
nýstárleg vegahandbók þar sem farið
er með lesendur eftir hringveginum
og heimsóttir ýmsir merkir staðir þar
sem afdrifarík átök hafa átt sér stað.
Atburðirnir eru rifjaðir upp samhliða því
sem sagt er frá ýmsu merkilegu sem
mætir ferðamanninum.
Einstakir
ferðafélagar
Ófriður í friðsælli
náttúrunni
Þjóðsögur við þjóðveginn er
nú komin út á hljóðbók, bæði
á geisladiskum og snældum.
Tröll, álfar, draugar og ýmsar
fleiri þjóðsagnaverur spretta
fram ljóslifandi um leið og
ferðast er um sveitir landsins.
Skemmtilegur fróðleikur og spennandi sögur fyrir alla
fjölskylduna í vönduðum upplestri Hjalta Rögnvaldssonar leikara
og höfundarins, Jóns R. Hjálmarssonar.
Lifandi
upplestur
TÓMAS Ingi Olrich menntamála-
ráðherra hefur vikið Þorfinni Óm-
arssyni tímabundið úr embætti
framkvæmdastjóra Kvikmyndasjóðs
Íslands vegna alvarlegra athuga-
semda Ríkisendurskoðunar við
stöðu bókhalds sjóðsins sem og skil
og vörslu á bókhaldsgögnum. Nefnd
sérfróðra manna mun skera úr um
hvort Þorfinni verður veitt lausn frá
embættinu að fullu eða honum boðið
að taka aftur við því.
Þorfinni var kynnt þessi ákvörðun
ráðuneytisins í gær. Forsaga máls-
ins er sú að menntamálaráðuneytið
óskaði, í lok mars síðastliðins, eftir
því að Ríkisendurskoðun tæki reikn-
ingsskil Kvikmyndasjóðs Íslands
fyrir árin 2000 og 2001 til rannsókn-
ar. Segir í fréttatilkynningu frá
ráðuneytinu að tilefnið hafi verið að-
finnslur af hálfu Ríkisbókhalds við
reikningsskil sjóðsins.
Í greinargerð Ríkisendurskoðun-
ar eru gerðar „alvarlegar athuga-
semdir við skil og vörslu á gögnum
og stöðu bókhalds sjóðsins“. Segir að
Ríkisbókhald og Ríkisendurskoðun
hafi á liðnum árum gert margar og
ítrekaðar athugasemdir við þessa
þætti í rekstri Kvikmyndasjóðs, en
með litlum árangri. Þessi verkefni
hafi allt fram á þetta ár fyrst og
fremst verið í höndum forstöðu-
manns sjóðsins.
Fylgiskjöl hafa týnst og erfitt
að loka reikningum sjóðsins
„Árum saman hefur gengið örðug-
lega að fá hann til þess að skila nauð-
synlegum gögnum til Ríkisbókhalds
á réttum tíma þannig að ganga hafi
mátt frá lögboðnu ársuppgjöri sjóðs-
ins. Viðvarandi hirðuleysi við að
halda bókhaldsgögnum til haga hef-
ur m.a. leitt til þess að fylgiskjöl hafa
týnst og erfiðleikar skapast við að
loka reikningum sjóðsins,“ segir í
greinargerð Ríkisendurskoðunar.
Bent er á að hirðuleysi hafi valdið því
að öll vinna í tengslum við reikninga
sjóðsins hafi reynst tímafrekari en
ella. „Fram hjá því verður ekki held-
ur litið að með því að hirða á ófull-
nægjandi hátt um vörslu og skil á
bókhaldsgögnum, þrátt fyrir ítrekuð
tilmæli um átak í þeim efnum, hefur
forstöðumaðurinn virt að vettugi
grundvallarreglur, sem gilda um
bókhald ríkisins og vörslu bókhalds-
gagna.“
Segir að þegar endurskoðunin fyr-
ir árið 2001 hófst hafi uppgjörsmál
verið mjög skammt á veg komin. „Í
raun hafði ekkert þokast í því efni
um nokkurt skeið, einkum vegna
óreiðu á gögnum og skorts á af-
stemmingu á bankareikningum.
Mikið af bókhaldsgögnum á borð við
ferðareikninga og fylgiskjöl til af-
stemmingar á bankareikningum
lágu ekki fyrir.“
Hefur ítrekað verið
hvattur til að taka sig á
Kemur fram að þegar upp var
staðið hafi ekki fundist reikningar
fyrir ferðakostnaði að fjárhæð
363.000 krónur sem allur tengist
ferðum forstöðumanns sjóðsins. Um
mörg kostnaðartilefni sé að ræða,
sem ýmist tilheyra árinu 2001 eða
2000. „Þó svo að forstöðumaður
sjóðsins hafi gert trúverðuga grein
fyrir þessum útgjöldum verður ekki
fram hjá því litið að greiðslur úr rík-
issjóði verða skilyrðislaust að byggj-
ast á fullnægjandi gögnum. Varsla
forstöðumanns og hirða um greiðslu-
og bókhaldsgögn er að mati Ríkis-
endurskoðunar ámælisverð og þá
ekki síst í ljósi þess að hann hefur á
liðnum árum ítrekað verið hvattur til
þess að taka sig á í þessum efnum.“
Af ofangreindu tilefni hafi ráðu-
neytið talið að ekki yrði hjá því kom-
ist að veita Þorfinni Ómarssyni lausn
frá embætti framkvæmdastjóra
Kvikmyndasjóðs Íslands um stund-
arsakir á grundvelli laga um réttindi
og skyldur starfsmanna ríkisins.
Lögum samkvæmt mun nefnd sér-
fróðra manna skera úr um hvort
Þorfinni verði veitt lausn að fullu eða
honum boðið að taka aftur við emb-
ættinu. Embættismenn njóta helm-
ings af föstum launum sínum meðan
lausn um stundarsakir stendur.
Stjórnin geri tillögu um hver
gegni stöðunni tímabundið
Tómas Ingi Olrich menntamála-
ráðherra fór þess á leit við stjórn
Kvikmyndasjóðs Íslands í gær að
hún gerði tillögu til hans um hver
skuli gegna embætti framkvæmda-
stjóra sjóðsins þar til niðurstaða
nefndarinnar liggur fyrir. „Ákvörð-
unin var tekin að mjög yfirlögðu ráði
og í ljósi þess afdráttarlausa orða-
lags sem er á greinargerð Ríkisend-
urskoðunar. Óhjákvæmilegt þótti að
vísa þessu máli til nefndarinnar,“
segir Tómas Ingi. Formaður og
varaformaður nefndarinnar eru þeg-
ar fyrir hendi, en tvo menn þarf að
skipa í nefndina. Ráðherra skipar
annan þeirra og samtök ríkisstarfs-
manna sameiginlega hinn. Sagði
Tómas Ingi að ekki væri verið að
kveða upp endanlegan dóm í málinu
heldur vísa því til rannsóknar.
Vilhjálmur Egilsson, formaður
stjórnar Kvikmyndasjóðs Íslands,
segir þetta mjög leiðinlegt mál.
Sjálfur lagði hann til á fundi stjórn-
arinnar í byrjun mars að Þorfinnur
yrði áminntur. Hann segir að hratt
verði unnið að því að finna einhvern
til að gegna stöðu framkvæmda-
stjóra tímabundið. Stjórnin muni
funda fljótlega og vonar hann að það
gangi fljótt fyrir sig að finna ein-
hvern, stjórnin hafi engan í hendi
sem gæti tekið verkefnið að sér. Mið-
að sé við að niðurstaða verði komin í
málinu innan sex mánaða.
Þorfinni Ómarssyni vikið tímabundið úr embætti
Sagður hafa virt
reglur um bókhald
ríkisins að vettugi
ÞORFINNUR Ómarsson, sem í gær
var vikið tímabundið úr embætti
framkvæmdastjóra Kvikmyndasjóðs
fyrir að hafa virt að vettugi grund-
vallarreglur um bókhald ríkisins,
undrast tímabundna brottvikningu
sína. „Þetta eru gömul mál sem um
ræðir, sem ég er búinn að gera brag-
arbót á. Stofnunin er í mjög góðum
farvegi hvað öll bókhaldsskil og fjár-
málaumsvif varðar og hefur verið
allt þetta ár,“ segir Þorfinnur.
Hann segist ekki hafa fengið tæm-
andi tækifæri til að koma sínum mál-
um á framfæri við Ríkisendurskoðun
og menntamálaráðuneytið, en hann
muni nú gera það með ítarlegum
hætti. Þorfinnur segist ekki hafa
neina ástæðu til að ætla annað en að
honum verði boðið að taka aftur við
embætti framkvæmdastjóra Kvik-
myndasjóðs þegar nefnd sérfróðra
manna, sem ætlað er að skera úr um
hvort Þorfinni verður boðin staðan
aftur eða veitt lausn að fullu, hefur
lokið störfum.
„Öll þessi mál eru til mikillar fyr-
irmyndar núna, það væri hálfein-
kennilegt ef menn ætluðu að bregð-
ast harkalega við nú þegar ég hef
vissulega brugðist við þessum
athugasemdum sem þarna er rætt
um,“ segir Þorfinnur.
Ekkert sem orkar tvímælis
Hann segir það rangt sem fram
kemur í skýrslunni að reikningar að
upphæð 363.000 krónur fyrir árið
2000 og 2001, sem ekki fundust við
gerð ársreikninga, tengist allir hans
ferðakostnaði. „Þarna töpuðust ein-
faldlega nótur þegar stofnunin flutti
fyrir einu og hálfu ári. Þar var um
mannleg mistök að ræða. Þessi gögn
voru aldrei á mínu borði sem slík
þótt ég beri auðvitað ábyrgð á stofn-
uninni í heild sinni,“ segir Þorfinnur
og vekur athygli á því að búið sé að
fara í gegnum allar þessar færslur.
Í öllum tilfellum sé vitað hver var
viðtakandi greiðslunnar og hvers
vegna. Ríkisendurskoðun segir í
skýrslunni að skýringar á þeim
kostnaði þyki trúverðugar. „Þarna
er engin færsla sem orkar tvímælis
eða að verið sé að greiða einhverjum
fyrir eitthvað sem er ekki í samræmi
við lögbundin verkefni Kvikmynda-
sjóðs. Hvergi er um neitt fjármála-
misferli að ræða.“
Þorfinnur hefur gegnt embætti
framkvæmdastjóra Kvikmyndasjóðs
frá hausti 1996 og hann bendir á að
fjárreiður sjóðsins hafi fjórfaldast að
umfangi frá þeim tíma. „Haustið
1998 var gerður samningur um að
fjórfalda framlög til Kvikmynda-
sjóðs á fjárlögum, án þess að aukið
væri við starfsfólki. Ég lagði það til
strax haustið 1999 að fjármálastjóri
yrði settur sem hefði með þessi mál
að gera, en það fékkst ekki samþykki
fyrir því.“
Þorfinnur segir að hann hafi síð-
asta haust breytt starfslýsingu skrif-
stofustjóra sjóðsins þannig að fjár-
málastjórnun var sett á herðar hans.
Ýmis önnur verkefni sem skrifstofu-
stjóri hafði voru þá færð á aðra
starfsmenn sjóðsins. „Mér finnst það
ekki forsvaranlegt að stýra stofnun
sem er með nálægt 400 milljónir á
fjárlögum á ári án þess að hafa fjár-
málastjóra til að hafa þessi mál í sem
bestum farvegi. Þannig er málum
háttað núna og þess vegna hafa þessi
mál verið í góðum farvegi núna,“
segir Þorfinnur. „Mér finnst það
hálfeinkennilegt að í skýrslunni sé
sagt að ítrekuðum óskum um að
grípa til ráðstafana hafi ekki verið
sinnt, því það er ég búinn að gera
fyrir löngu,“ segir hann.
Þorfinnur Ómarsson um tímabundna brottvikningu sína
Gömul mál sem búið er
að gera bragarbót á
ÞEIR voru heldur daufir að sjá
ferðamennirnir sem skýldu sér með
marglitri regnhlíf í rigningunni á
Laugaveginum.
Síðustu daga hefur verið blautt
veður á sunnan- og vestanverðu
landinu og útlit fyrir að svo verði
áfram, að sögn Haralds Eiríkssonar,
veðurfræðings á Veðurstofu Ís-
lands.
Haraldur segir að samkvæmt
langtímaspá eigi að vera vætusamt
fram yfir næstu helgi, einkum sunn-
an- og vestanlands. Veðrið verði
öllu skárra á Norðaustur- og Aust-
urlandi þótt íbúar og ferðamenn þar
muni líklega ekki sleppa algjörlega
við að fá einhverja dropa á sig.
Það er því enn einhver bið eftir
sólinni og góða veðrinu.
Haraldur sagði of snemmt að
segja til um hvernig mun viðra á
landsmenn um verslunarmanna-
helgina, fyrstu helgina í ágúst.
„Maður verður bara að vona það
besta,“ sagði Haraldur bjartsýnn.
Morgunblaðið/Jim Smart
Áfram vætusamt
ÁTTA manns sóttu um starf
forstöðumanns fréttasviðs Rík-
isútvarpsins, að sögn Markúsar
Arnar Antonssonar útvarps-
stjóra. Um er að ræða nýtt starf
yfir sameiginlegu fréttasviði
Ríkisútvarpsins. Umsóknar-
frestur rann út 17. júlí sl. Eft-
irfarandi sóttu um starfið: Arn-
ar Páll Hauksson fréttaritari,
Ágúst Karl Ágústsson kerfis-
fræðingur, Bogi Ágústsson,
fréttastjóri Sjónvarpsins, Gísli
Þór Gunnarsson sálfræðingur,
Jón Ásgeir Sigurðsson útvarps-
maður, Kjartan Emil Sigurðs-
son stjórnmálafræðingur, Sig-
urður Ómarsson markaðs-
fræðingur og Þórhallur Birgir
Jósepsson fréttamaður.
Að sögn Markúsar Arnar er
gert ráð fyrir að ráðið verði í
starfið frá og með 1. október nk.
Útvarpsráð veitir umsögn um
umsækjendur en útvarpsstjóri
ræður í starfið. Markús segir að
málið verði tekið fyrir á fundi
útvarpsráðs, þegar það kemur
saman að nýju eftir sumarhlé, í
ágústmánuði. Stefnt er að því að
ráðið verði í starfið fljótlega eft-
ir það.
Forstöðumaður fréttasviðs RÚV
Átta sóttu
um stöðuna