Morgunblaðið - 24.07.2002, Síða 14

Morgunblaðið - 24.07.2002, Síða 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 14 MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ BORGARRÁÐ hefur samþykkt breytingu á deiliskipulagi í tengslum við gerð settjarna sem fyrirhugað er að útbúa í Elliðaárdal. Um er að ræða fimm settjarnir, í Grænugróf, við Lágaberg – Sporð- hyli, Hóla – Hraun, í Víðidal við dælustöð OR og við Árbæjarsafn. Að sögn Ólafs Stefánssonar, deild- arstjóra hjá Gatnamálastofu, er stefnt að því að hefja framkvæmdir við settjarnirnar í haust og á fram- kvæmdum að ljúka næsta vor. Ekki liggur þó fyrir hvenær hafist verður handa við settjörn við Árbæjarsafn, að sögn Ólafs. Í tillögu Landslags ehf. að set- tjörnum í dalnum er bent á að allt El- liðaárdalssvæðið sé á náttúruminja- skrá og njóti borgarverndar vegna hins einstaka náttúrufars og útivist- armöguleika sem þar eru. Í Grænu- gróf og Lágabergi – Sporðhyljum kemur fram að náttúrufar svæðisins einkennist af grjótholti sem búið er að gróðurvæða. Fura, birki, greni og náttúrulegur lyngmói eru tegundir sem mjög eru sýnilegar í holtunum. Við Hóla – Hraun stendur skipulags- svæðið við misgengi með sérlega fal- legu fallegu klappar- og klettabelti. Settjörnin í Víðidal mun hins vegar liggja við nokkuð bratt grjótholt og að lægð þar sem núverandi vatns- og holræsislagnir liggja. Sjálf lægðin er því raskað land sem þó er orðið nokkuð gróið, að því er fram kemur í náttúrulýsingu á svæðinu. Settjörn við Árbæjarsafn hefur hins vegar þá sérstöðu að vera inni á Árbæjar- safnssvæðinu næst gömlu pakkhús- unum. Á svæðinu þar sem settjarnirnar verða er fyrir 3 m breiður malbik- aður göngu- og hjólastígur og mal- arstígar sem tengjast inn á hann. Bent er á að töluverð umferð gang- andi og skokkandi sé um stíginn. Í tillögum Landslags kemur fram að markmið framkvæmdanna sé að minnka mengunarálag frá ofan- vatnskerfum sem nú berst í Elliða- árnar. Því verði náð með því að fella út óuppleyst, botnfellanleg efni, t.d. sand, málningarflygsur, malbiksslit, þyngri aðskotahluti o.fl. sem berast frá gatnakerfum, bílaplönum og þak- flötum. Auk þess skiljast að í set- tjörnunum eðlisléttari efni. Með þessu fyrirkomulagi verði hægt að bregðast við mengunaróhöppum sem kunni að verða innan áhrifa- svæða þeirra ofanvatnskerfa sem tengd verða settjörnunum. Fram kemur að mesta dýpi í tjörn- unum miðað við stöðugt vatnsborð verði 1,2 m. Næst bakkanum um- hverfis tjörnina verði eins metra breitt svæði þar sem dýpi verður 0,2 m. Svæðið gegni því tvíþættu hlut- verki, annars vegar sem öryggis- svæði og hins vegar að mynda svæði á bökkum tjarnanna þar sem vot- lendisgróður á auðveldara með að festa rætur og dafna. Þá er lagt til að umhverfis tjarnirnar verði gróður- vætt til fegrunar og til að hindra beint aðgengi að tjörnunum. Einnig verður á svæðunum undirliggjandi siturkerfi sem tryggir betri hreinsi- virkni gagnvart þungmálmum. Íbúar fái tækifæri til að fylgjast með framgangi verksins Athugasemdir vegna fyrirhugaðra settjarna í Elliðaárdal bárust frá íbúum við Lágaberg þar sem meðal annars er bent á að engin reynsla sé af virkni slíkra tjarna við íslenskar aðstæður. Fulltrúar D-lista í skipu- lags- og byggingarnefnd óskuðu bókað að fulltrúar sjálfstæðismanna taki undir meginsjónarmið samtaka íbúa við Lágaberg og telji mikilvægt að fulltrúar íbúasamtakanna sem og aðrir fái tækifæri til að fylgjast með framgangi málsins. Fram kemur m.a. í tillögum samtaka íbúa við Lágaberg að framkvæmdir við set- tjarnir og rekstur þeirra skuli vera þriggja ára tilraunaverkefni í um- sjón Gatnamálastofu og að þeim tíma liðnum verði boðað til fundar eða þings þar sem gagnsemi tjarnanna verði metin og reynsla af þeim. Sigurður Skarphéðinsson gatnamálastjóri bendir á í bréfi til skipulags- og byggingarsviðs að við hönnun settjarnanna hafi verið stuðst við reynslu af slíkum mannvirkjum erlendis, bæði Þýskalandi og Svíþjóð, og að engin ástæða sé til að ætla annað en að ár- angur verði hliðstæður því sem þar er. Í bréfi sem Þórólfur Jónsson ritar til umhverfis- og heilbrigðisnefndar fyrir hönd garðyrkjustjóra kemur m.a. fram að ekki sé hægt að horfa fram hjá slysahættu sem getur verið af tjörnunum þar sem þær séu 1,2 m á dýpt. Elliðaárnar sjálfar séu hættulegar en í sumum tilfellum séu tjarnirnar miklu nær börnum að leik en árnar sjálfar, ekki síst í Grænugróf og í Víðidal. Þar er einn- ig gert ráð fyrir að samráð verði haft við garðyrkjudeild vegna rasks við framkvæmdir og vegna frágangs á gróðri umhverfis tjarnirnar. Breytingar samþykktar á deiliskipulagi í tengslum við gerð settjarna í Elliðaárdal Dregur úr mengun- arálagi frá vatns- kerfum í árnar Morgunblaðið/Golli Markmið framkvæmdanna er að draga úr þeirri mengun sem berst í Elliðaárnar frá ofanvatnskerfum, að því er fram kemur í greinargerð Landslags ehf. Myndin er tekin við Elliðaár skammt frá rafstöðinni. !! ./ )$  $#!.$)$0 1  ./ )$ 20  1  1 3)$4#$ 5 !   1 67 8  4#$ 5 !  5  !. 9!  !  :; !  % !:; ! -!#  -! 8 <5 < $:5 =4# 1 11 > $) .2 ?4$  -! 8            !"#$       !"# $% "$ %   %  & '  Reykjavík Á FIMMTUDAG í síðustu viku urðu þáttaskil í sögu verslunar- innar Svalbarða við Framnesveg í Vesturbænum þegar önnur versl- un með sama nafni var opnuð við Reykjavíkurveg 68 í Hafnarfirði. Svalbarði hefur í um 60 ár selt fisk og fiskmeti til kröfuharðra viðskiptavina í bland við aðrar vörur og segir Ingvar Gunn- arsson, annar af tveimur eig- endum verslunarinnar, að höfuð- áhersla verði áfram lögð á selja ferskan fisk en einnig harðfisk, hákarl og sitthvað fleira góðgæti úr hafinu. Þá verður í nýju versluninni bryddað upp á þeirri nýjung að bjóða upp á heita fiskisúpu í há- deginu og að minnsta kosti tvær tegundir af heitum fiskréttum. Ingvar, sem rekið hefur versl- unina Svalbarða við Framnesveg í tvö ár, segist áfram munu reka gömlu búðina. Tryggir kúnnar í Vesturbæ geta því andað léttar og þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að þurfa að fara alla leið suð- ur í Hafnarfjörð til að kaupa fisk í Svalbarða. Hann segir Hafnfirð- inga hafa tekið nýju versluninni mjög vel en með opnun hennar fjölgar starfsmönnum um tvo. Aðspurður segir Ingvar að ástæða þess að ráðist er í að opna aðra verslun undir sama nafni sé að aðkoma að gömlu búðinni sé ekki eins og best verður á kosið og lítið um bílastæði í kring. Hann muni þó halda áfram að reka þá verslun í óbreyttri mynd. „Þetta er orðin antík. Og ég er að verða antík líka,“ segir Ingvar og hlær við. Þáttaskil í sögu verslunarinnar Svalbarða Morgunblaðið/Golli Ingvar Gunnarsson og Hulda Hannibalsdóttir, eigendur Svalbarða, við nýja fiskiborðið í versluninni við Reykjavíkurveg í Hafnarfirði. Önnur verslun opnuð með sama nafni Hafnarfjörður Merkið yfir nýju Svalbarða- versluninni lætur meira yfir sér en á þeirri gömlu. Skiltið málaði Guðmundur Björn Sveinsson. BÆJARYFIRVÖLD í Garðabæ ætla að óska eftir því við félags- málaráðherra að kaupskyldu og forkaupsrétti sveitarfélagsins vegna félagslegra eignaríbúða og kaupleiguíbúða verði aflétt. Málið var tekið fyrir á bæjarráðsfundi í gær en það felur í sér að eigendur íbúðanna geta selt þær á frjálsum markaði. Á fundi bæjarráðs kom jafnframt fram að samþykktin hefði engin áhrif á rétt eigenda fé- lagslegra eignaríbúða til að óska eftir að bærinn leysti til sín slíkar eignir, kjósi þeir það. Með nýjum lögum um húsnæðis- mál frá árinu 1998 voru sett ákvæði sem höfðu þann tilgang að loka félagslega eignaríbúðakerfinu. Þrátt fyrir það var gert ráð fyrir að sveitarfélög hefðu áfram kaup- skyldu á félagslegum íbúðum, mis- lengi eftir kauptíma og eðli íbúða. Kaupskyldan hefur hvílt á íbúð- unum í 10 til 15 ár og í tilkynningu frá Garðabæ segir að augljóslega geti aðstæður fólks breyst mikið á svo löngum tíma. Þetta hafi gert eigendum fé- lagslegra íbúða erfitt að skipta um húsnæði enda hafi innlausnarverð félagslegra íbúða verið lægra en markaðsverð á undanförnum ár- um. Bæjarstjórn Garðabæjar sam- þykkti vorið 2001 að nýta ekki for- kaupsrétt sveitarfélagsins vegna félagslegra íbúða eftir að kaup- skylda fellur niður eftir 10 eða 15 ár. Rökin þá voru þau sömu, þ.e. að aflétta eins konar eignar- og búsetufjötrum af eigendum þess- ara íbúða. Með breytingu á lögum um hús- næðismál frá 1998, sem Alþingi samþykkti vorið 2002, var sett inn ákvæði um að sveitarfélög gætu óskað eftir því við félagsmálaráð- herra að aflétt yrði kaupskyldu og forkaupsrétti þeirra. Ákvæðið er tilkomið m.a. vegna mikils áhuga sveitarfélaga á að auka frelsi eigenda félagslegra íbúða til að ráðstafa eignum sínum. Félagslegar íbúðir Kaupskyldu og forkaupsrétti verði aflétt Garðabær SUMARHÁTÍÐ Æskulýðs- og tómstundaráðs Hafnarfjarðar verður haldin á Thorsplani í dag og hefst dagskráin kl. 13.30. Töframaðurinn Bjarni mun skemmta gestum og gangandi, boðið verður upp á víðavangs- hlaup, kassabílarallí, stígvéla- hlaup og ýmsar aðrar þrautir. Þá verða hringekja og raf- magnsbílar á staðnum. Boðið verður upp á pizzur og gos, rappsveitin Diplomatics leikur og slökkvilið og lögregla keppa í fótbolta, svo fátt eitt sé nefnt. Sumarhátíð ÆTH haldin í dag Slökkvilið og lögregla keppa í fótbolta Hafnarfjörður

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.