Morgunblaðið - 24.07.2002, Qupperneq 21
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 2002 21
HANDTÖKUR liðsmanna grísku
hermdarverkasamtakanna 17. nóv-
ember hafa valdið miklu róti í sam-
félaginu en um leið aukið vonir
ráðamanna um að hægt verða að
koma samtökunum á kné. Hryðju-
verkasamtökin hafa valdið óöryggi
og vantrú á getu lögreglunnar í
Grikklandi í nær þrjá áratugi. Enn
er leitað býflugnabónda á fimm-
tugsaldri, Dimitris Koufodinas, og
nokkurra af stofnendum samtak-
anna en þeir eru nú taldir vera um
sextugt. Einn þeirra er kona.
Níu manns eru í haldi lögregl-
unnar og hafa verið ákærðir fyrir
aðild að glæpum 17. nóvember,
morðum, vopnuðum ránum og
sprengjutilræðum. Alls er talið að
samtökin hafi myrt 22, þar á meðal
þrjá bandaríska embættismenn,
tvo tyrkneska diplómata og all-
marga gríska kaupsýslu- og stjórn-
málamenn.
Á mánudag var Thomas Seferis,
36 ára gamall strætisvagnstjóri,
ákærður fyrir fjölda afbrota, þar á
meðal sprengjutilræði og þjófnað
árið 1989 á léttum flugskeytum í
herbækistöð. Seferis, sem er fædd-
ur í Þýskalandi og á tvö lítil börn,
fær að minnsta kosti 20 ára fang-
elsi verði hann fundinn sekur en
hann hefur játað að hafa tekið þátt
í glæpum samtakanna. Dimitris
Moraitis, forstjóri fyrirtækisins
sem hann vann hjá, lýsti undir-
manni sínum.
„Hann var með hreina sakaskrá.
Hann var duglegur starfsmaður,
gaf blóð þegar farið var fram á það.
Hann kom aldrei of seint í vinnuna,
þetta var ágætis
náungi,“ sagði
Moraitis.
Traust fjöl-
skyldubönd
í 17. nóvember
Sérfræðingar í
hryðjuverka-
samtökum furða
sig á því sem komið hefur í ljós.
„Ég hef kynnt mér hryðjuverk í
mörg ár en ég er orðlaus,“ sagði
Martia Bossi, fyrrverandi félagi í
opinberri nefnd sem barðist gegn
hermdarverkum. „Ég er að reyna
að átta mig á því hvað lá að baki
þessari skipulagningu.“ Lögreglan
segir að eitt af því sem hafi gert
henni útilokað að koma flugumönn-
um inn í samtökin til að stöðva þau
hafi verið náin fjölskyldutengsl
margra liðsmanna 17. nóvember.
Einn bræðranna er hljóðfæra-
smiður, annar vél-
virki, hinn þriðji
fæst við að mála
íkona eða helgi-
myndir. Hinn síð-
astnefndi, Savas
Xiros, slasaðist 29.
júní af völdum
sprengju sem hann
var að handleika
og þurfti að leita læknishjálpar.
Varð atvikið til þess að koma lög-
reglunni á sporið og fann hún bæði
vopnageymslur og felustaði hermd-
arverkasamtakanna. Var Savas Xi-
ros fyrsti liðsmaður samtakanna
sem lögreglan klófesti þrátt fyrir
27 ára baráttu en á liðnum árum
hefur oft reynst erfitt að fá sjón-
arvotta til að bera vitni vegna
hræðslu almennings við samtökin,
að sögn tímaritsins The Economist.
Tveir hinna handteknu eru fast-
eignasalar og hefur annar þeirra,
Iraklis Kostaris, verið sakaður um
fjórar morðtilraunir.
„Ég veit ekki hvenær þeir höfðu
tíma til að taka þátt í ránum og
morðum,“ sagði Theodoros Tha-
nos, eigandi fasteignasölunnar.
„Þeir strituðu frá morgni til
kvölds.“
Sumir sakborninganna hafa
reynt að útskýra gerðir sínar. „Ég
taldi að samtökin væru að gera rétt
og væru að ýta undir breytingar í
heiminum,“ sagði einn bræðranna
þriggja, Christodoulos Xiros.
„Smám saman varð mér ljóst að
ekkert í þá veru var að gerast,
fremur hið gagnstæða, ég hætti að
taka þátt í pólitísku starfi fyrir tíu
árum en var áfram í sömu blindgöt-
unni.“
Barist við herforingjastjórn
Samtökin eru kennd við árás
sem menn herforingjaklíkunnar,
sem var við völd í Grikklandi í
nokkur ár á sjöunda og áttunda
áratugnum, gerðu á uppreisn-
armenn úr röðum stúdenta 17. nóv-
ember 1973. Einn hinna ákærðu er
Alexandros Yotopoulos, 58 ára
gamall marxisti og háskólakennari
sem flestir telja að hafi verið for-
sprakkinn og helsti hugmynda-
fræðingurinn.
Fjórir sakborningar hafa játað
aðild að morðtilræðum en Yotopou-
los vísar því hins vegar algerlega á
bug að hann hafi tekið þátt í að-
gerðum samtakanna. Hann notaði
falskt nafn í meira en 20 ár. Hann
fæddist í Frakklandi og var faðir
hans þekktur marxisti og sam-
verkamaður Leons Trotskís, eins
af helstu leiðtogum bylting-
armanna í Rússlandi 1917.
„Hann kom
aldrei of seint
í vinnuna“
Dagfarsprúðir launamenn í
Grikklandi reyndust lifa tvöföldu
lífi morðingja
Reuters
Alexandros Yotopoulos leiddur
inn í skrifstofu yfirvalda í
Aþenu í gær. Hann er 58 ára
gamall prófessor og talinn
helsti hugmyndafræðingur 17.
nóvember.
Aþenu. AP.
’ Þrír af hinumákærðu eru
bræður, synir
prests í rétttrún-
aðarkirkjunni. ‘
GRAY Davis, ríkisstjóri í Kaliforníu,
hefur staðfest nýja mengunarlöggjöf
sem fullyrt er að muni hafa áhrif á alla
bílaframleiðslu í Bandaríkjunum. Eru
bílaframleiðendur ævareiðir vegna
lagasetningarinnar en hún gerir ráð
fyrir að settar verði strangar reglur
um hámarkslosun gróðurhúsaloftteg-
unda frá bílum.
Kalifornía er fyrsta ríkið í Banda-
ríkjunum til að setja mengunarlög-
gjöf á borð við þessa en vísindamenn
segja aukið magn gróðurhúsaloftteg-
unda í andrúmsloftinu valda hækkun
hitastigs. Sagðist Davis vonast til
þess, er hann staðfesti lagasetn-
inguna með undirskrift sinni, að öll
ríki Bandaríkjanna – sem og önnur
lönd – fylgdu senn fordæminu.
Lögin taka gildi 1. janúar nk. og
fela í sér að settar verði reglur um
mengun bifreiða og er gert ráð fyrir
að þær taki til allra bifreiða sem koma
á götuna eftir árið 2009. Þá er í lög-
unum heimild til setningar reglugerð-
ar sem feli í sér tilskipun um að dregið
skuli verulega úr losun fólksbíla á
gróðurhúsalofttegundum frá og með
árinu 2005.
Bílaframleiðendur vestanhafs hafa
um árabil barist hart gegn því að sett-
ar verði reglur í líkingu við þessar.
Þykir lagasetningin því mikið áfall
fyrir þá. Er talið líklegt að þeir höfði
mál fyrir dómstólum en framleiðend-
ur halda því fram að þeir bílar, sem nú
eru framleiddir, séu þegar þannig út-
búnir að tryggt sé að mengun sé með
minnsta mögulega móti.
Ný mengunarlöggjöf
staðfest í Kaliforníu
Bílafram-
leiðendur
afar ósáttir
Los Angeles. AFP.