Morgunblaðið - 24.07.2002, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 24.07.2002, Qupperneq 6
FRÉTTIR 6 MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Tvöfaldur hraði – lægra verð H Á H R A Ð A S Í T E N G I N G V I Ð N E T I Ð Lágmarkshraði 512 Kb/s. ADSL II mótald að verðmæti 11.900 kr. fylgir með 12 mánaða áskrift að ADSL II. ADSL II mótald 11.900 kr. Hringdu strax í síma 800 1111. VERSLUNIN Bónus var með lægsta verðið en verslunin Europr- is fylgdi fast í kjölfarið þegar Morgunblaðið bar saman verð á fimm vörutegundum í fjórum mat- vöruverslunum á höfuðborgar- svæðinu í gær. Hæst var verðið í versluninni Krónunni en þar á eftir kom verslunin Nettó. Vörutegund- irnar fimm voru eitt kíló af íslensk- um tómötum, 1 lítri af appelsínu- safanum Trópí, 567 grömm af Cheerios, 2 kíló af sykri og 2 lítrar af Coca Cola. Í Bónus kostuðu þessar tegundir samtals 975. Í Eu- ropris kostuðu þær samtals 989. Í Nettó kostuðu þær samtals 1.027 og í Krónunni kostuðu þær samtals 1.041. Um 5,3% verðmunur var því á hæsta og lægsta verði. Blaðamenn Morgunblaðsins gerðu verðkönnunina í Bónus Faxafeni, í Europris Lynghálsi, í Krónunni Lágholtsvegi og í Nettó í Mjóddinni. Var vörunum rennt í gegnum kassa verslananna á tíma- bilinu frá kl. 13.20 til 13.30 í gær. Tekið skal fram að einungis var miðað við kassaverð. Þá er ekkert tillit tekið til gæða eða þjónustu. Af þeim fimm vörutegundum sem áður voru taldar upp var Bón- us með lægsta verðið í þremur til- fellum en Europris með lægsta verðið í tveimur tilvikum. Cheer- ios, 567 g, var ódýrast í Bónus. Þar var verðið 309 kr. Í Krónunni, Nettó og Europris var verðið hins vegar 329 kr. Um 6,5% munur var því á lægsta og hæsta verði. Íslenskir tómatar voru sömuleið- is ódýrastir í Bónus. Þar var kíló- verðið 149 kr. Í Krónunni, Nettó og Europris var kílóverðið hins vegar 165 kr. Verðmunur var því um 10% á hæsta og lægsta verði. Þá voru tveir lítrar af Coca Cola ódýrastir í Bónus. Þar kostuðu lítr- arnir tveir 179 kr. Í Krónunni, Nettó og Europris kostuðu þeir 189 kr. Þess má þó geta að í Eu- ropris var um Diet Coca Cola að ræða. Verðmunur var því um 11,8%. Appelsínudjúsinn Trópí, einn lítri, var hins vegar ódýrastur í Eu- ropris. Þar kostaði lítrinn 137 kr. Í Bónus kostaði hann 159 kr., í Nettó einnig 159 kr. en í Krónunni 173 kr. Verðmunur var því um 20%. Þess má þó geta að Trópí var ekki skráður í tölvukerfi Europris og á kassakvittuninni var hann merkt- ur: ýmis vara. Þar kom jafnframt fram að 14% virðisaukaskattur var lagður á djúsinn en gert er ráð fyr- ir því að lagður sé 24% virðisauka- skattur á appelsínusafa. Að lokum voru tvö kíló af dönsk- um sykri ódýrust í Europris. Þar kostuðu kílóin tvö 169 kr. Í Bónus kostuðu þau 179 kr., í Krónunni 185 kr. og í Nettó einnig 185 kr. Verðmunur var því rúmlega 9%. Verð á fimm vörutegundum Ódýrast er hjá Bónus                      !" # $       % ! & '  ! !       &                         ( $ $ )$ *+ )$    ,$  ) ! $ )$ *+ )$    ( -   ( ( NÝ fræðslumiðstöð þjóðgarðsins á Þingvöllum verður opnuð nú á föstudaginn, 26. júlí. Sigurður Oddsson þjóðgarðsvörður hafði yf- irumsjón með verkinu. Húsið er hannað af arkitektastofunni Glámu- Kím. Þar verður fjölbreytt marg- miðlunarsýning sem byggist á nýj- ustu tækni á sínu sviði. Sýningin er ein sú fyrsta hér á landi sem byggist að langmestu leyti á margmiðlun. Hönnuður sýningarinnar er Árni Páll Jóhannsson, hugbúnaðarfyr- irtækið Gagarín sá um margmiðl- unina og Einar Á.E. Sæmundsen, fræðslufulltrúi þjóðgarðsins, sá um handrit margmiðlunarhluta sýning- arinnar. Um yfirlestur texta sáu þeir Sigurður Líndal prófessor, Kristján Sæmundsson jarðfræð- ingur, Skúli Skúlason rektor, Orri Vésteinsson fornleifafræðingur og Jóhannes Sturlaugsson líffræð- ingur. Langur vegur að leiðarlokum Að sögn Guðnýjar Káradóttur, framkvæmdastjóra Gagarín, liggur mikil vinna að baki sýningunni. „Vinnan hófst með þarfagreiningu á gildi og hlutverki sýningarinnar, sem Gagarín vann fyrir þjóðgarð- inn. Vegna þess hve mikil vinna var lögð í grunnhugmyndina varð eft- irleikurinn auðveldari. Þá var búið að leggja línurnar um hvað yrði gert og hvernig ætti að setja sýn- inguna fram.“ Hringur Haf- steinsson var verkefnisstjóri hjá Gagarín og vann náið með Einari í hugmyndavinnu og uppsetningu margmiðlunarhluta sýningarinnar. Gagarín hefur unnið að ýmsum verkefnum álíka þessu, en ekki hef- ur verið opnuð sýning af þessu tagi áður hér á landi. Hins vegar var sömu tækni beitt á heimssýning- unni í Hannover árið 2000. Nútímaleg sýning fyrir ferðamenn Sýningin er mjög nútímaleg og virkar á þann veg að þegar komið er inn í nýja húsið verða á vegi manns þrjár tölvur með snert- iskjám. Þegar valið er tiltekið við- fangsefni hefst myndskeið um efnið sem stendur í nokkrar mínútur. Alls eru um 40 mínútur af efni á sýning- unni. Efnið verður bæði sjáanlegt á snertiskjánum og á stærri skjá ofan við viðkomandi sem fleiri geta horft á. Þannig eiga leiðsögumenn auð- velt með að stjórna sýningu fyrir heilan hóp ferðamanna. Einar Á.E. Sæmundsen segist hafa unnið handrit sýningarinnar í anda þeirrar leiðsagnar sem ferða- mönnum sé veitt um svæðið. „Helstu atriði úr sögu staðarins, ásamt fróðleik um náttúrufar og sérstöðu Þingvalla, mynda grunn sýningarinnar. Hana er hægt að sjá á fjórum tungumálum, íslensku, ensku, dönsku og þýsku, og er möguleiki að bæta við tungumálum síðar.“ Alls eru 25 meginþættir í handritinu sem skiptast nokkuð jafnt á milli sögu og náttúru. Ferða- menn geta á auðveldan hátt valið það efni sem þeim þykir mest spennandi án þess að þurfa að sjá alla sýninguna í einu. Á skjánum birtast myndskeið, ýmist brot úr kvikmyndum, þrívídd- arskýringarmyndir eða náttúrulífs- myndir, vandaður texti heyrist úr stefnuvirkum hátölurum. Hægt verður að velja um að sjá texta á skjánum og með því móti munu heyrnarskertir einnig njóta sýning- arinnar. Með þessum hætti er sýn- ingin bæði fyrir eyru og augu í senn. „Sýningin er sannkölluð menningartengd ferðaþjónusta, og er þjóðgarðinum til sóma,“ sagði Einar að lokum. Mikið gildi fyrir þjóðgarðinn Að sögn Sigurðar Oddssonar þjóðgarðsvarðar er gildi nýju fræðslumiðstöðvarinnar mjög mik- ið fyrir þjóðgarðinn. „Hér verður sýningin í öndvegi, en umhverfi hennar verður í anda Þingvalla. Veggir hússins eru úr grágrýti og sýna snið í berggrunni svæðisins. Þar að auki verður stór glerskjár sem sýnir myndir úr lífríki vatnsins meðan rennandi vatn leikur um skjáinn.“ Ný bílastæði við fræðslu- miðstöðina hafa leyst þau eldri af hólmi, og við það hefur aðstaða fyr- ir ferðamenn batnað til muna. Stefnt er að því að fræðslu- miðstöðin á Hakinu verði opin alla daga vikunnar frá fyrsta maí til fyrsta október, en eftir sam- komulagi á öðrum tímum. Morgunblaðið/Kristinn. Sigurður Oddsson, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum, við nýju fræðslumiðstöðina. Ný fræðslumiðstöð þjóðgarðsins senn opnuð Nútímaleg sýning á Þingvöllum Morgunblaðið/Kristinn. Vel völdum textum sem tengjast sögu Þingvalla er varpað á bergvegg- inn í nýju fræðslumiðstöðinni. Veggir hússins eru úr grágrýti. Á þessari skjámynd má sjá fjórar söguhetjur, þau Guðrúnu Ósvífurs- dóttur, Þorgeir Ljósvetningagoða, Hrafnkel Freysgoða og Gunnar á Hlíðarenda. Með því að snerta einhvert þeirra opnast fyrst kynning á viðkomandi söguhetju og því næst nýtt myndskeið, sem sýnir reiðleið viðkomandi til Alþingis séð úr lofti. Einnig sést hér skjáröndin við efri brún skjásins, en þar má velja leiðir um sýninguna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.