Morgunblaðið - 24.07.2002, Side 16
AKUREYRI
16 MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
STEINDÓR Stein-
dórsson, náttúru-
fræðingur frá Hlöð-
um, hefði orðið 100
ára 12. ágúst næst-
komandi, en hann
fæddist á Möðruvöll-
um í Hörgárdal 12.
ágúst 1902 og lést á
Akureyri 26. apríl
1997.
Steindór var einn
afkastamesti fræði-
maður 20. aldar, bæði
á sviði grasafræði og
bókaþýðinga, auk
þess sem hann tók
virkan þátt í stjórnmálum og
þjóðmálaum, sat í bæjarstjórn
Akureyrar og á Alþingi. Hann
kenndi við Menntaskólann á Ak-
ureyri í yfir fjóra áratugi og var
síðast skólameistari Menntaskól-
ans á Akureyri til 1972.
Aldarafmælis Steindórs Stein-
dórssonar frá Hlöðum – náttúru-
fræðingsins, kennarans og
mannsins – verður minnst með
ráðstefnu í Menntaskólanum á
Akureyri mánudaginn 12. ágúst
næstkomandi. Ráðstefnan verður
sett klukkan 9 með ávarpi Tóm-
asar Inga Olrich menntamálaráð-
herra og síðan hefst vísindaráð-
stefna um grasafræði þar sem
fjórir vísindamenn munu fjalla
um efni sem tengjast grasafræði-
rannsóknum Steindórs Stein-
dórssonar. Að loknum léttum há-
degisverði í boði Menntaskólans
á Akureyri munu sex kunningjar
Steindórs og vinir
fjalla um aðra þætti
í starfi hans og lífi.
Flutt verða brot úr
erindum og viðtöl-
um við Steindór úr
safni Ríkisútvarps-
ins og einnig verður
sýning á myndum
frá æviferli hans.
Síðdegis verður
opnuð sýning á
Amtsbókasafninu á
Akureyri á bókum,
handritum og mun-
um sem tengjast lífi
og starfi Steindórs
Steindórssonar frá Hlöðum.
Ráðstefnan er öllum opin, en
Akureyrarbær býður svo heið-
ursgestum til hátíðarkvöldverð-
ar, en Steindór var heiðursborg-
ari Akureyrar. Að aldarafmælinu
standa Menntamálaráðuneytið,
Menntaskólinn á Akureyri, Ak-
ureyrarbær, Háskóli Íslands,
Háskólinn á Akureyri, Náttúru-
fræðistofnun Íslands, Rann-
sóknastofnun landbúnaðarins og
Hið íslenska náttúrufræðifélag.
Frekari upplýsingar um aldaraf-
mæli Steindórs Steindórssonar
eru á heimasíðu á slóðinni http://
www.rala.is/steindor.
Í framkvæmdanefnd afmæl-
ishátíðarinnar eru dr. Bjarni
Guðleifsson hjá RALA, Steindór
Gunnarsson lögmaður, Tryggvi
Gíslason skólameistari og Þórir
Haraldsson, náttúrufræðikennari
við MA.
Efnt verður til
ráðstefnu í MA
Aldarminning Steindórs
Steindórssonar frá Hlöðum
DJANGODJASSHÁTÍÐIN
„Django Jazz 2002 Festival Ak-
ureyri“ verður haldin dagana 14.
til 17. ágúst næstkomandi. Þetta
er í annað sinn sem efnt er til
slíkrar hátíðar, en sú fyrsta sem
haldin var í fyrrasumar tókst ein-
staklega vel. Gestir fjölmenntu
mjög á tónleikana og seldust miðar
upp á þá alla, en lokatónleikarnir
fóru fram á Glerártorgi sem rúm-
aði á sjöunda hundrað manns.
Kveikjan að Django Jazz Festi-
val Akureyri er að sögn Jóns
Hlöðvers Áskelssonar, eins að-
standenda hátíðarinnar, árlegar
heimsóknir Robin Nolan Trio allt
frá árinu 1998.
Líta nánast á Akureyri
sem heimabæ
Pétur Bjarnason, sem einnig
stendur að hátíðinni, sagði tryggð
félaganna í Robin Nolan Trio við
Akureyri einstaka. Tríóið hefði
þegar það fyrst heimsótti bæinn
ekki öðlast þá frægð sem nú væri
staðreynd og þrátt fyrir að það
væri þétt bókað á tónleikum víða
um heim gæfu þeir félagar sér
ávallt tíma til að heimsækja bæinn
í ágústmánuði. „Þeir líta nánast á
Akureyri sem sinn heimabæ,“
sagði Pétur þegar hátíðin var
kynnt á blaðamannafundi á Gler-
ártorgi.
Hátíðin er tileinkuð Django
Reinhardt sem af mörgum er tal-
inn einn snjallasti djassgítarleikari
og djasstónskáld sem uppi hefur
verið. Hátíðin veitir landsmönnum
tækifæri til að sækja heimsviðburð
á heimaslóð og veitir einnig aðdá-
endum beggja vegna Atlantshafs
tækifæri til að mætast á miðri leið.
Í tengslum við hátíðina er haldið
námskeið sem þeir félagar í Robin
Nolan Trio sjá um, en fyrri nám-
skeið hafa verið árangursrík og
vinsæl. Þeir halda nú sitt fimmta
námskeið í Tónlistarskólanum á
Akureyri og lýkur því með tón-
leikum í innigötu Glerártorgs laug-
ardaginn 17. ágúst en úti ef veður
og aðstæður leyfa. Jón Hlöðver
sagði að þátttakendur á námskeið-
unum kæmu víða að og að jafnaði
bærist fjöldi fyrirspurna frá
áhugasömum útlendum tónlistar-
mönnum.
Fimm tíma stórtónleikar
á Glerártorgi
Þrennir tónleikar verða í boði á
Django-hátíðinni nú. Robin Nolan
Trio leikur í Ketilhúsinu fimmtu-
dagskvöldið 15. ágúst, Hot Club of
San Francisco leikur á sama stað á
föstudagskvöldinu, 16. ágúst, en
þetta er fimm manna hljómsveit
með hinn fræga gítarleikara Paul
Mehling í fararbroddi. Loks verða
stórtónleikar á Glerártorgi á laug-
ardagskvöld og standa þeir raunar
fram á sunnudag, eða til kl. 2 um
nóttina. Sígaunatónlist og djangó-
sveifla verður þar í fyrirrúmi í
stærsta innigötuveitingahúsi Ak-
ureyrar, en alls koma þar fram 14
tónlistarmenn, m.a. Robin Nolan
Trio, Hot Club of San Francisco,
Randy Greer, sem er víðþekktur
söngvari frá Barcelona og sló í
gegn á tónleikunum í fyrra en
einnig má nefna Björn Thoroddsen
og hljómsveitina Hrafnaspark,
hljómsveit sem varð til í kjölfar
fyrsta námskeiðs þeirra félaga í
Robin Nolan Trio.
Forsala aðgöngumiða á tón-
leikana er þegar hafin en miða má
nálgast í Pennanum-Bókvali á Ak-
ureyri og Pennanum-Eymundssyni
í Kringlunni í Reykjavík.
„Django Jazz Festival Akureyri“ verður haldin öðru sinni um miðjan ágúst
Heimsviðburður á heimaslóð
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Akureyrska djasshljómsveitin Hrafnaspark lék fyrir gesti og gangandi á
Glerártorgi þegar Djangodjass 2002 hátíðin var kynnt á blaðamannafundi.
TRÍÓIÐ Hrafnaspark, sem skipað
er gítarleikurunum Jóhanni Guð-
mundssyni og Ólafi Hauki Árnasyni
og bassaleikaranum Pétri Ingólfs-
syni, hefur þegið boð um að leika á
Django-hátíðinni í Torshalla í Sví-
þjóð 11. ágúst næstkomandi.
Hrafnaspark var stofnað eftir að
þremenningarnir höfðu allir sótt
námskeið Íslandsvinanna í Robin
Nolan-tríóinu og kynnst þar tónlist
Django Reinhardt, árið 1999.
„Þetta var fyrsta námskeiðið sem
Nolan hélt hérna. Við Jóhann vor-
um báðir að læra á klassískan gítar
en höfðum satt að segja ekkert
rosalegan áhuga á því námi – en
síðan vaknaði mikill áhugi hjá okk-
ur báðum á djassinum á námskeið-
inu,“ sagði Ólafur Haukur í samtali
við Morgunblaðið.
Þeir Jóhann voru sem sagt vinir
en þekktu ekkert til Péturs fyrir
námskeiðið. Þeir léku um stund
hver í sínu horni að því loknu en
tríóið stofnuðu þeir í maí 2001 „og
það má segja að við höfum verið á
kafi í Django-spili síðan. Þetta er
aðaláhugamálið og fátt annað sem
kemst að,“ sagði Ólafur Haukur.
Frumraun tríósins var Blue
North-tónlistarhátíðin á Ólafsfirði í
júní 2001 og svo Djangojazz-hátíðin
á Akureyri tveimur mánuðum
seinna. Í kjölfarið hefur tríóið spil-
að víðs vegar um Akureyri á hinum
ýmsu uppákomum sem og í nær-
liggjandi sveitum.
Hrafnaspark til Svíþjóðar
SVO gæti virst að bormenn á
Þeistareykjum væru að nálgast
aðsetur Húsavíkur-Jóns sem
fornar sagnir greina frá. Þegar
borinn Sleipnir var aðeins á
rúmlega 200 metra dýpi kom yf-
ir 200° heitt gufu/gasskot í hol-
una. Þetta var nokkuð óvænt og
var ákveðið að auka örygg-
isbúnað við borun umfram það
sem byrjað var með og venju-
legt er. Steyptur var tappi í
holuna og borinn tekinn ofan.
Er nú unnið við þær breytingar
á aðstöðu sem þarf til að tvö-
falda gosvara á holutoppi. Að
því loknu verður borinn reistur
að nýju og verkinu haldið
áfram með auknu öryggi gagn-
vart gufugosi og öðrum mögu-
legum hremmingum. Verkinu
seinkar um eina viku af þessum
sökum.
Morgunblaðið/BFH
Litadýrð er mikil á háhitasvæði Þeistareykja.
Heitt er í neðra
á Þeistareykjum
Mývatnssveit
ÚTLENDUR karlmaður, sem hand-
tekinn var í miðbæ Akureyrar sl.
föstudag eftir að hafa verið staðinn
að verki við að stela stafrænni
myndavél í Pedromyndum við Skipa-
götu, var í fyrradag úrskurðaður í
gæsluvarðhald þar til á föstudag.
Málið er enn í rannsókn og unnið
að öflun gagna. Maðurinn er með
norskt vegabréf og er eftirlýstur af
alþjóðalögreglunni Interpol.
Í gæsluvarð-
hald þar til
á föstudag
LANDSMÓTI skáta að Hömrum við
Akureyri var slitið í gær að viðstöddu
fjölmenni. Mótið tókst í alla staði afar
vel, en talið er að um 6–7 þúsund
manns hafi verið á svæðinu síðasta
laugardag, á opinberum heimsóknar-
degi. Forsvarsmenn landsmótsins
eru afar ánægðir með það hvernig til
tókst og segir Ásgeir Hreiðarsson,
umsjónarmaður svæðisins, að Hamr-
ar hafi nú fest sig í sessi sem líklegur
vettvangur fyrir landsmót skáta í
framtíðinni, á móti Úlfljótsvatni þar
sem landsmótin hafa flest verið hald-
in. „Það er rætt um að landsmótin
verið haldin að Hömrum í þriðja hvort
skipti og ég held að það verði ágætt,“
sagði Ásgeir.
„Þetta landsmót tókst mjög vel,
vonum framar raunar,“ sagði hann.
Hann sagði svæðið líta vel út þrátt
fyrir að 4-5 þúsund manns hafi að
jafnaði verið þar. „Það tekur einhvern
smá tíma að jafna sig, en heilt yfir lít-
ur það vel út.“
Landsmóti
skáta lokið
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Glatt var á hjalla á Landsmótinu
sem lauk á Akureyri í gærdag.
♦ ♦ ♦