Morgunblaðið - 24.07.2002, Side 19
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 2002 19
LIONSKLÚBBURINN Múli á
Fljótsdalshéraði og Lionsklúbbur
Seyðisfjarðar hafa undanfarna
daga starfrækt á Eiðum alþjóðlegar
unglingabúðir. Um er að ræða
verkefni í samvinnu við alþjóðlegu
Lionshreyfinguna og er þetta í
þriðja skiptið sem slíkar búðir eru
starfræktar á Íslandi. Unglinga-
skipti á vegum Lions hafa þó í mörg
ár farið fram milli Íslands og ann-
arra landa.
14 ungmenni á aldrinum 17 til 21
árs komu til landsins 12. júlí sl. og
fara af landi brott 24. júlí. Þau
koma frá Bandaríkjunum, Svíþjóð,
Sviss, Noregi, Írlandi, Danmörku,
Finnlandi, Hollandi, Belgíu og Jap-
an. Dagskrá þeirra hefur verið
ströng og mjög fjölbreytt. Auk þess
að skoða Egilsstaði og Fljótsdals-
hérað allt, Seyðisfjörð og Fjarða-
byggð var farið inn að Snæfelli og
vítt um Brúaröræfi. Þá var farið
með krakkana í þriggja daga ferð
frá Stórurð undir Dyrfjöllin, um
Borgarfjörð, Húsavík, Loðmundar-
fjörð og til Seyðisfjarðar og var
stór hluti leiðarinnar genginn.
Þá heimsóttu þau íþróttamót
ÚÍA og listahátíð ungs fólks á
Seyðisfirði.
Ástráður Magnússon hefur setið
í undirbúningsnefnd að verkefninu
fyrir hönd Múla. Hann segir tilgang
þess að fá unglingana austur vera
góða landkynningu, sem síðar getur
aukið ferðamannastraum til svæð-
isins. Þá stuðli slík ungmennaskipti
að auknum skilningi og vinarhug
milli þjóða. Þema búðanna nú er ís-
lensk náttúra og umhverfi, alþjóð-
leg vinátta og skilningur.
Íslenskir unglingar eiga þess
kost að komast í samsvarandi ung-
lingaskipti til annarra landa og fara
krakkar frá Austurlandi árlega í
búðir vítt og breitt um heiminn.
Unglingarnir hafa haldið til í
Barnaskólanum á Eiðum undir
handleiðslu búðastjóranna Lárusar
Bjarnasonar sýslumanns og sr. Vig-
fúsar Ingvarssonar en Gunnar
Sverrisson frá Lionsklúbbi Seyðis-
fjarðar var formaður undirbúnings-
nefndar.
Lionsklúbbar á Austurlandi sameinast um alþjóðlegar unglingabúðir á Eiðum
Auka skiln-
ing og
vinarhug
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Alþjóðlegar unglingabúðir Lions á Eiðum. F.v. Vigfús Ingvarsson og Lárus Bjarnason búðastjórar, 14 ung-
menni frá 10 þjóðlöndum og Gunnar Sverrisson og Ástráður Magnússon úr undirbúningshóp verkefnisins.
Egilsstaðir
SKÚLI Guðmundsson frá Sæ-
nautaseli tekur sig vel út á
hlaðinu á Sænautaseli ásamt heim-
alningunum þar. Skúli fæddist á
Sænautaseli og ólst þar upp þar til
bærinn fór í eyði árið 1943. Bær-
inn var síðan endurbyggður í upp-
runalegri mynd árið 1993 og síðan
hefur verið lifandi starfsemi á Sæ-
nautaseli.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Æskustöðva vitjað
Norður-Hérað
SVEITARSTJÓRN Breiðdals-
hrepps hefur samþykkt að ráða Sig-
fríði Þorsteinsdóttur, fyrrverandi
bæjarfulltrúa á Akureyri, í stöðu
sveitarstjóra Breiðdalshrepps frá
15. ágúst til loka kjörtímabilsins.
Sigfríður var bæjarfulltrúi á Ak-
ureyri í níu ár, þar af forseti bæj-
arstjórnar í þrjú ár og varabæjar-
fulltrúi í fjögur ár.
Sigfríður, sem var valin úr hópi
sex umsækjenda, hefur lokið prófi úr
félagsvísindadeild Háskóla Íslands í
stjórnmálafræði.
Breiðdalshreppur
Sigfríður
Þorsteins-
dóttir ráðin
sveitarstjóri
Norður-Hérað
VEIÐI hefur verið fremur róleg í
Þistilfjarðaránum fyrri hluta sumars
og í Hölkná komu fyrstu laxarnir á
land um miðjan júlí þegar Húsvíking-
ar voru þar að veiðum. Það voru þrír
laxar; þyngdin frá 5,5 pundum upp í
tíu pund sá stærsti og veiddust ofar-
lega í ánni á maðk og spún.
Þistilfjarðarárnar eru þekktar fyr-
ir stórlaxa og meðalþyngd veiddra
laxa er einna hæst í þeim ám en svo
virðist sem stórlaxinn hafi ekki skilað
sér sem skyldi það sem af er sumri.
Menn binda þó vonir við að úr rætist
þegar líður á sumarið með góðar smá-
laxagöngur en Hölkná er síðsumarsá
eins og Þistilfjarðarárnar eru al-
mennt. Gott veiðihús er við ána og all-
góður vegur upp að efsta veiðistað nr.
27, sem er um hálftíma akstur frá
veiðihúsinu. Mikil náttúrufegurð er
þar en áin rennur þarna um allstórt
gljúfur og veiðisvæðið endar við stór-
an foss þar sem laxinn safnast gjarn-
an saman. Þarna í óbyggðum Þistil-
fjarðar geta menn gleymt sér og
losnað við stress og amstur hvers-
dagsins og eflaust kunna margir að
meta það að þarna uppi er ekkert
samband á gemsanum.
Fyrstu
laxarnir
úr Hölkná
Þórshöfn
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Tengdafeðgarnir Gylfi Sigurðsson og Ívar Júlíusson eru fastagestir í
Þistilfjarðaránum. Með þeim er Hallgrímur Sigurðsson, sem veiddi
maríulaxinn sinn, en ungu dömurnar hafa fengið veiðiáhugann.
Moggabúðin
Derhúfa, aðeins 800 kr.
jöreign ehf
Sími 533 4040
www.kjoreign.is
Ármúla 21, Reykjavík
Dan V.S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali,
BLEIKJUKVÍSL
Stórglæsilegt einbýli á frábærum stað - Innb. bílsk.
Gert ráð fyrir aukaíb. í tengibygg. Fallegur garður. Góð loft-
hæð, fallegar innréttingar og góð gólf. Hús um 230 fm m.
bílsk. Fallegt og rólegt hverfi. Hús, sem öllum mun líða vel í.
Verð 28,7 millj. Nr. 2138