Morgunblaðið - 02.08.2002, Page 10
FRÉTTIR
10 FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
LANDSSÍMINN hefur gert umtalsverðar
breytingar á gjaldskrám sínum, bæði til
hækkunar og lækkunar, sem tóku gildi í
gær, 1. ágúst. Samkvæmt útreikningum
Landssímans hækkar meðalsímreikningur
heimila í talsímaþjónustu um 5,9%, reikn-
ingur heimila með einn GSM-síma og einn
fastlínusíma hækkar að meðaltali um 4,1%
en fyrir þau heimili sem eru með einn fast-
línusíma og tvo GSM-síma hækkar síma-
kostnaðurinn um 3,3% að meðaltali. Seðil-
gjald fyrir útsenda reikninga hækkar um
58% og mánaðargjöld fyrir svonefndar
ATM- og IP-þjónustur hækkað um 10%.
Lækkun er hins vegar á ADSL-þjónustu um
allt að 42% og farsímaþjónusta jafnt hækkar
og lækkar. Þá er boðuð hækkun á afnota-
gjöldum talsímans eftir 1. september þegar
Síminn hyggst hækka heimtaugagjald í
heildsölu um 16%.
Vægi símaþjónustu er 2,7% í vísitölu
neysluverðs og er hlutur Landsímans þar
langstærstur. Til samanburðar má geta þess
að vægi bensíns í vísitölunni er 3,8%. Á vísi-
töludeild Hagstofunnar treystu starfsmenn
sér ekki til þess í gær að reikna út áhrif
verðbreytinga Símans á vísitölu neyslu-
verðs. Sögðu að það tæki sinn tíma sökum
flókinnar gjaldskrár en bentu á að næsta
mæling Hagstofunnar á vísitölunni væri
væntanleg 13. ágúst nk. Þar myndi áhrif-
anna gæta.
Áfram ein lægstu símagjöld
meðal OECD-ríkja
Í tilkynningu frá Símanum segir að þrátt
fyrir verðbreytingarnar muni landsmenn
áfram búa við einna lægstu símagjöldin inn-
an OECD-ríkjanna, að teknu tilliti til kaup-
máttar. Breytingarnar nú séu einkum gerð-
ar til að laga tekjur einstakra
þjónustueininga að útlögðum kostnaði við
veitingu viðkomandi þjónustu. Þá megi
rekja hluta breytinganna til hækkana sem
orðið hafi á tengigjöldum annarra síma-
fyrirtækja hér á landi.
Samkvæmt útreikningum Landssímans er
meðalsímareikningur heimila í venjulegri
talsímaþjónustu 4.693 kr. á mánuði en mun
hækka um 277 kr. í 4.970 kr., eða um 5,9%.
Meðalsímareikningur í GSM-þjónustu er
sagður vera 3.501 kr. á mánuði en mun nú
hækka um 55 kr. í 3.556 kr., eða um 1,6%.
Fyrir heimili með einn fastlínusíma og einn
GSM-síma hækkar símakostnaður að með-
altali um 4,1% en hækkunin nemur 3,3% á
þeim heimilum sem eru með tvo GSM-síma
og einn venjulegan talsíma.
Allt að 36% hækkun á símtölum í
kerfi annarra farsímafyrirtækja
Breytingin í farsímakerfi Símans er tví-
þætt, annars vegar er lækkað mínútuverð
GSM-símtala í öll fastlínukerfi en hins vegar
er verð símtala sem hringd eru í GSM-síma
hjá Tali og Íslandssíma hækkað. Síminn
segir þessi fyrirtæki hafa undanfarna mán-
uði verið að hækka verð fyrir tengingu í sín
kerfi og þessum hækkunum hafi Síminn
ekki hleypt út í verðlagið fyrr en nú. Frá 1.
ágúst mun dagtaxti GSM-símtala í GSM-
síma hjá Tali og Íslandssíma hækka úr 21,90
kr. í 23,90 kr., eða um 9,1%. en nætur- og
kvöldtaxti hækkar úr 14,60 kr. í 19,90 kr.,
eða um 36%.
Verð á SMS-skeytum send til GSM-síma
hjá Íslandssíma og Tali hækkar úr 9 í 10 kr.
og upphafsgjald fyrir hringingar í kerfi
þessara fyrirtækja hækkar jafnframt.
Verð á GSM-símtölum í NMT-síma hækk-
ar úr 18 kr. í 23,90 kr. á dagtaxta en úr 13
kr. í 19,90 kr. á kvöld-, helgar- og næt-
urtaxta. Upphafsgjald símtala mun verða
óbreytt. Engin verðbreyting verður á sím-
tölum úr þjónustunni Frelsi.
Samkvæmt upplýsingum frá Símanum
munu GSM-símtöl í fastlínukerfi Tals, Halló
og Símans lækka úr 17 kr. í 15 kr. á mínútu,
eða um tæp 12%. Mínútuverð GSM-símtala í
fastlínukerfi Íslandssíma lækkar minna, eða
úr 17 kr. í 15,27 kr. vegna hækkunar Ís-
landssíma á gjöldum fyrir tengingu í sitt
kerfi. Þá mun upphafsgjald að degi til í
fastlínusíma hjá Íslandssíma hækka úr 2 kr.
í 2,40 kr og kvöld-, nætur- og helgartaxtinn
hækkar úr 13 kr. í 13,22 kr.
Fyrsta hækkun dagtaxta í
fastlínukerfinu í fimm ár
Mínútuverð fyrir símtal á dagtaxta í fastl-
ínukerfi Símans hækkar nú eftir að hafa
verið óbreytt frá árinu 1997. Dagtaxti fer úr
1,56 kr. í 1,69 kr. en kvöld-, nætur- og helg-
artaxti fer úr 0,85 kr. í 0,99 kr. Hið sama
mun gilda um símtöl í fastlínukerfi Tals og
Halló. Upphafsgjald símtala mun hins vegar
verða óbreytt 3,45 kr. Síminn segir að vegna
hækkana á tengigjöldum Íslandssíma hækki
símtöl í fastlínukerfi þess fyrirtækis meira.
Þannig fer upphafsgjaldið úr 3,45 kr. í 3,84
kr., dagtaxti fer í 1,97 kr. og kvöld-, nætur-
og helgartaxti í 1,22 kr.
Símtöl úr fastlínukerfi Símans í GSM-
kerfi fyrirtækisins breytast ekki að degi til
en kvöldtaxti hækkar úr 14 kr. í 14,60 kr.
Upphafsgjald breytist ekki. Hins vegar
hækka símtöl úr fastlínukerfinu í GSM-kerfi
Tals og Íslandssíma um allt að 18%, mest á
dagtaxta. Þá munu símtöl úr fastlínukerfi
Símans í NMT-síma hjá Símanum hækka á
dagtaxta úr 16,60 kr. í 18,86 kr. og úr 14,60
kr. í 16,16 kr. um kvöld, nætur og helgar.
Upphafsgjald þessara símtala er áfram 3,45
kr.
Í tilkynningu Símans kemur ennfremur
fram að meðalsímtal í upplýsingaveitur (t.d.
118) hækki um rúm 19%. Upphafsgjaldið fer
úr 27 kr. í 37 kr., sem er hækkun um 37%,
en mínútuverðið helst óbreytt. Meðalsímtal í
upplýsingaveitur varir í um 30 sekúndur og
kostar eftir hækkunina tæpar 62 kr. en Sím-
inn segir sambærilegt símtal hjá hinum nor-
rænu símafyrirtækjunum kosta frá 58 til
105 kr. Símtöl í þjónustuver Símans verða
áfram gjaldfrjáls.
Seðilgjald
hækkar um 58%
Síminn lækkar mánaðargjald á hærri
flutningshraða innan ADSL-þjónustunnar
en verð á minni flutningshraða er óbreytt.
Mánaðarverð fyrir 512 Kb ADSL-tengingu
lækkar um þriðjung, eða úr 5.000 kr. í 3.500
kr. Verð á 1536 Kb tengingu lækkar meira,
eða um rúm 42% og fer úr 12.000 kr. í 6.860
kr. Með þessari lækkun segist Síminn vera
að koma til móts við þá viðskiptavini sem
noti Netið hvað mest og þá sem óski eftir
meiri flutningsgetu.
Seðilgjald vegna útsendra reikninga
hækkar úr 95 kr. í 150 kr., eða um 58%, og
byggir Síminn þá ákvörðun á raunkostnaði
við meðhöndlun og útsendingu reikning-
anna. Bendir fyrirtækið á að símnotendur
geti komist hjá seðilgjaldinu með því að
nálgast reikninga sína á Netinu.
Landssíminn gerir breytingar á gjaldskrá sinni bæði til lækkunar og hækkunar
Boða hækkun á
afnotagjaldi tal-
símans í haust
Mínútuverð í talsíma hækkar en
ADSL-þjónusta lækkar
HALLÓ – Frjáls fjarskipti hf. hafa
komið mótmælum á framfæri við
Póst- og fjarskiptastofnun og Sam-
keppnisstofnun við boðaðri hækkun
Landssímans á heimtaugagjald um
rúm 16% hinn 1. september næst-
komandi. Segir fyrirtækið hækk-
unina vera gerða í krafti einokunar og
með þessu sé Landssíminn að hækka
símreikning heimilanna um eða yfir
200 milljónir króna á ári, án þess að
forsendur hafi verið lagðar fram við
almenning. Boðuð hækkun á heim-
taugargjaldinu sé langt umfram 5,9%
meðaltalshækkun á fastlínuþjónustu
Landssímans.
„Enn einu sinni tekur Landssíminn
sér það vald að færa til sín tekjur frá
samkeppnisaðilum, sem bersýnilega
gengur í berhögg við stefnu stjórn-
valda,“ segir í tilkynningu sem Halló
sendi frá sér síðdegis í gær í tilefni af
gjaldskrárbreytingum Símans. Segir
fyrirtækið hækkun á heimtaugar-
gjaldinu undanfarin misseri hafa ver-
ið umfram verðlag, eða sem nemur
328% á undanförnum 30 mánuðum. Á
þeim tíma hafi gjaldið farið úr 301 kr.
í 1.290 kr. frá 1. september nk.
Í tilkynningunni segir að Halló
muni ekki að svo stöddu hækka taxta
í fastlínukerfi sínu, er nefnist Halló
Jörð, utan símtala í önnur farsíma-
kerfi. Segir fyrirtækið að viðskipta-
vinir í föstu forvali njóti áfram 7%
lægri dagtaxta og 14% lægri kvöld-
og helgartaxta en hjá Símanum í öll-
um fastlínusímtölum. Jafnframt
hringi viðskiptavinir Halló á 30%
lægra mínútugjaldi sín á milli en hjá
Símanum. Þá er það áréttað að þrátt
fyrir 30% lækkun Símans á 512Kb
ADSL-tengingu niður í 3.500 kr. bjóði
Halló sambærilega tengingu á 3.050
kr. á mánuði.
Halló mót-
mælir boð-
aðri hækkun
á heim-
taugargjaldi
tauginni var gefinn frjáls hefur þessi
markaður verið að þróast og sam-
keppnin að taka á sig mynd. Síminn
hefur verið að endurmeta starfsem-
ina og sinn rekstur. Út af fyrir sig
kemur það mér ekki á óvart að fyr-
irtækið þurfi að breyta gjaldskránni.
Ég treysti á það að stjórnin meti
stöðu fyrirtækisins rétt og að gjald-
skráin endurspegli tekjuþörfina. Ég
hlýt einnig að treysta því að fyrirtæk-
ið fari gætilega í öllum hækkunum.
Ef ekki þá höfum við Póst- og fjar-
skiptastofnun og Samkeppnisstofnun
til að fylgjast með því að símafyrir-
tækin gangi ekki ótæpilega fram í
verðbreytingum,“ segir Sturla.
Hann bendir á að símagjöldin hér-
lendis hafi verið lág í samanburði við
STURLA Böðvarsson samgönguráð-
herra segist í samtali við Morgun-
blaðið treysta því að Landssíminn
fari gætilega í hækkunum á gjaldskrá
sinni. Búast hafi mátt við verðbreyt-
ingum og segist ráðherra treysta því
að eftirlitsstofnanir fylgist með síma-
fyrirtækjunum eins og lög geri ráð
fyrir.
Sturla segir að stjórn Landssímans
hafi farið yfir gjaldskrána mjög ítar-
lega að undanförnu og breytingarnar
nú séu niðurstaða þeirrar vinnu.
Jafnframt sé búið að tilkynna Póst-
og fjarskiptastofnun um breytingarn-
ar.
„Það hefur legið ljóst fyrir að ein-
hverjar breytingar yrðu á gjaldskrá
Símans. Eftir að aðgangur að heim-
önnur OECD-ríki. Mikilvægt sé að
Ísland haldi þeirri stöðu. Sturla segir
ánægjulega þá lækkun sem eigi sér
stað á ADSL-þjónustunni, hún eigi
ekki síst að koma fyrirtækjunum vel,
einkum í þéttbýli.
Tryggja þarf rétt verð
á heimtauginni
Hvað fyrirhugaða breytingu á af-
notagjaldinu varðar, vegna hækkun-
ar á heimtaugagjaldi, segir Sturla
mjög mikilvægt að Síminn standi klár
á þeim þætti eftir að aðgangur að
heimtauginni var gefinn frjáls. Verð-
lagning á heimtauginni þurfi að vera
rétt og sanngjörn fyrir ný símafyr-
irtæki á markaðnum, þannig að eðli-
leg samkeppni verði tryggð.
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra
Treysti því að Síminn fari
gætilega í hækkunum
Morgunblaðið/Kristinn
FORRÁÐAMENN Tals og Ís-
landssíma segja að að fyrirtæk-
in geri ekki breytingar á sínum
gjaldskrám í bili, þótt Lands-
síminn hafi breytt sinni gjald-
skrá.
Pétur Pétursson, upplýs-
ingafulltrúi Íslandssíma, segir
að fyrirtækið breyti ekki gjald-
skrá sinni þessi mánaðamót, að
öðru leyti en því að 1,5 Mb
ADSL-tenging lækki úr u.þ.b.
12.000 kr. á mánuði niður í
6.450 kr., eða ódýrar en Síminn
bjóði fyrir sambærilega þjón-
ustu.
„Við lítum svo á að þessi
gjaldskrárhækkun Símans
styrki samkeppnisstöðu okkar
á markaðnum. Við erum að
bjóða mun ódýrari þjónustu en
Síminn. Vorum við ódýrir áður
á flestum sviðum en erum enn
ódýrari nú,“ segir Pétur.
Tal skoðar málið í
kringum 10. ágúst
Þórólfur Árnason, forstjóri
Tals, segist vilja sjá betur
hvernig gjaldskrárbreyting
Símans komi út fyrir fyrirtækið
áður en ákvarðanir verði tekn-
ar. Í ljósi kostnaðarhækkana
almennt segist Þórólfur skilja
mjög vel hækkanir Símans.
Hann minnir á að upphaf hvers
reikningstímabils Tals sé 10.
hvers mánaðar og um það leyti
verði gjaldskráin skoðuð nánar.
Góðan tíma þurfi til að pæla sig
í gegnum flókna gjaldskrá Sím-
ans.
Tal og
Íslands-
sími
aðhafast
ekki í bili