Morgunblaðið - 02.08.2002, Side 37

Morgunblaðið - 02.08.2002, Side 37
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 2002 37 ✝ BergsveinnBreiðfjörð Gísla- son fæddist 22. júní 1921 í Rauðseyjum á Breiðafirði. Hann lést á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut 26. júlí síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru Gísli Bergsveinsson, f. 13. júlí 1877 í Bjarneyj- um á Breiðafirði, d. 15. maí 1939, sjó- maður, formaður, smiður og síðar bóndi, og seinni kona hans Magðalena Lára Kristjáns- dóttir, f. 13. nóvember 1897 í Sviðnum á Breiðafirði, d. 23. apríl 2001. Gísli og Magðalena bjuggu fyrst í Rauðseyjum á Breiðafirði en síðan í Akureyjum á Gilsfirði, í Fagurey á Breiðafirði og síðast í Ólafsey á Hvammsfirði. Systkini Bergsveins eru: Ingveldur, f. 4. apríl 1904, Lárus Ágúst, f. 17. ágúst 1905, d. 2. nóvember 1990, Jóna Sigríður, f. 8. janúar 1909, d. 6. ágúst 1999, Svava, f. 13. sept- ember. 1915, d. 22. janúar 1920, Kristinn Breiðfjörð, f. 9. október 1919, Svava f. 11. september 1922, d. 16. desember 1997, Kristjana, f. 23. janúar 1925, uppeldisbróðir Bergsveins er Magnús Guðmunds- son, f. 11. ágúst 1920. Bergsveinn hóf sambúð árið 1946 með Sigrúnu Sigurðardóttur, f. 23. nóvember 1920. Foreldrar hennar voru Sigurður Einarsson, bóndi í Gvendareyjum á Hvamms- firði, og Magnúsína Guðrún Björnsdóttir kona hans. Berg- sveinn og Sigrún slitu samvistir 1983. Börn Bergsveins og Sigrún- ar eru: Brynja f. 11. ágúst 1947, maki Theodór Guðmundsson, f. 15. september 1943. Synir: Guðni Sveinn, f. 1967, maki Dýrfinna aðir eru nú liðnir undir lok að mestu og eyjar og jarðir flestar í eyði. Þetta líf mótaði Bergsvein og hafði áhrif á framtíðarstarf hans sem var við skipasmíðar og hafn- argerð. Við andlát föður síns vorið 1939 stóð Bergsveinn fyrir búi í Ólafsey á Hvammsfirði, ásamt systkinum sínum, með móður þeirra til hausts 1941 er þau bregða búi. Önnuðust þeir Kristinn bróðir hans þá um tíma áætlunarsigling- ar frá Stykkishólmi inn á Skógar- strönd á báti sínum Sigurfara. Enginn vegur var þá um Skógar- strönd. Bergsveinn lærði skipasmíðar á Akureyri 1941–45 hjá Gunnari Jónssyni skipasmíðameistara. Bergsveinn vann við skipasmíðar í Landssmiðjunni og í Bátalóni í Hafnarfirði. Hann réðst sem teikn- ari til Vita- og hafnamálastjórnar- innar 1947. Hann varð síðan verk- stjóri hjá stofnuninni við hafnargerðir. Því starfi gegndi hann þar til hann lét af störfum fyrir aldurs sakir 1991, að undan- skildum tveimur árum er hann var sveitarstjóri í Stykkishólmi, 1966– 68. Bergsveinn var mikill áhuga- maður um bridds og spilaði um áratugaskeið með Breiðfirðinga- félaginu í Reykjavík. Bergsveinn var félagi í Verkstjórafélagi Reykjavíkur og sat í trúnaðarráði þess frá 1976-88. Hann starfaði einnig við útgáfu tímarits félags- ins, Breiðfirðings. Hann stundaði einnig söfnun örnefna í Breiða- firði um langt skeið og skráði nið- ur mikinn fróðleik um þau. Berg- sveinn var áhugamaður um laxveiðar og laxeldi og tók þátt í tilraun við að rækta upp laxa- gengd í Fagradalsá á Skarðströnd. Hann stjórnaði einnig smíði margra laxastiga í laxveiðiár. Bergsveinn og Sigrún bjuggu í Kópavogi 1951–1966, í Stykkis- hólmi 1966–1969 og frá 1969 í Reykjavík, lengst af á Laugarás- vegi 3. Síðustu árin átti Berg- sveinn heimili á Skúlagötu 20. Útför Bergsveins fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Sigurjónsdóttir, f. 1971. Dætur: Theo- dóra, f. 1998, og Elísa- bet Auður, f. 2001 Hlynur Snær, f. 1970, maki Guðlaug Björk Guðlaugsdóttir, f. 1971. Börn: Valtýr Freyr, f. 1992, Brynja Sif, f. 1994, og Sæ- björg Eva, f. 1999. Bergsveinn, f. 1982, unnusta Kolbrún Guð- mundsdóttir, f. 1984. Sigurður f. 22. júní 1949, maki Helga Bárðardóttir f. 27. ágúst 1949. Dætur: Sigrún, f. 1974, maki Ari Sigfússon, f. 1975. Sonur: Viktor Páll, f. 1997. Dröfn, f. 1978, unnusti Hringur Pjetursson, f. 1976, Bryndís, f. 1981, unnusti Gunnar Páll Ólafsson, f. 1977. Lára, f. 20. ágúst 1953, maki Guð- mundur Guðjónsson, f. 22. ágúst 1950. Börn: Sigurlaug Helga, f. 1982, unnusti Karl Gauti Stein- grímsson, f. 1977, Ríkarður Leó, f. 1985, Alma, f. 1. september 1955, maki Guðni Magnússon, f. 6. nóv- ember 1953. Synir: Janus Freyr, f. 1977, Magnús Már, f. 1981, Kári, f. 1986. Freyja, f. 8. janúar 1958, bú- sett í Garðabæ, maki Guðlaugur Þór Pálsson, f. 29. maí 1955. Börn: Arnþór, f. 1977, unnusta Sigrún Pétursdóttir, f. 1978, Björk, f. 1979, unnusti Valtýr Örn Árnason, f. 1976, Sandra, f. 1981, unnusti Haukur Logi Karlsson, f. 1979, Eg- ill, f. 1993. Bergsveinn Breiðfjörð ólst upp við eyjabúskap í Breiðafirði en á uppvaxtarárum hans var mikil byggð við Breiðafjörð. Forfeður hans höfðu búið í og við Breiða- fjörð um aldir. Margir af forfeðr- um og frændum Bergsveins voru afkastamiklir skipasmiðir. Þeir búskaparhættir er þar voru stund- Bergsveinn mágur minn var borinn og barnfæddur í Breiða- fjarðareyjum og var alla tíð tengd- ur hinu breiðfirska umhverfi sterkum böndum. Bernskuminning mín kallar fram mynd af Bergsveini sem afar gjörvilegum ungum manni. Hann átti þá heima í Ólafsey, sem er næsta eyja við Gvendareyjar, þar sem ég ólst upp. Fimm eyjar voru þá enn í byggð í klasa þeim sem gjarnan er kallaðar Suðureyjar, og var samhjálp mikil með þeim sem þar bjuggu, ekki síst um flutninga hvers konar. Bræðurnir í Ólafsey, þeir Bergsveinn og Kristinn, fóru á þeirri tíð um sund og strauma á gangmikilli trillu, Sigurfara, sem í mínum barnshuga stafaði nokkrum ljóma af. En rómantíkin átti líka sinn stað í eyjunum meðal þeirra sem þar ólust upp til fullorðinsára. Að minnsta kosti höguðu atvikin því svo að þeir bræður úr Ólafsey urðu báðir mágar mínir. Bergsveinn stundaði iðnnám á unga aldri og lauk prófi í skipa- smíðum. Hann gerðist snemma starfsmaður Vita- og hafnamála- stjórnarinnar og stjórnaði um ára- tuga skeið byggingu hafnarmann- virkja víða um land. Ég fékk að reyna það hve örugglega hann gekk til verks á þeim vettvangi þegar ég á skólaárunum starfaði hjá honum nokkur sumur. Unnið var þá að hafnarbótum á ýmsum stöðum á Suðurnesjum, svo og að gerð sjóvarnargarða. Einnig var starfað að því sumarpart að lengja bryggju í Kópavogi. Bergsveinn var mjög góður verkstjóri, skipti aldrei skapi, var hófsamur í orðum og sýndi mikla gætni, enda ekki vanþörf á þar sem unnið er með stórvirk vinnutæki. Bergsveinn var meðalmaður á hæð en þéttur á velli og áreið- anlega rammur að afli. Hann var handstór og handtakið afar þétt, sem eins og undirstrikaði hið hlý- lega viðmót sem honum var svo eiginlegt. Þótt Bergsveinn ætti heima hér syðra mikinn hluta ævinnar hélt hann ávallt nánum tengslum við Breiðafjörð. Mörg hin síðari ár átti hann trillu sem hann hafði komið sér upp og geymdi í Stykkishólmi. Við Margrét minnumst með mikilli ánægju vorferða sem við fórum með honum á árum áður á trillunni út í eyjar að leita að svartbaks- eggjum. Ein hin síðasta og minn- isstæðasta slíkra ferða var þegar við leituðum Gjarðeyjar fyrir Daníel bónda á Dröngum. Auk okkar þriggja voru með í för Jón faðir Daníels, áður bóndi í Hval- látrum, og Ívar Orgland, hið góð- kunna norska skáld og þýðandi. Nú eru allir þessir heiðursmenn látnir, Bergsveinn, Jón og Ívar. Þau Bergsveinn og Sigrún systir mín áttu lengst af sinni búskap- artíð heima í Kópavogi, en síðast í Reykjavík. Börn þeirra eru fimm, allt vel gert fjölskyldufólk, og af- komendurnir eru orðnir 26 talsins. Bergsveinn hafði átt við hjarta- sjúkdóm að stríða hin síðari ár, en fór þó sinna ferða. Hann hélt myndarlega upp á áttræðisafmæli sitt fyrir rúmu ári, og sérlega ánægjulegt er til þess að hugsa að einungis tæpri viku fyrir andlát sitt fóru þeir bræður, Bergsveinn og Kristinn, saman frá Stykkis- hólmi og inn um eyjar Breiða- fjarðar, rétt eins og þeir höfðu svo oft gert allt frá æskudögum. Því miður getum við Margrét ekki fylgt Bergsveini til grafar vegna fjarveru erlendis, en við þökkum honum góð og ánægjuleg kynni fyrr og síðar og vottum að- standendum hans innilega samúð. Einar Sigurðsson. Það var fyrir fáeinum árum, í erfidrykkju eftir þann mikla hag- leiksmann Sigurð Jakob Magnús- son, sem ég hitti Bergsvein Breið- fjörð Gíslason fyrst. Við tókum tal saman, og ég man ekki hvers vegna, en man þó, að brátt barst umræðan að Gretti sterka og Drangeyjarsundi hans og því flími sem haft er uppi um karlmennsku kappans þá hann vaknar morguninn eftir volkið. Þessi umræða um Gretti og sund- afrek hans varð til þess að ég kynntist Begga og hans ákveðnu skoðunum á Íslendingasögunum – og þótt við værum fráleitt sam- mála um kirtlastarfsemi og ástríð- ur allra fornkappa Íslendingasagn- anna tókst með okkur ágætur kunningsskapur sem varð til þess að Beggi kom gjarnan hingað út á Laugarnestanga, þegar vel viðraði, og aðstoðaði mig við smíðar, eða rétti Aðalsteini frænda sínum hjálparhönd. Ég vissi að hann átti við veikindi að stríða, en honum virtist ánægja af að taka sér smíðatól í hönd þegar heilsan leyfði. Beggi var óvenju handlag- inn og listrænn í því handverki sem hann tók að sér. Í vor tjáði hann mér að hann hefði nýlega sótt sérstakt námskeið í útskurði á tré og vildi gjarnan sýna mér hvað hann gæti. Ég sagði honum að mig hefði lengi langað til að prýða norðurgafl hússins með útskornum vindskeiðum. Bergsveinn sam- þykkti að taka það verk að sér og Aðalsteinn fann fyrir hann forláta rauðviðarfjalir. Beggi tók þær með sér og ætlaði að skera út í þær minningar úr Íslendingasögunum. Beggi var „eyjamaður“ og í vor kom hann hér eitt kvöldið og spurði hljóðlega: Heldurðu að gæsin sé byrjuð að verpa! – Ég á hér svartbaksegg, svaraði ég. – Æ, það fer einhver fiðringur um mig í þessari vorbirtu – bara eitt egg og þá er ég kominn í samband! Svo breiddist unglingslegt bros yfir andlitið og í augunum brá fyrir glóð sem ég hafði ekki séð áður. Flestir þeirra sem dvalið hafa í æsku við Breiðafjörð þekkja trú- lega þessa bragðsterku tilfinningu sem fylgir vorkomunni; nýmeti! Fyrir aðeins viku birtist hann hér á hlaðinu ásamt kunningjafólki og spurði hvort hann mætti ekki sýna því húsið og það sem þeir Að- alsteinn hefðu verið að smíða. Það var að sjálfsögðu auðsótt. Ég spurði hann, hvað vindskeiðunum liði, og hann kvaðst vera búinn að hugsa mikið og nú væru þær loks orðnar klárar – „þær eru klárar inni í höfðinu á mér og ég er byrj- aður“ – bætti hann svo við og brosti útundan sér þessu breiða kankvísa brosi, sem ég hafði reynt, að var öruggt merki um að honum myndi takast vel upp. En nú er þessi kurteisi og elskulegi sóma- drengur allur – og víst mun hans saknað hér á Laugarnestanganum, þar sem hús og munir munu bera handverki hans merki á meðan húsið fær að standa – og ég get haldið áfram að fantasera um hvernig vindskeiðarnar hans Begga hefðu orðið. Við Edda og Örk litla viljum með þessum örfáu línum færa fjöl- skyldu hans og öðrum vandamönn- um okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Hrafn Gunnlaugsson kvikmyndaleikstjóri og rithöfundur. Fyrir hálfum öðrum áratug fékk ég það verkefni að skrifa um Suð- ureyjar á Breiðafirði í Árbók Ferðafélags Íslands fyrir árið 1989. Ég kom eins og hálfblindur hvolpur vestur í Stykkishólm og þekkti eyjarnar ekki nema sem ferðalangur. Nokkur staðkunnug góðmenni sigldu því með mig dög- um saman á smábátum um þessa tugi eyja sem eitt sinn höfðu verið byggðar um lengri eða skemmri tíma og einna drýgstur þeirra var Bergsveinn. Ég þekkti hann ekki áður, en eftir hálfan dag var næst- um eins og við hefðum alist upp saman. Bergsveinn var góður sjávar- fræðikennari fyrir þann sem sjald- an mé í saltan sjó. Hann þekkti að sjálfsögðu hverja eyju og gat vísað á byggðarleifar hennar, vatnsból, slægjur, mótak og vissi hvaða lendingu skyldi nota í hverri vind- átt. Auk eyjanna sjálfra áttu hólm- ar og sker sína sögu, ýmist kátlega eða dapurlega, sannsögulega eða uppdiktaða og færða í stíl af list- fengum sagnamanni. Þá var einkar lærdómsríkt að kynnast í návígi þeim hættum og þeirri gjörþekk- ingu sem þurfti til að stýra rétt milli einstakra skerja. Það var háskaferð líkast að sigla um hina hörðu strauma í mynni Hvamms- fjarðar. Bergsveinn kom undirrit- uðum tossa til nokkurs þroska á þessu sviði. Litlu seinna áttum við nokkur ár samstarf um útgáfu tímaritsins Breiðfirðingur, ég sem annar rit- stjóra og hann sem afgreiðslumað- ur. Bergsveinn átti líka greinar í ritinu, til að mynda um vinnubrögð við eyjaflutninga, Bátasmíðastöð Breiðfirðinga og Oddbjarnarsker, en hann fylgdist árum saman með og mældi breytingar á þeirri fornu og furðulegu verstöð. Einnig var hann natinn við að útvega ritinu forvitnilegt efni frá mönnum sem ekki komu sér að því að bjóða það sjálfir. Bergsveinn hafði einkar nota- lega og upplífgandi návist. Með þessum orðum skal þakkað fyrir stutt en góð kynni. Árni Björnsson. BERGSVEINN BREIÐFJÖRÐ GÍSLASON ,   )        -    .      !/              / / 6 A?     = ! / 0       (  ! !    !     ,,  1 !      (+ ,0,,)  = !  *+   , *+  *  *+ ), *  *  *+ / ,   )     )    -       !/ <  : =77   %  $' B@   '/ 21 ./ ,' 7 )     ,'   &'(  ,' )  (    ,' )  5 - ,. ,'   5 - ,. (+,   ), ' '  /

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.