Morgunblaðið - 02.08.2002, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 02.08.2002, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 2002 43 DAGBÓK Mikið af blússum og buxum fyrir verslunarmannahelgina Nýbýlavegi 12, Kópavogi, sími 554 4433. Verð frá kr. 1.790 SUMARBRIDS stendur yf- ir alla virka daga í húsnæði BSÍ við Síðumúla 36. Tví- menningur er keppnisform sumarsins, nema á föstu- dagskvöldum, en þá er byrj- að á hefðbundinni tvímenn- ingskeppni og svo tekið til við svokallaða „miðnætur- sveitakeppni“. Keppendur kvöldsins splæsa sig saman í sveitir og spila nokkrar um- ferðir af stuttum leikjum. Spilið að neðan kom upp eftir miðnætti á föstudagskvöldið: Suður gefur; allir á hættu. Norður ♠ ÁKG10 ♥ D32 ♦ KG86 ♣D9 Vestur Austur ♠ 87643 ♠ D9 ♥ – ♥ ÁG108 ♦ 1032 ♦ 9754 ♣65432 ♣K108 Suður ♠ 52 ♥ K97654 ♦ ÁD ♣ÁG7 NS eiga góð spil og kannski nóg í slemmu. Heið- ar Sigurjónsson og Daníel Már Sigurðsson töldu svo vera: Vestur Norður Austur Suður Daníel Heiðar – – – 1 hjarta Pass 1 spaði Pass 1 grand Pass 2 tíglar * Pass 3 hjörtu Pass 4 grönd Pass 5 tíglar Pass 6 hjörtu Dobl Pass Pass Redobl Pass 6 grönd Pass Pass Dobl Allir pass Eftir hjartaopnun og spaðasvar velur Heiðar að sýna 12–14 punkta með einu grandi, þrátt fyrir sexlitinn í hjarta. Daníel krefur í geim með tveimur tíglum (tví- hleypunni) og þá stekkur Heiðar í hjarta. Eftir lykil- spilaspurningu (með við- snúnum svörum) hyggst Daníel ljúka sögnum í hjartaslemmu, en fyllist efa- semdum þegar austur dobl- ar og redoblar til að varpa ábyrgðinni yfir á makker. Heiðar axlar þá ábyrgð og breytir í sex grönd sem aust- ur gat ekki annað en doblað, sóma síns vegna. Vestur kom út með spaða- áttu. Heiðar horfði vel og lengi á áttuna, tók svo með ás í borði og nían kom frá austri. Ekkert er öruggt í þessum heimi, en þessi þró- un í spaðalitnum benti til að austur ætti D9 tvíspil í spaða. Hvað um það. Heiðar tók ÁD í tígli og spilaði hjarta á drottninguna. Aust- ur drap með ásnum og spil- aði gosanum um hæl á kóng suðurs. Minnugur fyrsta slagsins spilaði Heiðar nú spaða á KÓNG og felldi drottninguna. Hann tók síð- an fríslagina á spaða og tígli og þvingaði austur til að henda einu laufi. Eftir vel heppnaða laufsvíningu varð laufsjöan tólfti slagurinn. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson Árnað heilla 60 ÁRA afmæli. Mánu-daginn 5. ágúst er sextugur Jón Pálsson, veit- ingamaður í Hafnarfirði. Af því tilefni munu Jón og Pálmey Ottósdóttir, eigin- kona hans, halda upp á dag- inn með fjölskyldu og vinum í sumarbústað sínum í Hraunborgum í Grímsnesi frá kl. 13–17. Fólk er beðið að gá til veðurs áður en það leggur á heiðina. 50 ára afmæli. Í dag,föstudaginn 2. ágúst, er fimmtug Sigurbjörg Ei- ríksdóttir, framkvæmda- stjóri, Skaftahlíð 9, Reykja- vík. Eiginmaður hennar er Ómar Sigurðsson. Þau verða að heiman á afmælis- daginn. 50 ÁRA afmæli. Mánu-daginn 5. ágúst er fimmtugur Þorsteinn Arth- ursson, Álfhólsvegi 121, Kópavogi. Í tilefni af þeim tímamótum taka hann og kona hans Guðrún P. Guðnadóttir á móti gestum í Kíwanishúsinu í Kópavogi, Smiðjuvegi 13a, laugardag- inn 10. ágúst milli kl. 20 til 23. Ættingjar og vinir eru hjartanlega velkomnir. LJÓÐABROT SJÓMANNASÖNGUR Út til sigurs siglum drengir, sorta nætur léttir af, því skal hátt við húna traf hefja, – meðan þola strengir. Huga lyftir hrannar bragur, heillandi’ eins og sólardagur, færi eldi’ um fold og haf. Knörinn ristir straum frá ströndum, stefnir fram á yztu mið; Snæfellsás á hægri hlið hrinur sendir voðum þöndum. Skriður eykst, en skautin togna, skjálfa rár og siglur bogna, stormur spyrnir spor í Svið. Þó að sær um þiljur rjúki, þolnir göngum starfa að, réttir menn á réttum stað, hirðum ei þótt yfir lúki. Herðum strengi’ á höllu fleyi, hugreifir á nótt sem degi. Sæfarendum sæmir það. Jón S. Bergmann 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. Rc3 Rf6 4. d4 cxd4 5. Dxd4 Rc6 6. Bb5 Bd7 7. Bxc6 Bxc6 8. Bg5 e6 9. 0–0–0 Be7 10. Hhe1 0–0 11. Kb1 Da5 12. Dd2 Hfc8 13. Rd5 Dxd2 14. Rxe7+ Kf8 15. Rxd2 Kxe7 16. f3 h6 17. Bh4 g5 18. Bf2 Bb5 19. b3 Rd7 20. Bd4 Re5 21. c4 Ba6 22. a4 b6 23. Rf1 Rg6 24. Re3 Bb7 25. Rg4 h5 26. Bf6+ Kd7 27. Rh6 Hf8 28. e5 d5 29. cxd5 Bxd5 Staðan kom upp á Eurotel-mótinu sem lauk fyrir nokkru í Prag. Vassily Ivan- sjúk (2711) hafði hvítt gegn Boris Gelfand (2710). 30. Rxf7! g4 30... Hxf7 gekk ekki upp vegna 31. Hxd5+ exd5 32. e6+og hvítur stend- ur til vinnings. 31. fxg4 hxg4 32. Rh6 Kc6 33. b4 Bxg2 34. Rxg4 Hac8 35. Hd4 Kb7 36. Re3 Bh3 37. Kb2 Hc7 38. Rc4 Ka8 39. Hed1 Hfc8 40. Hc1 Bf1 41. Hxf1 Hxc4 42. Hxc4 Hxc4 43. Hg1 Rf4 44. Kb3 He4 45. h4 Rd5 46. b5 He3+ 47. Kc2 Hh3 48. Hg8+ Kb7 49. He8 Re3+ 50. Kd2 Rf5 51. Hxe6 Rxh4 52. He7+ Kb8 53. e6 Rf5 54. Be5+ Kc8 55. Hc7+ Kd8 56. Hxa7 He3 57. Bf6+ Kc8 58. e7 og svart- ur gafst upp. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. Morgunblaðið/Kristinn Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu og söfnuðu 4.500 kr. til styrktar Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna. Þær heita Hjördís Friðbjarnardóttir og Bjarndís Sjöfn Blandon. STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake LJÓN Afmælisbörn dagsins: Þú hugsar stöðugt um það hvernig þú kemur öðrum fyrir sjónir. Þú veist hvernig þú átt að koma fyrir og hámarka útlit þitt. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú ert stórhuga í dag þegar kemur að eignum, heimili og samskiptum við fjölskylduna. Fyrirætlanir þínar eru fyrsta skrefið að dásamlegum breytingum í lífi þínu. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú ert bjartsýn(n) á lífið og tilveruna í dag. Ígrundaðu þennan eiginleika þinn, svo þú getir kallað hann fram á dögum þegar útlitið virðist svartara. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú finnur fyrir göfuglyndi og örlæti gagnvart öllum í dag. Hafðu það hugfast þegar þú hjálpar fólki að sá sem er í sanni örlátur gefur fólki það sem það þarfnast. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þér líður dásamlega í dag, bæði andlega og líkamlega. Þú ert reiðubúin(n) að henda þér út í hringiðuna með ákefð og þrótti, því þú ert skyndi- lega full(ur) sjálfstrausts. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú býrð yfir heimspekilegri og andlegri hugmyndaauðgi í dag. Þú átt gott með að glöggva þig á gangi tilver- unnar og hvert þitt hlutverk er á leiksviði lífsins. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Gættu þín á að fyllast ekki of mikilli ákefð og lofa vinum þínum einhverju sem þú munt síðar sjá eftir. Treystu á góðar fyrirætlanir þínar en ekki ætla þér of mikið. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Allt varðandi frama þinn og orðstír í þjóðfélaginu lofar góðu í dag. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú skalt leggja stund á hvað- eina í dag sem er heillandi og mikilvægt. Þú þráir að auka þekkingu þína á mörgum málefnum sem þú myndir oft- ast nær telja skilningi þínum ofvaxin. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Hugsaðu jákvætt því að þú munt fá góða hluti upp í hend- urnar í dag. Þú munt á ein- hvern máta njóta góðs af auð- legð annarra, þar á meðal maka þíns. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Dagurinn er kjörinn til að njóta samvista við nána vini og maka. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Leggðu hart að þér í vinnunni í dag, því þér getur orðið vel ágengt. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Það er viðbúið að eitthvert daður verði í gangi í dag. Taktu á móti deginum með bjartsýni, því þú getur átt einkar skemmtilegan dag. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. KIRKJUSTARF Landakirkja. Kl. 14.30. Helgistund við setningu þjóðhátíðar í Herjólfsdal. Kór Landakirkju syngur við undirleik félaga úr Lúðrasveit Vestmannaeyja. Sr. Krist- ján Björnsson flytur hugvekju. Beðið verður fyrir gleðilegri hátíð. Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9. Sam- komur alla laugardaga kl. 11–12.30. Lofgjörð, barnasaga, prédikun og biblíu- fræðsla. Barna- og unglingadeildir á laugardögum. Létt hressing eftir sam- komuna. Allir velkomnir. Biblíufræðsla alla virka daga kl. 10, 13 og 22 á FM 105,5. Hvítasunnukirkjan á Akureyri. Fríkirkjan KEFAS, Vatnsendabletti 601: Samkoma fellur niður sunnudaginn 4. ágúst. Þriðjud.: Bænastund og brauðs- brotning kl. 20.30. Miðvikud.: Samveru- stund unga fólksins kl. 20.30. Mikil lof- gjörð og Orð Guðs rætt. Allir velkomnir. Ábæjarkirkja, Austurdal í Skagafirði. Árleg messa verður sunnudaginn 4. ágúst kl. 14. Sóknarpresturinn sr. Ólaf- ur Þ. Hallgrímsson predikar og þjónar fyrir altari. Einsöng syngur Helga Rós Indriðadóttir óperusöngkona. Kirkjukór Mælifellsprestakalls leiðir söng, organ- isti Sveinn Árnason. Kirkjukaffi verður á Merkigili að lokinni athöfn. Safnaðarstarf Hlutavelta

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.