Morgunblaðið - 13.08.2002, Side 1

Morgunblaðið - 13.08.2002, Side 1
187. TBL. 90. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 13. ÁGÚST 2002 ÁIN RODL í norðurhluta Austur- ríkis flæddi í gær yfir bakka sína og á myndinni sjást afleiðingar þess í bænum Rottenegg. Mikil flóð í Mið- og Austur-Evrópu undanfarna daga hafa valdið gríðarmiklu mann- og eignatjóni og er frekari úrkomu spáð á næstu dögum. Stjórnvöld í Tékklandi til- kynntu síðdegis í gær að lýst hefði verið yfir neyðarástandi í höfuðborginni Prag og fjórum öðrum héruðum landsins en sjö hafa látist undanfarna daga vegna flóðanna. Fyrr um daginn hafði neyðarástandi verið lýst yf- ir í Salzburg í Austurríki. Er ljóst að a.m.k. 74 hafa farist í hamförum undanfarinna daga í Evrópu, þar af 58 í Rússlandi. Talsmenn samtaka um ferða- þjónustu í Evrópu segja slæmt veður í sumar hafa valdið þeim miklu fjárhagslegu tjóni og að flóðin nú bæti því gráu ofan á svart. Sólin var sjaldséð í flestum ríkjum Evrópu í júlí og miklar rigningar í byrjun ágúst, sérstak- lega í Austurríki, Bretlandi og Þýskalandi, drógu enn frekar kjark úr ferðamönnum. Reuters Víða neyð- arástand vegna vatnavaxta  Lítið/20 FJÖLMIÐLAR í Ísrael sögðu í gær að Ariel Sharon, forsætisráðherra landsins, íhugaði nú að boða til kosn- inga fyrr en gert hefur verið ráð fyr- ir. Er Sharon sagður velta fyrir sér að halda þingkosningar strax í jan- úar – en að öllu óbreyttu ættu kosn- ingar að fara fram um haustið 2003 – takist honum ekki að fylkja sam- steypustjórn sinni á bak við miklar sparnaðaraðgerðir í tengslum við fjárlagagerðina fyrir árið 2003. Ráðherrar Verkamannaflokksins og Shas-bókstafstrúarflokksins voru allt annað en ánægðir með sparnað- araðgerðirnar, sem beinast m.a. að varnar- og velferðarmálum, þegar þær voru teknar fyrir á ríkisstjórn- arfundi 30. júlí sl. Snúist þingmenn flokkanna gegn fjárlagafrumvarpinu er næsta víst að það verði fellt. Fram kom hins vegar í ísraelska ríkisútvarpinu í gær að Sharon, sem er leiðtogi Likud-bandalagsins, væri reiðubúinn að láta sverfa til stáls þegar ísraelska þingið kemur aftur saman í október. Var hann sagður ætla að reka þá ráðherra, sem ekki greiddu atkvæði með fjárlagafrum- varpinu, og síðan myndi hann biðja forseta landsins, Moshe Katsav, um að rjúfa þing og boða til kosninga. Ný vonarstjarna hjá Verkamannaflokknum Skoðanakannanir í Ísrael þykja sýna að mjög hefur dregið úr vin- sældum Sharons undanfarnar vikur og nú er svo komið að meira en helm- ingur Ísraela telur að Sharon viti engan veginn hvernig hann eigi að fara að því að binda enda á blóðbaðið í Mið-Austurlöndum, sem varað hef- ur í 22 mánuði. Á sama tíma hafa mjög aukist vin- sældir Amrams Mitzna, borgar- stjóra í Haifa, og bendir ýmislegt til að hann gæti hrifsað forsætisráð- herrastólinn af Sharon. Mitzna, sem þjónaði í ísraelska hernum um þriggja áratuga skeið áður en hann varð borgarstjóri Haifa árið 1993, til- kynnti í gær að hann sæktist eftir því að veita Verkamannaflokknum for- ystu í komandi kosningum. Kannan- ir benda til að Mitzna, sem hefur ekki áður tekið þátt í landsmálapóli- tík, njóti mun meiri vinsælda en Bin- yamin Ben-Eliezer varnarmálaráð- herra og ýmsir úr hófsamari armi Verkamannaflokksins hafa hótað því að segja skilið við flokkinn ef Ben- Eliezer verður áfram leiðtogi hans. Sharon íhugar að flýta kosningum Jerúsalem. AFP, AP. MIKIL spenna er nú í samskiptum Rússa og Georgíumanna og óttast sumir að til átaka kunni að koma. Sökuðu stjórnvöld í Georgíu rúss- neska landamæraverði í gær um að hafa í annað skipti á einni viku farið ólöglega inn í landið ásamt aðskiln- aðarsinnum frá Abkhazíu. Rússar sögðu ekkert hæft í fullyrð- ingum stjórnvalda í Tbilisi. Sökuðu þeir Georgíumenn á móti um að halda hlífiskildi yfir tsjetsjenskum skæru- liðum og lýstu því jafnframt yfir að þeir útilokuðu ekki þann möguleika að fara með hernaði gegn skæruliðum sem hafast við í Georgíu. Abkhazía er hérað í Georgíu en hef- ur í reynd notið sjálfstæðis frá árinu 1993 þegar skæruliðar báru sigurorð af stjórnarher Georgíu eftir tveggja ára stríð. Nutu þeir til þess aðstoðar rússneskra hermanna og hafa nokkr- ar hersveitir verið staðsettar í hér- aðinu æ síðan. Nærvera þeirra hefur reynst stjórnvöldum í Georgíu mikill þyrnir í augum. Vaxandi spenna í Georgíu Tbilisi. AP. ROBERT Mugabe, forseti Zimbabve, ítrekaði í gær, að allar bújarðir hvítra manna yrðu afhentar svörtum bænd- um fyrir ágústlok. Varaði hann hvítu bændurna við og sagði, að reyndu þeir að þrá- ast við, yrðu þeir að taka af- leiðingunum. Kom þetta fram í ræðu, sem Mugabe flutti á svoköll- uðum Hetjudegi en hann er haldinn hátíðlegur í minningu þeirra, sem börðust gegn yfirráðum hvítra manna í landinu. Í henni hrósaði hann þeim stuðningsmanna sinna, sem hafa ráðist á hvíta bændur og tekið jarðirnar af þeim með valdi. Kallaði hann árásirnar „glæsilega vörn gegn vestrænni heimsvaldastefnu“. Þeir hvítu bændur, sem eftir eru í Zimbabve, tæplega 3.000 talsins, áttu að vera búnir að yfirgefa jarðir sínar síðastliðinn fimmtudag en talið er, að um 60% þeirra hafi ekki gert það í von um, að Mugabe snerist hugur. Verði þeir allir neyddir til að hætta búrekstri munu einnig um 250.000 svartir landbúnaðarverkamenn missa vinnuna. Með skylduliði er það um ein milljón manna. Vestræn ríki beita stjórnvöld í Zimbabve ýmsum refsiaðgerðum vegna mannréttinda- brota í landinu og í ræðu sinni hótaði Mugabe að svara með sams konar refsiaðgerðum. Hrak- yrti hann Tony Blair, forsætisráðherra Bret- lands, og kallaði hann „brjálaðan glæpamann“. Þá sagði hann, að landsmenn þyrftu ekki að óttast hungur, jafnvel „svikurum og leppum“ yrði gefið að borða. Zimbabve var í eina tíð mikil matarkista og mikið flutt út frá landinu. Nú er efnahagslífið ein rjúkandi rúst og um helmingur landsmanna, sex milljónir manna, sveltur heilu hungri. Mugabe hótar hvítum bændum Jarðirnar verða teknar af þeim fyrir ágústlok Harare. AFP. Robert Mugabe NOKKRIR áhrifamenn á Banda- ríkjaþingi létu í það skína í gær að þeir teldu ekki að George W. Bush Bandaríkjaforseti hefði fært nægileg rök fyrir nauðsyn þess að gera inn- rás í Írak en Bush er sagður und- irbúa slíka árás. Lítið hefur borið á umræðu um réttmæti hernaðarað- gerða gegn Írak fram til þessa en það virðist nú vera að breytast. Repúblikaninn Dick Lugar, sem situr í öldungadeild Bandaríkja- þings, sagði að innrás í Írak væri ekki óumflýjanleg en þó „sennileg“ úr því sem komið væri. Bush yrði hins vegar að útskýra hvers vegna fyrir bandarísku þjóðinni. Demókratinn Carl Levin, sem sit- ur í forsæti hernaðarmálanefndar öldungadeildarinnar, sagði hins veg- ar að árás á Írak yrði sennilega til þess að Saddam beitti gereyðingar- vopnum sínum „vegna þess að þá hefur hann engu að tapa“. Sagðist Levin ekki telja að Sadd- am notaði gereyðingarvopn sín að fyrra bragði. Spurningin væri því sú hvort ekki væri best að leggja höf- uðáherslu á að halda honum í skefj- um fremur en ráðast gegn honum. Bush skýri mál sitt Washington. AP. ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.