Morgunblaðið - 13.08.2002, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 13.08.2002, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÞRETTÁN ára stúlka, Brynhildur Bolladótt- ir, gekk með brákaða hálsliði frá Ingólfstorgi að Dómkirkjunni, þar sem móðir hennar sótti hana, eftir slysið sem þar varð á laugardag- inn á Hinsegin dögum, Gay Pride-hátíð- arhöldunum, þegar skýli féll á hóp fólks. Stúlkan var hágrátandi, nötraði og skalf en það var ekki fyrr en hún var komin að Dóm- kirkjunni sem tvær konur tóku eftir því að eitthvað amaði að og buðu fram aðstoð sína. Brynhildur stóð, þegar hátíðarhöldin voru að hefjast, ásamt vinkonu sinni undir skýli sem hafði verið komið fyrir á norðanverðu Ingólfstorgi. „Ég man fyrst eftir mér þegar ég sá blóðdropa á götunni og náði í gler- augun mín. Ég vissi aldrei að ég hefði rotast en var að drepast í bakinu, hálsinum og höfð- inu og fór hágrátandi í burtu,“ segir Bryn- hildur sem var útskrifuð af sjúkrahúsinu í gær. Hún reyndi að hringja í pabba sinn úr far- síma en náði ekki í gegn vegna álags á sím- kerfið. Hún settist þá niður til að senda hon- um SMS-skilaboð úr símanum. Skilaboðin voru: „Tad datt a mig tak. Mer er illt. Nadu i mig.“ Pabbi Brynhildar, Bolli Héðinsson, var í gönguferð við Hafravatn og botnaði ekki í skilaboðunum, en ekki er hægt að nota ís- lenska stafi í smáskilaboðum úr farsímum og því varð „þak“ að orðinu „tak“. Hann hringdi því í móðurina, Ástu Thoroddsen, sem dreif sig af stað niður í miðbæ til að sækja Bryn- hildi. Hún náði ekki símasambandi við dóttur sína þar sem álagið á kerfið var svo mikið. Brynhildur varð viðskila við vinkonu sína í öllum látunum eftir að skýlið féll. Kona, sem þarna var stödd, reyndi að koma henni í sjúkrabíl um leið og fyrsti bíllinn kom á stað- inn, en sjúkraflutningamennirnir vildu fyrst sjá allan hópinn til að meta hverjir ættu að fá forgang. Brynhildur fór þá af vettvangi og gekk suður Aðalstræti og síðan austur Vall- arstræti á Austurvöll til að reyna að ná síma- sambandi. Þegar hún var komin að Póst- hússtræti náði móðir hennar sambandi við hana og spurði hana hvort hún gæti gengið að Dómkirkjunni, þar sem svo mikill mann- fjöldi var í bænum að ómögulegt var að kom- ast á bíl þangað. Brynhildur treysti sér til þess og þegar hún hafði beðið í nokkra stund við kirkjuna komu tvær konur sem buðu fram hjálp sína og biðu með henni eftir móður hennar. „Þegar ég kem þarna niður voru tvær elskulegar konur sem biðu með henni. Hún nötraði og skalf frá hvirfli til ilja, hágrét og kvartaði mikið undan höfðinu og bakinu og var með lausa tönn. Ég áttaði mig á því að hún þyrfti að komast strax á slysadeild og velti því fyrir mér hvort ég ætti að ná í sjúkrabíl því hún talaði um að henni væri svo illt í handleggjunum. Ég óttaðist að áverki frá hálsinum væri að leiða út í handleggi,“ segir Ásta sem er hjúkrunarfræðingur, en mikilvægt er að hreyfa sjúklinga með háls- eða hryggáverka sem allra minnst. „Ég hafði mætt fjórum sjúkrabílum á leið- inni niður í bæ þannig að þegar Brynhildur sagði mér að það hefði fallið þak, áttaði ég mig á því að það hefði eitthvað alvarlegt gerst í bænum. Ég hélt að fjöldi manns væri jafnvel stórslasaður og því gæti verið erfitt að fá sjúkrabíl.“ Ásta ákvað því að keyra sjálf á sjúkrahúsið. Brynhildur fór mjög varlega inn í bílinn og móðir hennar keyrði eins varlega og hún gat. Þegar þær mægður komu á slysadeildina í Fossvoginum var Brynhildur strax tekin í forgang, fór tvisvar í röntgenmyndatöku en það var ekki fyrr en hún fór í sneiðmynda- töku sem í ljós kom að tveir hálsliðir væru brákaðir. „Ef ég hefði fengið aðeins þyngra högg hefði ég getað lamast fyrir neðan háls og niður úr,“ segir Brynhildur. Ásta segir að enginn hafi átt von á því að hún væri brotin, kannski sérstaklega þar sem hún hafði geng- ið alla þessa leið. Brynhildur var tvær nætur á sjúkrahúsinu og þarf að vera með hálskraga í sex vikur. „Ég má ekki fara í sund eða leikfimi og ekki fara á fimleikaæfingu fyrr en eftir að minnsta kosti tvo mánuði. Svo er ég að læra á þverflautu og veit ekki hvort ég get æft mig á flautuna,“ segir hún. Vinkona Brynhildar fékk skrámur í andlit, stóra kúlu á höfuðið og samfall á hryggjarlið. Hún fór með sjúkrabíl á sjúkrahúsið en ein- hverjir þeirra sem sátu undir skyggninu leit- uðu inn á kaffihús í nágrenninu og biðu þar eftir sjúkrabíl. „Það er með ólíkindum að fólki skuli detta í hug að fara upp á þetta skýli, sem var bara plasttjald sem var haldið uppi af járn- stöngum. Eftir myndunum að dæma voru það ekki bara einn eða tveir sem fóru þarna upp. Maður skilur ekki hugsunarleysið og þarna var fullt af fólki fyrir neðan,“ segir Ásta. Hún furðar sig einnig á því að enginn veg- farandi hafi boðist til að hjálpa Brynhildi á leið hennar frá Ingólfstorgi að Dómkirkjunni þar sem hún var hágrátandi og var greinilegt að eitthvað amaði að. Mestu máli skipti þó, að ekki fór verr, fyrir það sögðust þær mæðgur vera þakklátar. Gekk með brákaða hálsliði frá Ingólfs- torgi að Dómkirkju VIÐ alvarlegu fjöldaslysi lá þegar stórt regnskyggni fyrir ofan Hlölla- báta við Ingólfstorg féll ofan á tugi manna sem voru að fylgjast með skemmtidagskrá í tengslum við Hinsegin daga. Mikill fjöldi fólks var samankominn á torginu þegar slysið varð og voru 23 áhorfendur fluttir á slysadeild Landspítalans, þar af 15 börn. Um tugur manna til viðbótar fór á eigin vegum á slysadeild til að- hlynningar. Ástæður slyssins voru þær að fólk hafði komið sér fyrir ofan á skyggn- inu með þeim afleiðingum að það lét undan þunganum. Gríðarlegur fjöldi fólks var á torginu þegar slysið varð og reyndist torvelt fyrir sjúkralið og lögreglu að komast að til að sinna störfum sínum. Jón Ragnar Jónsson, verkefna- stjóri Hins hússins, sagði Morgun- blaðinu í gær að skyggnið væri á ábyrgð Hins hússins, en hins vegar annaðist Hitt húsið ekki öryggis- gæslu á Ingólfstorginu þegar svæðið væri leigt út til annarra samtaka, Samtakanna ’78 að þessu sinni. Hann segir að þeir sem klifruðu upp á skyggnið hljóti að vera ábyrgir fyr- ir því hvernig fór á laugardaginn og bætir við að hann hafi aldrei orðið þess var að fólk hafi klifrað upp á skyggnið. „Reyndar var starfsmaður frá Hinu húsinu á torginu þegar þetta gerðist og reyndi að hindra að fólk færi upp, en án árangurs,“ sagði Jón Ragnar. Slysið kom lögreglu og aðstand- endum hátíðahaldanna algjörlega í opna skjöldu og jafnvel starfsmönn- um Hlöllabáta sem höfðu staðið í því að reka fólk niður af skyggninu áður en slysið varð. Sagði Sigurður Garð- arsson, eigandi Hlöllabáta, að fólk hefði farið upp á skyggnið á Gay Pride í fyrra en þá hefðu starfsmenn einnig reynt að reka fólk niður og fengið til þess aðstoð lögreglunnar. Þessar öryggisráðstafanir hefðu þó verið gerðar þar sem hætta var á að fólk dytti sjálft niður en þá hefði eng- um dottið í hug að sjálft skyggnið þyldi ekki þunga fjölda manna. Sig- urður tekur fram að skyggnið teng- ist ekki á neinn hátt Hlöllabátum. Hjá Reykjavíkurborg fengust þær upplýsingar að skyggnið væri enda ekki hluti af uppdrætti húsnæðis Hlöllabáta. „Við urðum strax vör við að krakk- arnir byrjuðu að klifra upp á þakið hjá okkur, hlaupa yfir hvolfþakið og út á skyggnið,“ sagði Sigurður. „Það má enginn vera uppi á þaki og ég hef brýnt fyrir starfsólki mínu að reka fólk þaðan niður. Ef það dugar ekki, eins og í fyrra, þá þarf að sækja lög- reglu því þessir krakkar rífa bara kjaft.“ Hann segir þó allmarga hafa hlýtt starfsmanni sínum og farið nið- ur. „Þetta skyggni er bara segl á milli stálbita og svo hafa festingarn- ar gefið sig.“ Lögreglumenn tóku ekki eftir fólkssöfnun á skyggninu Geir Jón Þórisson, yfirlögreglu- þjónn í Reykjavík, segir lögregluna ekki hafa gert ráð fyrir slysi af þessu tagi í undirbúningi sínum fyrir ör- yggisgæslu í miðbænum. Hann segir lögreglumenn ekki hafa tekið eftir því að fólk hafi verið farið safnast fyrir á skyggninu. Aðspurður segir hann ekki hafa þótt ástæðu til að hafa eftirlit með umferð fólks uppi á skyggninu enda hafi skyggnið ekki verið þekkt slysagildra. „Þetta er al- veg nýtt fyrir okkur,“ sagði Geir Jón. „Það datt engum í hug að þetta væri slysagildra.“ Aðspurður sagði hann þetta slys ekki gefa sérstakt tilefni til að gera úttekt á öðrum mögulegum slysa- gildrum í tengslum við Menningar- nótt í Reykjavík 17. ágúst nk. en þá má búast við mörg þúsund manns í miðbænum. Aðspurður segir hann bannað að fara upp á húsþök í erind- isleysu en hins vegar geti lögreglan ekki komið í veg fyrir slíkt þegar hafa þarf gæslu með tugþúsundum manna. Hann segir aðspurður að þeir sem hafi farið upp á skyggnið á laugardaginn hljóti að bera vissa ábyrgð á því hvernig fór en segir þó ekki blasa við að hægt sé að gera þeim upp sök í málinu, nánar að- spurður hvort þeir hafi gerst sekir um lagabrot og valdið öðrum líkams- tjóni með gáleysislegri hegðun sinni. Við slysið varð um hálftíma töf á dagskránni á Ingólfstorgi, en dag- skráin var rétt nýhafin þegar slysið varð. Heimir Már Pétursson, fram- kvæmdastjóri Hinsegin daga, segir skipuleggjendur hátíðarinnar enga ábyrgð bera á skyggninu enda sé það hluti af föstum búnaði Ingólfstorgs sem hátíðin leigði af Hinu húsinu. Þar að auki hafi hátíðin ekki notað sviðið undir skyggninu og ekki haft neina þörf fyrir það. Hann segir allt að tólf manns hafa verið í gæslu á vegum hátíðarinnar en enginn þeirra hafi tekið eftir fólkssöfnun uppi á skyggninu. Hins vegar hafi starfs- menn hátíðarinnar rekið fólk niður af þaki Hlöllabáta með tilkynningum í gegnum hljóðkerfi hátíðarinnar, þegar skyggnið hafði látið undan. Vinnueftirlit ríkisins sendi fulltrúa sinn á slysavettvang þrátt fyrir að slysið væri ekki flokkað sem dæmi- gert vinnuslys. Steinar Harðarson, umdæmisstjóri fyrir vinnustaðaeft- irlit, segir starfsmenn Vinnueftirlits- ins hins vegar oft fara á vettvang slysa þar sem öryggi starfsmanna sé ógnað. Morgunblaðið/Ingibjörg Hér sést glöggt þegar skyggnið er fallið og fólk rennur undan hallandi tjaldinu. Um 30 manns voru undir skyggninu, sumir talsvert slasaðir. Slysið kom öllum í opna skjöldu Ljósmynd/Hreinn Nærstaddir áhorfendur reyndu að lyfta skyggninu svo unnt væri að komast til hinna slösuðu en alls voru 23 fluttir á slysadeild og enn fleiri fóru þangað á eigin vegum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.