Morgunblaðið - 13.08.2002, Blaðsíða 19
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 2002 19
„ÉG hvet foreldra til að hafa börnin
með þegar skólataskan er keypt,
láta þau máta, setja bækur í og jafn-
vel láta þau ganga eða hlaupa aðeins
um með töskuna til að sjá hvort hún
sé ekki stöðug á bakinu,“ segir Ingi-
gerður Torfadóttir, skólahjúkrunar-
fræðingur við Snælandsskóla í
Kópavogi. Hún leggur áherslu á að
líkamsburður barna sé sem eðlileg-
astur með töskuna til að fyrirbyggja
vöðvabólgu og bakverki sem stund-
um geri vart við sig á unglingsárum.
Hún bendir á að í rannsókn sem
gerð var í skólum hér á landi fyrir
nokkrum árum hafi komið í ljós að
að 30% barna í 10. bekk kvörtuðu
um bakverki og 17% barna í 6. bekk.
„Eflaust liggja þarna ýmsar ástæð-
ur að baki eins og röng hæð borða
og stóla í skólastofum og fleira en
rangt val á skólatösku á þarna lík-
lega sinn þátt.“
Má ekki vera meira en 10–20%
af líkamsþyngd barnsins
Á góðri skólatösku eiga böndin yf-
ir axlirnar að vera breið og bólstruð
og stillanleg í lengd auk þess sem
auðvelt á að vera að herða þau og
losa, að sögn Ingigerðar. Þá verður
bak töskunnar að vera vel bólstrað
og nauðsynlegt er að annaðhvort
séu brjóst- eða mjaðmafestingar á
töskunni til að hún falli þétt upp að
hrygg barnsins. „Taskan má ekki
vera of breið því það hindrar eðlileg-
ar hreyfingar handleggja og hún má
ekki vega meira en 10–20% af lík-
amsþyngd barnsins. Sagt er að sex
ára börn eigi ekki að bera meira en
2 kg þunga skólatösku.“ Hún bætir
við að botninn þurfi að vera stífur
svo vel fari um bækurnar en síðan
sé mikilvægast af öllu að endur-
skinsmerki séu á öllum hliðum tösk-
unnar.
Uppröðun bóka í
töskuna skiptir máli
Ingigerður bendir á að uppröðun
bóka í töskuna skipti einnig máli.
Þyngstu bækurnar eigi að vera
innst en hinar léttari utar svo að
sem mestur þungi sé sem næst bak-
inu. „Þá er nauðsynlegt að endur-
nýja skólatöskur á þriggja ára fresti
en barnið vex upp úr töskunni þegar
það stækkar rétt eins og klæðnaði.“
Hún segir ástandið í þessum mál-
um hafa batnað mikið síðustu ár,
fleiri börn séu nú með góðar töskur
en áður. „Fyrir tveimur árum vant-
aði töluvert upp á en í fyrra lagaðist
þetta mjög mikið og nú eru langflest
yngri barna með góða tösku sem
hentar þeim.“ Hún segir hvað mest
vera í boði fyrir yngstu börnin en
minna fyrir unglingana enda velji
þeir gjarnan eftir tísku og oft sé
ekki eins auðvelt að hafa áhrif á þá.
Rétt að endurnýja skóla-
töskur á þriggja ára fresti
Morgunblaðið/Þorkell
Skólatöskur eiga að falla þétt að bakinu og mega ekki vera þyngri en sem nemur 10–20% af þyngd barnsins.
Morgunblaðið/Ásdís
Bakið á að vera vel bólstrað og
bönd yfir axlir stillanleg í lengd.
Hæfileg stærð og góðar
festingar eru eitt af því
sem þarf að hafa í huga
þegar kaupa á skóla-
tösku. Mikilvægt er að
vanda valið til að fyrir-
byggja vöðvabólgu og
bakeymsli síðar meir.
KOMNAR eru á markað fljótandi
gerilsneyddar eggjavörur frá Nesbúi.
Um er að ræða fljótandi eggjaköku-
mix sem inniheldur hænuegg, auka-
skammt af eggjahvítu og salt og pipar
og er það því tilbúið til steikingar, að
því er fram kemur í fréttatilkynningu
frá framleiðanda. Einnig eru fáanleg-
ar eggjarauður og -hvítur í brúsum
ætlaðar til matargerðar t.d. í bakstur.
Vörurnar fást í matvörubúðum.
NÝTT
Eggjavörur