Morgunblaðið - 13.08.2002, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 13.08.2002, Blaðsíða 44
DAGBÓK 44 ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Hrappur kemur í dag. Bitland fer í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Oz- ernitsa, Novator, Er- idan, og Bitland komu í gær, Brúarfoss kom til Straumsvíkur í gær, Örvar fór í gær. Fréttir Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Hamraborg 20a. Lokað vegna sum- arleyfa frá 1. júlí til 23. ágúst. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 9 og kl. 13 vinnustofa og bað Árskógar 4. Kl. 9 bað- þjónusta, kl. 9.30 dans, kl. 9.30 Íslandsbanki á staðnum, kl. 13.30 frjáls spilamennska. Púttvöll- urinn opin kl. 10–16 alla daga. Allar upplýs- ingar í s. 535 2700. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8– 13 hárgreiðsla, kl. 8.30– 14.30 böðun, kl. 9–16 handavinna, kl. 9–17 fótaaðgerð. Félagsstarfið Dalbraut 18–20. hárgreiðslu- stofan opin kl. 9–17 alla daga nema mánudaga. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 10 hársnyrting, kl. 13 föndur og handavinna. Félag eldri borgara Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Brids og frjáls spilamennska, kl 13.30. Pútt á Hrafn- istuvelli kl. 14–16. Á morgun miðvikudag pílukast kl 13.30. Or- lofsferð að Hrafnagili við Eyjafjörð 19.–23. ágúst, munið að greiða gíróseðlana sem fyrst. Orlofsferð að Höfða- brekku 10.–13. sept. Skráning og uppl. í Hraunseli kl. 13–17. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Kaffistofan opin virka daga frá kl. 10–13. Kaffi – blöðin og matur í hádegi. Félagið hefur opnað heimasíðu www.feb.is. Miðviku- dagur: Göngu-hrólfar ganga frá Ásgarði Glæsibæ kl. 10. Fimmtudagur: Brids kl. 13. Hringferð um Norð- austurland 17.–24. ágúst. ATH. þarf að ganga frá farseðli fyrir 13. ágúst. Fundur verð- ur með leiðsögumanni 15. ágúst kl. 14 í Ás- garði, Glæsibæ. Ath. nokkur sæti laus vegna forfalla. Þjórsárdalur, Veiðivötn Fjallabaks- leið nyðri, 27.–30. ágúst. Staðfesting- argjald þarf að greiða fyrir 14. ágúst. Nokkur sæti laus. Fyrirhugaðar eru ferðir til Portúgals 10. september í 3 vikur og til Tyrklands 30. september í 12 daga fyrir félagsmenn FEB, skráning er hafin, tak- markaður fjöldi. Silf- urlínan er opin á mánu- og miðvikudögum kl. 10–12 í s. 588 2111. Skrifstofa félagsins er flutt að Faxafeni 12 s. 588 2111. Félagsstarfið er áfram í Ásgarði Glæsibæ. Upplýsingar á skrifstofu FEB. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9–17 hárgreiðsla, kl. 12.40 Bónusferð. Gerðuberg, félagsstarf. frá 9–16.30 vinnustofur opnar, m.a. perlusaum- ur, umsjón Kristín Hjaltadóttir, frá hádegi spilasalur opinn, kl. 13 boccia Veitingar í Kaffi Berg. Miðvikudaginn 21. ágúst ferðalag í Rangárþing, skráning hafin. Allar uppl. um starfssemina á staðnum og í síma 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnustofan opin, leiðbeinandi á staðnum kl. 9.30–12, kl. 14 þriðjudagsganga. Mið- vikudaginn 14. ágúst kl. 15.15 verður mynda- stund til kynningar á alpafjallaferð 1. til 8. sept. á vegum Teits Jónassonar. Gullsmári, Gullsmára 13. Opið alla virka daga kl. 9–17 hádegismatur, kaffi og heimabakað meðlæti. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9.45 bankaþjónusta. Fótaaðgerð, hársnyrt- ing. Allir velkomnir. Hraunbær 105. Kl. 9– 17 fótaaðgerð, kl. 10–11 boccia, kl. 12.15 versl- unarferð, kl. 13–17 hár- greiðsla. Hæðargarður. Hár- greiðsla kl. 9–17. Háteigskirkja eldri borgarar á morgun miðvikudag, samvera, fyrir bænastund í kirkj- unni kl. 11, súpa í Setr- inu kl. 12, spil kl. 13. Norðurbrún 1. Vinnu- stofur lokaðar fram í ágúst. Kl. 10 ganga. Hárgreiðsla lokuð vegna sumarleyfa frá 16. júlí til 13. ágúst. Norðurbrún 1 og Furu- gerði 1. Farið verður á Snæfellsnes 15. ágúst. Ekið verður að Helln- um og að Arnarstapa. Að Snjófelli verður súpa og brauð um há- degisbilið. Leiðsögumaður Tómas Einarsson. Lagt af stað frá Norðurbrún 1, kl. 8.30 og teknir farþegar í Furugerði. Upplýs- ingar í Norðurbrún, sími 568 6960 og Furu- gerði, sími 553 6040. Vesturgata 7. Kl. 9 fótaaðgerðir og hár- greiðsla, kl. 9.15–16 handavinna, handa- vinnustofan opin án leiðbeinanda fram í miðjan ágúst. , kl. 13 spilamennska. Vitatorg. Kl. 9 smiðjan, kl. 9.30 morgunstund , kl. 10.30 boccia, kl. 14 félagsvist. Kl. 9 hár- greiðsla, kl. 10 fótaað- gerð. Félag ábyrgra feðra. Fundur í Shell-húsinu, Skerjafirði, á mið- vikudögum kl. 20, svar- að í s. 552 6644 á fund- artíma. Félag kennara á eft- irlaunum Sumarferð FKE verður farin þriðjudaginn 20. ágúst. Veitingar á Kirkjubæj- arklaustri og í Básnum. Tilkynnið þátttöku í síðasta lagi 16. ágúst til skrifstofu Kenn- arasambands Íslands, Kennarahúsinu við Laufásveg, sími 595 1111. Hallgrímskirkja eldri borgarar. Vest- fjarðaferð, dagan 29.– 31. ágúst, farið frá Hallgrímskirku kl. 10, gist í Flókalundi, á Hótel Ísafirði og Reykjanesi, heimferð um Steingrímsfjarð- arheiði, í Hrútafjörð og þaðan yfir Holtavörðu- heiði og heim. Uppl. og skráning veitir Dag- björt í s. 693 6694 og 561 0408, allir velkomn- ir. Minningarkort Minningarkort Graf- arvogskirkju. Minningarkort Graf- arvogskirkju eru til sölu í kirkjunni í síma 587 9070 eða 587 9080. Einnig er hægt að nálg- ast kortin í Kirkjuhús- inu, Laugavegi 31, Reykjavík. Líknarsjóður Dóm- kirkjunnar, minn- ingaspjöld seld hjá kirkjuverði. Minningarkort Stóra- Laugardalssóknar, Tálknafirði til styrktar kirkjubyggingarsjóði nýrrar kirkju í Tálkna- firði eru afgreidd í síma 456-2700. Minningarspjöld Frí- kirkjunnar í Hafn- arfirði fást í Bókabúð Böðvars, Pennanum í Hafnarfirði og Blóma- búðinni Burkna. Minningarkort Ás- kirkju eru seld á eft- irtöldum stöðum: Kirkjuhúsinu Lauga- vegi 31, þjón- ustuíbúðum aldraðra við Dalbraut, Norð- urbrún 1, Apótekinu Glæsibæ og Áskirkju Vesturbrún 30 sími 588-8870. KFUM og KFUK og Samband íslenskra kristniboða. Minning- arkort félaganna eru afgreidd á skrifstof- unni, Holtavegi 28 í s. 588 8899 milli kl. 10 og 17 alla virka daga. Gíró- og kredidkorta- þjónusta. Minningarkort Hjarta- verndar, fást á eft- irtöldum stöðum í Reykjavík: Skrifstofu Hjartaverndar, Lág- múla 9, s. 535-1825. Gíró og greiðslukort. Dvalarheimili aldraðra Lönguhlíð, Garðs Apó- tek Sogavegi 108, Ár- bæjar Apótek Hraunbæ 102a, Bókbær í Glæsibæ Álfheimum 74, Kirkjuhúsið Laugavegi 31, Bókabúðin Grímsbæ v/ Bú- staðaveg, Bókabúðin Embla Völvufelli 21, Bókabúð Grafarvogs, Hverafold 1–3. Í dag er þriðjudagur 13. ágúst, 225. dagur ársins 2002. Orð dagsins: Helga þá í sannleikanum. Þitt orð er sannleikur. (Jóh. 17, 17.) Víkverji skrifar... VÍKVERJI er daufur í dálkinnþessa dagana. Uppáhalds knattspyrnumaðurinn hans hefur lagt skóna á hilluna. Tony Adams, fyrirliði Englands- og bikarmeist- ara Arsenal, kynnti lýðnum þetta formlega um síðustu helgi en ljóst hafði verið í nokkrar vikur í hvað stefndi. Mun kappinn nú setjast á skólabekk eftir langt hlé og nema íþróttafræði af einhverjum toga. Adams hefur lifað langan dag í boltanum, lék sinn fyrsta leik fyrir Arsenal árið 1983, aðeins 17 ára að aldri. 21 árs var hann orðinn fyr- irliði. Hann er tvímælalaust í hópi svipmestu sparkenda samtímans. Kannski ekki með flinkustu og fal- legustu leikmönnum á velli en bætir það upp með stöðuvitund, skapfestu og ódrepandi vilja til að vinna. Tony Adams færir fjöll til að ná því mark- miði sínu. Enda á hann sigra í hvorki fleiri né færri en tíu stórum keppnum að baki með Arsenal, þar af fjóra Englandsmeistaratitla. Af þessum tíu bikurum hefur Adams hafið níu til lofts sem fyrirliði. Eitt á hann þó eftir: Að sigra í meistaradeild Evrópu. Því var Vík- verji sannfærður um að hann sneri sperrtur undan feldi í haust og gerði lokaatlögu að þeim helga kaleik. Það verður ekki. x x x ADAMS er ekki aðeins skelegg-ur sparkandi, líf hans utan vallar hefur á löngum köflum verið lyginni líkast. Ungur gaf hann sig gjálífinu á vald og hafði á köflum meiri ama af Bakkusi bróður en marksæknustu miðherjum ensku knattspyrnunnar. Eftir þrjár vikur á þröm heljar sumarið 1996 sneri kappinn hins vegar við blaðinu og hefur staðið beinn síðan. Les nú ljóð og leikur á píanó sér til dægra- styttingar. Þó Víkverji eigi alltaf jafnvont með að sjá það fyrir sér. Frá glímu þessari greinir Adams í æviminningum sínum, Addicted eða Í fjötrum fíknar, sem út komu haustið 1998. Dregur hann þar hvergi undan. Það er engu lagi líkt hvað maðurinn misbauð líkama sín- um. Þó hélt hann sínu striki á vell- inum enda var aðeins ein fíkn vímunni fremri – fótboltinn. Margar ótrúlegar sögur eru í bókinni, sumar hverjar býsna skondnar. Ein er um það þegar Adams var dæmdur til fangavistar í kjölfar ölvunaraksturs árið 1990. Að dómi gengnum var hann færður í fangageymslur og handjárnaður við einhvern smákrimma sem flytja átti með honum í dýflissuna. Braust sá síðarnefndi um á hæl og hnakka og hafði á orði að hann gæti nú fellt sig við tvö ár í grjótinu en fyrir hann, Tottenham-aðdáandann, væri það með öllu óþolandi að vera hlekkjaður við Tony Adams! Fyrir þá sem ekki vita er Totten- ham höfuðandstæðingur Arsenal í Lundúnum og litlir kærleikar þar á milli. x x x VÍKVERJI hefur engin áformum að hætta að fylgjast með knattspyrnu af þessu tilefni – eig- inkonu sinni til armæðu. Leikurinn góði lifir. Án Tony Adams verður hann bara ekki alveg eins skemmti- legur. Af hverju eiga Flug- leiðir erfitt með að segja sannleikann? UNDANFARIN ár hef ég flogið til Íslands nokkrum sinnum á ári og hef þá, eins og aðrir, neyðst til að fljúga með Flugleiðum þar sem ekki er um annað áætlunarflugfélag að ræða. Ég get ekki hætt að undrast það, þegar eitt- hvað hefur farið úrskeiðis, hve starfsfólk félagsins er fljótt að grípa til ósann- inda, þegar það vill ekki segja sannleikann eða veit ekki sannleikann. Síðast gerðist þetta nú fyrir stuttu. Hinn 15. júlí flaug ég frá Keflavík kl. 16.10 til Kaup- mannahafnar. Bókunar- staðfestingin sem fylgdi flugmiða mínum og sam- ferðamanna minna gaf það upp að boðið yrði upp á „dinner“ á leiðinni. Við urðum nokkuð hissa þegar í ljós kom að „dinnerinn“ var hálfþurr, pylsubrauðs- lík samloka í plastfóðri með áleggi sem vart var hægt að finna. Ég sýndi flugfreyjunni bókunar- staðfestinguna og fékk það svar að þetta væri sænsku ferðaskrifstofunni að kenna. Hið einkennilega var hins vegar, að íslensk- ir samferðamenn mínir höfðu keypt sína flugmiða á skrifstofu Flugleiða í Reykjavík og bókunarupp- lýsingar þeirra voru þær sömu og mínar. Erfitt að kenna sænsku ferðaskrif- stofunni um það. Af hverju segja Flug- leiðir ósatt um svona smá- atriði? Af hverju eru ekki gefnar réttar upplýsingar, í þessu tilviki um veitingar – ekki sé um „dinner“ að ræða heldur „snarl“? Er verið að reyna að gefa far- þegum í skyn að meira sé innifalið í fargjaldinu en það sem raunin er? Ég var ekki eini farþeginn um borð sem varð í fyrsta lagi hissa og ekki síður pirr- aður á þessu. Það er leitt að á tímum frjálsra viðskipta skuli Flugleiðir halda áfram að haga sér eins og aðeins einokunarfyrirtæki getur leyft sér. Sannar og heið- arlegar upplýsingar er nokkuð sem eðlilegt er að farþegar vænti af fyrir- tæki eins og Flugleiðum. En svo virðist sem Flug- leiðir séu ekki á sama máli. Ef svo væri hefðu bókun- arupplýsingarnar sem fylgdu miðum okkar sagt „snack“ en ekki „dinner“ og svör starfsmanna hefðu verið önnur en þau sem gefin voru. Lennart Bernram, Aspgatan 20, 426 77 V Frölunda, Svíþjóð. Brauðið fyrir Einar Í VELVAKANDA laugar- daginn 3. ágúst spurði Einar hvar fá mætti syk- ur- og gerlaust brauð. Í Heilsuhúsinu hefur verið selt sykur- og gerlaust brauð til fjölda ára. Brauð- ið er súrdeigsbrauð og er til í miklu úrvali. Örn Svavarsson Heilsuhúsinu. Timburmenn sem gaman er að NÝVERIÐ sá ég í blaðinu greinarbút þar sem höf- undur lýsti óánægju sinni með þáttinn Timburmenn. Ég er ósammála viðkom- andi og mun sakna þátt- anna, og vonast til að sjá þá félaga aftur á skjánum næsta sumar. Ég vona að þeir hlæi sem mest og taki ekki mark á þrasgjörnum. Ein ánægð. Tapað/fundið Gönguskór á flakki STAKUR gönguskór fannst á Næfurholti hjá Rangárvöllum. Skórinn er nokkuð vandaður, og til- heyrir líklega manni sem finnandi sá taka ljósmynd- ir á staðnum. Vitja má skósins í síma 487 5198. Úlpan hans Guðbjörns DRAPPLITUÐ og svört úlpa með hettu tapaðist á leikvelli við Suðurvang í Hafnarfirði um miðjan júlí. Úlpan er á að giska í stærð 152 og merkt Guð- birni. Finnandi er beðinn að hringja í síma 692 5133 eða 892 1450 Ertu óstundvís karlmaður? ÞÁ ERTU máski eigandi karlmannsúrs sem fannst við Laugardalshöll mánu- daginn 5. ágúst sl. Eigandi úrsins má vitja þess í síma 520 3000. Úr og hringir UTANGÁTTA borgarbúi glataði fyrir röskum tveimur vikum úri og fjór- um hringjum, að öllum lík- indum í austurhluta Reykjavíkur. Úrið er silfurlitað með blárri, ferkantaðri skífu, en þrír hringanna eru gylltir og sá fjórði úr hvítagulli. Einn gylltu hringanna er með nk. perlu en hvítagulls- hringurinn með glærum steini. Skilvís finnandi vin- samlega hafi samband í síma 694 1143. Jakki á Vegamótum SVARTUR jakki með sjóliðasniði var tekinn í misgripum á veitinga- staðnum Vegamótum 2. ágúst sl. Jakkinn er blár að lit með svörtum tölum. Skilvís finnandi vinsam- lega hafi samband í síma 822 0979. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is K r o s s g á t a LÁRÉTT: 1 gistihús, 4 bur, 7 káfa, 8 spottum, 9 þegar, 11 mjög, 13 drótt, 14 styrkir, 15 bás, 17 mynni, 20 bók- stafur, 22 hænan, 23 urg, 24 deila, 25 bik. LÓÐRÉTT: 1 lyfta, 2 skjálfa, 3 fugl- inn, 4 digur, 5 ófrægði, 6 rekkjan, 10 heldur, 12 melrakka, 13 skar, 15 hörfar, 16 sjáum, 18 dæma, 19 ganga saman, 20 ljúka við, 21 auðugt. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 föngulegt, 8 stuna, 9 frísk, 10 fet, 11 aftra, 13 apann, 15 fress, 18 óðals, 21 tel, 22 ruggu, 23 örðug, 24 hindrunin. Lóðrétt: 2 öfugt, 3 grafa, 4 lyfta, 5 grípa, 6 æska, 7 skin, 12 rós, 14 puð, 15 ferð, 16 eigri, 17 stund, 18 ólötu, 19 auðri, 20 sögn. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.