Morgunblaðið - 13.08.2002, Blaðsíða 12
Morgunblaðið/Ómar
Þessi þátttakandi í
Hinsegin dögum var
með glæsilega and-
litsmálningu.
MILLI 25 og 30 þúsund manns
tóku þátt í dagskrá Hinsegin
daga, eða Gay Pride, sem voru
haldnir í fjórða sinn í Reykjavík
um helgina. Líf og fjör var í fjöl-
mennri skrúðgöngu sem fór niður
Laugaveg á laugardag og endaði
á Ingólfstorgi þar sem boðið var
upp á fjölmörg skemmtiatriði.
Að sögn Heimis Más Péturs-
sonar, framkvæmdastjóra Hinseg-
in daga í Reykjavík, fór þátttaka
í dagskránni í ár fram úr björt-
ustu vonum aðstandenda. Hinseg-
in dagar hófust með tónleikum og
uppákomu á skemmtistaðnum
Spotlight á föstudag, en hápunkt-
ur skemmtunarinnar var á laug-
ardag, þegar fjölmenn skrúð-
ganga hélt frá Hlemmi áleiðis á
Ingólfstorg.
Fólk frá útlöndum og
hópar utan af landi
„Ég geri ráð fyrir að þeir sem
alls tóku þátt í þeirri skemmtun
hafi verið á bilinu 25 til 30 þús-
und manns sem er enn fleira fólk
en tók þátt í deginum í fyrra. Það
er nokkuð um að fólk komi er-
lendis frá til að taka þátt í þessu
með okkur og það er að aukast
þar sem við höfum verið iðin við
að kynna hátíðina í útlöndum,“
segir Heimir.
Hann segir að skipulögð atriði
í göngunni niður Laugaveginn
hafi verið rúmlega 30 og nokkur
hundruð manns hafi tekið þátt í
þeim. Mikil vinna sé að undirbúa
hátíð sem þessa, undirbúningur
taki 10 til 11 mánuði.
Heimir Már segir að fyrir utan
slysið sem varð þegar skyggni
hrundi á Ingólfstorgi hafi allt
farið vel fram. Meira hafi verið
lagt í hátíðina en fyrr, bæði at-
riði á sviði og í göngu. Þá hafi í
fyrsta sinn verið áberandi þátt-
taka utan af landi en frá Akur-
eyri hafi komið 15 manns með
skipulagt atriði og einnig hafi
hópur frá Ísafirði verið á staðn-
um.
Yfir 25 þúsund þátttakendur í Hinsegin dögum í Reykjavík um helgina
Morgunblaðið/Arnaldur
Mikið hafði verið lagt í þau skemmtiatriði sem boð-
ið var upp á á Ingólfstorgi.
Morgunblaðið/Arnaldur
Fáni samkynhneigðra blakti víða meðal áhorfenda á Ingólfstorgi.
Morgunblaðið/Ómar
Páll Óskar var kynnir atrið-
anna á Ingólfstorgi en hann
sést hér taka lagið ásamt
Helgu Möller söngkonu.
Mesta þátttaka
frá upphafi
Morgunblaðið/Ómar
Skrautlegir búningar voru áberandi og þessi búningur
hefði sómt sér vel á kjötkveðjuhátíð í Ríó.
FRÉTTIR
12 ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Í FORSÍÐUGREIN færeyska dag-
blaðsins Dimmalætting er því haldið
fram að íslenska umboðsskrifstofan
Icelandic Models, sem sé í eigu Kol-
brúnar Aðalsteinsdóttur, hafi haft fé
af auðtrúa færeyskum stúlkum sem
hafi sýnt áhuga á módelstörfum. Kol-
brún segir á hinn bóginn að þessar
fullyrðingar séu alrangar og raun um
rógburð að ræða.
Í grein Dimmalættings segir að
stúlkurnar hafi greitt fyrirtæki Kol-
brúnar á bilinu 200 til 260 þúsund ís-
lenskar krónur vegna ferðar til New
York þar sem þær hafi átt að taka
þátt í módelsamkeppni. Ferðinni hafi
síðan af óþekktum ástæðum verið af-
lýst og stúlkurnar ekki fengið pen-
inga sína endurgreidda.
Heimildarmenn Dimmalættings
halda því fram að alls hafi um tíu fær-
eyskar stúlkur greitt Kolbrúnu vel á
þriðju milljón vegna slíkra ferða sem
síðan voru ekki farnar.
Kolbrún segir þessar fullyrðingar
vera alrangar, þessi ferð til New
York hafi verið farin tólf sinnum og
allir þátttakendur verið ánægðir með
ferðina. Alltaf hafi verið í gildi sömu
reglur um greiðslur og fyrirkomulag
vegna ferða, hótela, rútubifreiða,
mat og þ.h. og þá sé bæði foreldrum
og nemendum gerð grein fyrir því að
greitt sé til þess að ná niður kostnaði
fyrir hópinn og ekki sé til neitt sem
heiti endurgreiðsla hætti menn af
einhverjum ástæðum við.
Kolbrún segir að fyrsta árið hafi
28 manna hópur farið frá Færeyjum
til New York á vegum Icelandic
Models og hópurinn hafi verið
ánægður með ferðina. Átján stúlkur
hafi síðan staðfest að fara í ferðina
sem Dimmlætting greinir frá en ell-
efu hafi síðan hætt við, m.a. vegna
hryðjuverkarárásarinnar 11. sept-
ember. „Við getum auðvitað ekki
neytt fólk til þess að fara,“ segir Kol-
brún. „En við buðum stúlkunum
samt að koma til Íslands um páskana
til þess að fara yfir stöðu mála, sjö
stúlkur komu og voru hér í viku á
okkar kostnað.“
Kolbrún segir að síðan hafi stúlk-
unum verið boðið á Midnight Sun
Fashion Show sem sé alvöru sýning
og ekki bara keppni og aftur hafi allt
verið greitt fyrir stúlkurnar. Þær
stúlkur, sem hafi verið alvara með
þáttöku allan tímann, séu ánægðar
og margar þeirra hafi náð frábærum
árangri hér. Og jafnt hafi verið látið
yfir alla ganga í málinu.
Jafnt látið ganga yfir alla
Dimmalætting segir íslenska módelskrifstofu
hafa haft fé af færeyskum stúlkum
RANNSÓKNARNEFND flug-
slysa í Danmörku vinnur að rann-
sókn á alvarlegu flugatviki sem
varð yfir Grænlandi í byrjun
ágúst, þegar Cessna 404, frá
Flugfélaginu Jórvík, féll úr þrett-
án þúsund fetum í tvö þúsund fet.
Steen Halvorsin, formaður nefnd-
arinnar, segir að niðurstöðu sé
ekki að vænta fyrr en eftir um sex
mánuði. Þá verði skýrsla um at-
vikið gefin út.
„Rannsóknin er í gangi og við
þurfum að safna gögnum og vinna
úr þeim áður en við getum sagt
nokkuð,“ segir Halvorsin. Hann
segir að nefndin njóti aðstoðar ís-
lensku flugslysanefndarinnar við
öflun gagna. Þá hafi verið rætt við
flugmann vélarinnar. Segir Halv-
orsin að nefndinni sé skylt að yf-
irheyra alla sem geta gefið upp-
lýsingar um atvikið og gefa þeim
kost á að segja sitt álit á drögum
að skýrslu um atvikið, þegar þau
liggja fyrir. Því megi gera ráð fyr-
ir því að rannsóknin taki um hálft
ár.
„Ef við komumst að því á rann-
sóknartímanum að einhverju sé
ábótavant munum við strax hafa
samband við Flugmálastjórn
Danmerkur þannig að hægt verði
að grípa til viðeigandi ráðstaf-
ana,“ segir Halvorsin. Hann segir
að nefndarmenn muni líklega ekki
koma til Íslands í tengslum við
rannsóknina heldur vera í síma-
sambandi við rannsóknarnefnd
flugslysa hér á landi.
Rannsóknarnefnd flugslysa í Danmörku
Niðurstöðu að
vænta eftir 6 mánuði