Morgunblaðið - 13.08.2002, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 13.08.2002, Blaðsíða 41
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 2002 41 Útibú Eignast‡ring Eignafjármögnun Fyrirtækjasvi› Marka›svi›skipti www.isb.is Gott mál Íslandsbanki styrkir Reykjavíkurmaraflon. Vertu me›  í Reykjavíkurmarafloni 17. ágúst! Andleg móðir Eitt orð féll niður í grein Bjargar Bjarnadóttur sl. laugardag um Steindór Steindórsson, þar sem hún talar um tengsl hans við Ólöfu frá Hlöðum. Þar á að standa: Andleg móðir hans (Alma mater), skáldkon- an Ólöf frá Hlöðum. Þetta leiðréttist hér með. LEIÐRÉTT „Á SÓLRÍKUM síðsumar- kvöldum eru litir náttúrunnar oft djúpir og draumkenndir. Þess vegna verður umhverfis- listaverk R. Serra skoðað í göngunni í Viðey í kvöld. Gang- an sjálf mun hefjast við Viðeyj- arkirkju og þaðan haldið að vesturhluta eyjunnar sem hef- ur að geyma listaverkið, en það heitir Áfangar. Áætlað er að fara þar um og kynna verkið í stuttu máli. Skilyrði fyrir að það sé gert er að náttúrann verði manni hliðholl og bjóði bjart kvöld, þar sem náttúran leikur aðalhlutverkið í verkinu. Að öðrum kosti verður farin hefðbundin ganga um Viðey með söguskoðun og útiverunn- ar notið fjarri skarkala borgar- innar. Haldið verður með Við- eyjarferjunni yfir til eyjunnar kl. 19:30 og kostar farið aðeins kr. 500 fyrir fullorðna og kr. 250 fyrir börn,“ segir í frétta- tilkynningu. Viðeyjar- ganga HEIMDALLUR, félag ungra sjálf- stæðismanna í Reykjavík, mótmælir m.a. auknum ríkisútgjöldum í stjórn- málaályktun sem samþykkt var á að- alfundi félagsins sl. föstudag. Þar segir að útgjöld hins opinbera hafi aukist undanfarin misseri og að stjórnvöld séu allt of undanlátssöm gagnvart kröfum ýmissa þrýstihópa um „óþarfa ríkisútgjöld“, eins og það er orðað. „Þessari þróun þarf að snúa við. Stjórnmálaflokkur sem kennir sig við minni ríkisafskipti á ekki að setja fordæmi um aukin rík- isútgjöld og meiri umsvif. Auknum útgjöldum verður að mæta með auknum sköttum. Slíku hafnar Heimdallur algerlega.“ Í ályktuninni segir að Heimdallur fagni lækkun tekjuskatts fyrirtækja úr 30% í 18%. „Ungir sjálfstæðis- menn vilja engu að síður sjá frekari lækkanir skatta í framtíðinni. Lækka á skatta á launþega í landinu töluvert ásamt því að fella niður eignarskatt. Tolla á innfluttar og út- fluttar vörur skal leggja niður.“ Í ályktuninni mótmælir Heimdall- ur hugmyndum um ríkisábyrgð á út- gáfu skuldabréfa vegna fjármögnun- ar nýrrar starfsemi Íslenskrar erfðagreiningar. „Heimdallur telur að það sé ekki hlutverk hins opin- bera að taka þátt í einkarekstri. Hið opinbera á ekki að gangast í ábyrgð fyrir einkafyrirtæki og taka þannig áhættu með fé skattborgaranna.“ Heimdallur fagnar sölu á 20% hlut ríkisins í Landsbanka Íslands nú í vor og hvetur ríkisstjórnina til að stíga fleiri skref við einkavæðingu ríkisfyrirtækja. Mikilvægt sé að sölu á Landsbanka og Búnaðarbanka Ís- lands verði lokið áður en kjörtímabil- ið sé á enda. „Þá er mikilvægt að Ríkisútvarpinu verði breytt í hluta- félag og selt hið fyrsta. Heimdallur leggur til að einkaleyfi Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins (ÁTVR) á sölu á áfengum drykkjum verði af- numið og ÁTVR verði í kjölfarið lögð niður.“ Heimdallur telur stöðu Íslands gagnvart Evrópusambandinu tryggða með samningnum um hið evrópska efnahagssvæði og hafnar alfarið aðild að sambandinu. „Þá hvetur Heimdallur stjórnvöld til að beita sér fyrir frjálsum viðskiptum með fríverslunarsamningum við önnur ríki,“ segir síðan í ályktuninni. Hafnar sérstöku auðlindagjaldi Í ályktuninni segir að Heimdallur leggi áherslu á að hið opinbera beiti borgarana ekki ómálefnalegri mis- munun né traðki á grundvallar- mannréttindum þeirra. „Heimdallur harmar þær aðgerðir stjórnvalda að beita erlenda ferðamenn frelsis- skerðingu við komu þeirra til lands- ins fyrr á þessu ári. Ferðamenn þessir komu í þeim tilgangi að mót- mæla mannréttindabrotum og skoð- anakúgun kínverskra stjórnvalda. Fráleitt er með öllu að þessi kúgun kínverskra stjórnvalda skuli hafa verið framlengd hingað til lands með hjálp íslenskra stjórnvalda,“ segir m.a. Í ályktuninni segir m.a. að Heim- dallur telji að eignarréttur og fram- seljanlegar veiðiheimildir séu undir- stöðuatriði í farsælli stjórnun fiskveiða. „Félagið hafnar öllum hugmyndum um sérstakt auðlinda- gjald.“ Þá segir að Heimdallur fagni því ef meiri friður verði um sjávarút- vegsstefnuna en „lætur í ljós þá skoðun að ekki megi kaupa þann frið of háu verði“. Heimdallur hvetur þingmenn til að gæta frelsis einstaklinganna af meiri árverkni en tíðkast hefur. „Sérstaklega leggur félagið áherslu á að dregið verði úr þeim skerðing- um á samningafrelsi einstaklinganna sem velviljaðir meinlokumenn hafa náð fram á undanförnum árum. Vax- andi samkeppnisreglur og fyrirmæli til borgaranna um það hvernig þeir semja um sín mál, eru dæmi um þró- un sem þarf að snúa við.“ Heimdallur fagnar lögum um áhugamannahnefaleika sem sam- þykkt voru á Alþingi síðasta vetur og að lokum segist Heimdallur telja að lög um tóbaksvarnir feli í sér skerð- ingu á tjáningarfrelsi einstaklinga, en það séu meðal mikilvægustu rétt- inda manna. „Heimdallur harmar mjög afstöðu þeirra þingmanna Sjálfstæðisflokksins sem lögðu blessun sína yfir þessi lög.“ Stjórnmálaályktun aðalfundar Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík Hafna aðild að Evrópusambandinu SKRÚÐGANGA Hins- egin daga frá Rauðarár- stíg niður Laugaveg og að Ingólfstorgi, setti svip sinn á borgina á laugardag og tóku 5 lögreglumenn á mótorhjólum þátt í því að umferðin gengi vel fyrir sig vegna göngunnar. Lögreglumenn voru fótgangandi við eftirlit í miðborginni á laugardag en um 25–30 þúsund manns tóku þátt í skrúðgöngunni sem endaði með skemmtiatriðum á Ingólfstorgi. Það hefur eflaust farið framhjá fáum að skyggni við Hlöllabáta á torginu hrundi á áhorfendur. Nokkr- ir höfðu farið upp á skyggnið með þeim afleiðingum að festingar gáfu sig. Erfitt var fyrir sjúkralið og lög- reglu að komast á bifreiðum að slys- stað til að sinna störfum sínum vegna fólksfjöldans. Flytja þurfti 23 á slysadeild Landspítalans, þar af 15 börn, fleiri fóru þangað sjálfir vegna minni meiðsla. Tilkynnt var um16 umferðar- óhöpp til lögreglu um helgina, en ekki vitað um slys á fólki. Níu voru kærðir fyrir að hafa ekið gegn rauðu ljósi, 18 fyrir að hafa ekki sinnt stöðvunarskyldu og 28 fyrir of hrað- an akstur. Fólk er greinilega meðvitað um hættuna sem stafar af því að vera undir áhrifum vímugjafa við akstur því reglulega berast tilkynningar til lögreglu þar sem fólk lætur vita ef það grunar einhvern um slíkt glap- ræði. Um helgina voru 4 ökumenn handteknir grunaðir um ölvun við akstur og einn var handtekinn grun- aður um að reyna stjórna ökutæki undir áhrifum örvandi eða deyfandi efna. Aðfaranótt laugardags fór kona á slysadeild Landspítalans þar sem hún var brotin á handlegg eftir rysk- ingar við nágranna sinn. Á kafffihúsi einu í miðborginni kom til slagsmála um svipað leyti milli nokkurra manna og endaði einn starfsmaður á slysadeild vegna þess að hann hafði verið bitinn í handlegg af gesti stað- arins. Á myndavélum lögreglu sást snemma á laugardagsmorgunn er ráðist var á mann í miðborginni og féll hann í átökunum í götuna. Lög- regla og sjúkrabifreið var send á staðinn. Maðurinn var fluttur á slysadeild með áverka. Lögreglan handtók tvo menn sem grunaðir voru um árásina og flutti á lögreglu- stöð og voru þeir vistaðir í fanga- geymslu vegna rannsóknar málsins. Á myndavélum lögreglu sást einn- ig er maður tók veski þess sem þá lá í götunni og fór með það. Lögreglan handtók skömmu síðar tvo menn sem voru grunaðir um aðild að veskjaþjófnaðinum. Málin eru í rannsókn. Fleiri innbrot en um síðustu helgi Innbrot og þjófnaðir voru ívið fleiri nú um helgina en þá síðustu og af ýmsum toga. Farið var inn í hús í vesturborginni aðfaranótt föstudags og verðmætum fyrir hátt í 300 þús- und stolið. Á laugardagskvöld var kona handtekin í lyfjaverslun með vörur inn á sér fyrir rúmar 30 þús- und kr. og einnig hafði hún reynt að svíkja út lyf með lyfseðli á nafni syst- ur sinnar. Málin eru í rannsókn. Á föstudagskvöld var hverfislög- reglumaður að fylgjast með útivist barna í Mosfellsbæ er hann kom að þremur unglingum þar sem þeir voru að fara neyta fíkniefna. Farið var með þá á Mosfellsstöð, haft sam- band við foreldra og þeim síðan ekið heim. Lögregla hafði afskipti af tveimur stúlkum sem gengu á um- ferðareyju á Miklubrautinni og veif- uðu auglýsingu frá DV framan í veg- farendur. Þetta var á háannatíma á föstudagseftirmiðdegi og var þeim gert að hætta athæfinu enda trufl- andi fyrir umferð og hætt við slys- um. Aðfaranótt laugardags var mað- ur fluttur á slysadeild Landspítalans með snert af reykeitrun en kviknað hafði í sænginni hans þar sem hann var að reykja uppi í rúmi. Sængin var ónýt og minniháttar reyk- skemmdir voru í íbúðinni en segja má að maðurinn hafi sloppið með skrekkinn. Um hálffjögur á sunnu- dag mótmæltu sex manns við bryggjuna á Örfirisey veru herskips frá Rússlandi, þeir fóru er lögreglan kom á vettvang. Nokkuð var um afskipti lögreglu af fólki vegna ölvunar. Flest þau mál voru leyst á vettvangi en nokkrir gistu fangageymslur lögreglu. Há- vaðaútköllin bæði utan sem innan- dyra voru alls 42, en þau eru fastur liður í störfum lögreglu um helgar. Úr dagbók lögreglunnar 9. til 12. ágúst Skrúðganga setti svip á borgina VAKIN er athygli á því að tímasetning á fyrirlestri Saskiu Sassen hefur breyst. Áður var auglýst að fyrirlestur hennar „Cities: Between Global Dyn- amics and Local Conditions“ yrði í Norræna húsinu, mið- vikudaginn 14. ágúst klukkan fjögur, en hið rétta er að hann hefst ekki fyrr en klukkan 17.00. Þá mun dr. Emmanuel Brunet-Jailly, prófessor í stjórnmálafræði við University of Victoria í Kanada, halda op- inn fyrirlestur á vegum Borg- arfræðaseturs í vikunni. Fyrirlestur Brunet-Jailly nefnist „Economic Integration and the Governance of Cross- Border Urban Regions: North American Functional Regions and European Territorial Reg- ions“. Brunet-Jailly sérhæfir sig í samanburðarstjórnmálum á milli borga, eða nánar tiltekið efnahagslega aðlögun í Evrópu og Norður Ameríku, og virkni og hlutverk landamæraborga og er talinn annar af tveimur helstu sérfræðingum Kanada á sviði borgar- og sveitarstjórn- mála, segir í fréttatilkynningu. Fyrirlesturinn verður föstu- daginn 16. ágúst í Norræna húsinu og hefst klukkan 14.00. Breytt tímasetning Fyrirlestrar á vegum Borgar- fræðaseturs

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.