Morgunblaðið - 13.08.2002, Blaðsíða 16
LANDIÐ
16 ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SUÐURNES
SAMNINGUR Sorpeyðingarstöðv-
ar Suðurnesja sf. og Héðins hf.
vegna nýrrar sorpmóttöku- og sorp-
brennslustöðvar í Helguvík verður
kynntur sveitarstjórnarmönnum í
veitingahúsinu Jenný í Grindavík í
kvöld. Héðinn hf. bauð tæpar 8,8
milljónir evra í verkið, sem sam-
svarar um 730 milljónum íslenskra
króna.
Sorpeyðingarstöðin hefur óskað
eftir því að sveitarstjórnir staðfesti
samninginn og tilkynni niðurstöðu
sína til stöðvarinnar eigi síðar en
20. ágúst nk.
Tilboði Heklu og
Járnbendingar rift
Í apríl sl. var tekið tilboði lægst-
bjóðanda, Heklu og Járnbendingar,
eftir útboðsferli vegna nýrrar sorp-
móttöku- og sorpbrennslustöðvar.
Eftir að tilboðinu hafði verið tekið
kom í ljós að Hekla/Járnbending
taldi sig ekki geta staðið við tilboðið
og því rift. Að ráðleggingu Ríkis-
kaupa, sem annaðist útboðið, var í
kjölfarið sett af stað samninga-
kaupaferli þar sem tilboðsgjöfum úr
fyrra ferlinu var gefinn kostur á að
endurnýja eða koma með ný boð.
Sjö fyrirtæki lögðu inn tilboð og
lauk samningskaupaferlinu 23. júlí
sl. Ákvað stjórn Sorpeyðingarstöðv-
arinnar að ganga til samninga við
fyrirtækið Héðin hf. en tilboð þess
hafði hlotið hæstu einkunn í stiga-
gjöf matsnefndar. Stjórnin veitti
einnig heimild til undirritunar
samnings við Héðin hf. með fyr-
irvara um staðfestingu sveitar-
stjórnanna sem aðild eiga að Sorp-
eyðingarstöðinni.
Samningur þess efnis var und-
irritaður 27. júlí sl. og er í honum
gert ráð fyrir að búið verði að afla
staðfestingar allra sveitarstjórna í
síðasta lagi 20. ágúst nk.
Samningur um
nýja sorpbrennslu-
stöð kynntur
Grindavík
SÍÐUSTU helgina í ágúst verða
Sandgerðisdagar haldnir. Um
er að ræða fjölbreytta hátíð fyr-
ir alla fjölskylduna sem haldin
hefur verið í bænum undanfarin
ár.
Nína Óskarsdóttir, einn af
skipuleggjundum hátíðarinnar,
segir að dagskráin verði margs-
konar og að burtfluttir Sand-
gerðingar séu sérstaklega boðn-
ir velkomnir. Tjaldstæði verða
við íþróttamiðstöðina af þessu
tilefni.
„Við leggjum áherslu á að á
hátíðinni skemmti Sandgerð-
ingar Sandgerðingum,“ segir
Nína. Að hennar sögn er enn
verið að bæta við dagskrána en
meðal þess sem í boði verður má
nefna Listasmiðju og körtubíla
fyrir börnin. Hátíðin fer að
mestu fram á Vitatorgi.
Hátíð
í bæ
Sandgerði
ÍBÚAR Voga á Vatnsleysuströnd
gerðu sér glaðan dag á laugardag-
inn ásamt vinum og vandamönnum.
Þar var haldinn sérstakur Fjöl-
skyldudagur í Aragerði og var
mæting mjög góð enda dagskráin
fjölbreytileg og veður ákjósanlegt
til útiveru.
Brunavarnir Suðurnesja voru
með körfubíl á staðnum og buðu
gestum að skoða bæinn frá nýju
sjónarhorni. Voru skoðunarferð-
irnar úr körfunni vinsælar og féllu
sérlega vel í kramið hjá yngri kyn-
slóðinni. Á tjörninni var boðið upp á
kanóróður og að lokinni „sjóferð“
um tjörnina lögðu börnin mörg
hver leið sína í hoppkastalann í
Aragerði, þar sem einnig var hægt
að fá andlitsmálningu og gæða sér
á pylsum í boði bæjarins.
Um kvöldið var svo slegið upp
dansiballi í Glaðheimum.
Lítil kisa eða kannski ljónynja að verða til?
Morgunblaðið/Hilmar Bragi
Biðröð myndaðist fljótt við hoppukastalann í Aragerði.
Vel heppn-
aður fjöl-
skyldudagur
Vogar
Á SKÓGRÆKTARDEGINUM síð-
astliðinn laugardag opnaði Skóg-
ræktarfélag Siglufjarðar með
formlegum hætti svonefndan Jó-
hannslund í skógræktinni í Siglu-
firði. Jóhannslundur er nefndur
eftir Jóhanni Þorvaldssyni en hann
var um áratugaskeið ötull forvíg-
ismaður skógrækar í Siglufirði.
Upphafið að ræktun í Jóhanns-
lundi var þegar Jóhann var gerður
að heiðursfélaga í Skógræktar-
félagi Íslands á áttræðisafmæli
hans árið 1989. Voru honum af því
tilefni færðar að gjöf 80 plöntur
sem plantað var ofarlega í landi
skógræktarinnar þar sem nú er
Jóhannslundur. Nú hafa trén í
lundinum vaxið í rúm 10 ár og því
þótti við hæfi að opna lundinn nú.
Skógrækt í Siglufirði hófst með
skipulegum hætti árið 1938, þegar
félagar í Rotaryklúbbi Siglu-
fjarðar hófu gróðursetningu í
landi Hóls, en Jóhann var í stjórn
Rotaryklúbbsins á þeim tíma.
Þetta land reyndist síðar ekki hafa
þá kosti sem til þurfti og árið 1948
var plöntun hætt. Sigurður Jóns-
son skógarvörður benti þá á land
sem hann taldi hentugra til skóg-
ræktar og árið 1950 hófst gróð-
ursetning í landi í Skarðsdal þar
sem skógrækt hefur verið stunduð
síðan.
Bar Jóhann hitann og þungann
af þessari ræktun lengi, en hann
lést árið 1999. Nú hafa hæstu trén
í skógræktinni í Siglufirði náð um
10 metra hæð.
Morgunblaðið/Brynja Svavarsdóttir
Sigríður Jóhannsdóttir, elsta barn Friðþóru Stefánsdóttur og Jóhanns Þorvaldssonar, í Siglufirði, afhjúpaði
hlið Jóhannslundar, sem mágur Jóhanns, Friðgeir Jóhannsson, Dalvík, skar út.
Jóhannslundur formlega
opnaður í skógræktinni
Siglufjörður
ÞAÐ tók ellefu sundmenn aðeins rúmar fimm klukku-
stundir að synda frá Reykjavík til Akraness sl. föstudag
en um var að ræða árlegt fjáröflunarsund Sundfélag
Akraness, sem oftast er nefnt Faxaflóasund. Að venju
synti aðeins einn sundmaður í einu og var misjafnt hve
lengi hver synti hverju sinni, en vegalengdin er um 11
sjómílur. Tveir sundmenn úr Sundfélaginu Ægi voru
með í för en það voru þeir Jakob Jóhann Sveinsson og
Hjörtur Már Sigurðsson en aðspurður sagði Jakob að
honum hafi alltaf þótt það spennandi tilhugsun að synda
uppá „Skaga“ og því hafi hann falast eftir því að fá að
vera með að þessu sinni. „Ég varð ekki fyrir vonbrigðum
og þetta er skemmtileg reynsla,“ sagði Jakob er Morg-
unblaðið hitti sundfólkið að máli í Jaðarsbakkalaug þar
sem réttu hitastigi var náð í kroppinn á ný eftir sjóbaðið.
Veður var gott er sundfólkið lagði af stað um miðjan dag
og engin sjóveiki gerði vart við sig í hópnum. Guðgeir
Guðmundsson, einn af „eldri“ sundmönnum hópsins
sagði að froskalappir hefðu hjálpað sundfólkinu að halda
uppi góðum hraða og jafnframt hefðu blautbúningar séð
til þess að sundfólkið hélt á sér hita í köldum sjónum.
„Það var misjafnt hve lengi hver og einn synti en sá sem
var lengst í sjónum var í rúman hálftíma en það var
ónefnd stúlka sem átti metið í því að vera styst ofaní. Hún
var rétt rúmar tvær mínútur ofaní og hafði þá fengið
nóg,“ bætti Guðgeir við og gaf í skyn að karlarnir fimm
hefðu lagt meira af mörkum að þessu sinni en dömurnar
sex gáfu lítið fyrir þau ummæli.
Sundið er stór þáttur í fjáröflun félagsins og er þetta í
ellefta sinn sem synt er með þessum hætti á vegum
Sundfélagsins.
Morgunblaðið/Jim Smart
Hópurinn áður en lagt var af stað til Akraness.
Vel heppnað
Faxaflóasund
Akranes
UM SÍÐUSTU helgi var formlega
gangsett á ný heimarafstöð í Vestra-
gili í Skaftafelli. Rafstöð þessi hefur
verið endurgerð í nær upprunalegri
mynd en hún var í notkun frá 1925 í
um hálfa öld og framleiddi rafmagn
fyrir Bölta og Sel.
Margir hafa komið að verki við
endurbygginguna en mest í því á
Bjarni Þór Jakobsson rafvirkja-
meistari, Höfn, en hann er fæddur
og uppalin í Bölta í Skaftafelli.
Nokkurt fjölmenni var viðstatt
gangsetninguna, þar á meðal menn
frá RARIK og Landsvirkjun en þau
fyrirtæki styrktu verk þetta.Morgunblaðið/Sigurður Gunnarsson
Framleiddi
rafmagn fyrir
Bölta og Sel
Skaftafell