Morgunblaðið - 13.08.2002, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 2002 45
DAGBÓK
Opið virka daga frá kl. 10-18.
Lokað á laugard. í sumar
Sími 567 3718
ÚTSÖLUTILBOÐ
Öll undirföt á hálfvirði
30% afsláttur af sundfötum,
náttfötum og heimasettum
H
a
u
s
t
v
ö
r
u
r
Hef opnað
AUGNLÆKNASTOFU
á Hverfisgötu 76, 101 Reykjavík.
Tímapantanir alla virka daga
kl. 9–15 í síma 568 0070.
Harpa Hauksdóttir
AUGNLÆKNIR
Tekið er við tímapöntunum og skilaboðum
alla virka daga
frá kl. 9-17 í síma 511 8040
Ólafur Þór Ævarsson, dr. med., geðlæknir
Hef flutt starfsemi mína
í læknastofuna Skipholti 50B
Á góðum bíl í Evrópu
Hringdu til AVIS í síma 591-4000
Pantaðu AVIS bílinn þinn áður en þú ferðast – Það borgar sig
(Verð miðast við lágmarksleigu 7 daga)
Innifalið í verði er ótakmarkaður
akstur, trygging, vsk.
og flugvallargjald.
Bretland kr. 3.000,- á dag
Ítalía kr. 3.700,- á dag
Frakkland kr. 3.000,- á dag
Spánn kr. 2.200,- á dag
Portúgal kr. 2.600,- á dag
Danmörk kr. 3.500,- á dag
www.avis.is
Við
reynum
betur
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 15. júní sl. af sr. Guð-
nýju Hallgrímsdóttur þau
Hildur Óskarsdóttir og
Gunnar Gunnbjörnsson,
heimili þeirra er í Einars-
nesi 62a, Reykjavík.
Ljósmynd/ Skugginn
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 15. júní sl. í Laug-
arneskirkju af sr. Bjarna
Karlssyni þau Guðrún Ás-
geirsdóttir og Jón Hannes
Karlsson. Þau eru til
heimilis í Gnoðarvogi 26,
Reykjavík.
Ljósmynd/ Mynd, Hafnarfirði
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
LJÓN
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þér býðst að læra eitthvað
öðruvísi og spennandi,
gakktu til verks með opnum
huga.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Láttu ekki formfestuvana
þinn og íhaldssemi blinda þig
er yfirmaður kemur með nýj-
ar tillögur um aðferðir til að
bæta starfsframmistöðu þína.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Nýjar ástir kunna að kvikna í
dag horfir þú í réttar áttir. Of
oft sendum við frá okkur letj-
andi skilaboð, ekki gera það í
dag.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Alveg ný notkun kunnuglegs
hlutar gæti átt sér stað í dag
og bætt heimilið eða hjálpað
vini eða kunningja með ein-
hverjum hætti.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú hefur þörf fyrir andlega
uppörvun í dag, vilt gera eitt-
hvað sem brýtur upp rútín-
una. Þess vegna leitar þú
uppi annað fólk en þú um-
gengst jafnan.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú kannt að kaupa eitthvað
óvenjulegt en þægilegt í dag.
Gæti verið dót, tæki eða
óþarfa glys og glingur.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú mátt búast við því að verja
kvöldinu í framandi umhverfi.
Þér finnst þú fjörga lífið og
auka bjartsýni með hvatvísri
ákvörðun þinni um að breyta
til.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Notaðu daginn til þarfra
breytinga í einkalífi eða á
heimilinu. Taktu mót nýjum
tæknilausnum með jákvæð-
um huga.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Góður vinur kann að koma
þér á óvart í dag. Sýndu
sveigjanleika því líklegt er að
áætlanir breytist.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Fljóthuga innkaup eru líkleg
í dag, líklega kaupirðu eitt-
hvað sem lagar stöðu þína
gagnvart öðrum, þeir telja
þig mikilvægari á eftir.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Fólk sem hefur ólíkar skoð-
anir og viðhorf en þú á hug
þinn allan í dag. Það eykur
þér víðsýni að kynnast því
hvernig aðrir lifa lífinu.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Óvænt aðstoð gleður hjartað í
dag en það er ótrúlegt
hvernig smáskammtur af
hugulsemi getur virkað hvetj-
andi.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Afmælisbörn dagsins:
Andlegt atgervi þitt er óbug-
anlegt, þegar þú hefur tekið
afstöðu fær ekkert henni
hnikað. Svo mikið er hug-
rekki þitt að þú getur yf-
irstigið ókleifar hindranir,
persónuleiki þinn er ein-
stakur.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
AFKÖSTIN eru oft erfið í
vörninni, ekki síst þegar
kastþröng liggur í loftinu.
Spilið að neðan kom upp í
Bikarleik fyrir skömmu milli
sveita Ragnheiðar Nielsen
og Þrastar Árnasonar.
Suður gefur; allir á hættu.
Norður
♠ Á102
♥ D75
♦ ÁK8
♣ÁK108
Vestur Austur
♠ D9765 ♠ G84
♥ 4 ♥ G86
♦ 976 ♦ DG103
♣G542 ♣D93
Suður
♠ K3
♥ ÁK10932
♦ 542
♣76
Á báðum borðum voru
sögð 7 hjörtu í NS. Kristján
Blöndal og Matthías Þor-
valdsson í sveit Ragnheiðar
sögðu þannig á spilin:
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 1 hjarta
Pass 2 lauf Pass 2 hjörtu
Pass 3 hjörtu Pass 3 spaðar
Pass 4 grönd Pass 5 hjörtu
Pass 5 grönd Pass 6 hjörtu
Pass 7 hjörtu Allir pass
Kristján var sagnhafi í
suður og fékk út tromp. Tólf
slagir eru upplagðir og tveir
möguleikar á þeim þrett-
ánda. Annars vegar má spila
vestur upp á litlun hjónin í
laufi og djúpsvína tíunni
(sem ekki gengur) eða spila
upp á einhvers konar þving-
un með þeim aukamöguleika
að fella DG þriðju í laufi.
Kristján valdi þann kostinn.
Hann spilaði þrisvar trompi,
tók svo ÁK í laufi og stakk
lauf.
En nú þarf að staldra við.
Hverju henti vestur í tromp-
in? Einum spaða og einum
tígli. Fátt virðist eðlilegra,
en tígulafkastið frá níunni
þriðju er þó banvænt fyrir
vörnina. Kristján tók ÁK í
tígli, fór heim á spaðakóng
og rúllaði niður trompunum:
Norður
♠ Á10
♥ --
♦ --
♣10
Vestur Austur
♠ D9 ♠ G8
♥ -- ♥ --
♦ -- ♦ D
♣G ♣--
Suður
♠ 3
♥ 2
♦ 5
♣--
Síðasta trompið laðar
fram tvöfalda kastþröng.
Báðir andstæðingarnir
verða að henda spaða, svo að
spaðatían varð þrettándi
slagurinn.
Vörnin hefur betur ef
vestur hangir á þriðja tígl-
inum og lætur makker sinn
um að valda spaðann, en sú
vörn er mjög erfið. Al-
slemman fór niður á hinu
borðinu og sveit Ragnheiðar
fékk 20 IMPa fyrir spilið.
Árnað heilla
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
1. d4 d5 2. Rf3 Rf6 3. c4
dxc4 4. e3 e6 5. Bxc4 c5 6.
O-O a6 7. a4 Rc6 8. De2
cxd4 9. Hd1 Be7 10. exd4
O-O 11. Rc3 Rb4 12. Re5
Rfd5 13. Re4 b6 14. Ha3
Bb7 15. Hh3 Rc7 16. Dg4
Re8
Staðan kom upp í Ave-
Kontakt-flokknum á
Olomouc-skákhátíðinni
sem lauk fyrir skömmu í
Tékklandi. Gamla
kempan og stórmeist-
arinn frá Slóvakíu,
Jan Plachetka (2.439)
hafði hvítt gegn Taniu
Sachdev (2.140) frá
Indlandi. 17. Bxe6!
Bxe4 Svartur yrði
mát eftir 17...fxe6 18.
Dxe6+ Kh8 19. Rg6#.
Í framhaldinu á hann
sér einnig ekki við-
reisnar von. 18. Dxe4
Rf6 19. Df5 Dd6 20.
Bb3 Rc6 21. Bg5 og Hvítur á leik.
svartur gafst upp. Loka-
staða flokksins varð þessi:
1.-2. Jan Plachetka (2.439)
og Petr Nauman (2.410) 8
vinninga af 10 mögulegum
3. NeklanVyskocil (2.354)
7½ v 4. Bernd Meissner
(2.382) 7½ v. 5.-6. Vladim-
ir Shushpanov (2.409) og
Konstantin Maslak
(2.361) 6½v. 7. Bakalarz
Mieczyslaw (2.321) 6 v. 8.
Jakub Krejci (2.286) 5 v.
9. Yudania Hernandez
(2.264) 4½ v. 10. Gabriela
Hitzgerova (2.230) 2½ v.
11. Kumar Himanshu 1½
v.
50 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 13.
ágúst, er fimmtug Ólafía
Ottósdóttir, verslunarmað-
ur, Klapparbergi 13,
Reykjavík. Eiginmaður
hennar er Hreinn Ómar
Sigtryggsson. Þau eru að
heiman í dag.
Ljósmynd/ Mynd í Hafnarfirði
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 25. maí sl. í Kópa-
vogskirkju af sr.Vigfúsi Þór
Árnasyni þau Hólmfríður
Ása Guðmundsdóttir og
Sigurgeir Már Halldórsson.
Þau eru búsett í Reykjavík.
LJÓÐABROT
ERLA
Erla, góða Erla!
Ég á að vagga þér.
Svíf þú inn í svefninn
í söng frá vörum mér.
Kvæðið mitt er kveldljóð
því kveldsett löngu er.
Úti þeysa álfar
um ísi lagða slóð.
Bjarma slær á bæinn
hið bleika tunglskinsflóð.
Erla, hjartans Erla,
nú ertu þæg og góð!
Æskan geymir elda
og ævintýraþrótt.
Tekur mig með töfrum
hin tunglskinsbjarta nótt.
Ertu sofnuð, Erla?
Þú andar létt og rótt.
- - -
Stefán frá Hvítadal
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og síma-
númer. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík