Morgunblaðið - 13.08.2002, Side 10

Morgunblaðið - 13.08.2002, Side 10
FRÉTTIR 10 ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ Á RÁÐSTEFNU í sameindalækn- isfræði, sem stendur yfir í Reykja- vík, hélt Stefán Karlsson, prófessor í sameindalæknisfræði við Háskólann í Lundi, erindi um genalækningar. Stefán stýrir rannsóknarstofu í genalækningum en hann er bæði læknir og erfðafræðingur að mennt. Hann hefur starfað að þróun gena- lækninga síðan 1985, fyrst við Heil- brigðisstofnun Bandaríkjanna í rúman áratug en hann hefur unnið í Lundi síðan 1996. Að sögn Stefáns vinnur hann að rannsóknum á stofnfrumum í bein- merg, það er frumurnar sem mynda allar blóðfrumur og er markmiðið að reyna að flytja gen inn í stofnfrum- urnar svo hægt sé að lækna erfða- sjúkdóma sem eru bundnir við blóð- kerfið. Hann segir að þetta séu hinir ýmsu sjúkdómar, efnaskiptasjúk- dómar, blóðleysissjúkdómar og sjúkdómar sem eyðileggja ónæmis- kerfið, svo einhverjir séu nefndir. „Í fyrirlestri mínum byrjaði ég á því að tala um vinnu okkar við sjúk- dóm sem nefnist Diamond-Blackfun blóðleysi. Ég sýndi fram á að við getum bætt mjög myndun rauðu frumanna þegar við flytjum gölluð gen inn í stofnfrumur frá sjúkling- unum, þar með fáum við mun betri blóðmyndun en áður. En við höfum bara sýnt fram á þetta í vefjaræktun enn sem komið er og ekki gert nein- ar tilraunir á sjúklingunum sjálf- um,“ lýsir hann. Fyrsta árangursríka genatilraunin Hann segir að sjúkdómurinn lýsi sér á þann veg að sjúklingarnir þurfi að fá blóðgjöf næstum mánaðarlega. Með því safnast svo mikið járn fyrir í líkamanum að á endanum verða vefjaskemmdir. Fólk deyr því oft á þrítugsaldri vegna of mikillar járnsöfnunar. „Við höfum sýnt fram á að það lítur út fyrir að við getum leiðrétt gallann,“ bendir Stef- án á og telur jafnvel að hægt verði að nota þessa meðferð á sjúk- lingum eftir 3–4 ár. Stefán fjallaði í fyr- irlestri sínum um ár- angursríka genatil- raun sem gerð var í París fyrir um tveim- ur árum, en starfs- bræðrum hans þar hefur tekist að með- höndla börn, sem haldin eru arf- gengri ónæmisbilun. Hann segir sjúkdóminn vera ákaf- lega sjaldgæfan og lýsa sér í því að börn sem fæðist með þennan sjúk- dóm geta ekki varið sig fyrir sýk- ingu og ná því sjaldnast eins árs aldri. Hann lýsir því að tekist hafi að flytja eðlilega genið inn í stofnfrum- urnar á frumum frá sjúklingum, sem hafa gallað gen er leiðir til ónæm- isbilunar. Síðan er frumunum, sem búið er að meðhöndla, komið fyrir á ný í sjúklingnum og virðist sem sjúklingarnir hafi náð bata og orðið nánast heilbrigðir. „Það hefur ekki tekist að sanna ennþá hvort sjúk- lingarnir verða fullkom- lega heilbrigðir því menn vita ekki hvort lækningin vari í 5 ár eða alla ævi,“ bætir hann við. Stefán segist hafa fjallað um þessa tilraun, því hann telur það mik- ilvægt að segja frá ár- angri í genalækningum þar sem sjúklingarnir ná bata. Hann leggur áherslu á að menn hafi glímt við genalækning- ar í klínískum tilraunum í meira en tíu ár og þetta sé fyrsta árang- ursríka genatilraunin sem hefur verið gerð á sjúklingum. Hann bendir á að öll áhugaverð vinna hingað til, sem hefur borið árangur, hafi verið gerð í dýrum eða frumu- ræktun. Það hafi verið gerðar marg- ar tilraunir á sjúklingum en þær hafi ekki tekist. Eyðniveiran flytur gen inn í fleiri stofnfrumur „Ég endaði fyrirlestur minn á því að tala um framtíðina, nýjar gena- ferjur sem byggjast á eyðniveirunni. Undanfarin þrjú, fjögur ár hafa menn farið að vinna með blóðfrumur og reynt að nota eyðniveiruna til að flytja gen inn í stofnfrumur. Öll veirugenin eru tekin burt úr eyðni- veirunni, sem heitir HIV-1 og í stað- inn eru sett inn gen sem vantar í við- komandi sjúkdóm. Ef gen er gallað í viðkomandi sjúkdómi, þá setur mað- ur inn heilbrigt gen í staðinn í veir- una og notar til að flytja inn í stofn- frumuna,“ útskýrir Stefán en rannsóknarstofan sem hann stýrir hefur þróað slíkar genaferjur í fjög- ur ár og er í fararbroddi í slíkum rannsóknum. Að sögn hans er talið að með eyðniveirunni sé mögulegt að flytja genin inn í hlutfallslega fleiri stofn- frumur en með veirunum sem hing- að til hafa verið notaðar. Hann segir að með þessum eldri veirum sé hægt að flytja gen inn í mesta lagi 10% af stofnfrumunum en með þessari leið sé vonast til að hægt verði að flytja gen inn í 30–40% af öllum stofn- frumunum. „Það er fyrst og fremst vegna þess að HIV-veiran getur smitað frumur sem eru ekki í skipt- ingu, en flestar stofnfrumur liggja í dvala. Veiran er því góð genaferja fyrir stofnfrumurnar vegna þess að 90–95% af þeim eru í dvala hverju sinni,“ leggur hann áherslu á. Hann segir að eyðniveiran komi mest að notum við meðhöndlun erfðasjúkdóma til dæmis í blóðkerf- inu. Einnig gæti hún verið notuð við sjúkdómum í lifur og ýmsum öðrum líffærakerfum. Aðspurður hvort engin áhætta fylgi því að nota eyðniveiruna í þess- um tilgangi segir Stefán að auðvitað sé allt fræðilega mögulegt. Hins vegar séu þessar genaferjur þannig hannaðar að það sé ekki nokkur möguleiki á að búa til venjulega eyðniveiru úr þeim. Hann bendir þó á að áhættan geti verið önnur. „Það er til dæmis hugsanlegt að veiran geti skemmt gen þegar hún hefur fest sig við litningana, því enn er ekki hægt að stjórna því hvar hún lendir. Í þessu tilfelli eins og öðrum verður að vega og meta hugsanlegan ávinning fyrir sjúklinginn og hugs- anlega áhættu,“ segir hann. Hann segir þetta helsta vanda- málið við genaferjurnar því ef veira komist inn í of marga staði sé þessi hætta fyrir hendi. Í dag festast að meðaltali 5 veirur inn í litningunum en 1–2 eru æskilegar. „Við bindum eins og er miklar vonir við þessar nýju genaferjur. En það er eins og oft í vísindunum, maður verður fyrst voðalega ákafur þegar það kemur ný tækni og maður fær nýjar nið- urstöður, en síðan koma oft einhver vandkvæði í ljós sem maður veit ekki af til að byrja með,“ undirstrik- ar Stefán og ítrekar að enn hafi ekki fundist neinir aðrir sérstakir van- kantar á þessum genaferjum. Hann segir að enn hafi þær ekki verið prófaðar á sjúklingum. Stefán telur að mikil framtíð búi í genalækningum og segist sannfærð- ur um að á næstu tíu árum verði smátt og smátt hægt að lækna vissa erfðasjúkdóma með þessum hætti. En hann bætir við að auðvitað sé það mjög háð því hvaða sjúkdómar eigi í hlut og hverjar orsakir þeirra séu. Stefán Karlsson, prófessor í sameindalæknisfræði, vinnur að þróun genalækninga Stefán Karlsson Eyðniveiran notuð sem lækning við erfðasjúk- dómum í blóðkerfinu FJÖLDI manns lagði í gær leið sína út á Ægisgarð til að skoða rússneska tundurspillinn Admiral Chabanenko en rússneski Norð- urflotinn er hér með skipið og birgðaskipið Sergey Ocipov í flotaheimsókn þessa dagana. Í til- efni heimsóknarinnar til Íslands ræddu þeir Alexander Rannikh sendiherra Rússlands á Íslandi og Vladimir Dobroskochenko vísi- aðmíráll og yfirmaður herskip- anna við blaðamenn. Dobroskochenko, sem er næst- ráðandi rússneska Norðurflotans, sagði að markmið heimsókn- arinnar væri fyrst og fremst að bæta tengsl og styrkja böndin milli Íslands og Rússlands. Hann benti á að samskipti landanna ættu sér langa sögu og á sínum tíma hefðu Sovétríkin verið með- al fyrstu þjóða sem viðurkenndu sjálfstæði Íslands. Þá minntist hann á fund Ronalds Reagan og Mikhails Gorbastjov í Reykjavík árið 1986 og sagði þann fund hafa valdið umskiptum og mark- að upphaf loka kalda stríðsins. Dobroskochenko sagði að þetta væri í fyrsta sinn sem hann kæmi til Íslands, en hann hefði nokkr- um sinnum siglt hér hjá, en hann hefur starfað á skipum rússneska sjóhersins í tæp 30 ár og gegnt þar mörgum embættum. Sagðist hann þakklátur fyrir hlýjar mót- tökur á Íslandi og sagði ferðina mikla upplifun fyrir áhafnar- meðlimi Chabanenko og Sergey Ocipov, en þeir eru á sjötta hundrað. Meirihluti starfsmanna skipanna væri ungir hermenn á aldrinum 17–19 ára og fyrir flesta væri þetta í fyrsta og sennilega eina skiptið sem þeir ferðast frá Rússlandi. Jafnframt benti Dobroskoch- enko á að þetta sé í þriðja sinn sem rússnesk herskip komi hing- að til lands, hið fyrsta hafi komið 1871, hið næsta 1969 og nú hið þriðja. Rússar og Vesturlönd starfa nú saman Alexander Rannikh, sendiherra Rússa, sagði einnig að heimsókn- in nú væri liður í að auka sam- starf Rússa og Íslendinga og rússneski flotinn vildi með komu sinni hingað sýna Íslendingum virðingu sína. Hann vakti athygli á að Ólafur Ragnar Grímsson hefði fyrstur íslenskra forseta heimsótt rússneskt herskip og hún sýndi að samskipti þjóðanna væru að verða nánari. Þá væri heimsókn vísiaðmíráls- ins til bandaríska varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli einnig tákn- ræn fyrir breytta heimsmynd, en Rússar og Vesturlönd starfi nú saman í baráttunni gegn alþjóð- legum hryðjuverkum. Rússneski tundurspillirinn Admiral Chabanenko í Reykjavík Markmiðið að styrkja böndin milli Íslands og Rússlands Morgunblaðið/Júlíus Rússneskir sjóliðar af Chabanenko skemmtu fólki með söng á Ingólfs- torgi í gær en flestir eru þeir að ferðast í fyrsta sinn frá Rússlandi. Morgunblaðið/Þorkell Alexander Rannikh, sendiherra Rússlands, og Vladimir Dobroskoch- enko vísiaðmíráll um borð í rússneska tundurspillinum Chabanenko. Morgunblaðið/Þorkell Rússneski tundurspillirinn Chabanenko er 8.000 tonn að stærð og eru áhafnarmeðlimir 434. BJÖRGUNARSVEITIR Slysa- varnafélagsins Landsbjargar frá Árborg, Eyrarbakka og Grímsnesi leituðu á laugardag að Pálma Þór- issyni, 23 ára manni, sem saknað er eftir bílslysið í Hvítá 2. ágúst síð- astliðinn. Sautján björgunarsveitarmenn tóku þátt í leitinni ásamt þremur leitarhundum og voru notaðir þrír slöngubátar ásamt svifnökkva til leitar á ánni. Leitað var frá slysstað við Brúarhlöð niður að Kópsvatns- eyra. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um frekari aðgerðir. Árangurs- laus leit í Hvítá EGYPSK kona, 75 ára að aldri, sem var farþegi í flugvél Lufthansa á leið frá Þýskalandi til Bandaríkjanna á laugardag, fékk hjartaáfall í flugi og var því millilent á Keflavíkurflugvelli til að koma henni undir læknishend- ur. Lenti vélin um klukkan 12 og var konan flutt á Landspítala – háskóla- sjúkrahús þar sem hún var úrskurð- uð látin um klukkan 13 að loknum ár- angurslausum lífgunartilraunum. Úrskurðuð látin eftir hjarta- áfall í flugi TVEIR karlmenn sem slösuðust al- varlega í bílslysi á Vesturlandsvegi við Fiskilæk í Leirár- og Melasveit 6. ágúst, eru báðir á batavegi á gjör- gæsludeild Landspítalans í Foss- vogi. Að sögn vakthafandi læknis eru þeir komnir úr öndunarvél og er líð- an þeirra eftir atvikum góð. Slysið varð þegar tvær bifreiðir rákust saman af miklu afli með þeim afleiðingum að kona á áttræðisaldri beið bana. Á batavegi eftir bílslys ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.