Morgunblaðið - 13.08.2002, Page 11

Morgunblaðið - 13.08.2002, Page 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 2002 11 Viðurkenndur Microsoft skóli Skeifan 11b · 108 Reykjavík · Sími 568 5010 · Fax 581 2420 · skoli@raf.is · www.raf.is Tölvutækni A+ - 70 kennslustundir, hefst 26. ágúst, verð kr. 129.000 Nám í vélbúnaði, stýrikerfum og jaðartækjum PC tölvu. Ómissandi grunnur fyrir alla sem starfa eða ætla að starfa á sviði tölvuviðgerða, tölvuþjónustu eða kerfisstjórnunar eða vilja bara vita allt um tölvuna. Námið undirbýr nemendur einnig fyrir alþjóðlegu A+ vottunarprófin. Próftaka er ekki innifalin í verði. Nettækni Network+ - 50 kennslustundir, hefst 30. september, verð kr. 115.000 Nám í undirstöðuatriðum netkerfa, einkum TCP/IP nær- og víðneta. Námið veitir kunnáttu sem er forsenda þess að geta unnið við uppsetningar, þjónustu, umsjón og hönnun netkerfa. Nauðsynleg undirstöðuþekking áður en reynt er við MCSA eða MCSE prófgráður. Námið undirbýr einnig fyrir alþjóðlega vottunarprófið Network+. Próftaka er ekki innifalin í verði. MCP braut - 190 kennslustundir, hefst 26. ágúst, verð 380.000 Fyrir þá sem hafa áhuga á starfi í tölvugeiranum en hafa litla eða enga reynslu af vinnu við tölvukerfi. Farið er ítarlega í vélbúnað og stýrikerfi tölvu (A+), undirstöðuatriði netkerfa (Network+) og Windows 2000 Professional. Þátttakendur þurfa að hafa reynslu af almennri tölvunotkun og geta lesið ensku. Tvær próftökur eru innifaldar. MCSA braut - 210 kennslustundir, hefst 20. ágúst, verð 475.000 Nám fyrir þá sem hafa lokið við MCP braut eða hafa reynslu af vinnu við tölvukerfi og stefna á þessa nýju prófgráðu, MCSA (Microsoft Certified Systems Administrator). Þetta nám er fyrir þá sem vilja starfa sem umsjónarmenn netkerfa og fá alþjóðlega viðurkennda vottun. Fjórar MCP próftökur innifaldar. Náminu lýkur með raunhæfu lokaverkefni. MCSE braut - 210 kennslustundir, hófst 12. ágúst, verð 475.000 Framhaldsnám fyrir þá sem lokið hafa við MCSA braut eða vilja bæta við sig prófum til að öðlast þessa eftirsóttu gráðu sem er æðsta prófgráða Microsoft fyrir umsjónarmenn og hönnuði netkerfa, MCSE (Microsoft Certified Systems Engineer). Þrjár MCP próftökur innifaldar. Náminu lýkur með raunhæfu lokaverkefni. • Á öllum námsbrautum er hluti námsins verklegur. • Á öllum námsbrautum fylgja vönduð kennslugögn á ensku. • Nemendur á MCSA og MCSE brautum eiga kost á starfsþjálfun. Rafiðnaðarskólinn er eini Microsoft skólinn á Íslandi og hefur vottun sem Microsoft tækni- kennslusetur eða Certified Technical Education Center (CTEC). Þessi viðurkenning er aðeins veitt skólum sem uppfylla strangar kröfur Microsoft á sviði tölvukennslu. Í Rafiðnaðarskólanum starfa aðeins vel mennt- aðir og hæfir kennarar með reynslu úr íslensku atvinnulífi. Allir kennarar á tölvusviði eru með vottanir frá CompTIA, Microsoft eða CISCO. Við leggjum áherslu á þægilegt námsumhverfi og stuðning við nemendur. Við ábyrgjumst fyrsta flokks kennslu á sérfræðinámsbrautum okkar og bjóðum því nemendum okkar árangurstryggingu. Þeir sem ekki ná fullnægjandi árangri geta sótt námið aftur FRÍTT! Sjá skilmála á www.raf.is. Rafiðnaðarskólinn býður einnig mikið úrval sérfræðinámskeiða frá Microsoft (MOC námskeið). Kennari er Jörg P. Kück, BS, MCSA, MCSE+I, MCT, MCDBA, OCP-DBA, CCNA. Hefur lokið yfir 30 MCP prófum. N á m m e ð á r a n g u r s t r y g g i n g u Stuttar námsbrautir sem saman mynda öfluga heild fyrir þá sem vilja nútímalega menntun í upplýsingatækni. Kennt er tvisvar í viku. Boðið er upp á dag- og kvöldnám. Fyrir þá sem vilja ná árangri FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ telur ekki tilefni til endurupptöku úrskurðar ráðuneytisins varðandi framkvæmd sveitarstjórnarkosn- ingarnna í Borgarbyggð 25. maí síðastliðinn. Bæjarstjórn Borgar- byggðar ber því að tilkynna ráðu- neytinu um nýjan kjördag fyrir 30. ágúst næstkomandi og skulu nýjar kosningar fara fram fyrir 25. nóv- ember. Páll Pétursson félagsmálaráð- herra sendi bæjarstjóra Borgar- byggðar bréf á föstudag þar sem erindi meirihluta bæjarráðs frá 6. ágúst sl. er svarað. „Við höldum okkur við okkar niðurstöðu. Þetta voru fráleitar uppástungur sem fram komu í bréfi þeirra. Það er ekki hægt að sinna því,“ segir Páll í samtali við Morgunblaðið. Segir í bréfinu að ráðuneytið hafi skoðað aðrar leiðir en að ógilda kosn- inguna áður en úrskurðurinn var kveðinn upp. Niðurstaðan hafi ver- ið að óhjákvæmilegt væri að ógilda kosninguna vegna hinna alvarlegu annmarka sem á henni voru og láta hana fara fram að nýju. Meirihluti bæjarráðs lagði til í erindi sínu ýmis vægari úrræði en að ógilda kosningarnar og boða til nýrra, m.a. að öll atkvæði sem greidd voru utan kjörfundar yrðu talin og að atkvæði sem ráðuneytið úrskurðaði gilt yrði opnað. „Telur ráðuneytið þessa tillögu fráleita þar sem ótvírætt er samkvæmt úr- skurði að atkvæði greidd utan kjörfundar þar sem undirritun kjósanda vantar á fylgibréf eru ógild,“ segir í svarbréfi ráðherra. Sagt er að það sé ekki rétt sem meirihluti bæjarráðs haldi fram í erindi sínu, að ráðuneytið hafi gengið lengra en kröfugerð kær- anda gaf tilefni til. Við meðferð kærumála um framkvæmd kosn- inga gildi ekki sömu sjónarmið um málsforræði aðila og t.d. við með- ferð einkamála fyrir dómstólum, enda um stjórnsýslumál að ræða og mál sem varði mikilvæga al- mannahagsmuni. Nýrri kosningu ekki frestað þó úrskurði verði skotið til dómstóla Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélags Mýrarsýslu er að undirbúa að fara með úrskurð félagsmálaráðu- neytisins fyrir dómstóla. „Ráðu- neytið hefur ekki heimild sam- kvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórna eða stjórnsýslu- lögum til að heimila að kosningar fari fram síðar þegar svo er ástatt að úrskurði ráðuneytisins er skotið til dómstóla og ekki er gert ráð fyrir því í umræddu ákvæði að uppkosningu skuli frestað af þeirra ástæðu,“ segir í bréfi ráð- herra. Ráðuneytið hvetur bæjarstjórn Borgarbyggðar til að ákveða nýjan kjördag og tilkynna þá ákvörðun til ráðuneytisins svo unnt verði að láta utankjörfundaratkvæða- greiðslu hefjast með góðum fyr- irvara. Tilkynna skal um nýjan kjördag innan mánaðar frá því úr- skurðurinn var kveðinn upp, eða fyrir 30. ágúst. Lögum samkvæmt skulu nýjar kosningar fara fram innan hálfs árs frá þeim fyrri eða fyrir 25. nóvember. „Þetta er endanleg niðurstaða ráðuneytisins. Þeir geta reynt að fá úrskurðinum hnekkt með dómi, en ég hef enga trú á því að það gangi. Ekki á þeirri lögfræði sem fram kemur í bréfi meirihluta bæj- arráðs,“ segir Páll. Tilkynna skal um nýjan kjördag í Borgarbyggð fyrir 30. ágúst og kjósa fyrir 25. nóvember Ekki tilefni til end- urupptöku úrskurð- ar ráðuneytisins ÞESSI tæplega sjö metra háa vél er á leið til Hydro í Nor- egi í nýja skautverk- smiðju sem verið er að reisa, en vélin mun vera sú fyrsta sinnar tegundar í heiminum. Vélin, sem réttir skauts- gaffla í álverum, er hönnuð af Altech og framleidd hjá véla- verkstæði Hjalta Ein- arssonar í Hafn- arfirði. Að sögn Jóns Hjaltalíns Magn- ússonar, eiganda Al- tech, hefur Hydro þegar keypt nokkrar svona vélar. Hann segir að þessi vél sé til að rétta skauts- gaffla sem geta bognað þegar skipt er um skaut í kerum álveranna. „Það hef- ur verið gert með ákveðnum vélum hingað til, sem hafa ekki unnið sem skyldi. Þessi vél, sem við erum að afhenda núna, er sú fyrsta sinnar tegundar sem réttir gafflana alveg eins og þeir eiga að vera,“ segir Jón Hjaltalín. Hann leggur áherslu á að þegar sé búið að selja aðra eins vél til Þýskalands og segir að Altech hafi borist fjöldi fyrirspurna í þessa nýju tækni. „Það má segja að þetta séu endurbætur á þeirri tækni sem hefur verið í álverum,“ bætir hann við. Hann telur að yfirleitt þurfi eina eða tvær svona vélar í álver en vélin kostar um 35 milljónir króna. Hún er næstum sjö metrar og veg- ur um tíu tonn. Jón Hjaltalín segir að Altech hafi hannað og þróað þrjátíu mismunandi vélar, en verið er að setja þessar vélar upp í tutt- ugu álverum um allan heim. Morgunblaðið/Þorkell Vélin vegur um tíu tonn og er tæplega sjö metra há. Verðmætið er um 35 milljónir. Ný íslensk tækni í álver víða um heim

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.