Morgunblaðið - 13.08.2002, Side 17

Morgunblaðið - 13.08.2002, Side 17
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 2002 17 US AIRWAYS, sjötta stærsta flug- félag Bandaríkjanna, hefur sótt um greiðslustöðvun. Félagið er fyrsta stóra flugfélagið í Bandaríkjunum til að sækja um greiðslustöðvun síð- an 11. september. Í kjölfar hryðju- verkaárásanna hafa mörg flugfélög í Bandaríkjnuum og víðar átt í verulegum rekstrarerfiðleikum og hlaðið upp skuldum. Að sögn for- svarsmanna US Airways er sótt um greiðslustöðvun þar til tekst að leysa úr fjárhagsvanda félagsins. Mikil lækkun varð á hlutabréfa- markaðnum í Bandaríkjunum í kjöl- far fregna um greiðslustöðvun og hugsanlegt gjaldþrot US Airways. Flugfélagið hefur þó þegar feng- ið vilyrði fyrir samtals 700 millj- ónum dala í lán til að rétta af rekst- urinn. Hópur fjárfesta, með Bank of America og Credit Suisse First Boston í fararbroddi, vill veita US Airways 500 milljóna dala lán og verði fyrirtækið gjaldþrota fær þessi hópur forgang á kröfur í fé- laginu. Annar hópur, Texas Pacific Group, hefur einnig lýst áhuga á að aðstoða við að koma flugfélaginu á réttan kjöl með 200 milljónum dala í skiptum fyrir 38% hlutafé í félag- inu. Hópurinn er ekki ókunnur flugfélögum því árið 1993 aðstoðaði hann við endurfjármögnun Cont- inental Airlines sem þá stefndi í gjaldþrot. Ári síðar fjárfesti hann svo í flugfélaginu America West sem í kjölfarið komst hjá gjaldþroti. Laun starfsmanna lækkuð Hjá US Airways starfa um 35.000 manns og í flugflota félagsins eru 311 vélar. Haft er eftir forstjóra fé- lagsins að reynt verði eftir megni að draga úr kostnaði en US Air- ways er talið hafa hæstan rekstr- arkostnað allra bandarískra flug- félaga. Stjórnendur félagsins hyggjast m.a. biðja starfsmenn um að semja um kauplækkun við félag- ið. Segja þeir að slíkt muni ganga til baka þegar félagið komist upp úr skuldafeni. Þá komi stjórnendur og æðri starfsmenn einnig til með að taka á sig kauplækkun, einkum í formi skerðingar á bónusgreiðslum og risnu. Skuldir US Airways nema nú 7,83 milljörðum dala en eignir flugfélagsins eru metnar á um 7,81 milljarð dala. Tap félagsins það sem af er þessu ári nemur um 500 millj- ónum dala en nam um 2 milljörðum dala á öllu síðasta ári. Verð á hlutabréfum félagsins hríðféll í kjölfar frétta um greiðslu- stöðvun. Við lokun markaða í gær var gengi bréfanna einungis 0,50 dalir á hlut en 2,45 á föstudag og nemur lækkunin 79,6%. Hlutur í fé- laginu hefur hæst selst á 18,32 dali á síðustu 12 mánuðum en hefur raunar ekki farið upp fyrir 10 dali eftir 11. september. US Airways sækir um greiðslustöðvun Reuters US Airways er fyrst stóru flugfélaganna til að sækja um greiðslustöðvun frá því árásirnar 11. september settu mark sitt á flugiðnað Bandaríkjanna. Gengi bréfa flug- félagsins lækkar um 80% í kjölfarið HAGNAÐUR Pharmaco-samstæð- unnar nam 1,68 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins en 765 milljónum króna á sama tíma í fyrra. Heildarvelta félagsins var tæpir 7 milljarðar á tímabilinu en ríflega 7,1 milljarður á síðasta ári og dróst saman um 2,4%. Helsta ástæða samdráttar í veltu er að sala hins búlgarska Balkanpharma minnkaði um 5% á tímabilinu. Fram kom á fundinum að minnk- andi sölu Balkanpharma megi fyrst og fremst rekja til virðisaukaskatts sem lagður var á lyf í Búlgaríu og Rússlandi í byrjun árs. Framlegð af vörusölu minnkaði um rúm 3%, var um 2,4 milljarðar í fyrra en nam ríflega 2,3 milljörðum á fyrri helmingi þessa árs. Þá drógust aðrar tekjur af rekstri saman um tæp 63%, voru 111 milljónir miðað við 297 milljónir króna á fyrri helmingi 2001. Taka þarf tillit til þess að á síðasta ári var hagnaður af sölu Íslenskra matvæla reikn- aður inn í aðrar rekstrartekjur fé- lagsins og tölur því ekki fyllilega sambærilegar milli ára ef reikna á framlegð félagsins, segir í tilkynn- ingu. Hagnaður fyrir afskriftir minnkaði um liðlega 11%, fór úr 1,77 milljörðum í 1,57 milljarða króna. Í máli Sindra Sindrasonar, forstjóra Pharmaco, kom fram að helsta ástæða samdráttar í hagnaði fyrir afskriftir og fjármagnsliði sé 20% aukning sölu- og stjórnunar- kostnaðar vegna flutnings félags- ins í nýjar höfuðstöðvar auk upp- byggingar í rannsóknum og þróun. Þá hefur styrking íslensku krón- unnar haft neikvæð áhrif á fram- legð félagsins í uppgjörinu. Í kjölfar sölu á Pharmaco Ísland ehf. minnkuðu fasteignir Pharmaco hf. um rúman milljarð króna. Birgðastaða hefur dregist saman og viðskiptakröfur lækkað frá ára- mótum. Þá hækkuðu heildarskuldir Pharmaco hf. um 19% frá áramót- um. Sindri segir skuldaaukningu félagsins fyrst og fremst koma til vegna lántöku til kaupa á eigin hlutabréfum. Pharmaco hf. keypti 51% hlut í Delta hf. í síðasta mán- uði og kemur sú fjárfesting fram í uppgjöri síðari hluta ársins. Á fundinum voru endurskoðaðar rekstrarhorfur Pharmaco-sam- steypunnar kynntar. Að sögn Sindra var nauðsynlegt að endur- skoða horfur í rekstri Pharmaco hf. í ljósi sölu félagsins á Pharmaco Ís- land og kaupa á Delta. Gert er ráð fyrir 18,6 milljarða veltu á árinu og 4,7 milljarða króna hagnaði fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA). Í áætlununum er geng- ið út frá því að gengi haldist stöð- ugt á árinu. Fyrrverandi starfsmaður Pfizer til Balkanpharma Nokkrar mannabreytingar hafa verið gerðar hjá Balkanpharma á tímabilinu. Austurríkismaðurinn Peter Baumgartner hefur verið ráðinn svæðisstjóri á Moskvuskrif- stofu félagsins. Hann er rúss- neskumælandi og hefur unnið fyrir vestræn fyrirtæki í Rússlandi í tæpan áratug. Nýr svæðisstjóri yfir Vestur- og Mið-Evrópu auk nýrra markaða er Skotinn Kenneth Peterson sem áð- ur var svæðisstjóri hjá Pfizer og hefur 15 ára reynslu af starfi í lyfjageiranum. Geurg Tzvetanski, aðstoðarforstjóri Balkanpharma, hefur látið af störfum hjá félaginu. Frekari mannabreytinga er að vænta hjá Balkanpharma á næst- unni en að sögn Sindra stendur til að fækka starfsfólki í Búlgaríu. Hann segir fækkunina hafa staðið til í nokkurn tíma en vegna kvaða sem hvíldu á Pharmaco hf. við kaup á verksmiðjum Balkan- pharma hafi ekki mátt segja upp starfsólki fyrr. Nú verði kvöðunum hins vegar aflétt og þá sé hægt að skera niður launakostnað. Aðrar breytingar hjá Balkanpharma fel- ast einkum í endurnýjun á eldri verksmiðjum auk opnunar nýrrar töflu- og hylkjaverksmiðju í Dupn- itza í lok september.                                                                                             !"##$ %"&!! '"!&& ($' '"%$% )$*+ '"'#% )$(+ )&+   !"($( !"!,'  ("#*! &&$ $'-+. +-#, '-!#                            !  !  !                     Pharmaco skilar 1,7 millj- arða hagnaði Velta Pharmaco dróst saman um 2,4% á fyrri helmingi ársins en hagnaður félagsins jókst um 120%. Þetta kom fram á kynning- arfundi um árshlutauppgjör félagsins sem haldinn var í Listasafni Íslands í gær.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.