Morgunblaðið - 13.08.2002, Qupperneq 36
MINNINGAR
36 ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Lárus KristinnJónsson fæddist í
Stykkishólmi 15. apr-
íl 1913. Hann lést á
Sjúkrahúsi Akraness
föstudaginn 2. ágúst
síðastliðinn. Foreldr-
ar hans voru Björn-
ína Sigurðardóttir
frá Harastöðum á
Fellsströnd, f. 1890,
d. 1956, og Jón Jó-
hannes Lárusson,
skipstjóri frá Sól-
bergi í Stykkishólmi,
f. 1890, d. 1935. Þau
eignuðust tíu börn og
var Lárus Kristinn elstur. Hin eru:
Sigurður Breiðfjörð, f. 1914, d.
1976, Herbert Georg, f. 1915, d.
1989, Jóhann, f. 1916, d. 1996, Guð-
mundur, f. 1916, d. 1974, Sigríður,
f. 1917, d. 1999, Bergur, f. 1918, dó
sama ár, Gestur, f. 1920, d. 1977,
Hjálmdís Sigurást, f. 1921, og Þor-
björg, f. 1923.
Lárus ólst upp hjá foreldrum sín-
um á Höfða í Stykkishólmi en faðir
hans féll frá árið 1935, aðeins 45
ára að aldri. Barn að aldri fékk
Lárus Kristinn útvortis berkla sem
Hinn 11. júní 1939 kvæntist Lárus
eftirlifandi konu sinni, Guðmundu
F. Jónasdóttur, f. 30. okt. 1921. Þau
eignuðust sjö börn en tvö þeirra
fæddust andvana. Börn þeirra eru:
1) Jón Kristþór, f. 2. des. 1939,
byggingameistari, kvæntur Fann-
eyju Ingvarsdóttur gjaldkera. Þau
eiga þrjá syni: Ingvar Gísla íþrótta-
kennara, Lárus Kristin hagfræðing
og Kristján Sigurð Fjeldsted
íþróttakennara. Barnabörnin eru
níu; 2) Björk, f. 19. maí 1941, starfs-
maður á Hótel Keflavík, ekkja eftir
Svavar Annelsson verslunarmann,
f. 1939, d. 1984. Þau eignuðust eina
dóttur: Söndru Jónínu blóma-
skreytingakonu og á hún fjögur
börn; 3) Anna Huld, f. 22. mars
1944, fulltrúi hjá Styrktarfélagi
vangefinna, gift Sveinbirni Hafliða-
syni lögfræðingi. Dætur þeirra eru:
Eydís Kristín, sviðsstjóri hjúkrunar
á geðsviði LSH, Þórunn alþingis-
kona og Anna kvikmyndafræðing-
ur. Barnabörnin eru fimm; 4) Ósk
Herdís, f. 16. sept. 1946, leikskóla-
kennari, gift Charles G. Fulbright
verkfræðingi. Þau eiga tvö börn,
Yvonne Kristínu, doktorsnema við
New York-háskóla, og Xavier Þór
byggingaverkfræðing; 5) Jóhanna
Kristín, f. 16. maí 1952 og dáin 24.
sama mánaðar.
Útför Lárusar Kristins fer fram
frá Stykkishólmskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 14.
hann glímdi við öll
unglingsárin og lá
langdvölum á sjúkra-
húsum. Þegar hann
sneri aftur eftir erfið
veikindi fékk hann
vinnu hjá H. Svane,
apótekara í Stykkis-
hólmi. Hann fór svo til
Reykjavíkur og lærði
til klæðskera og lauk
meistaraprófi í þeirri
iðn. Í rúma tvo áratugi
rak hann saumastofu
fyrir Kaupfélag Stykk-
ishólms en þegar hún
var lögð niður var
hann með sjálfstæðan atvinnurekst-
ur um tíma. Í nokkur sumur var
hann kokkur á síldarbátnum Tjaldi
frá Rifi og lengi kokkur á flóabátn-
um Baldri að sumarlagi. Lárus
starfaði sem umsjónarmaður
Grunnskólans í Stykkishólmi frá
1952 til 1994. Hann var einnig með-
hjálpari við Stykkishólmskirkju, sat
í sóknarnefnd og var umboðsmaður
Brunabótafélagsins um árabil. Lár-
us Kristinn tók virkan þátt í starfi
Sjálfsbjargar, landssambands fatl-
aðra, og Rótarý.
Tengdafaðir minn Lárus Kr. Jóns-
son er látinn. Hann hefði orðið níræð-
ur á næsta ári og var þegar farinn að
hugsa til þeirra tímamóta með til-
hlökkun, enda var hann hress og kát-
ur allt þar til yfir lauk. Tengdafor-
eldrar mínir áttu alla sína bú-
skapartíð, þ.e. undangengin 63 ár,
heima á Sólbergi í Stykkishólmi, þar
til þau fyrir nokkrum vikum fluttu á
dvalarheimili aldraðra í Hólminum
þar sem ætlun þeirra var að eyða sínu
ævikvöldi. Dvöl Lárusar varð styttri
þar en nokkurn gat grunað.
Ég heimsótti hann og Guðmundu
þar í síðari hluta júlímánaðar og voru
þau bæði mjög ánægð að vera komin
þangað til dvalar og njóta þeirrar
þjónustu sem dvalarheimilið býður.
Ekki bauð mér í grun að það yrði síð-
asta skiptið sem ég ætti eftir að sjá
Lárus á lífi.
Það má með sanni segja að Lárus
hafi lifað tímana tvenna og þolað bæði
súrt og sætt á langri og viðburðaríkri
ævi. Hann veiktist ungur af berklum
og dvaldi lengi á sjúkrastofnunum
þeirra tíma til að ná heilsu á ný. Lárus
bar þess merki alla tíð, en bæklunin
sem var afleiðing veikinda hans hafði
ekki áhrif á létta lund hans og bjart-
sýni.
Lárus vann ávallt langan vinnudag.
Þrátt fyrir það var hann þess utan
ávallt boðinn og búinn til að sinna öðr-
um verkefnum sem sum hver áttu
hug hans. Má þar nefna félagsstörf
ýmiss konar, m.a. í karlakór, sjálf-
boðavinnu fyrir Sjálfsbjörg og Rotary
í Stykkishólmi, þar sem hann var einn
stofnfélaga.
Lárus var trúaður og kirkjuræk-
inn. Hann var í áratugi meðhjálpari
og hringjari í Stykkishólmskirkju.
Hann var óþreytandi að sýna gestum
og gangandi nýju kirkjuna í Hólm-
inum sem hann var mjög stoltur af.
Það má segja að hjá Lárusi var
Stykkishólmur miðpunktur alheims-
ins.
Við Anna og dætur okkar nutum
gestrisni þeirra hjóna á Sólbergi í rík-
um mæli í fjölmörgum heimsóknum
okkar í gegnum árin og þá var þar oft-
ar en ekki glatt á hjalla.
Ég vil með þessum fátæklegu orð-
um þakka Lárusi fyrir góð kynni og
samfylgd í gegnum árin og votta niðj-
um hans og eftirlifandi eiginkonu
samúð mína.
Sveinbjörn.
Afi og amma á Sólbergi voru fastur
punktur í tilverunni sem ég treysti á.
Þau voru tenging við upprunann og
stóðu fyrir heilbrigðum lífsgildum.
Lífsgildum sem fólu í sér „ekki eft-
irsókn eftir vindi“ eða veraldlegum
gæðum, heldur trú á hið góða, já-
kvæða og „Guð sem stýrir stjarna
her“. Trú á hið yfirnáttúrulega, álfa
og huldufólk var órjúfanlegur hluti
tilverunnar á Sólbergi og eru til
margar fjölskyldusögur sem stað-
festa það.
Á hverju sumri hittust barnabörnin
í Hólminum hjá afa og ömmu á Sól-
bergi. Faðmur afa var stór. Hann
dansaði við okkur á eftirminnilegan
hátt. Spilaði á munnhörpuna sína
þannig að við fylltumst aðdáun. Hann
stríddi okkur líka á vinalegan hátt
sem gat endað í nokkrum ærslum
sem okkur krökkunum þótti gaman
að. Spilað var á spil fram eftir kvöldi,
gjarnan Marías eða Manna. Ógleym-
anlegur er hnefi afa þegar hann
„trompaði“. Ófáar ferðirnar voru
farnar með honum í Kaupfélagið að
kaupa inn til heimilisins. Hönd afa
sterk og stór leiddi mann um götur
bæjarins. Hann þekkti alla, spjallaði
við alla, börn sem fullorðna, og lék
alltaf á als oddi. Í þessum ferðum
kenndi hann okkur að hafa áhuga á
nánasta umhverfi, samskiptum við
náungann, og njóta einfaldleikans. Afi
var barngóður með eindæmum og
nutu langafabörnin návista við hann
eins og við barnabörnin áður.
Afi og amma fluttu í sumar á Dval-
arheimilið í Stykkishólmi. Á fyrsta
degi sumarleyfisins brunuðum við í
Hólminn til þeirra. Við komu leituð-
um ég og dóttir mín Sigurlaug (Silla)
að afa. Við fundum hann á Sólbergi í
þungum þönkum. Það hvarflaði ekki
að mér, þótt afi væri kominn undir ní-
rætt, að þetta væru síðustu samveru-
stundirnar okkar. Við gengum á milli
herbergja á Sólbergi og spjölluðum
saman um „gamla daga“. Skoðuðum
mynd af Sólbergi eins og það var er
afi keypti það af Kristínu ömmu sinni.
Ég heyrði og fann tregann sem fylgdi
því að yfirgefa æskustöðvarnar. Hann
risti djúpt. Á móti vó þó gleðin yfir
frábæru atlæti á Dvalarheimilinu og
feginleik að amma væri í góðum
höndum. Afa fannst hann vera kom-
inn á fimm stjörnu hótel og sýndi mér
og Sillu Dvalarheimilið hátt og lágt og
kynnti okkur fyrir starfsfólki og
heimilisfólki af miklu stolti eins og
hans var von og vísa. Í þessari ferð
snerust hlutverkin við, nú var það
ekki afi sem leiddi okkur um bæinn
heldur við sem keyrðum hann á
markverðustu staðina í Stykkishólmi.
Afi minn, Lárus Kristinn Jónsson,
var fæddur á Höfða í Stykkishólmi ár-
ið 1913. Jón, faðir hans, lést um aldur
fram árið 1935, aðeins 45 ára gamall.
Ætla má að móðir hans, Björnína,
hafi þurft nokkra útsjónarsemi við að
reka ein heimili að Höfða ásamt börn-
um sínum. Afi var elstur tíu systkina.
Afi kvæntist ömmu, eftirlifandi eig-
inkonu sinni, Guðmundu F. Jónas-
dóttur, árið 1939. Þau héldust í hend-
ur gegnum súrt og sætt. Afi var
styrkur ömmu hvað sem gekk á. Eft-
LÁRUS KRISTINN
JÓNSSON
!
" #
$!%
$ % %%$
& % %
$ ' %%$
( %%$
' %
)* ) )*
$ ) ) )* +
,
-.-
'%) //
$ '0!%1*2
!
!
"
#
" #
$
%&
'(('
%))(
*+
$
$ ' + %%$ 31+ 4%
)4 + %%$ )4* + %
'' + % * 3%%$
) )* $ ' 2) +
+
,
,
356-355
2 0, ''
,!
3( !%%$
'3%
3,' 3%%$
)4* 3%
( !3%%$
3%%$
5%! 3%%$
)* $ ) )* +
,
,
(378+-
7'%' /9
2 2
- "
.
/
0 " "
%.
%1((
%
%%$
%%$
&$') %
4* .+ %%$
2! '' %%$
$ 21' + %
: + %
$ 24*'%!;' +
6-<
$" $
2,
%%
/
4
' 1$ % %$
=1$ % %$ 80'' %%$
1$ % %$ %"+$ 2%$
311$ % %$
-(4* 1$ % %$ % +
%%$
( 1$ % %$ %+( !%%$
" 1$ % %$ "%&+ % +
66.-
2; + '#% %4
.; /
)>
!
&
! "
*
!
"
%1
%1((
)4* '
%%$
%' %%$ ( %
5'*2. %
3 %%$ ''
%
& %3 %'%$ 21' 5+ %
) )* $ ) ) )* +
Minningarkort
Krabbameinsfélagsins
540 1990
krabb.is/minning
www.solsteinar.is sími 564 4566
Legsteinar
í Lundi
við Nýbýlaveg, Kópavogi