Morgunblaðið - 13.08.2002, Page 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
AT V I N N U A U G LÝ S I N G A R
Fulltrúi
á lögmannsstofu
Óskað er eftir lögfræðingi í hlutastarf við inn-
heimtur og almenn lögmannsstörf á lögmanns-
stofu í miðbæ Reykjavíkur.
Umsóknir um starfið sendist til auglýsinga-
deildar Mbl., merktar: „L — 12609“, eða í
box@mbl.is, fyrir 20. ágúst.
óskar eftir að ráða aðstoðarmann/ritara
í menningardeild sendiráðsins.
Viðkomandi þyrfti að geta hafið störf sem
allra fyrst.
Sendiráðið óskar einnig eftir að ráða
aðstoðarmann/ritara sendiráðsins.
Um er að ræða tímabundna afleysingu í
7—8 mánuði. Viðkomandi þyrfti að geta
hafið störf í nóvember 2002.
Hæfniskröfur:
Mjög góð frönsku- og íslenskukunnátta, góð
enskukunnátta, almenn tölvukunnátta og
hæfni til sjálfstæðra og skipulegra vinnu-
bragða. Háskólamenntun er nauðsynleg.
Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um
að senda inn skriflega umsókn og æviágrip
á frönsku til Sendiráðs Frakklands, pósthólf
1750, 121 Reykjavík, fyrir 23. ágúst næst-
komandi.
Fulltrúi á skrifstofu
Menntaskólinn í Kópavogi óskar eftir að ráða
fulltrúa í fullt starf á skrifstofu skólans.
Um er að ræða afleysingu í eitt ár vegna fæð-
ingarorlofs.
Starfið felur í sér símsvörun og almenn skrif-
stofustörf, s.s. afgreiðslu, ritvinnslu, mótttöku,
miðlun upplýsinga til starfsmanna og nemenda
auk sérverkefna. Æskilegt er að umsækjandi
hafi menntun í skrifstofu- og/eða viðskiptagrein-
um.
Ráðið er í starfið frá 1. september nk. og fara
launakjör eftir samningi Starfsmannafélags
ríkisins og fjármálaráðherra. Umsóknarfrestur
er til 20. ágúst. Ekki þarf að sækja um á sér-
stöku umsóknaeyðublaði, en í umsókn þarf
að greina frá menntun og starfsreynslu. Um-
sókn skal senda til skólameistara.
Frekari upplýsingar um starfið veita skóla-
meistari, Margrét Friðriksdóttir, og skrifstofu-
stjóri, Sigríður Jóhannsdóttir, í síma 594 4000.
Skólameistari.
Vilt þú stýra eldhúsi
Hólaskóla?
Þar ræðst að miklu leyti hvernig nemendum,
starfsfólki, ferðafólki og öðrum gestum á Hól-
um í Hjaltadal líkar dvölin. Markmið skólans
er að eldhúsið sé þekkt fyrir góðan sveitamat,
hagkvæman rekstur og góða þjónustu.
Verksvið matráðskonu/manns er ábyrgð og
verkstjórn í eldhúsinu, matreiðsla og þróun
matseðils og matreiðslu auk þátttöku í starf-
semi Ferðamálabrautar Hólaskóla.
Við leitum að einstaklingi með menntun og
reynslu á sviði matreiðslu, frumkvæði og hæfni
í skipulagningu, stjórnun og mannlegum sam-
skiptum. Síðast en ekki síst þarf viðkomandi
að elda góðan mat og hafa áhuga á að reka
starfsemina í anda sjálfbærrar þróunar.
Um er að ræða fullt starf, umsóknarfrestur til
1. september nk. og æskilegt að viðkomandi
geti hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar veita Skúli Skúlason, skóla-
meistari, og Guðrún Helgadóttir, deildarstjóri
Ferðamálabrautar, í síma 455 6300.
! " #$
%&!
&! ' ! (
) (
*
Starfssvið:
Viðkomandi mun veita lögfræðiaðstoð á ofan-
greindum sviðum fyrir starfsmenn EFTA skrif-
stofunnar og sendinefndir frá öðrum ríkjum
(fundir Undirnefnda II, III og IV og ýmissa sér-
fræðinefnda), og aðstoða Undirnefnd V varð-
andi lögfræði- og stofnanatengd álitamál á
þessum sviðum eftir þörfum. Viðkomandi mun
vinna í nánu samstarfi við lögfræðing skrifstof-
unnar sem sér um samræmingu mála og við
þjónustustarfsemi Evrópubandalagsins.
Hæfniskröfur:
Umsækjandi skal hafa lokið háskólanámi í
lögum, hafa góða greiningarhæfileika og getu
til að setja upp lögræðilega texta og álit skýrt
og hratt á ensku. Þar að auki er nauðsynleg
þekking á EES-samningnum og tengdum
lagasetningum Evrópubandalagsins, og á
samþykktum Eftirlitsstofnunar EFTA, EFTA
dómsins og Fastanefndarinnar, auk einhverr-
ar reynslu af starfsemi EES. Krafist er óaðfinn-
anlegrar enskukunnáttu í ræðu og riti og
kunnátta í frönsku eða öðrum málum sem
notuð eru innan EFTA og Evrópusambands-
ins, er æskileg.
Þeim sem áhuga hafa er bent á vefsetur EFTA
www.efta.int þar sem allar nánari upplýsingar
er að finna um starfið og umsóknareyðublað
EFTA sem nota skal.
Umsóknarfrestur er til 30. ágúst 2002.
Gröfumaður óskast
Byggingafélag Gylfa og Gunnars ehf. óskar
eftir að ráða gröfumann vanan Case traktors-
gröfu. Einungis maður með réttindi kemur til
greina.
Upplýsingar gefur Gunnar í síma 693 7310 eða
Konráð í síma 693 7303.
Er ekki kominn tími til að breyta til?
Flytja út á land, minnka stressið og njóta um
leið friðsældar og fagurrar náttúru. Þó aðeins
í tveggja klst. fjarlægð frá höfuðborginni.
Hjúkrunarfræðingur
óskast til starfa við Heilbrigðisstofnunina á
Hvammstanga frá 1. sept. nk. eða eftir nánara
samkomulagi. Um er að ræða 80—100 % starf
bæði á sjúkra- og heilsugæslusviði. Ljósmóður-
menntun eða reynsla af störfum við heilsu-
gæslu æskileg. Hafið samband og kynnið ykkur
kjör og staðhætti.
Nánari upplýsingar veita Fríða Pálmadóttir,
hjúkrunarforstjóri, símar 451 2345 og 451 2329
netfang: frida@hghvammst.is og Guðmundur
H. Sigurðsson, framkvæmdastjóri, sími
893 4378, netfang: gudmunur@hghvammst.is .
Heilbrigðisstofnunin Hvammstanga.