Morgunblaðið - 22.08.2002, Síða 10
FRÉTTIR
10 FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
AÐALFUNDI Landssambands kúa-
bænda, LK, lauk síðdegis í gær á
Laugum í Sælingsdal. Á fundinum
voru afgreiddar 22 ályktanir og meðal
þeirra er harðorð ályktun þess efnis
að við núverandi aðstæður komi ekki
til greina að Ísland sæki um aðild að
Evrópusambandinu, ESB. Kúabænd-
ur telja aðild geta haft verulega nei-
kvæð áhrif á starfsumhverfi íslensks
landbúnaðar og þar með aðgengi ís-
lenskra neytenda að innlendum mat-
vælum.
Þórólfur Sveinsson var endurkjör-
inn formaður LK í lok fundarins í
gær. Hann sagði við Morgunblaðið að
fundurinn hefði tekist mjög vel og
mikil eindrægni ríkt meðal fundar-
manna. Þar hefðu unnið saman í
mesta bróðerni fylgjendur og and-
stæðingar í fósturvísamálinu svo-
nefnda, þó að það hefði lítillega verið
rætt að þessu sinni.
Spurður um helstu mál sem hefðu
verið afgreidd í gær nefndi Þórólfur
m.a. beiðni kúabænda um viðræður
við stjórnvöld um nýjan samning um
starfsskilyrði mjólkurframleiðslunn-
ar, sem tæki gildi í september árið
2005. Í ályktun um það mál segir m.a.
að samningurinn verði framlengdur
óbreyttur hvað varðar stuðning við
mjólkurframleiðsluna og tollvernd.
Hið sama verði látið gilda um leik-
reglur framleiðslustýringar. Vilja
kúabændur að viðskiptahættir með
greiðslumark verði teknir til skoðun-
ar en viðskiptin verði áfram heimil.
Einnig vilja þeir að sveigjanleiki við
verðlagsáramót verði aukinn og að
heimilaður verði samrekstur
greiðslumarkshafa þannig að hægt sé
að nýta greiðslumark eins lögbýlis að
öllu leyti með framleiðslu á öðru lög-
býli.
Sláturleyfishafar endurskoði
skilaverð til bænda
Meðal annarra ályktana má nefna
að fundurinn lýsir óánægju sinni með
að ekki skuli hækkað verð á bestu
flokkum kýrkjöts og nautakjöts. Lýs-
ir fundurinn furðu sinni á því að lög-
mál framboðs og eftirspurnar skuli
ekki gilda í viðskiptum með naut-
gripakjöt. Er þess krafist að slátur-
leyfishafar endurskoði verð til bænda,
þar sem um nokkurt skeið megi ætla
að skilaverð til bænda standi ekki
undir framleiðslukostnaði, eins og
það er orðað í ályktun.
Á aðalfundinum var einnig sam-
þykkt að endurskoðun færi fram á
lagaumhverfi landbúnaðarins vegna
breytinga á eignarhaldi og rekstrar-
formi. Þórólfur sagði einkahlutafélög
vera að ryðja sér til rúms í vaxandi
mæli, jafnt hjá kúabændum sem öðr-
um í landbúnaði og fleiri greinum at-
vinnulífsins. Þá var lagt til á fundinum
að áfram yrði unnið að stefnumörkun
fyrir nautgriparæktina í landinu.
Þórólfur var endurkjörinn formað-
ur LK, sem fyrr segir, og tveir nýir
stjórnarmenn voru kjörnir, þeir Sig-
urður Loftsson og Jóhannes Jónsson.
Þeir komu í stað Gunnars Sverrisson-
ar og Birgis Ingþórssonar. Áfram eru
í stjórn þau Egill Sigurðsson, Kristín
Linda Jónsdóttir og Sigurgeir Páls-
son.
Landssamband kúabænda afgreiddi 22 ályktanir
Aðild Íslands að ESB
kemur ekki til greina
Morgunblaðið/Guðrún Kristinsdóttir
Þórólfur Sveinsson frá Ferjubakka II í Borgarfirði, sem hér er í ræðustól,
var endurkjörinn formaður Landssambands kúabænda á aðalfundinum.
ÞRJÁR viðurkenningar voru
veittar við hátíðarkvöldverð á að-
alfundi LK á Laugum. Gísli Páls-
son á Hofi í Vatnsdal í Húnavatns-
sýslu fékk viðurkenningu fyrir
bók sína um íslensku kúna og
hjónin Jón Eiríksson og Sigur-
björg Geirsdóttir á Búrfelli í Mið-
firði hlutu viðurkenningu fyrir
góðan árangur í nautgriparækt,
auk þess sem Jón var verðlaunað-
ur sérstaklega fyrir ljósmyndir
sínar af íslensku búfé. Þá fengu
hjónin Jóhannes Eyberg Ragn-
arsson og Guðlaug Sigurðardóttir
á Hraunhálsi í Helgafellssveit við-
urkenningu fyrir almennan dugn-
að við búreksturinn og einnig fyr-
ir uppfinningu Jóhannesar,
merkibúnað á rúllubagga, sem
vakið hefur athygli hér á landi og
erlendis.
Þrjár viðurkenningar
Á AÐALFUNDI Skógræktar-
félags Íslands í Logalandi um síð-
ustu helgi, sem greint var frá í
Morgunblaðinu í gær, var meðal
annars samþykkt ályktun um að
sveitarfélög í landinu yrðu hvött
til að efla skógrækt á opnu svæði
í þéttbýli til að auka útivist-
argildi svæða. Fram kom á fund-
inum að í ljósi umræðu um að
þétta byggð mætti ekki gleyma
að koma fyrir skógi á svæðum
þar sem ekki er byggð. Þá flutti
Jónas Guðmundsson hagfræð-
ingur erindi á fundinum um frjáls
félagasamtök og stöðu þeirra sem
þriðja geirans í samfélaginu, fyr-
ir utan þann opinbera og einka-
geirann.
Að sögn Magnúsar Jóhann-
essonar, formanns Skógrækt-
arfélags Íslands, vakti erindi Jón-
asar mikla athygli og umræður á
fundinum.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Aðalfundur Skógræktarfélags Íslands
Sveitarfélögin efli
skógrækt
LÖGREGLAN í Reykjavík hefur
tekið til rannsóknar mál þar sem
grunur leikur á að einstaklingur
hafi falsað lyfseðil og sent grun-
lausan leigubílstjóra eftir lyfinu í
apótek.
Í stað þess að afhenda lyfin
kallaði starfsfólk apóteksins á
lögreglu sem kom á staðinn og
leiddi leigubílstjórann á brott, en
sleppti honum eftir að hafa hlýtt
á framburð hans um aðkomu
hans að málinu.
Sjaldgæft að leigubílstjórar
séu notaðir á þennan hátt
Í þessu tilviki var látið á það
reyna hvort hægt væri að beita
fyrir sig utanaðkomandi aðila til
að taka út lyf út á falsaðan lyfseð-
il með fyrrnefndum afleiðingum.
Þótt afar sjaldgæft sé að leigubíl-
stjórar séu notaðir með þessum
hætti hefur kærumálum sem
varða meinta fölsun lyfseðla
fjölgað hjá lögreglunni milli ár-
anna 2001 og 2002, eru orðin 21 á
þessu ári en voru 30 í fyrra. Árið
2000 var ekkert slíkt mál til með-
ferðar. Rannsókn hefur leitt til
ákæru í nokkrum málum.
Helst reynt að svíkja út
Diazepam og Mogadon
Karl Steinar Valsson, aðstoð-
aryfirlögregluþjónn hjá lögregl-
unni í Reykjavík, segir að algeng-
ast sé að magni uppáskrifaðra
lyfja sé breytt af hálfu falsarans
eða lyfjaheitum sé breytt á lyf-
seðli. Einnig ber á því að notaðir
séu stolnir lyfseðlar sem fólk hef-
ur komist yfir í innbrotum. Helst
er reynt að svíkja út svefnlyfið
Mogadon og róandi lyfið Díaz-
epam út á falsaða lyfseðla.
Þegar Morgunblaðið leitaði eft-
ir upplýsingum um reglur apó-
teka um afhendingu lyfja sam-
kvæmt lyfseðli kom í ljós að
þegar um eftirritunarskyld lyf er
að ræða, sérstaklega vanabind-
andi lyf, þarf sækjandinn að
kvitta fyrir móttöku á lyfinu.
Apótekara er skylt samkvæmt
lyfjalögum að sjá skilríki eða
ganga á annan hátt úr skugga um
réttmæta afhendingu.
Sendur eftir
lyfjum út á fals-
aðan lyfseðil
SKAMMT frá Slippnum við Miðbakka Reykjavíkur-
hafnar eru nokkrar trillur komnar á land. Trillukarl-
arnir dytta nú að þeim fyrir næstu sjóferðir eða undir-
búa þær fyrir veturinn. Þau geta verið mörg hand-
tökin, áður en allt er talið. Vasahnífurinn kom sér vel
þegar málningin var skröpuð af Bæjarfelli RE 65.
Dyttað að trillunum
Morgunblaðið/Arnaldur