Morgunblaðið - 22.08.2002, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 22.08.2002, Blaðsíða 35
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 2002 35 NÚGILDANDI bú- vörusamningur sem mjólkurframleiðendur fá greitt eftir meira en 4 milljarða árlega rennur út árið 2005. Þrátt fyrir þetta knýja mjólkur- framleiðendur nú á um viðræður um fram- lengdan samning með einhverjum lagfæring- um til ársins 2010 og bera því við að annars sé rekstraröryggi mjólkurframleiðslunn- ar ekki tryggt. Vissu- lega er betra að hafa öruggt skjól í átta ár en þrjú, um það verður ekki deilt, en hvað liggur annars á? Er líka ekki ástæða til að staldra við og spyrja hvort það sé hagfellt fyrir ríkið, þ.e.a.s. skattgreiðendur og neytendur að hafa lítið breyttan hátt á þessum málum til lengri tíma? Jú, vissulega sýnist manni full ástæða til að skoða málin miðað við þær miklu ölmusu- greiðslur sem framleiðendur land- búnaðarafurða þiggja árlega frá skattgreiðendum. Nú stendur fyrir dyrum ný samn- ingalota hjá WTO heimsviðskipta- stofnuninni um viðskipti í heiminum. Meðal meginmála í þeim samningum verða niðurgreiðslur með landbúnað- arvörum sem ákveðið hefur verið að reyna að draga úr. Þau ríki sem greiða mest með landbúnaði eru Ís- land, Noregur, Sviss og Japan, þ.e.a.s. nokkur auðugustu ríki heims. Greiðslur þessara ríkja með landbún- aði nema rúmlega 60% af framleiðslu- verði landbúnaðarvara í umræddum löndum. Þetta er dýrt sport og ekki á færi annarra en hinna auð- ugustu. Innan Evrópu- sambandsins nema greiðslur með landbún- aðarvörum um 35% af framleiðsluverði. Á Ís- landi hafa þessar greiðslur lækkað örlítið eða frá tæpum 70% í rúm 60% á síðustu ár- um, en eru samt í efstu mörkum eins og áður sagði. Það skyldi þó ekki vera, að asi kúa- bænda varðandi fram- lengingu búvörusamn- ingsins orsakaðist af ótta við að í nýjum samningi WTO verði ákvæði um niðurskurð styrkja með landbún- aðarvörum og því þyki betri staða að hafa samning til 2010? Kúabændur kvarta einnig yfir lágu verði á nautakjöti eða innan við 300 kr. á kg til framleiðenda en sam- keppni við aðrar kjöttegundir og hár kostnaður í vörukeðjunni á milli bænda og neytenda valdi þessu. Slát- urhús og kjötvinnslur eru flestar í eigu framleiðenda þannig að vart er við aðra að sakast en eigin fyrirtæki. Ekki er ástæða til að ætla að smásölu- aðilar telji sig þurfa hærri sölulaun fyrir nautakjöt en aðrar kjöttegundir þannig að ekki verður þeim kennt um lágt skilaverð til framleiðenda nauta- kjöts. Að sjálfsögðu verður þessi framleiðsla að una því að markaður- inn ákveði hvaða verð hann er tilbú- inn að greiða fyrir vöruna enda dettur líklega engum í hug að hverfa aftur til miðstýrðrar verðlagningar, sem einn- ig væri ólöglegt vegna samkeppnis- laga. Það er svo annað mál að enn lifir eitt slíkt verðstýringarapparat sem er nefnd er ákveður heildsöluverð mjólkurvara. Þetta telja SVÞ að sé ólöglegt batterí og óskuðu eftir úr- skurði um að svo væri frá Samkeppn- isstofnun hinn 15. nóvember á síðasta ári. Enn hefur ekki borist svar við þessu erindi annað en það sem barst eftir skriflega fyrirspurn í sumar um stöðu málsins. Þar var upplýst að í fyrsta lagi mætti vænta niðurstöðu í september nk. við þessu erindi, þ.e.a.s. tæpu ári eftir að það var sent til Samkeppnisstofnunar. SVÞ telja afar mikilvægt að opin- berar stofnanir, ráðuneyti og þing séu skilvirk í störfum sínum. Það á ekki að taka óratíma að svara hinum ein- faldari erindum, og hafa verður í huga að slíkt kostar mikla peninga í mörg- um tilvikum. SVÞ vona að kúabændur fái málefnalega og eftir atvikum skjóta afgreiðslu erinda sinna hjá við- komandi yfirvöldum, en ítreka að nauðsynlegt er að skoða hvort þetta kerfi á að binda í samningum til langs tíma. Hvað liggur á nýjum búvörusamningi? Sigurður Jónsson WTO Meðal meginmála, segir Sigurður Jónsson, verða niðurgreiðslur á landbúnaðarvörum. Höfundur er framkvæmdastjóri SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu. Ekki fara út án undirfata Kringlan 568 9300 Kynnum Underwear for LipsTM Fullkomið undirlag fyrir varir og Underwear for Lids TM Mýkjandi undirlag á augnlokin Fyrst kom Underwear For Lashes sem byggir upp litlu augnhárin. Nú kemur Origins með nýja tvennu af undrum. Underwear For Lips rennur mjúklega á, myndar fyllri varir og dregur úr fínum línum. Underwear For Lids sléttir áferð augnloksins svo augnskugginn fari betur, sé bjartari og endist lengur. Komdu og uppgötvaðu þessar nýjungar ásamt haustlitunum frá Origins og taktu með þér heim prufur af A Perfect World, húðvernd með hvítu tei og Eye relief, rakagefandi augnkremi.* Förðunarfræðingur veitir ráðgjöf. *Meðan birgðir endast
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.