Morgunblaðið - 22.08.2002, Blaðsíða 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 2002 25
JAZZTRÍÓ Hafnarfjarðar ásamt
Ólafi Jónssyni tenórsaxófónleikara
heldur tónleika í kaffistofu Hafn-
arborgar, annað kvöld, fimmtu-
dagskvöld, kl. 21. Á efnisskránni
eru verk eftir fjóra af áhrifamestu
djasspíanistum síðustu aldar, Bud
Powell, Theolonius Monk, Bill Ev-
ans, Duke Ellington.
Tríóið er skipað Andrési Þór
Gunnlaugssyni, gítar; Kára Árna-
syni trommur og Gunnari Hrafns-
syni bassa.
Lög djass-
píanista í
Hafnarborg
Djasstríó Hafnarfjarðar ásamt Ólafi Jónssyni tenór-saxófónleikara.
STEINGRÍMUR Rohloff tónskáld
heldur námskeið um spectral-tón-
list í Tónlistarskóla Reykjavíkur
dagana 27. til 30.
ágúst. Þar verð-
ur fjallað um
uppruna og þró-
un spectral tón-
listar, auk þess
sem nemendur
vinna með
hljómróf sam-
kvæmt aðferðum
spectral tónlist-
ar. Kennt verður
þrjú kvöld, í þrjá tíma í senn, milli
kl. 17 og 20.
Steingrímur Roholoff er hálfur
Íslendingur og hálfur Þjóðverji, en
hefur búið mestan hluta ævi sinnar
í Þýskalandi. Hann nam tónsmíðar
og raftónlist í Köln og París og
býr nú í Köln þar sem hann leggur
stund á tónsmíðar. Steingrímur
kom hingað til lands í júlí til að
fylgjast með flutningi tónverks
síns undir stjórn Gunnsteins Ólafs-
sonar á Sumartónleikum í Skál-
holti. Annað verk eftir Steingrím
verður jafnframt flutt af Caput-
hópnum í Salnum í byrjun sept-
ember og ákvað hann af því tilefni
að dvelja á Íslandi í sumar og efna
til námskeiðs í spectral-tónlist.
„Tryggvi M. Baldursson hefur
unnið að skipulagningu námskeiðs-
ins með mér, en ég mun sjá um
kennsluna. Námskeiðið er opið
bæði tónskáldum og áhugafólki um
samtíma- og raftónlist. Það er rétt
að taka fram að kennslan fer fram
á ensku,“ segir Steingrímur sem
hefur þó notað tímann hér á Ís-
landi til að rifja upp íslenskukunn-
áttu sína.
Sem tónskáld er Steingrímur
undir nokkrum áhrifum frá spect-
ral-tónlist en kennarar hans í Par-
ís voru meðal upphafsmanna þeirr-
ar tónlistarstefnu.
„Spectral-tónlist á upppuna sinn
í París í upphafi áttunda áratug-
arins en þar er athyglinni beint að
hljómrófi hvers tóns, þ.e. þeim
undir- og yfirtónum sem skilgreina
hljóm tónlistarinnar. Tæknilegum
aðferðum er beitt við að greina
samsetningu hljóðbylgna og eru
tónsmíðarnar byggðar á þeim sam-
hljómi sem felst í sjálfum tónun-
um. Upphafsmenn stefnunnar eru
Gerard Grisey, sem samdi hið
fræga verk „Partiels“ og Tristan
Murait, en þeir voru undir miklum
áhrifum frá Ligeti, Messiaen og
Stockhausen í sinni tónsköpun.
Auk þeirra má nefna Marc-Audré
Dalbarie en þessi tónskáld þróuðu
umrædda tegund tónlistar og eru
mjög þekkt í Frakklandi,“ segir
Steingrímur, en hann mun fjalla
um og leika tóndæmi úr verkum
ofangreindra tónskálda í umfjöllun
sinni um spectral-tónlist.
Spurður um flutningsaðferðir
spectral-tónlistar segir Rohloff
venjulega um að ræða hljómsveit-
arflutning með hefðbundnum
hljóðfærum, þó svo að rafhljóðfæri
séu einnig notuð. „Oft eru verkin
flutt af hljómsveitum sem líkja eft-
ir ýmiss konar rafhljóðum með
hefðbundnum hljóðfærum, og
reynir það oft mjög á hæfni flytj-
enda. Spectral-tónlist má lýsa sem
nokkurs konar stúdíu á tónlistinni
í sjálfri sér, þ.e. hljóðinu sem
slíku, hún er oft mjög hæg, ná-
kvæm og íhugandi. Auðvitað hefur
þessi tegund tónlistar þróast mjög
og haft víðtæk áhrif í samtíma-
tónsmíðum. Þannig mun ég t.d.
fjalla um það sem ofangreind tón-
skáld eru að gera í dag, hvernig
þau hafa þróað sínar tónsmíðar,
jafnvel yfir í allt aðra sálma. Ekki
má þó gleyma verklega þættinum
á námskeiðinu, en besta leiðin til
að fá tilfinningu fyrir tónlistinni er
að fást við hana sjálfur,“ segir
Steingrímur Rohloff að lokum.
Skráning á námskeiðið fer fram
þessa dagana á netfanginu tmbald-
@ismennt.is, þar sem jafnframt
má nálgast frekari upplýsingar.
Námskeið um
spectral-tónlist
Steingrímur
Rohloff
Moggabúðin
Músarmotta, aðeins 450 kr.