Morgunblaðið - 22.08.2002, Blaðsíða 15
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 2002 15
50%afsláttur
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
1
85
46
08
/2
00
2
HEILLANDI HEIM
UR
Reykjavík sími 580 0500 • Selfossi sími 480 0800
www.blomaval.is
Útsalan
heldur áfram!
Heimilisblómvöndur
499 kr.
af öllum kaktusum og þykkblöðungum
Mold 10l.
199 kr.
SÍÐASTI Tuborgdjass sum-
arsins á heitum fimmtudegi í
Deiglunni verður í kvöld kl.
21.30. Þá verður Andreukvöld;
með Andreu Gylfadóttur söng-
konu, Kjartani Valdimarssyni
píanó, Eðvarð Lárussyni gítar
og Jóni Rafnssyni kontrabassa.
Laugardaginn 24. ágúst
verður söguganga um Neðri-
brekku á vegum Minjasafnsins
kl. 14. Lagt verður af stað frá
Akureyrarkirkju og gengið
undir leiðsögn arkitektanna
Finns Birgissonar og Árna
Ólafssonar. Á sunnudag verða
tónleikar kl. 17 í Ketilhúsinu.
Gerður Bolladóttir sópran-
söngkona og Júlíana Rún Indr-
iðadóttir píanóleikari flytja
norræn sönglög eftir Edvard
Grieg, Jean Sibelius og Pál Ís-
ólfsson.
Í Ketilhúsinu standa yfir
þrjár sýningar – Hrefna Har-
aldsdóttir sýnir í litla sal á jarð-
hæð, Ilana Halperin og Adam
Putnam sýna í aðalsal og Rann-
veig Helgadóttir á svölum. Sýn-
ingunum lýkur 31. ágúst. Í
Deiglunni stendur yfir sýning
Benedikts S. Lafleur sem einn-
ig stendur til 31. ágúst.
Dagskrá
Listasumars
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands
eystra hefur dæmt tæplega tvítugan
karlmann til greiðslu sektar að upp-
hæð 100 þúsund krónur í ríkissjóð og
til greiðslu alls sakarkostnaðar, auk
þess sem hann var sviptur ökurétt-
indum í eitt ár.
Maðurinn var ákærður fyrir að
hafa stolið bifreið og ekið henni und-
ir áhrifum áfengis og án ökuréttinda
sl. vor. Maðurinn viðurkenndi brot
sín fyrir dómi en með brotunum rauf
hann skilorð frá síðasta ári. Verði
sektin ekki greidd innan fjögurra
vikna frá birtingu dómsins kemur til
14 daga fangelsi.
Ölvaður og
réttinda-
laus á stoln-
um bíl
KYLFINGAR í Golfklúbbi Akureyr-
ar bættu enn einni skrautfjöður í
hatt sinn um síðustu helgi. Sveit GA
sigraði þá í sveitakeppni stúlkna
16-18 ára á Íslandsmóti unglinga í
golfi, á golfvelli GKG í Garðabæ.
Sveit GA sigraði með glæsibrag á
mótinu, spilaði 12 leiki og vann 11
en tólfti leikurinn tapaðist á síðustu
holu. Sveit GR hafnaði í öðru sæti
og sveit GKG í því þriðja.
Eins og fram hefur komið varð
Sigurpáll Geir Sveinsson GA Ís-
landsmeistari karla í golfi á dög-
unum og fyrr í sumar sigruðu þær
María Jónsdóttir og Helena Árna-
dóttir í sínum flokkum á Íslands-
móti unglinga í holukeppni. Þær
voru báðar í sigursveit GA um síð-
ustu helgi.
Íslandsmót unglinga í golfi
Stúlknasveitin
frá GA sigraði
Morgunblaðið/Kristján
Stúlkurnar í sigursveit GA á Íslandsmóti unglinga í golfi með þjálfara
sinn, Birgi Haraldsson, í fanginu. F.v.: Sunna Sævarsdóttir, Guðlaug
Harðardóttir, María Jónsdóttir og Helena Árnadóttir.