Morgunblaðið - 22.08.2002, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 22.08.2002, Blaðsíða 50
50 FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 10. Sýnd kl. 6. Sýnd kl. 8 og 10.40. B. i. 14.Sýnd kl. 6 og 8. „Besta mynd ársins til þessa“ 1/2HÖJ Kvikmyndir.com „Ein besta mynd þessa árs. Fullkomlega ómissandi.“  SV Mbl  HK DV  Radíó X The Sweetest Thing Sexý og Single Yfir 20.000 MANNS kl. 4, 7 og 10. Sýnd kl. 5, 8, 10 og Powersýning kl. 11. B. i. 14. Miðasala opnar kl. 15.30 HUGSAÐU STÓRT Sýnd kl. 4 og 6 með íslensku tali. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. með E. tali. Stúart lendir í ótrúlegum ævintýrum með kettinum Snjóber og fuglinum Möggu Lóu! Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Stúart lendir í ótrúlegum ævintýrum með kettinum Snjóber og fuglinum Möggu Lóu! Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna. „Besta mynd ársins til þessa“ 1/2HÖJ Kvikmyndir.com „Ein besta mynd þessa árs. Fullkomlega ómissandi.“  SV Mbl  HK DV  Radíó X Yfir 15.000 MANNS Sýnd kl. 8 og 10. Sýnd kl. 4, 6 og 8. B.i. 10 ára Yfir 35.000 MANNS Powersýning kl. 11. Yfir 20.000 MANNS „meistaraverk sem lengi mun lifa“  ÓHT Rás 2 i l i li EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS                                                           ;  %' /  %' % ; % /  2 & ;     %'  ; @    2        ;   "A " < /    "$   " . 2 $&       " % /      ;  %2  &'    ""  A "  < / %B  $8 /      /    @$2        "  ;  ;   *    '$2       Eva³ & ;    %    %'  ;   %@    %' 9  ;  "# &'    %'           !" !# JAFNT ungir sem aldnir sjónvarps- áhorfendur kannast trúlega flestir við fimmmenningana í Spaugstof- unni. Í tíu ár skemmtu þeir lands- mönnum einu sinni í viku yfir vetr- armánuðina, tóku púlsinn á því sem var að gerast í þjóðfélaginu og gerðu grín að öllu saman. Þeir Karl Ágúst Úlfsson, Pálmi Gestsson, Randver Þorláksson, Sig- urður Sigurjónsson og Örn Árna- son ætla nú í vetur að leiða saman hesta sína á sömu brautir og áður undir formerkjum Spaugstofunnar. Blaðamaður Morgunblaðsins ræddi við þá Pálma, Randver og Örn að þessu tilefni. Þjóðin kallaði „Það var þjóðin sem fór fram á það að við kæmum saman aftur,“ byrjar Pálmi og Randver bætir við: „Já, þjóðin kallaði!“ Örn er þó ekki jafn borubrattur og félagar hans og segir ákvörð- unina um áframhaldandi samstarf vera tvíþætta. „Það var bæði og. Við heyrðum frá fólki sem vildi fá okkur aftur saman og svo langaði okkur líka að gera eitthvað skemmtilegt,“ segir hann. Fjöldi litríkra persóna hefur fram að þessu sett mark sitt á þætti Spaugstofumanna og nægir að nefna þá Ragnar Reykás, Kristján Ólafsson, Pétur Teitsson og Ófeig fréttamann til sögunnar. En munu allir þessir gömlu góðkunningjar áhorfenda fara aftur á stjá? „Tja, ég veit ekki hvort þeir eru á lífi ennþá,“ segir Pálmi en bætir við að það sé einmitt nú verið að kanna það mál nánar. Fyrsta útsending Spaugstof- unnar verður þann 12. október næstkomandi og verða þær viku- lega eftir það, á laugardögum, og standa fram í apríl. Þeir félagar segja þáttaröðina vera smám sam- an að mótast en ekkert sé enn byrj- að að taka upp. „Þættirnir verða byggðir á sömu forsendum og áður, þetta verður svona þjóðfélagsrýni,“ segir Pálmi. En er ekki mikið puð að fylla hálftíma þátt á viku með ferskum og fyndnum fréttum úr samfélag- inu? „Það fer auðvitað allt eftir því hvað þjóðin er dugleg,“ segir Pálmi. „Það er búið að vera nóg um að vera í þjóðfélaginu upp á síðkast- ið og við höfum oft nagað okkur í handarkrikana yfir því að vera ekki með þáttinn til að gera grín að þess- um hlutum.“ Pálmi er þó algerlega ófáanlegur að nefna einhver nöfn eða ákveðna frétt í þessu samhengi. „Það má kalla þáttinn okkar „spéspegil samtímans“,“ heldur Örn áfram og segir þætti af þessu tagi geta gengið áfram endalaust. „Þetta er svosem engin refsivöndur heldur skoðum við bara málin frá ýmsum hliðum.“ „Hann getur þó virkað sem gagn- rýni á samfélagið,“ segir Randver. „Eitt er víst að við verðum mikið uppi á hálendinu í haust,“ segir Örn og þeir skella allir upp úr. Gaman þegar Örn fer í kjól „Þetta er fyrst og fremst dæg- urmálagagnrýni,“ segir Pálmi og bætir við að þættir á borð við þenn- an hafi oft verið nefndir þriðja, fjórða eða fimmta fréttastofa lands- ins. „Svona samtímaspegill finnst í einhverri mynd í hverju einasta landi í kringum okkur, hvort sem það er í formi brúðuleikhúss, teikni- mynda eða leikins efnis. Undan- farin ár hefur þó lítið borið á þessu hér á landi og við verðum því að taka það að okkur því það er alveg nauðsynlegt hverju samfélagi.“ Síðustu ár Spaugstofunnar fyrir fríið góða voru leikkonurnar Erla Ruth Harðardóttir og Linda Ás- geirsdóttir þeim fimmmenningum til fulltingis. Verður eitthvað svipað uppi á teningnum í ár? „Nei, okkur finnst svo gaman þegar Örn fer í kjól og leikur kon- ur,“ segir Pálmi. „Nei, nei,“ segir Örn hógvær. „Eins skemmtilegt innskot og það er að hafa aukaleikara var tekin sú ákvörðun að Spaugstofan yrði að þessu sinni aðeins mönnuð okkur fimm. Við tókum þessa ákvörðun en getum þó alltaf gripið til aukaleik- ara ef þurfa þykir.“ „Eins og skáldið sagði: Vertu þú sjálfur,“ sönglar Randver. Gamlar lummur? Nafngiftina á sjónvarpsþættinum segjast þeir félagar ekki hafa ákveðið en þeir munu halda áfram að koma fram undir formerkjum Spaugstofunnar. „Fyrst vorum við ’89 af Stöðinni, svo ’90 á Stöðinni og loks Enn ein Stöðin. Hvað það verður nú kemur bara í ljós,“ segir Örn og segist bara vonast eftir stuðningi þjóð- arinnar. „Við viljum auðvitað að þjóðin taki okkur opnum örmun þó við séum kannski, eins og einhver sagði, gamlar lummur,“ segir Örn. En Pálmi þvertekur fyrir það síð- astnefnda: „Við erum ekkert gaml- ar lummur!“ „Nei, við erum kannski gamlar lummur,“ dregur Örn í land. „En við verðum bornir fram með ferskri og góðri sultu.“ „Við erum ungir menn á uppleið og erum rétt að byrja,“ segir Pálmi. „Ég held að við séum bara að gera það sem við erum góðir í, að gera grín að samtímanum,“ segir Örn. „Já, þetta er frekar kallað þjóð- arandstaða heldur en stjórnarand- staða,“ segir Pálmi. „Það hefur verið svolítið deyfð ríkjandi í anda landans. Fólk er svo- lítið þungbært og fljótt að stökkva á það neikvæða frekar en það já- kvæða. Við ætlum því að vera sól- argeisli vetrarins,“ segir Örn að lokum. Verðum bornir fram með ferskri sultu Morgunblaðið/Arnaldur Spaugstofan bregður á leik. Á myndina vantar Sigurð Sigurjónsson. Endurkoma Spaugstofumanna í nánd birta@mbl.is Rímnastríð á Gauknum RAPPIÐ og hipp-hoppið verður í aðalhlutverki á Gauki á Stöng í kvöld þar sem rapparinn Eyedea mun koma fram auk þess sem hald- in verður reffileg rappkeppni. Kvöldskemmtunin er samvinnu- verkefni hipp-hoppþáttarins Kron- ik (á Radíó X), Þrumunnar og Smash. Eyedea er nafn sem nýtur talsverðrar virð- ingar í rapp- heiminum enda hefur náunginn unnið ófá mót og hlotið góða dóma fyrir það efni sem hann hefur sent frá sér á plasti. Erindið í kvöld er að kynna nýju plöt- una The Many Faces of Oliver Hart og sýna þeim er áhuga hafa til. Hann hefur unnið fjölda MC Battle móta víðsvegar um heim og ber hæst Scribble Jam titillinn sem hann fékk 1999. Áður en Eyedea kemur fram verður haldin rapp- keppnin Rímnastríð, sem verður með svipuðu sniði og Battle of the MC’s-keppnin sem haldin var á Gauknum fyrr á þessu ári. Nú verða vegleg verðlaun í boði fyrir að lenda í fyrsta sæti keppninnar en þau eru úttekt hjá Þrumunni og Smash ásamt veglegum bikar. Einnig koma fram Öryrkjabanda- lagið og Dj Total Kayoz. Kvöldið hefst stundvíslega kl. 21 og stend- ur til kl. 01. Miðaverð 950 kr. og aldurstakmark er 18 ár. Það verður gagnlegt fyrir þátt- takendur í Rímna- stríðinu að berja Eye- dea augum. BANDARÍSKA kvikmyndaleikkon- an Jamie Lee Curtis segist ekki vilja lengur ýta undir þá ímynd að hún sé tákn hinnar grönnu og stæltu konu þar sem hún vilji ekki blekkja grun- laust fólk á fimmtugsaldri. Hún sat nýlega fyrir hjá tímaritinu More í Bandaríkjunum og var ekki feimin við að sýna að lærin eru orðin heldur holdmeiri en fyrrum. „Ég er ekki með frábær læri. Ég er með mjúkan maga og fitukeppi á bak- inu,“ sagði Curtis í viðtali við tímarit- ið. Hún viðurkenndi að hafa farið í fitusog og aðrar megrunaraðgerðir en þær hefðu lítið virkað. „Það er bara blekking að slík- ar aðgerðir séu varan- legar. Ég leit miklu verr út á eftir. Enginn segir þér að þegar fit- an er tekin af einum stað líkamans birtist hún annars staðar.“ Curtis sagðist m.a. hafa látið sjúga fitu undan augunum eftir að einhver sagði henni að þau virtust þrútin. Curtis segir í viðtalinu að hugsan- lega muni þessar játningar grafa und- an leikferli hennar en þær séu hluti af meðferð sem hún gengst nú undir en fréttir hafa verið um að hún eigi við áfengisvandamál að stríða. „Í með- ferðaráætluninni sem ég tek þátt í er talað um að flysja lauk og fjarlægja hin mismunandi lög,“ segir Curtis. Og hún er ákveðin í að sanna fyrir öðrum konum að „náttúrulegt“ útlit sé eftirsóknarvert. „Ég ætla að vera eins og guð skapaði mig,“ segir hún. Curtis deilir á fegrunar- aðgerðir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.