Morgunblaðið - 22.08.2002, Side 32
UMRÆÐAN
32 FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Ó
, mamma hvað ég
vildi vera orðinn full-
orðinn,“ segir litla
stýrið mitt gjarnan
við mig þegar mikið
liggur við. „En það er svo langt
þangað til og ég get ekki beðið!“
Reyndar er þetta viðkvæði
býsna algengt hjá þeim stutta og
félögum hans þegar beðið er eftir
hinu og þessu; afmælinu, barna-
tímanum, helginni, eftirrétt-
inum…það er nánast sama hvað
það er – tíminn virðist oft óbæri-
lega lengi að líða hjá litla fólkinu.
Mikið skil ég það vel. Ég man
ósköp vel eftir þessari tilfinningu,
þessari óþreyju sem gegnsýrði
fyrstu ár ævinnar. En einhvers
staðar á
leiðinni til
fullorðins-
áranna –
kannski með
horm-
ónaflæði
gelgjunnar
– týndist þessi eftirvænting barn-
æskunnar og tímaskynið koll-
varpaðist. Í dag þekki ég að
minnsta kosti fáa fullorðna sem
kvarta undan of miklum tíma.
Satt best að segja hef ég það á
tilfinningunni að flestir í kringum
mig eigi í mesta basli með að láta
sólarhringinn nægja til að hespa
af verkefnum dagsins. Vinnan er
eitt en þegar henni er lokið tekur
við hversdagsamstrið sem á und-
anförnum árum hefur breyst í
sannkallað spretthlaup milli
klukkan fimm og átta: það þarf að
rjúka úr vinnunni til að sækja
börnin, kaupa inn og útrétta, elda
mat á undir tuttugu mínútum,
vaska upp (guði sé lof fyrir upp-
þvottavélarnar), baða börnin,
bursta börnin, lesa fyrir börnin,
knúsa börnin, hugga börnin,
svæfa börnin…og allt í einum
grænum hvelli.
Nú má enginn misskilja mig og
halda að ég amist við tilvist barna,
þvert á móti gæti ég engan veginn
hugsað mér lífið án þeirra. En það
er staðreynd að börn þurfa á tíma
að halda. Þess vegna er ósk mín
sú sama og líklega allra annarra
foreldra: Að hafa meiri tíma fyrir
barnið mitt.
Þrátt fyrir þetta myndi ég ekki
líta við fleiri tímum í sólar-
hringnum ef þeir gæfust. Ég veit
nefnilega alveg hvað myndi ger-
ast þá – maður fengi eða tæki á
sig fleiri verkefni og líklega öllu
fleiri en aukatímarnir dygðu til.
Tímaskorturinn er vissulega oft á
tíðum sjálfskaparvíti af því að
maður ætlar sér um of og stund-
um kann maður ekki að njóta tím-
ans þegar hann gefst. Svo inn-
prentað er það orðið í mann að
enginn tími megi fara til spillis.
Þetta átti til dæmis við um und-
irritaða þegar hún var í barns-
eignarleyfi fyrir nokkrum árum.
Ég var óskaplega önnum kafin við
að leysa þau verkefni sem dag-
urinn bar í skauti sér hverju sinni.
Reyndar veit ég ekki hversu
nauðsynlegt það var að skúra
tvisvar í viku eða hengja þvottinn
á snúrurnar nákvæmlega flokk-
aðan eftir notkunarsviði hans og
lit klemmanna sem héldu honum
uppi: allar bleyjur fyrst með rauð-
um klemmum, þá nærföt (af því
þau komu næst bleyjunum) með
grænum klemmum og loks buxur
og peysur með bláum. En verk-
efni skyldi maður hafa og ef þau
komu ekki af sjálfu sér þá bjó
maður þau bara til.
Ég hugsa líka að ég fúlsi við
nýjum tækjum og tólum sem
fundin verða upp í framtíðinni til
að spara tíma. Þannig tæki hafa
hellst yfir okkur á síðustu árum
og áratugum og það eina sem þau
hafa gert er að auka vinnuálagið.
Allt gengur bara miklu, miklu
hraðar fyrir sig en áður samhliða
því sem stressið eykst. Og tíminn
flýgur…
Ég man hvað það fór í taug-
arnar á mér á námsárunum þetta
sífellda raup um það hvað það
væru mikil lífsgæði á Íslandi. Ég
hafði þvert á móti sterklega á til-
finningunni að lífsgæðin væru lítil
hér og þegar ég vogaði mér að
halda því fram helltust yfir mig
rök til að sanna hið gagnstæða:
„Líttu kona á öll flottu húsin, alla
bílana, allar tölvurnar og farsím-
ana…“
Þá gerði ég mér grein fyrir því
að líklega passar skilgreining mín
á lífsgæðum ekki við skilgrein-
ingu einhverra annarra á hinu
sama. Ég vil nefnilega gjarnan
skilgreina tíma sem lífsgæði.
Á þessum árum man ég líka eft-
ir að hafa lesið blaðagrein þar
sem Íslendingar reyndu að lýsa
hinni íslensku þjóðarsál. Mér
fannst þeir hitta naglann á höf-
uðið þegar þeir bentu á að þjóðin
væri upptekin af hlutum. Íslensk
heimili væru líklega með þeim fal-
legustu og best búnu í veröldinni.
Því miður væri bara aldrei neinn
heima til að njóta þeirra því allir
væru að vinna til að eiga fyrir af-
borgununum.
Karlkyns vinur minn sagði einu
sinni við mig að hann gæti vel
hugsað sér að vinna hálfan daginn
og vera heima hálfan daginn svo
hann gæti verið með börnunum
sínum. Þegar ég gapti og spurði
eins og álfur: „En hvað með
starfsframann?“ þá sagði hann á
móti: „Ég hef aldrei heyrt gamlan
mann segja þegar hann leit yfir
liðna tíð: „Ég vildi að ég hefði eytt
meiri tíma í vinnunni minni.“…“
Sagan hefur sýnt okkur að það
virðist vera erfitt að læra af mis-
tökum annarra. Reyndar búa
ungar konur í dag að mörgu leyti
við annan heim en formæður
þeirra gerðu fyrir nokkrum ára-
tugum þar sem þeirra vinna var
innan veggja heimilisins og því
kannski erfitt að setja sig í þeirra
spor. Hver veit nema þær gömlu
konur séu til sem líta um öxl með
söknuði vegna starfsframa sem
aldrei varð?
Einhvern veginn verðum við að
reyna að feta bil beggja og það er
lífsnauðsynlegt framtíðinni að
búa svo um hnútana að það sé
hægt. Þannig vil ég geta uppfyllt
vonir mínar um innihaldsríkt
starf án þess að þurfa að horfa til
baka á lífið með eftirsjá yfir því að
hafa ekki gefið stúfnum mínum
meiri tíma þá örstuttu stund sem
hann var barn.
En kannski það sé bara ekki
tími til þess?
Lúxus og
lífsgæði
„Íslensk heimili væru líklega með þeim
fallegustu og best búnu í veröldinni. Því
miður væri bara aldrei neinn heima til
að njóta þeirra því allir væru að vinna
til að eiga fyrir afborgununum.“
VIÐHORF
Eftir Bergþóru
Njálu
Guðmundsdóttur
ben@mbl.is
SYKURSÝKI meðal
barna á Íslandi hefur
verið vaxandi sjúk-
dómur. Á innan við
viku getur alheilbrigt
barn skyndilega verið
orðið háð insúlín-
sprautum, ströngu
mataræði og reglu-
bundnu eftirliti með
blóðsykurmælingum
mörgum sinnum á dag.
Starfsmenn Land-
spítalans og annarra
heilbrigðisstofnana
hafa unnið mjög gott
starf með þessum
börnum og hjálpað
foreldrum þeirra að læra að lifa
nýju lífi, sem þessi sjúkdómur kall-
ar sannarlega á. Öll fjölskyldan hef-
ur þurft að tileinka sér nýjan lífsstíl
sem felur í sér breytt mataræði,
reglu á matmálstímum og að fylgj-
ast með ýmsum einkennum eða
breyttri hegðun í fari þess barns
sem er með sykursýki. Í hinum
nýja lífsstíl er barnið í hálfgerðri
gjörgæslu foreldranna allt árið.
Árið 1992 stofnuðu foreldrar syk-
ursjúkra barna foreldrafélag sem
vann af miklum eldmóð við að
tryggja grunnréttinda allra barna
gagnvart hinu opinbera. Síðustu ár
hefur foreldrafélagið reynt að
styðja við bakið á fjölskyldum syk-
ursjúkra barna.
Nú huga foreldrar að nýju verk-
efni. Ýmsir erlendir aðilar hafa
haldið sumarbúðir fyrir sykursjúk
börn og ungmenni og hafa íslensk
börn haft aðgang að þeim. Börnin
okkar hafa haft aðgang að ýmsum
íslenskum sumarbúðum eins og hjá
KFUM og K og hafa
starfsmenn þar iðu-
lega verið tilbúnir að
leggja á sig aukna
vinnu við að tryggja að
allt gangi upp. Að-
gangur að venjulegum
sumarbúðum fyrir
sykursjúk börn er
mjög mikilvægur. Fyr-
ir foreldrana skiptir
þetta gríðarlega miklu
máli, að fá tækifæri til
að fá frí frá þessu mik-
ilvæga gjörgæsluhlut-
verki sem foreldrar
sykursjúkra barna
sinna.
Í nágrannalöndum okkar eru til
sumarbúðir sem hafa sérhæft sig í
að fást við sykursjúk börn. Þar er
börnunum boðið upp á kennslu
varðandi matar- og næringarfræði,
notkun sprautu og insúlíns og kennt
að umgangast líkama sinn með
þeim kostum og göllum sem hann
er búinn.
Foreldrafélag sykursjúkra barna
og unglinga ætlar að halda ígildi
slíkra sumarbúða. Verður haldin
fræðsluhelgi fyrir börnin og for-
eldra þeirra 24.–26. ágúst í Reykja-
dal í Mosfellsdal. Foreldrafélagið
telur að fræðsluhelgin, þar sem
reyndir aðilar fræða foreldra og
börnin um sjúkdóminn og reynt
verður að kenna börnunum að lifa í
sátt við sykursýkina, muni hafa
mikið gildi fyrir börnin og hjálpi
foreldrum þeirra að minnka líkurn-
ar á enn alvarlegri fylgikvillum sem
hætta er á ef ekki er góð stjórn á
lífsmynstri og mataræði. Auk þess
mun sá félagslegi stuðningur sem
börnin ættu að fá frá jafningjum
sínum að styrkja sjálfsmynd þeirra
og sýnt verður fram á að þau geti
gert margt sem önnur börn upplifa
á hverjum degi, ef rétt er að málum
staðið.
Foreldrafélag sykursjúkra barna
og unglinga hefur litlar tekjur og
því lítið bolmagn til að fjármagna
kostnaðinn en öll starfsemi félags-
ins byggist á sjálfboðaliðastarfi. Til
að tryggja góðan árangur af fyrstu
sumarbúðum/fræðsluhelgi af þessu
tagi á Íslandi, er stefnt að því að
hingað komi íslenskur læknir frá
Noregi sem hefur góða reynslu af
starfi með sykursjúkum. Starfs-
menn göngudeildar sykursjúkra
barna hafa lagt á sig mikilsmetna
vinnu við undirbúninginn. Hið op-
inbera hefur lagt verkefninu lið.
Óvæntur en sérlega ánægjulegur
stuðningur styrktargolfmóts sem
Golfklúbburinn Nes og DHL hrað-
flutningar stóðu að mun duga til að
þessi draumur verði að veruleika.
Öllum þessum aðilum eru færðar
þakkir fyrir stuðning sinn.
Fræðsluhelgi fyrir
sykursjúk börn
Geir Bjarnason
Sykursýki
Fræðsluhelgi fyrir
börnin og foreldra, segir
Geir Bjarnason, verður
haldin 24.–26. ágúst í
Reykjadal í Mosfellsdal.
Höfundur er formaður
foreldrafélags sykursjúkra
barna og unglinga.
NÝJASTA ríkisút-
gerðin á Íslandi er
jarðgangagerð. Sveit-
arstjórnir og áhuga-
menn í héraði gera út
á ríkissjóð og hafa
uppi ráðagerðir og
látlausar kröfur um
göng til samgöngu-
bóta. Forgangsröðun
verkefna af þessu tagi
virðist ráðast af
landshlutasjónarmið-
um og dugnaði við
áróður og undirbún-
ing, en hagkvæmni og
arðsemissjónarmið
eru aftar í röðinni.
Á höfuðborgar-
svæðinu er annað uppi á teningn-
um. Þar eru borgarstjórnar- og
sveitarstjórnarflokkarnir rétt byrj-
aðir að tæpa feimnislega á nokkr-
um hugmyndum um jarðgöng í
stefnuplöggum, en eftirfylgni og
umræða er lítil. Alþingismenn í
Reykjavík og nágrenni, sem verða
í meirihluta á þingi eftir næstu
kosningar, hafa ekki fundið púðrið
í jarðgangagerð til þessa. Samt
hafa þeir stórkostlegan ávinning
Hvalfjarðarganganna fyrir augun-
um.
Mikil og
brýn þörf
Morgunblaðið gerði það að um-
talsefni í Reykjavíkurbréfi sl.
sunnudag hve miklir möguleikar
fælust í því að setja Geirsgötu í
stokk. Þar með væri hægt að
tengja Grófina og Lækjartorg
hafnarsvæðinu í eina heild, koma
fyrir Listaháskóla, kvikmyndahúsi,
íbúðarhverfum og skapa listahöfn
og þá lifandi miðborg sem marga
dreymir um.
Brú yfir eða göng
undir Kleppsvík
vegna Sundabrautar
eru sjálfsögð nauðsyn,
þegar sá mikilvægi
strandvegur kemst
loks á framkvæmda-
stig.
Fyrir borgarstjórn-
arkosningar í vor setti
Sjálfstæðisflokkurinn
í Reykjavík fram hug-
mynd um brúarteng-
ingu við Álftanes.
Engin frekari umræða
varð um tillöguna en
eðlilegt framhald á
þeim þanka væri að
tengja þjóðveg hring-
inn í kringum höfuðborgarsvæðið.
Hlutverk hans væri að létta á um-
ferð gegnum það, gera fólki kleift
að komast miklu greiðar en nú
milli borgar- og bæjarhluta, og
komast á svig við borgina er leiðin
liggur til annarra landshluta.
Þá eru enn ótalin göng undir
Skólavörðuholt, Öskjuhlíð og
Kópavogsháls sem myndu samtím-
is stórbæta umhverfi og sam-
göngur, og eyða gamalli togstreitu
milli þeirra sjónarmiða sem kalla á
fleiri stofnbrautir annars vegar og
varðveislu náttúru og útivistar-
möguleika hins vegar. Göng undir
„holt, hlíð og háls“ eru nú reifuð
sem möguleiki í framtíðarskipu-
lagi.
Reykvískan
samgönguráðherra
Hringvegur um höfuðborgar-
svæðið með tilheyrandi gangagerð
og brúun sunda, svo og miðgöng
um holt, hlíð og háls, myndu marg-
falda framleiðslu- og afkastagetu
samgöngukerfisins og borga sig á
stuttum tíma með hagkvæmni,
bættu mannlífi og fegurra borg-
arútliti.
Hér er um stofnbrautarfram-
kvæmdir að ræða og því þarf at-
beini ríkisvaldsins að koma til,
enda þótt margs konar fjármögn-
unar- og framkvæmdaleiðir komi
til greina vegna þess hve þær eru
ábatasamar.
Vaxandi samgöngu- og skipu-
lagsvandamál höfuðborgarsvæðis-
ins verða ekki leyst með jarðgöng-
um úti á landi. Svo mikið er víst.
„Er það ekki skrýtið hvað jarð-
göng eru löng og dýr í Reykjavík
en stutt og ódýr úti á landi?“
spurði kona á kynningarfundi um
skipulagsmál hafnarsvæðisins í
borginni er henni fannst skorta á
stórhuginn.
Áhugi samgönguráðherra síð-
ustu áratuga á samgöngubótum í
höfuðborginni hefur verið af
skornum skammti, enda þótt meg-
inhluti umferðarþungans í landinu
sé hér. Það ætti því að vera
minnsti samnefnari nýs meirihluta
þingmanna af höfuðborgarsvæðinu
á næsta þingi að krefjast þess að
samgönguráðherra komi úr
Reykjavík.
Hringvegur um
höfuðborgarsvæðið
Einar Karl
Haraldsson
Umferðin
– Brúum sundin, borum
göng – eru kröfur, segir
Einar Karl Haraldsson,
sem mættu heyrast
oftar í Reykjavík.
Höfundur er ráðgjafi í
almannatengslum.