Morgunblaðið - 22.08.2002, Síða 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Lágmúla og Smáratorgi
opið kl. 8-24
alla daga
ÞRJÁR eldri konur létust í hörðum
árekstri fólksbíls og rútubifreiðar á
Landvegamótum í Rangárvallasýslu,
milli Þjórsár og Hellu, um klukkan 18
í gær. Konurnar voru allar í fólksbif-
reiðinni. Þrír voru í rútunni og sluppu
allir án teljandi meiðsla. Hinar látnu
voru á sjötugs-, áttræðis- og níræð-
isaldri og voru búsettar á höfuðborg-
arsvæðinu. Sú yngsta var fædd árið
1937, önnur 1929 og sú elsta var fædd
árið 1922. Þær voru allar úrskurðaðar
látnar á slysstað og fluttar með
sjúkrabifreiðum til Reykjavíkur.
Slysið varð með þeim hætti að
fólksbifreiðinni var ekið inn á Suður-
landsveg af Landvegi, í veg fyrir
rútubifreiðina, sem kom úr austurátt.
Bifreiðirnar lentu báðar utan vegar
og rútubifreiðin fór á hliðina. Báðar
bifreiðirnar eru ónýtar eftir árekst-
urinn.
Suðurlandsvegur var lokaður í
tæpar tvær klukkustundir á meðan
lögregla og björgunarliðar athöfnuðu
sig á slysstað og var vegurinn opn-
aður aftur þegar klukkuna vantaði
fjórðung í átta, að sögn lögreglunnar
á Hvolsvelli. Kalla þurfti á liðsauka
frá lögreglunni á Selfossi, auk þess
sem tækjabíll var fenginn frá Bruna-
vörnum í Rangárvallasýslu. Þá voru
fjórir læknar kallaðir á vettvang til
aðstoðar. Þyrla Landhelgisgæslunn-
ar, TF-LIF, var kölluð á vettvang
skömmu eftir að slysið var tilkynnt.
Þyrlan var komin í loftið klukkan
18:23 en var afturkölluð skömmu síð-
ar.
Að sögn Gils Jóhannssonar, varð-
stjóra hjá lögreglunni á Hvolsvelli,
voru aðstæður til aksturs góðar þegar
slysið varð og var tiltölulega lítil um-
ferð á svæðinu.
Lögreglan á Hvolsvelli lýsir hér
með eftir vitnum að slysinu og er
þeim sem geta gefið upplýsingar bent
á að hafa samband við lögregluna á
Hvolsvelli í síma 488-4111.
Þrjár eldri konur lét-
ust í hörðum árekstri
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Frá slysstaðnum. Báðar bifreiðirnar lentu utan vegar og eru ónýtar.
Banaslys á Landvegamótum í Rangárvallasýslu, milli Þjórsár og Hellu
Selfossi. Morgunblaðið.
>
Til Reykja-
víkur eftir
bílveltu á
Ströndum
Sjöunda slysið
á þessum
slóðum í sumar
BÍLL valt utan malarvegar
undir Bolafjöllum á Ströndum,
skammt sunnan Kaldbaksvíkur,
um kvöldmatarleytið í gær-
kvöldi. Ökumaðurinn hlaut höf-
uðáverka og var ekið með
sjúkrabíl til Reykjavíkur til að-
hlynningar.
Tveir farþegar voru í bílnum,
erlendir ferðamenn sem öku-
maðurinn hafði tekið upp í
skömmu fyrir slysið, en þá sak-
aði ekki samkvæmt upplýsing-
um frá lögreglunni á Hólmavík.
Lögreglan sagði bílinn hafa
farið margar veltur niður bratta
hlíð og endað í lækjarsprænu.
Aðkoma á slysstað hefði því ver-
ið ljót og mesta mildi að ekki
hlaust alvarlegra slys af. Bíllinn
er gjörónýtur eftir veltuna.
Lögreglan á Hólmavík vildi
brýna fyrir ökumönnum að aka
eftir aðstæðum á malarvegi sem
þessum undir Bolafjöllum. Er
þetta sjöunda bílslysið í sumar á
Ströndum og í þriðja sinn sem
flytja þarf slasaða til Reykjavík-
ur. Ökumaðurinn sem slasaðist í
gærkvöldi var á leið til Djúpa-
víkur, að sögn lögreglu, og er frá
Reykjavík.
HAGNAÐUR Flugleiða og tólf
dótturfyrirtækja nam 50 milljónum
króna fyrri hluta ársins, sem er
1.644 milljóna króna betri afkoma
en á sama tímabili í fyrra. Hagnaður
fyrir skatta nam 122 milljónum
króna en það er 2.449 milljóna króna
breyting til batnaðar.
Helmingur batans er rakinn til
aðgerða sem gripið var til í rekstr-
inum á síðasta ári og helmingur til
jákvæðrar þróunar á ytri þáttum,
þ.e. þróunar gjaldmiðla, eldsneytis-
verðs og vaxta á alþjóðalánamark-
aði.
Sigurður Helgason, forstjóri
Flugleiða, segir mikla uppbyggingu
síðustu ár, einkum í flutningi ferða-
manna til Íslands, og aukinn sveigj-
anleika í starfseminni auk dugnaðar
og samheldni starfsfólks vera helstu
ástæður þess að félagið gat gripið til
aðgerða með jafnárangursríkum
hætti og raun ber vitni. Hann segir
markmið félagsins nú að viðhalda og
styrkja þennan ávinning.
Meiri samdráttur en
hjá öðrum Evrópufélögum
Uppbyggingu á flutningi ferða-
manna til og frá Íslandi segir hann
mega rekja til sóknar Flugleiða á
Norður-Atlantshafsmarkaðinn. Með
þeirri sókn hafi tekist að fjölga er-
lendum ferðamönnum með félaginu
um 70% á fimm árum.
„Norður-Atlantshafsmarkaðurinn
hefur verið að þyngjast undanfarin
ár vegna óhagstæðs gengis, kostn-
aðarhækkana og offramboðs flug-
félaga. Þegar í fyrravor byrjuðu
Flugleiðir því að undirbúa breyting-
ar og samdrátt í flutningum yfir
Norður-Atlantshaf. Hryðjuverkin í
Bandaríkjunum 11. september
höfðu síðan úrslitaáhrif. Félagið hef-
ur dregið meira saman í Norður-
Atlantshafsflugi en flest önnur Evr-
ópufélög eftir atburðina vestanhafs.
Þrátt fyrir samdrátt á leiðum yfir
hafið hefur markaðurinn til og frá
Íslandi haldið áfram að vaxa eins og
að var stefnt,“ segir Sigurður.
Hann segir jafnframt að veiga-
mikill liður í breytingum undanfar-
inna mánaða sé að nýta þann sveigj-
anleika sem félagið hefur byggt upp
í tengslum við alþjóðaflugreksturinn
undanfarin ár. Sá sveigjanleiki gefi
annars vegar kost á beinni kostn-
aðarlækkun og hins vegar því að
viðhalda þeirri stærðarhagkvæmni
sem sé mikilvæg í flugrekstrinum.
„Við erum því að uppskera það
sem við höfum sáð til undanfarinn
áratug og við munum halda áfram á
þessari braut,“ segir Sigurður.
Flugfélag Íslands
skilar hagnaði
Afkoma flestra dótturfyrirtækja
Flugleiða batnaði á milli ára. Rekst-
ur eins þeirra, Flugfélags Íslands,
skilaði 21 milljónar króna hagnaði á
fyrri hluta ársins og er það í fyrsta
sinn sem hagnaður er af starfsem-
inni á fyrri árshelmingi. Afkomubati
Flugfélagsins nam 385 milljónum
króna á milli ára.
Flugleiðir skiluðu 50
milljóna hagnaði
Afkoman fyrir
skatta batnaði
um 2,5 milljarða
Afkomubati/C1
Í NÝRRI vísindagrein 10 íslenskra
vísindamanna, sem birtist í vísinda-
tímaritinu Journal of Medical Gene-
tics, kemur fram að meðal arfbera
stökkbreytingar í geninu BRCA2
eru ævilíkur á að fá brjóstakrabba-
mein um 40%, en meðal íslenskra
kvenna eru líkurnar um 10%. Í
fyrstu var álitið að áhætta hjá arf-
berum á að fá brjóstakrabbamein
væri mun meiri, eða yfir 80%.
Tilgangur rannsóknarinnar var
að kanna líkur á ýmsum krabba-
meinum í ættingjum brjósta-
krabbameinssjúklinga sem höfðu
stökkbreytingu í geninu BRCA2 og
bera þær saman við krabbameins-
líkur meðal þjóðarinnar. Einnig að
gera hið sama við ættir þeirra
sjúklinga sem ekki höfðu stökk-
breytinguna en í rannsókninni voru
alls raktar ættir 995 sjúklinga sem
greinst höfðu með brjóstakrabba-
mein á árunum 1910 til og með
1985.
Meðal niðurstaðna rannsóknar-
innar er, að þó að áhætta á sjúk-
dómnum sé aukin hjá arfberum sé
einnig um fjölskyldugengi að ræða
hjá ættingjum sjúklinga sem ekki
eru arfberar íslensku stökkbreyt-
ingarinnar í BRCA2. Þá leiddi
rannsóknin í ljós að ættingjar arf-
bera eru í aukinni áhættu á að fá
krabbamein í nýru og krabbamein í
blöðruhálskirtil og eggjastokka.
Auk þess fundust tengsl við
krabbamein í nýrum og krabba-
mein í maga. Söfnun þeirra upplýs-
inga sem nýttar voru í rannsókninni
stóð yfir í tæp 30 ár, en hún hófst
árið 1972. Í þeim ættum sem koma
fyrir í rannsókninni eru tæplega
60.000 einstaklingar, karlar og kon-
ur.
Í rannsókninni kom í ljós, þegar
áhrif stökkbreytingarinnar í
BRCA2-geninu voru skoðuð, að í
sumum ættum eru áhrifin mjög
sterk en þau eru mun minni í öðrum
ættum. Einnig er tíðni annarra
krabbameina í ættum mjög breyti-
leg, sem dæmi má nefna blöðruháls-
kirtilskrabbamein. Ein breyting af
sama uppruna sem er eldri en land-
nám Íslands hefur þannig misjöfn
áhrif eftir ættum. Þessi ólíka birt-
ingarmynd bendir til þess að áhrif
umhverfis og annarra gena séu
mun mikilvægari en talið var fyrst
eftir að BRCA-stökkbreytingarnar
voru einangraðar.
Ný vísindagrein íslenskra fræði-
manna um brjóstakrabbamein
Könnuðu líkur
á krabbamein-
um í ættingjum
Staðfestir/29
LÖGREGLUNNI á Selfossi
barst tilkynning frá íbúa á Sel-
fossi laust fyrir kl. hálfellefu í
gærkvöldi um að ljós frá fjórum
neyðarblysum sæjust á sveimi
austsuðaustur frá Selfossi, yfir
Þjórsárósum.
Einn bíll frá Björgunarfélagi
Árborgar fór á staðinn og ók hann
meðfram ströndinni og höfðu eng-
in ummerki um slys fundist þegar
blaðið fór í prentun í nótt. Lög-
reglan á Selfossi fór einnig á stað-
inn og kannaði þá stefnu sem ljós-
in voru sögð hafa verið í en engin
ummerki fundust.
Tvö skip sem voru á siglingu
skammt frá Þjórsárósum voru
send á staðinn en leit þeirra bar
engan árangur.
Neyðarblys á lofti