Morgunblaðið - 23.08.2002, Side 18

Morgunblaðið - 23.08.2002, Side 18
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 18 FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ veitinga til einstaklinga. Ljóst er að sú mikla skuldaaukning sem átt hefur sér stað hjá heimilunum í landinu á síðustu árum kemur nú fram m.a. í aukningu árangurs- lausra fjárnáma hjá einstaklingum og í gjaldþrotum smærri fyrir- tækja,“ segir í tilkynningu. Vaxtatekjur SPRON námu rúm- um 2 milljörðum á fyrstu sex mán- uðum ársins og drógust saman um tæp 9%. Vaxtagjöld drógust saman um rúm 16% frá fyrra ári og námu tæpum 1,4 milljörðum króna. Hreinar vaxtatekjur jukust því um 11,3%. Vaxtamunur var á tímabilinu 3,5% samanborið við 3,4% á sama tímabili í fyrra. Aðrar rekstrar- tekjur drógust saman um 62% og önnur rekstrargjöld jukust um 20%. Útlán SPRON námu tæpum 25 milljörðum króna í júnílok og dróg- ust saman um 2% frá áramótum. Þá jukust innlán um 11,8% á sama tíma og námu 24,5 milljörðum í lok júní sl. Þessi jákvæða þróun er í tilkynn- ingu sögð hafa leitt til mjög sterkr- ar lausafjárstöðu sparisjóðsins. Eig- ið fé SPRON nam rúmum 3 milljörðum í júnílok. Eiginfjárhlut- fall samkvæmt CAD-reglum er 10,2%. SPARISJÓÐUR Reykjavíkur og nágrennis, SPRON, tapaði 132 milljónum króna á fyrstu sex mán- uðum ársins en á sama tímabili í fyrra nam hagnaður sparisjóðsins 464 milljónum. Afkoman versnar því um 596 milljónir króna á milli ára. Tap fyrir skatta nam 161 millj- ón króna og er það 815 milljóna króna lakari afkoma en á sama tímabili árið áður. Versnandi afkoma sparisjóðsins er m.a. skýrð með því að nær 21% af heildareignum sparisjóðsins eru bundin í markaðsskuldabréfum, markaðshlutabréfum og hlutabréf- um fyrirtækja er tengjast samstarfi sparisjóðanna í landinu. Stærstur hluti markaðshlutabréfaeignar SPRON er í Kaupþingi banka hf. en í markaðsskuldabréfum vega hús- bréf og húsnæðisbréf mest. Tekjur af framangreindum eignum námu á tímabilinu rúmlega 256 milljónum og þykir ljóst að lág ávöxtun þess- ara eigna hafi mikil áhrif á afkomu sparisjóðsins. „Á fyrri helmingi árs- ins varð sparisjóðurinn fyrir nokkr- um stórum útlánatöpum en jafn- framt lagði sparisjóðurinn til hliðar verulegar upphæðir í afskrifta- reikning vegna margra smærri lán- SPRON tapar 132 milljónum                                          $ %&                          !                 ,#,/, '#/)( ! 3-) '" +,) ',- ! .'-( ! !  *)#*+3 *#'-,  "#$ ''1,2  !  !     "    "       #            #         TAP á rekstri Sparisjóðabanka Ís- lands hf. á fyrstu sex mánuðum þessa árs nam 95 milljónum króna, að teknu tilliti til áætlaðra tekju- skattsáhrifa. Á sama tímabili í fyrra nam hagnaður bankans tæplega 22 milljónum króna. Reikningsskilaaðferðum Spari- sjóðabankans hefur verið breytt til samræmis við breytingar á lögum um ársreikninga. Ef beitt hefði verið óbreyttum aðferðum við gerð reikn- ingsskilanna hefði tap bankans á fyrri helmingi þessa árs orðið 16 milljónum króna meira en raun varð á vegna áhrifa verðleiðréttinga á reksturinn. Í tilkynningu frá Sparisjóðabank- anum segir að fyrri hluti þessa árs hafi einkennst af samdrætti í starf- seminni og andsnúinni þróun á inn- lendum og erlendum verðbréfa- mörkuðum. Útistandandi skuldir sparisjóða við bankann hafi lækkað um rúma 2 milljarða króna frá ára- mótum og útlán til annarra við- skiptamanna um tæplega 2 millj- arða. Að hluta sé um að ræða áhrif af breytingum á gengi íslensku krón- unnar en einnig samdrátt í lánastarf- semi. Tvöfalt framlag á afskriftareikning Niðurstöðutala efnahagsreiknings bankans lækkaði úr 54 milljörðum króna í árslok 2001 í tæplega 50 milljarða í lok júní sl. Þá lækkuðu vaxtatekjur úr 2,0 milljörðum í 1,8 milljarða milli tímabila. Vaxtagjöld lækkuðu reyndar einnig og í heild hækkuðu hreinar vaxtatekjur um rúmar 65 milljónir milli samanburð- artímabila. Á móti þessari hækkun hreinna vaxtatekna kom lækkun á öðrum rekstrartekjum þannig að í heild lækkuðu hreinar rekstrar- tekjur milli tímabila um 25 milljónir eða úr 339 milljónum í 314 milljónir. Launakostnaður og annar al- mennur rekstrarkostnaður Spari- sjóðabankans hækkaði úr samtals 240 milljónum í 277 milljónir og er það í samræmi við áætlanir. Fram- lag í afskriftareikning útlána rúm- lega tvöfaldast milli tímabila, úr 51 milljón í 120 milljónir. Segir í til- kynningu bankans að þar komi til al- mennt varúðarsjónarmið vegna vax- andi vanskila og erfiðleika hjá einstaka viðskiptamönnum og lækk- unar á verðmati fullnustueigna. Eiginfjárhlutfall bankans var 12,2% í lok fyrri árshelmings 2002 en í árslok 2001 var hlutfallið 11,5%. Í tilkynningu Sparisjóðabankans segir að á næstunni verði leitast við að auka tekjur bankans og samtímis dregið úr rekstrarkostnaði hans með ýmsum hætti. Þá verði lögð áhersla á að styrkja útlánastarfsemina og gera hana arðbærari. Sparisjóðabankinn tapar 95 milljónum TAP varð á rekstri Sparisjóðs Hafnarfjarðar, SPH, á fyrstu sex mánuðum ársins sem nemur 70 millj- ónum króna og er það 183 milljónum króna lakari afkoma en á sama tíma- bili í fyrra. Tap fyrir skatta nam 78 milljónum og versnaði sú afkoma um 249 milljónir á milli ára. Vaxtatekjur SPH námu tæpum 1,7 milljörðum á fyrri hluta ársins og lækkuðu um tæp 17% á milli ára. Vaxtagjöldin lækkuðu einnig, um 17%, og voru röskir 1,2 milljarðar króna. Hreinar vaxtatekjur lækkuðu alls um 16,3%. Aðrar rekstrartekjur drógust saman um 41% og skýrist það af 500 milljóna söluhagnaði sem reiknaðist í milliuppgjörinu 2001. Hreinar rekstrartekjur dragast því saman um alls 28%. Önnur rekstrargjöld dragast saman um 8% en framlag í afskriftareikning útlána eykst um 12%. Innlán jukust um 13% en útlán stóðu í stað Heildarútlán SPH námu tæpum 23 milljörðum króna í júnílok og hafa nánast staðið í stað frá því á sama tíma á síðasta ári. Innlánaaukning varð hins vegar meiri en gert var ráð fyrir, innlán jukust um 13,3% frá áramótum og námu rúmum 18 millj- örðum króna í lok júní. Eigið fé Sparisjóðsins var tæpir 2,5 milljarð- ar í lok tímabilsins og lækkaði um 2,8% frá áramótum. Eiginfjárhlutfall samkvæmt CAD-reglum var 11,3% en 11,7% í árslok 2001. Afkoma SPH er, samkvæmt til- kynningu, ekki samkvæmt vænting- um en unnið hefur verið að víðtæk- um ráðstöfunum til að bæta afkomuna, og þess vænst að þær að- gerðir skili árangri á síðari hluta árs- ins. Aukin vanskil útlána og aukið framlag í afskriftareikning útlána eru sögð muna mestu um afkomuna en hana megi einnig rekja til hertra reglna varðandi tekjufærslu vaxta af gjaldföllnum útlánum og þar af leið- andi aukinnar vaxtafrystingar. Þá lækkaði verðmat fullnustueigna sem sparisjóðurinn hefur leyst til sín. SPH tapaði 70 milljónum                  #  #  #                         %         $ %&                          !                              ,#((3 '#)(, "! 03'  /0* '+0   .)-   ,+#333 ,#)'0 $ !$ ''1+2 !  " ! "     "! "  "! HAGNAÐUR Vátryggingafélags Ís- lands hf. nam 342 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins saman- borið við 316 milljón króna hagnað á sama tímabili í fyrra. Í tilkynningu frá VÍS kemur fram að tryggingarekstur fór heldur batn- andi á öðrum ársfjórðungi en er þó ennþá óviðunandi í ýmsum vátrygg- ingagreinum. Hagnaður af fjármála- rekstri nam 289 milljónum. Bókfærð iðgjöld VÍS hækkuðu um 11% miðað við sama tímabil 2001 og námu 4.650 milljónum samanborðið við 4,188 milljónir í fyrra, en eigin ið- gjöld hækkuðu um 15%, úr 2.739 milljónum í 3.159 milljónir króna. Eigin tjón VÍS hækkuðu um 8% mið- að við sama tímabil 2001 og námu 2.922 milljónum samanborið við 2.701 milljón króna í fyrra. „Tjónaþróun í flestum tryggingagreinum var frekar óhagstæð á fyrri helmingi ársins en hefur þó farið batnandi síðustu mán- uði. Félagið hefur fengið á sig fá stór- tjón en fjöldi meðalstórra tjóna s.s. brunatjóna hefur vaxið og er afkoma eignatrygginga slæm. Tjón í umferð- inni eru enn gríðarlega mikil, þó svo að afkoma ökutækjatrygginga hafi farið batnandi,“ að því er segir í til- kynningu. Rekstarkostnaður tíma- bilsins var 645 milljónir á móti 615 milljónum á sama tímabili 2001, sem er tæplega 5% hækkun á milli ára. Hagnaður varð af vátrygginga- rekstri á tímabilinu að fjárhæð 184 milljónir króna á móti 556 milljóna hagnaði fyrstu 6 mánuðina árið 2001. Fjárfestingartekjur félagsins námu samtals 1.162 milljónum króna. Vaxtatekjur og gengismunur hafa lækkað verulega á milli ára vegna lækkandi vaxta og lægri verðbólgu. Þá hefur ávöxtun á erlendum mörk- uðum verið neikvæð. Hagnaður af sölu fjárfestinga, einkum hlutabréfa, nam 594 milljónum. Á móti hefur fé- lagið gjaldfært samtals 237 milljónir króna vegna matsbreytinga og tap- aðra fjárfestinga. Félagið hefur á tímabilinu lagt 86 milljónir í af- skriftareikning krafna og skulda- bréfa til að mæta töpum af þessum eignaliðum. Hagnaður VÍS fyrir tekju- og eignaskatt nam 401 milljón króna. Heildareignir félagsins 30. júní 2002 námu 23.702 milljónum króna og bókfært eigið fé var 4.163 milljónir króna. Eiginfjárhlutfall 30. júní nam 17,6% en var 18,2% um sl. áramót en félagið greiddi í apríl sl. 50% arð vegna ársins 2001 að fjár- hæð 270 milljónir króna. VÍS beitir ekki verðleiðréttingum. Ef fyrri aðferðum hefði verið beitt hefði hagnaður félagsins orðið 20,9 milljónum króna hærri og eigið fé fé- lagsins 86,7 milljónum króna hærra. Í rekstraráætlun VÍS, sem gerð var í lok síðasta árs, var gert ráð fyrir 501 milljón króna hagnaði eftir skatta í ár, hagnaður af vátryggingarekstri verði 527 milljónir og hagnaður af fjármálarekstri verði 120 milljónir. Hagnaður VÍS 342 milljónir króna TAP Vaka-DNG hf. nam 2,3 millj- ónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins samanborið við 7 milljóna króna hagnað á sama tímabili í fyrra. 5,6 milljóna króna hagnaður var af rekstri Vaka-DNG hf. á öðr- um fjórðungi ársins. Rekstrartekjur félagsins námu 227 milljónum króna á fyrri hluta ársins 2002 samanborið við 235 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. Rekstrargjöldin drógust sam- an á milli tímabila, fóru úr 214 millj- ónum í 211 milljónir króna í ár. Rekstrarhagnaður félagins fyrir af- skriftir og fjármagnsliði nam 16,7 milljónum króna en var 20,6 millj- ónir króna fyrstu sex mánuði ársins í fyrra. Veltufé frá rekstri var neikvætt í lok júní um 6,4 milljónir króna en var jákvætt um 31,4 milljónir á sama tíma í fyrra. Eiginfjárhlutfallið er 31,5% og veltufjárhlutfallið var 1,76 30. júní sl. Í frétt frá félaginu kemur fram að aukning hefur verið í sölu á fiskeld- isbúnaði félagsins þrátt fyrir að fisk- eldismarkaðurinn hafi verið erfiður vegna lágs afurðaverðs. Kemur þar til sala á nýjum vörum sem fyrir- tækið hefur þróað. Í lok júnímánaðar 2002 stofnaði félagið einkahlutafélagið Peocon ehf. og er eignarhlutdeild Vaka- DNG 75,6%. Tilgangur dóttur- félagsins er þróun og sala á tækni- og hugbúnaði, tölvu- og upplýsinga- kerfum ásamt skyldum atvinnu- rekstri. Fyrirhugað er að Peocon ehf. taki yfir markaðssetningu á búnaði þeim sem Vaki-DNG hf. hef- ur ásamt öðrum eigendum dóttur- félagsins þróað undanfarin misseri og er ætlaður til greiningar á flæði fólks, m.a. í verslanamiðstöðvum. Hefur þetta óverulega áhrif á efna- hag félagsins á fyrri helmingi þessa árs en áhrifa fer að gæta þegar á þriðja ársfjórðungi. „Vegna mikils framboðs hefur verð á fiskeldisafurðum verið mjög lágt undanfarið eitt og hálft ár og hafa framleiðendur haldið að sér höndum í fjárfestingum. Ekki er út- lit fyrir miklar breytingar á þessu ástandi út þetta ár þannig að horfur á aukningu á sölu fiskeldisbúnaðar Vaka eru dræmar. Sama má segja um fiskveiðavörurnar. Áætlanir gera þó ráð fyrir aukningu í sölu m.v. síðasta ár, en aukningin kemur til vegna sölu á nýjum vörum. Áætl- anir gera ráð fyrir að félagið verði rekið með hagnaði á árinu,“ að því er fram kemur í frétt frá Vaka-DNG. Vaki-DNG rekinn með tapi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.