Morgunblaðið - 23.08.2002, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 23.08.2002, Qupperneq 23
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2002 23 LÍKT og á tónleikum Kristins H. Árnasonar og Berglindar M. Tómas- dóttur mánuði áður var fulltlangt fram í anddyri á sumartónleikum í Myndlistarsafni Sigurjóns Ólafssonar sl. þriðjudag. Ef fram heldur sem horfir virðist safnið því þurfa að huga að húsnæðisstækkun, enda greinilega löngu komið í hóp vinsælustu kamm- ersala Reykjavíkur og nágrennis. Verkefnaval kvöldsins var að mestu á lýrískum nótum. Franskur ljóðasöng- ur í byrjun, óperuaríur í lokin og tvö alvarleg sönglög Kaldalóns ásamt tveim gullfallegum kínverskum þjóð- lögum í miðju. Myndaði uppákoman hæfilega langa sumartónleikalengd eða um eina klukkustund án hlés. Byrjað var á léttasta enda með „Cinq mélodies populaires Grec- ques“, fimm grískum þjóðlögum er sí- ðimpressjónistinn Maurice Ravel (1875–1937) útsetti 1907, ári fyrir Gæsamömmusvítuna. Þetta voru ör- stutt lög, nánast aðeins míníatúrur, en fersk og heillandi. Eftir Gabriel Fauré (1845–1924) voru flutt Nell og Automne úr Op. 18 og hið íðiltæra Calir de lune, nr. 2 úr Op. 46. Öllu viðameiri lög og eftir einhvern fág- aðasta söngvasmið Frakka sem ekki er allur þar sem hann er séður. Xu Wen, sem eins og nafnið bendir til er af kínversku bergi brotin, söng lög beggja höfunda með fíngerðri og vel skólaðri sópranrödd, þó að raddbeit- ingin væri líkt og hjá svo mörgum óp- erusöngvurum fullmikið eins að mín- um smekk. Framburðurinn var hins vegar furðuskýr af háum sópran að vera, nema hvað frönsku sérhljóðin voru sum ekki nægilega aðskilin. Pí- anóleikur Önnu Rúnar Atladóttur var hér sem síðar bráðskýr, fylginn til fyrirmyndar og tillitssamur í hví- vetna. Freistandi hefði kannski verið að æskja ögn djarfari dýnamískra til- þrifa á köflum, einkum í seinni hluta dagskrár, þó ekki væri nema á örmjó- um „toppum“, en aftur á móti má til sanns vegar færa að hinn litli kammersalur myndlistarsafnsins veitir að jafnaði lítið svigrúm til slíks. Betlikerling Kaldalóns og Leitin eftir sama höfund buðu upp á harm- þrungnari paþos sem þær Xu skiluðu með hæfilegri dramatík og eftirtekt- arvert skýrum íslenzkum texta. Há- punkti kvöldsins hvað innileika varð- ar náðist þó í næsta atriði, tveimur kínverskum þjóðlögum frá héruðun- um Ynnan og Qinghai (útsetjara var ekki getið), þ.e.a.s. Litli lækurinn og Árstíðirnar fjórar – með íslenzkum þýðingum söngkonunnar í tónleika- skrá – þar sem pentatónísk kínversk náttúrulýríkin streymdi óþvingað af vörum og fingrum svo unun var á að hlýða. Aría Líúar ambáttar úr Turandot Puccinis, Tu che di gel sei cinta, var sungin af tæknilegu öryggi og glæsi- legu tenútó-úthaldi. Í Caro nome Gildu úr Rigoletto Verdis virtist ör- yggið nokkru minna hvað inntónun og flúr varðar, en var samt tekið með kostum og kynjum. Loks var hin (miðað við harmrænt viðfangsefnið) furðuléttúðuga aría Juliette úr Róm- eó og Júlíu Gounods frá 1867, Ah! Je veux vivre, sem Xu Wen söng með töluverðum tilþrifum, enda þótt rödd- in mætti vera aðeins þéttari og fyllri á neðra sviði. Í uppklappi fluttu stöll- urnar ónafngreint en fallegt kín- verskt þjóðlag að undangengnum fjallferskum þokka, þar sem píanist- inn var kominn yfir á fiðlu, og er Anna Rún líklega ein um slíka fjölbreytni í íslenzkri undirleikarastétt. TÓNLIST Sigurjónssafn Kínversk þjóðlög og sönglög og aríur eftir Ravel, Fauré, Sigvalda Kaldalóns, Pucc- ini, Verdi og Gounod. Xu Wen sópran og Anna Rún Atladóttir, píanó. Þriðjudaginn 20. ágúst kl. 20:30 EINSÖNGSTÓNLEIKAR Fjallfersk kínversk náttúru- lýrík Ríkarður Ö. Pálsson SÍÐASTLIÐINN mánudag hófst söngnámskeið í Söngskólanum í Reykjavík undir handleiðslu banda- rísku mezzó-sópransöngkonunnar Lauru Brooks Rice, fyrir söngvara og lengra komna nemendur skólans. Rice er prófessor í söng og óperu- túlkun við Westminster Choir Col- lege í Princeton í Bandaríkjunum, sem er einn virtasti tónlistarháskóli Bandaríkjanna. Hún er jafnframt yf- irmaður söngdeildarinnar þar. Nám- skeiðið fer fram í sal Söngskólans og taka jafnt útskrifaðir söngvarar sem upprennandi söngfólk sem enn er í námi þátt í námskeiðinu, sem sam- anstendur af söngtímum án áheyrn- ar, söngtímum með áheyrn og hóp- tímum, eða „Master-class“. Nemendur hafa náð mjög langt Í samtali við Morgunblaðið segir Rice íslenska söngnemendur sína vera mikið hæfileikafólk. „Það er mjög gaman að vinna með íslenskum söngvurum,“ segir hún. „Að mestu höfum við verið að syngja klassísk verk úr óperum og óratóríum á nám- skeiðinu. Ég fer með þeim yfir allt það sem lýtur að söngtækni, ekki bara í sambandi við túlkun, heldur einnig öndun, beitingu raddarinnar, slökun og þar fram eftir götum. Ann- ars finnst mér þessir íslensku nem- endur mínir vera mjög vel þjálfaðir í söng og raddirnar mjög góðar. Það er því ekki eins og ég sé að segja þeim nokkuð sem þau vita ekki fyrir, öllu fremur að staðfesta það sem þau hafa lært.“ Rice kennir reglulega sjálf á tveimur stöðum, í Westminster ann- ars vegar en hins vegar rekur hún stúdíó í New York þar sem hún held- ur einkatíma. Nemendur hennar hafa margir hverjir náð mjög langt í bandarískum söngheimi og syngja í stærstu óperuhúsunum bæði vestan- hafs sem og í Evrópu, til dæmis Met- ropolitan-óperunni, New York City- óperunni og Mozarteum í Salzburg, svo nokkuð sé nefnt. Segir það sitt um gildi þess fyrir íslenska nemend- ur að njóta hæfileika Rice. „Nem- endur mínir í Westminster eru enn í námi og eru því á leiðinni til frama í söngheiminum. Margir af nemend- um mínum í New York hafa hins veg- ar þegar náð mjög langt, það er satt,“ segir hún. Prófessor við virtan skóla Laura Brooks Rice hefur einnig getið sér gott orð í tónlistarheimin- um sem söngkona og sungið við helstu óperuhús Bandaríkjanna, m.a. Metropolitan-óperuna og San Francisco-óperuna og hefur unnið með stjórnendum á borð við Kurt Masur og Robert Shaw. Hún er hingað komin fyrir tilstilli Mar- grétar Bóasdóttur, söngkonu og kennara við Söngskólann í Reykja- vík. Hún segir það mikla gæfu fyrir íslenska söngvara og nemendur að njóta tilsagnar hennar. „Ég dvaldi í námsleyfi við Westminster Choir College í vor sem leið og sat tíma hjá Lauru og fleiri prófessorum. Söng- deild þessa skóla er mjög virt, þó að kórdeildin sé sú deild sem skólinn er frægastur fyrir, og mér finnst mjög jákvætt að geta hafa komið á nokkru samstarfi milli Íslands og þessa virta skóla,“ segir Margrét. Bandaríska söngkonan Laura Brooks Rice með söngnámskeið hér á landi Íslenskir söng- nemendur vel þjálfaðir Morgunblaðið/Árni Sæberg Laura Brooks Rice, mezzósópransöngkona og prófessor í söng, leið- beinir nemanda á námskeiðinu í Söngskólanum í Reykjavík. Í fegurð hafsins er með ljóðum Jó- hanns Guðna Reynissonar. Þetta er fyrsta ljóðabók Jóhanns Guðna en hann hefur m.a. starfað sem lögreglu- maður, blaðamað- ur, kennari og upp- lýsingastjóri og er nýráðinn sveit- arstjóri í Þingeyjarsveit. Ljóð eftir hann hafa m.a. birst í Lesbók Morg- unblaðsins. Jóhann Guðni sækir efnivið sinn víða en einkum þó í náttúruna og mannlífið. Ljóðin eru ýmist ort í hefð- bundnu formi eða óhefðbundnu. Bók- in er gefin út af höfundi, prentuð í 300 eintökum hjá Prentsmiðju Hafn- arfjarðar og fæst hjá höfundi og í eft- irtöldum verslunum í Hafnarfirði: Fjarðarkaupum, Bókabúð Böðvars við Reykjavíkurveg og Pennanum- Eymundsson við Strandgötu. Ljóð Listasafn Reykjavíkur - Kjarvalsstöðum Sumarsýningunni Maður og borg lýkur á sunnudag og kl. 15 þann dag verður leiðsögn um sýn- inguna. Megin uppistaða sýningarinnar eru fígúratív verk í ýmsum miðl- um úr eigu safnsins þar sem við- fangsefnið er maðurinn í borginni. Verkin á sýningunni eru eftir tæplega fimmtíu myndlistarmenn, þau elstu eru frá árinu 1930 og þau yngstu frá þessu ári en þar má meðal annars nefna verk sem safnið festi nýlega kaup á m.a. eftir Bjargeyju Ólafsdóttur og Kristján Eldjárn, Ilmi Stef- ánsdóttur, Jóhann Torfason, Sæ- rúnu Stefánsdóttur og Þórodd Bjarnason. Á haustmánuðum verður hönn- un gert hátt undir höfði á Kjar- valsstöðum en laugardaginn 31. ágúst verður þar opnuð í miðrým- inu sýningin Úti er ekki inni – inni er ekki úti þar sem sýnd verða líkön og ljósmyndir arki- tektanna, Jórunnar Ragn- arsdóttur, Arno Lederer og Marc Oei. Um miðjan septmeber verður síðan opnuð í vestursalnum sýn- ingin Arne Jacobsen – aldarminn- ing. Norræna húsið Sumarsýningu Norræna húss- ins, List með lyst – yndi fyrir aug- að og borðið, lýkur á sunnudag. Á sýningunni má sjá um fimmtíu málverk, grafískar teikningar og nokkurn fjölda listiðnaðarmuna úr söfnum Nationalmuseet og Mod- erna Museet í Svíþjóð ásamt upp- setningar eftir Peter Johansson, Roland Hæberlein og Konstauto- maten eða Listsjálfsalan. Þemað er matur og máltíðir allt frá 16. öld til okkar tíma. Á íslenska safnadeginum, 14. júlí, var brugðið á leik og gestum boðinn frír aðgangur gegn því að þeir kæmu með uppskrift að sín- um uppáhaldsrétti sem rætur á að rekja til norrænna matarhefða. Nú má sjá safn uppskrifta í þar til gerðri uppskriftabók. Leikurinn verður endurtekinn síðustu sýn- ingarhelgina og gestir því hvattir til að leggja sitt að mörkum til að fylla uppskriftabók Norræna húss- ins. Sýningarsalurinn er opinn þriðjud. til sunnud. frá kl. 12–17. Listasafn ASÍ Ásmundarsal Sýningunni Gler þræðir lýkur á sunnudag. Þar sýna þau Sigrún Ó. Einarsdóttir og Søren S. Larsen glerverk en Ólöf Einarsdóttir textílverk.Sýningin er opin frá kl. 14 til 18. Olíuverk eftir Willem Buytewech er á sýningunni List með Lyst. Matar- uppskrift- ir og sýn- ingarlok

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.