Morgunblaðið - 15.09.2002, Blaðsíða 1
MORGUNBLAÐIÐ 15. SEPTEMBER 2002
216. TBL. 90. ÁRG. SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
Ólafur K.
Magn-
ússon var
ljósmynd-
ari Morg-
unblaðsins
í nær hálfa
öld, frá
1947 til
1996. Hann var fyrsti Íslend-
ingurinn sem nam blaða-
ljósmyndun og helgaði sig
starfinu óskiptur. Framan af var
hann eini fastráðni ljósmynd-
arinn á íslensku dagblaði og í
fimm áratugi var hann að skrá
samtíma sinn og viðburði þjóð-
lífsins. Ólafur var afar snjall
ljósmyndari, eins og kynnast
má í viðamiklu ljósmyndasafni
h h f ú ið t
Ljósmyndari þjóðarinnar
ferðalögDraugahótel bílarÖflugur Porsche börnBarnaútvarp bíóMynd um Evu Cassidy?
Hvítir reitir og svartir
Það stendur yfir skákstríð
... það gleymist
að skákin er
hin eina sanna
þjóðaríþrótt
Íslendinga
Prentsmiðja
Morgunblaðsins
Sunnudagur
15. september 2002
B
Baráttan
um vatnið 10
Skoðanamótunin
eins og
kvikasilfur
14
Fáar hindranir
sjáanlegar
í veginum 16
YFIRVÖLD í Pakistan staðfestu í gær að þau væru
með í haldi um tug útlendinga sem handteknir voru
í víðtækum lögregluaðgerðum í Karachi í vikunni.
Þar á meðal væru tveir menn
sem grunaðir væru um að vera
í forystusveit al-Qaeda hryðju-
verkasamtakanna. Bandarísk
stjórnvöld fullyrða að annar
þeirra sé Ramzi Binalshibh,
sem talinn er hafa verið lykil-
maður við undirbúning flug-
ránsárásanna í Bandaríkjunum
11. september í fyrra.
Í tilkynningu frá pakist-
önskum stjórnvöldum segir, að
í áhlaupum leyniþjónustumanna sl. mánudagskvöld
og á miðvikudagsmorgun hafi um tugur útlendinga
verið handtekinn. Til skotbardaga kom við hand-
tökurnar og fengu tveir hinna grunuðu banvæn
skotsár. „Tveir hinna handteknu eru grunaðir um
að vera háttsettir al-Qaeda-liðar og er verið að
ganga úr skugga um hverjir þeir séu,“ segir í til-
kynningunni.
Moinuddin Haider, upplýsingamálaráðherra
Pakistans, vildi ekki staðfesta að Binalshibh væri
meðal hinna handteknu. En þegar fréttamenn
gengu á hann og vitnuðu til fullyrðinga í fjölmiðlum
vestanhafs að Binalshibh væri í haldi, svaraði hann:
„Augljóslega, ef þeir hafa þessar upplýsingar ættu
þær að vera réttar.“ Bandarískir stjórnarerindrek-
ar í Washington sögðu að Binalshibh hefði verið
tekinn höndum í sameiginlegri aðgerð bandarískra
og pakistanskra leyniþjónustumanna.
Pervez Musharraf, forseti Pakistans sem er nú
staddur á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í
New York, tjáði CNN-sjónvarpsstöðinni á föstudag
að einn Egypti, einn Sádi og átta Jemenar hefðu
verið handteknir í aðgerðunum.
John Ashcroft, dómsmálaráðherra Bandaríkj-
anna, átti í gær fund í Kaupmannahöfn með starfs-
systkinum sínum frá Evrópusambandslöndunum.
Lýstu ráðherrarnir samstöðu allra landanna í bar-
áttunni gegn hryðjuverkum og bjartsýni á að takast
myndi innan skamms að gera samninga milli
Bandaríkjanna og ESB-ríkjanna um gagnkvæma
aðstoð í dómsmálum og framsal á sakamönnum.
Þjóðverjar vilja fá Binalshibh framseldan
Otto Schily, innanríkisráðherra Þýzkalands,
sagði að þýzk stjórnvöld myndu fara fram á framsal
Binalshibhs, þar sem hann var meðleigjandi flug-
ræningjans Mohammeds Atta í Hamborg. Þeir
tveir eru taldir hafa verið aðalskipuleggjendur flug-
ránsárásanna 11. september í fyrra og að hafa stýrt
hópi al-Qaeda-liða í Þýzkalandi. Þýzki ríkissaksókn-
arinn Kay Nehm hefur sagt að til hafi staðið að
Binalshibh flygdi fjórðu þotunni sem rænt var.
Tveir lykilmenn al-
Qaeda í haldi í Pakistan
Karachi. AP.
Moinuddin
Haider
Bandaríkin
Botnfisk-
veiðar
bannaðar
Portland. AP.
Fiskveiðistjórnunarráð ríkj-
anna á Kyrrahafsströnd
Bandaríkjanna hefur ákveðið
að banna botnfiskveiðar á
næsta fiskveiðiári á stærstum
hluta miðanna innan 200 sjó-
mílna lögsögunnar allt frá
landamærunum að Kanada
suður til Mexíkó.
Er ráðið með þessu að
bregðast við hruni í nytja-
stofnum botnfisktegunda á
miðunum. Er bannið undan-
fari nýs fiskveiðistjórnunar-
kerfis, sem byggist á hömlum
á því á hve miklu dýpi veiðar
eru leyfðar frekar en afla-
marki. Frá því í júní sl. hefur
neyðarbann verið í gildi við
botnfiskveiðum á sömu mið-
um.
Eru þessar fréttir mikið
áfall fyrir alla útgerð frá vest-
urströnd Bandaríkjanna, en
hún skilaði um einum millj-
arði Bandaríkjadala, um 90
milljörðum króna, inn í hag-
kerfið í fyrra.
SJÁLFBOÐALIÐAR og björgunarsveitarmenn að björgunarstörfum í
bænum El Porvenir um 170 km vestur af Gvatemalaborg þar sem jarð-
skriða gróf á föstudag um 30 hús í aur. Að minnsta kosti 14 fórust og nokk-
urra var saknað, að því er almannavarnayfirvöld í Gvatemala greindu frá.
AP
Aurskriða grefur bæ í Gvatemala
Í SÍÐUSTU skoðanakönnununum
fyrir þingkosningarnar sem fram
fara í Svíþjóð í dag benti flest til
þess að Göran Persson forsætisráð-
herra og Jafnað-
armannflokkur
hans myndu
halda sínu.
Niðurstöður
fjögurra skoð-
anakannana voru
birtar í gær og
sýndu þær allar
jafnaðarmenn og
bandalagsflokka
þeirra á vinstrivængnum, Vinstri-
flokkinn og Græningja, samtals
með lítils háttar forskot á keppi-
nautana, stjórnarandstöðuflokkana
hægra megin við miðju. Mældist
fylgið við vinstriflokkana á bilinu
50,8 og 51,8 prósentustig, en við
borgaraflokkana á bilinu 46,1 til
47,5%. Jafnaðarmannaflokkurinn
sjálfur mælist með um 37% fylgi,
sem er það minnsta í 80 ára sögu
hans þótt hann haldi þar með stöðu
sinni sem stærsti flokkurinn á
þingi.
Flestir stjórnmálaskýrendur í
Svíþjóð spá því að niðurstaðan
verði sú að framhald verði á því fyr-
irkomulagi sem verið hefur á lands-
stjórninni síðasta kjörtímabil, þar
sem jafnaðarmenn mynda minni-
hlutastjórn studda af þingmönnum
róttæku vinstriflokkanna.
Persson
spáð sigri
Stokkhólmi. AFP.
Göran Persson