Morgunblaðið - 15.09.2002, Page 32

Morgunblaðið - 15.09.2002, Page 32
MINNINGAR 32 SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Útfararþjónustan ehf. Stofnuð 1990 Rúnar Geirmundsson útfararstjóri Önnumst allt er lýtur að útför. Hvítar kistur - furukistur - eikarkistur. Áratuga reynsla. Símar 567 9110 & 893 8638 utfarir.is Legsteinar Vönduð íslensk framleiðsla Fáið sendan myndalista Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík sími: 587 1960, fax: 587 1986 MOSAIK  Marmari Granít Blágrýti Gabbró Líparít                                  !"  # "$%                                             !      "#   "$%% &      '    (          !"#!!   ! ""$ %   "#!! & ' "#!!  "() ""$     (                                         ! "#$%&'(!))%  % &( (  % *+% % *+% (!))% %&% &( !))% ),- .% #/  0((  0( &( !))% $ %  %((  % +% ## % % +% "                             !"   # $%   $&'' (     )    * # $+   $,'' -                 .# #    / .  0     * 1 &2'% 3&$4  ! "#$%% %% &#'() * &% + ! "#$%%  ! *  '() ! "#$%%  (%% &%! "#$%% , %( !&-! ( *  -! "#* &( $.$%% & +  "#$%% #  ' ') !*!' ' ') -                                                   !"#  $     %       & !'# # !(#()#    !!   "   # !$%!&$$% & ' % % (!    )&!!  * !+ %!$,!&$$%  !&$$% % !&$$%  % & !!  + -%  !&$$% .  & !!   //!$.!&$$%  ! & !&$$%    !!   ! # %!&$$% # !$% # !$%!!  !!$% 0 1 „Mamma, nú er ég búin að missa besta vininn minn, hann afa.“ Þetta voru fyrstu viðbrögðin hjá Sindra þegar ég sagði honum að afi væri dáinn, en pabbi var ekki bara afi Sindra heldur líka besti vinur sem hægt var að hugsa sér þó að 65 ár hafi verið á milli þeirra. Þeir brölluðu ýmislegt saman. Þeir voru KRISTINN BERG- MANN LÁRUSSON ✝ Kristinn Berg-mann Lárusson fæddist á Flögu í Vatnsdal fimmtu- daginn 15. septem- ber 1927. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi mánudag- inn 24. júní síðastlið- inn og var útför hans gerð frá Safnaðar- heimilinu í Sand- gerði 29. júní. t.d. duglegir að fara saman í göngutúra og oftar en ekki var farið á bryggjuna og í fjöruna. Þar var skrifað í sand- inn, skoðaðir kuðung- ar, skeljar, krabbar og margt annað sem hafði rekið upp í fjöru. Alltaf var hægt að finna eitt- hvað áhugavert sem var síðan farið með heim í nánari skoðun. Bílskúrinn hans afa var þó aðal-leikvöllurinn, þar gátu þeir dundað við eitt og annað kvöld eftir kvöld. Eins og börnum eru einum lagið geta þau spurt endalausra spurn- inga sem erfitt er að svara þannig að ungt barn skilji. Oft stóð á svari frá mér, en Sindri var fljótur að redda málunum, ég fer bara til afa, hann veit þetta örugglega því það var fátt sem afi vissi ekki svarið við. Þeir spjölluðu mikið saman um gamla tímann þar sem pabbi sagði honum sögur frá æskuárunum í Kálfsham- arsvík, veiðiferðum á trillunni sinni og margt fleira. Pabbi var vanur að koma yfir til okkar á laugardags- og sunnudags- morgnum. Þá laumaði hann súkku- laðimola undir sængina í lófann á Sindra og síðan horfðu þeir saman á teiknimyndir í sjónvarpinu.Alltaf var pabbi glaður ef vel gekk hjá Sindra. Hann fylgdist vel með skóla- göngu hans og hvatti hann áfram þegar allt virtist komið í hnút. Sindri er ákveðin í að reyna sitt besta fyrir afa sinn og ömmu. Já svona var afi alltaf vakin og sofinn yfir drengnum sínum, en það var fátt sem hann vildi ekki fyrir hann gera. Nú er afi fal- legur engill hjá Guði og söknum við hans mikið. Elsku mamma mín og amma, missirinn er mikill hjá þér. Þið pabbi voruð búinn að eiga 50 ár saman. Guð veri með þér. Við elskum þig. Hjördís og Sindri. Elsku góði afi okkar. Í dag, 15. september, hefðir þú orðið 75 ára. Ekki áttum við von á því þegar við kvöddum þig 11. júní síðastliðinn þegar við fórum í frí til Spánar að þetta væri í síðasta sinn sem við myndum sjá þig. Þegar við komum aftur úr fríinu var enginn afi til að taka á móti okk- ur, faðma okkur og kyssa á kinnina. Við munum eftir því hvað þú varst alltaf glaður þegar við komum í heimsókn. Við gleymum aldrei stundunum með þér í bílskúrnum og þegar þú komst heim úr vinnunni í hádeginu, fékkst þér að borða, fórst svo inn í sjónvarpsherbergi, last Moggann og steinsofnaðir svo. Við elskum þig og munum alltaf muna eftir þér og þú verður alltaf stór hluti í lífi okkar. Þín barnabörn Snæfríður, Hlynur Orri og Hafþór Ingi. ✝ Gísli KristjánLíndal Karlsson fæddist í Reykjavík 3. apríl 1929. Hann andaðist á Landspít- alanum í Fossvogi 7. september síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Karl Gíslason verkamaður, f. 15. júlí 1897, d. 26. apríl 1975, og Guðríður Lilja Sumarrós Krist- jánsdóttir, f. 20. júní 1903, d. 23. sept. 1952. Systkini Gísla eru: Petrea Kristín Líndal, f. 1925, Gísli Líndal, f. 1926 d. 1927, Sesselja Jóna Líndal, f. 1927, Guðmundur Ragnar Lín- dal, f. 1930, Matthildur Líndal, f. 1931, d. 2001, Sigurlaug Ragn- hildur Líndal, f. 1932, Lilja, f. 1934, dó nýfædd, og Karl Emil Líndal, f. 1937, d. 1939. Hinn 22. mars 1952 kvæntist Gísli Guðmundu Sigríði Eiríks- dóttur frá Eyrarbakka, f. 3. sept. 1929. Foreldrar hennar voru Ei- ríkur Kristjánsson, f. 11. mars 1889, d. 16. júní 1949, og Sigríður Guðmundsdóttir, f. 23. júlí 1903, d. 30. mars 1959. Börn Gísla og Guðmundu eru: 1) Karl, f. 20. júní 1950, maki Sigur- björg Sigurbjörns- dóttir, f. 26. júlí 1951, og eiga þau þrjár dætur og þrjú barnabörn. 2) Eirík- ur, f. 9. júlí 1954, d. 2. júlí 1956. 3) Sig- ríður, f. 16. apríl 1957, maki Stefán Örn Magnússon, f. 8. desember 1944, og eiga þau tvo syni. 4) Súsanna, f. 12. ágúst 1962, maki Einar Gunnarsson, f. 17. janúar 1957, og eiga þau tvær dætur. Gísli var á sjó fram til ársins 1956 er hann hóf störf hjá Olíufé- laginu hf., fyrst í Örfirisey og síð- an á Gelgjutanga. Hann hætti störfum árið 1998 vegna aldurs. Gísli og Guðmunda bjuggu sín fyrstu búskaparár á Seltjarnar- nesi, fyrst á Minnibakka og síðan á Eiði II en fluttu síðan á Njáls- götu 20. Þar bjuggu þau í hartnær þrjá áratugi eða þangað til þau fluttust í Kópavog. Útför Gísla fer fram frá Hjalla- kirkju á morgun, mánudaginn 16. september, og hefst athöfnin klukkan 13.30. Okkur langar að minnast elsku afa okkar. Þó að afi hafi verið lasinn ínokkurn tíma bjóst enginn við því að hann færi svona snöggt. Afi sat aldrei auðum höndum. Hann átti mörg áhugamál. Fyrir ut- an að safna pennum voru það við- gerðir og lagfæringar ýmiss konar sem áttu hug hans allan. Afi var mjög stoltur af bílskúrnum sínum enda var þar allt í röð og reglu og aldrei sást rykkorn á neinu. Hvort sem við vorum með bilað hjól, dúkkuvagn eða tjald, svo fátt eitt sé nefnt, þá lagaði afi það því hann var mjög handlaginn. Það eru margar minningar sem koma upp í hugann. Allir sunnudags- bíltúrarnir niður á höfn með ömmu og afa að skoða skipin með ís og til- heyrandi og því fylgdi líka bílferð út í Örfirisey en þar fengum við að taka í stýrið þótt við værum ekki há í loft- inu. Ferðalögin á „vaskabílnum“ og svo auðvitað veiðiferðirnar sem þeir nafnar fóru saman í Veiðivötn sem eru ógleymanlegar. Svo mátti alltaf stíla inn á það að hitta ömmu og afa í Kolaportinu um helgar. Ef eitthvert okkar fór þangað voru þau þar og afi að kaupa penna í safnið sitt. Svo má ekki gleyma „nammi“- skápnum hans afa, þar vantaði sko ekki á birgðirnar. Afi var mikil barnagæla og hvort sem börnin voru skyld honum eður ei löðuðust þau að honum enda var hann mjög rólegur og þægilegur en stríðinn. Elsku afi, við eigum eftir að sakna þín, þú gafst okkur mikið og varst svo blíður og góður, við þökkum Guði fyrir að hafa fengið þig sem afa og við munum varðveita minningarnar um þig og geyma þær í hjarta okkar. Elsku amma, megi góður Guð styrkja þig í sorginni. Stundin líður tíminn tekur toll af öllu hér. Sviplegt brotthvarf söknuð vekur, sorg í hjarta mér. Þó veitir yl í veröld kaldri, vermir ætíð mig að hafa þó á unga aldri eignast vin sem þig. Þú varst ljós á villuvegi, viti á minni leið, þú varst skin á dökkum degi dagleið þín var greið. Þú barst tryggð í traustri hendi, tárin straukst af kinn, þér ég mínar þakkir sendi, þú varst afi minn. (Hákon Aðalsteinsson.) Megi góður Guð geyma þig, elsku afi, við elskum þig. Þín barnabörn Sigríður, Heiðrún, Gísli, Unnur, Erna, Jónína og Arnar Þór. GÍSLI KRISTJÁN LÍNDAL KARLSSON

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.