Morgunblaðið - 15.09.2002, Page 49
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 2002 49
Á NÍUNDA áratugnum voru áber-
andi gamanmyndir með ívafi róman-
tíkur og glæpaspennu. Mætti segja
að tónninn hafi verið gefið á áratugn-
um á undan eða jafnvel enn fyrr, fyrst
í félagagríni á borð við Butch Cassidy
& the Sundance Kid en svo í léttleik-
andi rómönum Redfords og Streis-
ands. Tónninn að þessum grín-
spennumyndum níunda áratugarins
var þó kannski fyrst fyrir alvöru gef-
inn með óvæntum
vinsældum Foul Play
með Saturday Night
Live-stjörnunni
Chevy Chase og
ljóskunni Goldie
Hawn en sú mynd
fyllti stóra salinn í
Háskólabíói sýningu
eftir sýningu svo
kvöldum skipti undir
lok áratugarins átt-
unda. Fleiri slíkar
myndir fylgdu því að
sjálfsögðu og þóttu
enda einkar fýsileg-
ur kostur á þessu tímaskeiði yfir-
borðsmennsku og prjáls. Disney-
samsteypan framleiddi hverja slíka af
annarri undir Touchstone-merki
sínu, með misjafnlega hæfileikaríkum
skemmtikröftum í aðalhlutverkum á
borð við Bette Midler, Goldie Hawn,
Shelley Long, Ted Danson, Jim Be-
lushi og svo að sjálfsögðu hersingunni
allri úr Saturday Night Live-þáttun-
um. Þótt sjaldnast mætti greina
sjarmann töldu menn sig vera að gera
myndir í anda hinna gömlu róman-
tísku gamanmynda 4., 5. og 6. áratug-
arins.
Harvard-menntaði Hudlin
Það er ekki að ástæðulausu sem
þessar misjafnlega vel liðnu myndir
eru rifjaðar upp því þær komu mjög
ljóslifandi upp í huga undirritaðs er
hann sá Serving Sara, nýjustu mynd
leikstjórans þeldökka Reginalds
Hudlins og svipar reyndar hvað mest
til Foul Play einmitt þar sem aðal-
karlhetjan er myndalegur en lánlaus
bragðarefur og kvenhetjan kyn-
bomba sem notað hefur útlitið sér til
framdráttar en lent fyrir vikið í
klandri. Í Serving Sara er Matthew
Perry (Chandler úr Vinum) bragða-
refurinn og Elizabeth Hurley (breska
fyrirsætan og fyrrum unnusta Hughs
Grants) kynbomban. Myndin markar
um margt þáttaskil á ferli hins Har-
vard-menntaða Hudlins, ekki fyrir
það að vera gamanmynd, því það hef-
ur verið hans sérdeild frá því hann
steig fram á sjónarsviðið 1990 með
unglingamyndina House Party. Nei,
myndin er frávik frá eldri myndum
Hudlins að því leyti að hún er sú
fyrsta er skartar
hvítum leikurum í
aðalhlutverkum.
House Party er af
mörgum talin tíma-
mótaverk, ekki í
þeim skilningi að
hún sé í hópi bestu
mynda, heldur þyk-
ir velgengni hennar
hafa opnað dyrnar á
Hollywood upp á
gátt fyrir myndum
er eingöngu skört-
uðu svörtum leikur-
um í helstu hlutverk-
um. Hinn ungi svarti Hudlin varð
heitasta heitt og því vitanlega falið að
leikstýra þáverandi skærustu svörtu
stjörnunni, Eddie Murphy, í Boomer-
ang, sem einnig malaði gull en féll
ekki í kramið hjá gagnrýnendum.
Sama gilti um næstu mynd, The
Great White Hype, hnefaleikamynd
skrifuð af sportídjótinu Ron Shelton
og skartaði Samuel L. Jackson og
Jeff Goldblum. Tók ágæta summu í
kassann en þótti mislukkuð engu að
síður. The Ladies Man var sum-
partinn afturhvarf til rótanna. Þessi
gamanmynd, byggð á persónu úr Sat-
urday Night Live, var ódýr í fram-
leiðslu og skilaði enda dágóðum hagn-
aði.
Serving Sara fjallar um Joe Tyler
(Perry) sem trúlega gegnir einu öm-
urlegasta starfi sem til er. Hann er
ómerkilegur stefnuvottur og ekki nóg
með það, fórnarlömbin eru harðsvír-
aðir mafíósar og ríkisbubbar í skiln-
aðardeilum. Þegar starfið hangir á
bláþræði fær hann það verk að af-
henda eiginkonu (Hurley) moldríks
búgarðseiganda skilnaðarskjöl. Auð-
vitað gengur það ekki áfallalaust fyrir
sig og eftir að hafa kynnst ákveða Ty-
ler og eiginkonan að snúa bökum
saman og reyna að hafa féð af eig-
inmanninum.
„Ég rambaði á það fyrir tilviljun,“
skýrir Hudlin aðspurður hvað kom til
að hann var fenginn til að leikstýra
myndinni. „Það var á fundi með fram-
leiðendum myndarinnar vegna ann-
arrar myndar þegar þeir fóru að
segja mér frá þessu handriti um lán-
lausan stefnuvott. Mér þótti það
skondin hugmynd að rómantískri
gamanmynd og fór að skipta mér af
handritinu áður en ég hafði svo mikið
sem lesið það. Þeim leist svo vel á
hugmyndir mínar að þeir heimtuðu
að ég gerði bara myndina.“
– Það kemur eiginlega á óvart að
ekki hafi verið gerð grínmynd fyrr
um stefnuvotta. Þetta er ansi fárán-
legt starf.
„Algjörlega það sem ég hugsaði
þegar ég heyrði hugmyndina fyrst.
Ég er bara feginn að enginn hafði
fattað það áður. Þetta starf býður
sannarlega upp á skondnar aðstæður,
farsakenndar senur, að þessir gaurar
séu að stefna lífi sínu í hættu fyrir
svona ómerkilegt starf, alltaf með
eitthvert leynimakk, að læðupokast
og þykjast vera einhverjir aðrir en
þeir eru.“
Hnuplarinn Hudlin
– Myndin hefur yfir sér svolítinn
brag sakleysislegra gamanspennu-
mynda níunda áratugarins. Var það
meðvitað markmið?
„Sumpartinn. Myndirnar sem ég
sótti í eru frá ólíkum tímaskeiðum, þ.
á m. níunda áratugnum en ein af þeim
sem ég sá sem fyrirmynd var hin frá-
bæra Midnight Run (e. Martin Brest
með Robert de Niro og Charles
Grodin). Ég stal líka frá myndum á
borð við His Girl Friday (e. Howard
Hawk með Cary Grant) sem er frá
1940. Það eru til svo margar góðar
vegamyndir sem ég sótti í, önnur er It
Happened One Night. Ég reyni
þannig að stela frá öllum tímaskeið-
um, ekki bara einu.“
– Stela?
„Já, jafnt frá öllum,“ segir Hudlin
hlæjandi. „Ég viðurkenni fyrstur
manna að ég stel hugmyndum ann-
arra í gríð og erg og skammast mín
ekkert fyrir það.“
– Hafðirðu þá þegar Perry og Hur-
ley í huga í aðalhlutverkin?
„Einmitt á þessum fundi barst
handritið í tal þegar við skiptust á
skoðunum um hverjir væri góðir og
hverjir lélegir gamanleikarar. Nöfn
þeirra komu ekki upp þá en það gerð-
ist fljótlega,“ segir Hudlin. „Þegar
hugsað er út í það komu fáir til greina
sem henta betur í hlutverkin. Það eru
ekki margir leikarar sem eru nægi-
lega myndarlegir til að geta kysst El-
isabeth Hurley og eru svona fyndnir
og tilbúnir að troða hendinni upp í
afturendann á bola til að kalla fram
hlátur. Hurley er ein af örfáum feg-
urðardísum sem þorir að sleppa fram
af sér beislinu og gera grín að sjálfri
sér.“
– Var það frammistaða Perrys í
Friends sem sannfærði þig?
„Nei, eiginlega frekar The Whole
Nine Yards, þar sem mér þótti hann
stela senunni.“
Gerð myndarinnar tafðist töluvert
vegna persónulegra vandamála sem
Perry átti við að glíma, en þá gekkst
hann undir meðferð vegna óhóflegrar
áfengis- og pilluneyslu. Perry hefur
þakkað Hudlin opinberlega fyrir að
sýna sér mikinn skilning og ómælda
þolinmæði meðan hann var að ná tök-
um á lífi sínu. En hvernig horfði þetta
við Hudlin?
„Við vorum að gera bíómynd og
það er bara grín, stórir strákar að
leika sér. Perry átti hins vegar við
grafalvarlegan vanda að etja sem
miklu mikilvægara var að vinna bug á
en að klára einhverja bíómynd á rétt-
um tíma. Það verður stundum að
setja þennan bransa í rétt samhengi.
Þetta er skemmtanabransi og lífið er
miklu mikilvægara en hann.“
Hreimur Hudlins – og Hurley
– Það er mikið gert úr því að Hur-
ley sé bresk. Hreimur hennar er t.d.
einn af aðalbröndurum myndarinnar.
Var það í handriti eða kom það á
tökustað?
„Það rann upp fyrir okkur á töku-
staðnum hversu fyndið það er að sjá
rammenska konu með kúrekahatt.
Alveg frábær fiskur-á-þurru-landi
brandari sem við nutum að vinna
með.“
– Var hún ekkert viðkvæm fyrir
því?
„Nei, alls ekki því einn hennar
helsti kostur er að hún getur hlegið
að sjálfri sér.“
– Hlóguð þið að hreimnum hennar
bak við tjöldin?
„Já, þangað til hún fór að herma
eftir mínum hreimi (mjög amerískur)
– þá snarhætti ég að gera grín að
hennar hreimi.“
– Þegar þú gerir kvikmynd hef-
urðu þá hugfast að hún höfði ekki síð-
ur til Íslendinga en Bandaríkja-
manna – að hún hafi alþjóðlega
skírskotun?
„Að vissu marki og auðvitað vonar
maður að svo sé en á endanum gerir
maður mynd sem gleður mann sjálf-
an. Svo vonar maður bara að slík
mynd gleðji fleiri.“
– Er ekki erfitt fyrir grínmynda-
leikstjóra að átta sig á hvort hann sé
með fyndna mynd í höndunum? Er
ekki alltaf erfitt að koma sjálfum sér
til að hlæja?
„Ég er alltaf að hlæja að bullinu í
sjálfum mér,“ segir Hudlin og hlær
við. „Sem betur fer virðast fjölmargir
geta hlegið að því sama og ég.“
Hudlin hlær
að sjálfs
sín fyndni
Hann er tilbúinn að troða hendinni upp í afturenda bola og hún er ensk
kona með kúrekahatt – alveg einstakt leikarapar!
Serving Sara heitir nýjasta gamanmyndin með Matthew Perry úr Friends og að þessu sinni leikur Elizabeth
Hurley hin breska á móti honum. Myndin er frumsýnd hérlendis um helgina og af því tilefni ræddi Skarphéðinn
Guðmundsson við leikstjórann Reginald Hudlin um sjálfs hans fyndni, pilluát Perrys og hreim Hurleys.
Reginald Hudlin.