Morgunblaðið - 21.09.2002, Side 4
FRÉTTIR
4 LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FORSÆTISRÁÐHERRAR Ís-
lands og Víetnams undirrituðu í
gær samning milli landanna um
vernd fjárfestinga. Phan Van Kai,
forsætisráðherra Víetnams, er nú í
opinberri heimsókn hér á landi í
boði Davíðs Oddssonar forsætis-
ráðherra. Með heimsókninni nú er
endurgoldin heimsókn Davíðs
Oddssonar til Víetnams í apríl sl.
Þar var m.a. undirritaður tvískött-
unaramningur milli landanna.
Davíð sagði að áhersla hafi verið
lögð á skattamál í viðræðum í vor
en nú væru fjárfestingar efst á
baugi. „Samningurinn ætti að
hjálpa fyrirtækjum beggja landa
til að tengjast sterkum böndum í
ýmsu tilliti. Hann ætti að auka
möguleika íslenskskra og víetnam-
skra fyrirtækja til að vinna sam-
an,“ sagði Davíð Oddsson eftir
undirritun samningsins í gær. For-
sætisráðherra Víetnams sagði
samninginn hafa mikla þýðingu
fyrir bæði löndin. Sagði hann
heimsóknina núna styrkja enn
frekar tengslin milli landanna.
„Löndin hafa bæði mikla mögu-
leika á að styrkja samstarf sitt í
sjávarútvegi. Við þurfum líka á að-
stoð Íslendinga að halda við að-
kynna og framleiða fjölbreyttar af-
urðir fyrir evrópska og
alþjóðamarkaði,“ sagði hann.
Ísland styrkir
þjálfunarverkefni
Davíð sagði í gær að ráðherr-
arnir hefðu m.a. rætt sín á milli
um efnahagsástand beggja ríkja
og tengsl þeirra við önnur lönd. Þá
sagði Davíð að ríkisstjórn Íslands
hefði ákveðið að styrkja verkefni
sem miða að þjálfun í viðskiptum á
vegum Sameinuðu þjóðanna í Víet-
nam. Mun sá stuðningur nema um
3,5 milljónum króna. Þakkaði Phan
Van Kai forsætisráðhera íslensku
þjóðinni fyrir stuðninginn.
Í för með víetnamska forsætis-
ráðherranum eru þrír ráðherrar
úr ríkisstjórn Víetnams, aðstoðar-
ráðherrar, embættismenn og sér-
stök viðskiptanefnd.
Á dagskrá heimsóknarinnar eru
fundir með forsætisráðherra, sjáv-
arútvegsráðherra og iðnaðar- og
viðskiptaráðherra svo og forseta
Íslands. Þá mun víetnamski for-
sætisráðherrann heimsækja Ráð-
hús Reykjavíkur og fyrirtækið
Marel.
Í dag fara forsætisráðherrarnir
auk fylgdarliðs í skoðunarferð um
Suðurland, til Nesjavalla, Þing-
valla og að Gullfossi og Geysi.
Heimsókninni lýkur á morgun.
Í gær var efnt til sérstaks há-
degisverðarfundar sem að stóðu
Útflutningsráð og sjávarútvegs-
ráðuneytið. Þar kynnti Phan Van
Kai land sitt sem samstarfsland í
viðskiptum.
Opinber heimsókn Phan Van Kai, forsætisráðherra Víetnams, stendur yfir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Phan Van Kai, forsætisráðherra Víetnams, og Davíð Oddson forsætisráðherra hittust á fundi í gær.
Samið um vernd fjárfestinga
Miklir mögu-
leikar á að
styrkja samstarf
í sjávarútvegi
UNNIÐ er að undirbúningi viðræðna
Íslands við nokkur ríki, einkum í Asíu
um gerð loftferðasamninga og eru
viðræður þegar hafnar við Japan um
gerð slíks samnings. Martin Eyjólfs-
son, sendiráðunautur í utanríkisráðu-
neytinu, segir að þær hafi þó gengið
nokkuð treglega vegna ákveðinnar
fyrirstöðu í japanska stjórnkerfinu en
menn hafi þó ekki gefið upp alla von
um að samningar geti náðst.
,,Sendiherra okkar í Japan hefur
farið á fundi flugmálayfirvalda þar og
óskað eftir samningaviðræðum. Þeir
gefa hins vegar til kynna að það þurfi
að vera beint flug á milli,“ segir hann,
auk þess sem hann segir Japani vilja
að um tiltekna lágmarks flugumferð
sé að ræða til að samningar verði
gerðir.
,,Þeir hafa ekki hafnað einu eða
neinu en fyrstu viðbrögð bera merki
ákveðinnar tregðu,“segir hann.
Undirbúa viðræður
við fleiri ríki
Eins og greint var frá í Morgun-
blaðinu í sumar hafa forsvarsmenn
flugfélagsins Atlanta óskað eftir að
gert verði átak í að koma á fleiri loft-
ferðasamningum milli Íslands og ann-
arra ríkja, m.a. Malasíu, Suður-Kór-
eu, Hong Kong, Kína og Japans,
vegna verkefna fyrir flugflotann en
Asíuríki heimila oft og tíðum ekki að
flugfélög bjóði þjónustu sína nema
fyrir liggi loftferðasamningur milli
ríkjanna.
Martin segir að haldinn hafi verið
fundur með flugfélögunum til að afla
upplýsinga um hvaða ríki þau vildu að
gerður yrði loftferðasamningur við.
,,Í framhaldinu höfum við kynnt þeim
drög að samningslíkani sem við ger-
um ráð fyrir að senda til kynningar
um leið og óskað verður eftir viðræð-
um. Þessari vinnu lýkur væntanlega
fyrir lok mánaðarins og þá snúum við
okkur að því að reyna að opna samn-
ingaviðræður við ríkin,“ segir Martin.
Viðræður
við Japan
ganga
treglega
Gerð loftferðasamn-
inga við Asíuríki
í undirbúningi
FORSVARSMENN fegurðarsam-
keppninnar Ungfrú Ísland.is munu
ákveða á fimmtudag hvort Eyrún
Steinsson, fulltrúi keppninnar, verði
send til þátttöku í Miss World, sem
halda á í Nígeríu 30. nóvember. For-
svarsmennirnir eru í fríi á Spáni og
koma til landsins á miðvikudag.
Margar erlendar fegurðardrottn-
ingar hafa hætt við þátttöku í keppn-
inni til að mótmæla dauðadómi þar í
landi yfir þrítugri konu, Aminu La-
wal, sem sakfelld var fyrir að eiga
barn utan hjónabands.
Fegurðardrottning Noregs hefur
hætt við þátttöku í keppninni og
sömuleiðis fegurðardrottning
Frakklands, Belgíu, Kenýa, Fíla-
beinsstrandarinnar og Sviss.
Sólveig Zophoníasdóttir er
Ungfrú Ísland.is en hefur ekki
keppnisrétt í Miss World vegna
mynda sem hafa birst af henni í
tímaritinu Playboy. Signý Kristins-
dóttir sem varð í öðru sæti, hefur
heldur ekki keppnisrétt, þar sem
hún á barn. Var því Eyrún Steins-
dóttir valin fulltrúi Íslands.
Mótmæli vegna Miss World í Nígeríu
Ungfrú Ísland.is
ákveður sig í næstu viku
SAMTÖK verslunarinnar telja að
við útboð á tækjum og búnaði í
mötuneyti Orkuveitu Reykjavíkur
hafi bæði lög og almennt viðskipta-
siðferði verið þverbrotin. Orku-
veitunni er gefinn frestur til 27.
september til að koma með skýr-
ingar en að öðrum kosti verði öll
hugsanleg lagaúrræði könnuð, þar
á meðal sá möguleiki að skjóta
málinu til Eftirlitsstofnunar
EFTA.
Áttu lægsta tilboðið
Í mótmælum, sem samtökin
hafa sent Orkuveitunni, kemur
fram að 24. júlí sendu Íslenskir að-
alverktakar útboðsgögn til A.
Karlssonar og tveggja annarra
fyrirtækja. A. Karlsson gerði þeg-
ar alvarlegar athugasemdir við út-
boðslýsingu á tilteknum tækjum
þar sem ljóst væri að útboðslýs-
ingin væri að stórum hluta unnin
orðrétt upp úr vörulista eins fyr-
irtækis sem tók þátt í útboðinu. Í
öðrum tilvikum virtust útboðslýs-
ingar nákvæmlega sniðnar að
ákveðnum vörutegundum þannig
að svo virtist sem þegar hafi verið
ákveðið við hvern ætti að semja.
Þegar tilboðin voru opnuð kom í
ljós að aðaltilboð A. Karlssonar
var lægst. Þar sem ekki tókst að
uppfylla öll tæknileg atriði hafi
verið gert frávikstilboð upp á sömu
fjárhæð, sem hafi verið samþykkt
af umsjónaraðilum útboðsins. Nið-
urstaðan hafi samt sem áður orðið
sú að Orkuveitan hafi gengið að
hæsta tilboðinu án þess að gera
nokkra tilraun til að leita eftir upp-
lýsingum um tilboð A. Karlssonar
en fullyrða megi að fyrirtækið
hefði getað gefið viðhlítandi skýr-
ingar á einstökum atriðum þess.
Þá hafi engin rök verið lögð fram
sem skýra hvers vegna ekki var
gengið til viðræðna við lægstbjóð-
anda. Ennfremur hafi verið sendar
nýjar upplýsingar um tæknileg at-
riði sem hafi borist fjórum dögum
fyrir opnunardag tilboða. Sam-
kvæmt útboðslýsingu hafi nýjar
upplýsingar átt að berast í síðasta
lagi fimm dögum fyrir opnun.
„Vegna þessa stutta frests var
ekki hægt að senda nýjar upplýs-
ingar sem hefðu getað varpað ljósi
á ýmis atriði sem virðast hafa leitt
til þess að tilboði A. Karlssonar
var hafnað,“ segir í mótmælabréf-
inu. Í bréfinu kemur ennfremur
fram að svo virðist sem útboðið
hafi færst yfir til Almennu verk-
fræðistofunnar í miðjum klíðum,
án þess að það hafi verið tilkynnt.
Samtök verslunarinnar telja að lög
og reglugerðir um útboð og inn-
kaup opinberra stofnana hafi verið
brotin og einnig sé ástæða til að
gera sérstaka könnun á því hvort
ákvæði samningsins um Evrópska
efnahagssvæðið hafi verið brotin.
Algjörlega ósammála
gagnrýninni
Guðmundur Þóroddsson, for-
stjóri Orkuveitu Reykjavíkur,
sagðist algjörlega ósammála gagn-
rýninni á útboðið. Ekki hafi verið
hægt að ganga að tilboði þeirra
þar sem á því hefðu verið form-
gallar en þar sem málið væri kom-
ið í kæruferli taldi hann þó óeðli-
legt að tjá sig um einstök atriði
þess. Hann tók sérstaklega fram
að Orkuveitan hefði haft góða
reynslu af viðskiptum við A. Karls-
son.
Samtök verslunarinnar mótmæla útboði fyrir OR
Segja lög og viðskipta-
siðferði þverbrotin