Morgunblaðið - 21.09.2002, Blaðsíða 38
MESSUR
38 LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÁSKIRKJA: Barna- og fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Kór Áskirkju syngur. Organisti
Kristján Sigtryggsson. Árni Bergur Sig-
urbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa kl. 11.
Hljómsveit ungmenna undir stjórn Guð-
mundar Sigurðssonar. Foreldrar hvattir til
þátttöku með börnum sínum. Guðsþjón-
usta kl. 14. Organisti Guðmundur Sigurðs-
son. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Sr. Hjálmar
Jónsson prédikar. Dómkórinn syngur, Mar-
teinn Friðriksson leikur á orgel. Vænst er
þátttöku fermingarbarna og foreldra.
Æðruleysismessa kl. 20. Sr. Jóna Hrönn
Bolladóttir leiðir stundina. Anna S. Helga-
dóttir syngur við undirleik Bræðrabands-
ins.
GRENSÁSKIRKJA: Barnastarf og guðs-
þjónusta kl. 11. Prestur sr. Guðný Hall-
grímsdóttir. Organisti Ástríður Haralds-
dóttir. Ólafur Jóhannsson.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili: Guðs-
þjónusta kl. 10:15. Prestur sr. Baldur Rafn
Sigurðsson. Organisti Kjartan Ólafsson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa og barnastarf
kl. 11. Sr. Sigurður Pálsson. Hópur úr Mót-
ettukór syngur. Organisti Hörður Áskels-
son. Eftir messu kl. 12:30 verður farin
haustlitaferð í Heiðmörk og suður fyrir
Hafnarfjörð á vegum Kvenfélags Hallgríms-
kirkju.
HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Elísabet Gísladóttir djáknanemi og sr.
Helga Soffía Konráðsdóttir. Messa kl. 14.
Organisti Douglas A. Brotchie. Sr. Helga
Soffía Konráðsdóttir. Samkoma eldri borg-
ara.
LANDSPÍTALI, Hringbraut: Guðsþjónusta
kl. 10:30. Sr. Ingileif Malmberg.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands
biskups. Hátíðarmessa og barnastarf í til-
efni af 50 ára afmæli Langholtssafnaðar.
Biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson,
predikar og prófastur, sr. Jón Dalbú Hró-
bjartsson, þjónar fyrir altari ásamt sókn-
arpresti og fleiri prestum. Leikmenn ann-
ast lestur. Kór Langholtskirkju og
Gradualekór Langholtskirkju syngja undir
stjórn Jóns Stefánssonar. Barnastarfið
hefst í kirkjunni þar sem að börnin syngja,
en síðan fara börnin í safnaðarheimilið og
eiga þar stund. Boðið er upp á létta hress-
ingu eftir messuna.
LAUGARNESKIRKJA: Messa og sunnu-
dagaskóli kl. 11. Kór Laugarneskirkju
syngur undir stjórn Gunnars Gunnarssonar
organista. Hildur Eir Bolladóttir og hennar
vösku samstarfsmenn leiða sunnudaga-
skólann. Sr. Bjarni Karlsson þjónar fyrir alt-
ari, Sigurbjörn Þorkelsson er meðhjálpari
og messukaffi Sigríður Finnbogadóttur
kirkjuvarðar bíður svo allra í safnaðarheim-
ilinu á eftir. Guðsþjónusta kl. 13 í Dagvist-
arsalnum Hátúni 12. Gunnar Gunnarsson
leikur, Þorvaldur Halldórsson syngur, Mar-
grét Scheving sálgæsluþjónn og Guðrún K.
Þórsdóttir djákni þjóna ásamt sr. Bjarna
Karlssyni og hópi sjálfboðaliða.
NESKIRKJA: Messa kl. 11. Kór Neskirkju
leiðir safnaðarsöng. Organisti Reynir Jón-
asson. Prestur sr. Örn Bárður Jónsson.
Sunnudagaskólinn og 8-9 ára starf á sama
tíma. Kveðjutónleikar kl. 17. Reynir Jón-
asson organisti Neskirkju leikur verk eftir
ýmsa höfunda á orgel kirkjunnar. Aðgangur
ókeypis.
SELTJARNARNESKIRKJA: Messa kl. 11.
Altarisganga. Sunnudagaskólinn á sama
tíma. Börnin hvött til að mæta. Organisti
Viera Manasek. Prestur sr. Sigurður Grétar
Helgason. Minnum á æskulýðsfélagið kl.
20. Verið öll velkomin.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Guðsþjónusta kl.
14. Barnastarf á sama tíma. Ragnar Krist-
jánsson messugutti prédikar.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Guðsþjónusta kl.
11. Tónlist í umsjón Carls Möller og Önnu
Sigríðar Helgadóttur. Andabrauðið í lok
samveru. Hjörtur Magni Jóhannsson.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Óskar Ingi Ingason þjónar fyrir altari.
Kór Árbæjarkirkju leiðir sönginn undir
stjórn Pavels Manáseks organista. Sunnu-
dagaskóli með Kalla Solla og félögum á
sama tíma í safnaðarheimilinu undir
öruggri stjórn okkar ágætu sunnudaga-
skólakennara. Kaffi og djús fyrir alla að
stundinni lokinni. Prestarnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson messar.
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Organisti Sig-
rún Þórsteinsdóttir. Sr. Gísli Jónasson.
DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 11. Prestur
sr. Gunnar Sigurjónsson. Organisti Bjarni
Þ. Jónatansson. Kór Digraneskirkju B-
hópur. Sunnudagaskóli í kapellu á sama
tíma. Léttur málsverður í safnaðarsal eftir
messu.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústs-
son. Organisti Lenka Mátéová. Sunnu-
dagaskóli á sama tíma í umsjón Elínar El-
ísabetar Jóhannsdóttur. Hægt er að taka
rútu heim að sunnudagaskóla loknum.
GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Anna Sigríður Pálsdóttir prédikar og
þjónar fyrir altari. Organisti Hörður Braga-
son. Kór Grafarvogskirkju syngur. Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Sr. Bjarni Þór Bjarna-
son. Umsjón Sigríður Rún og Sigurvin.
Barnaguðsþjónusta í Engjaskóla kl. 13. Sr.
Bjarni Þór Bjarnason. Umsjón Sigríður Rún
og Sigurvin.
HJALLAKIRKJA: Messa kl. 11. Ferming-
arbörn og foreldrar þeirra sérstaklega vel-
komin. María Guðmundsdóttir syngur ein-
söng. Félagar úr kór kirkjunnar syngja og
leiða safnaðarsöng. Organisti Jón Ólafur
Sigurðsson. Sr. Íris Kristjánsdóttir.
LINDAKIRKJA í Kópavogi: Messa í Linda-
skóla kl. 11. Barnastarf fer fram í kennslu-
stofum meðan á messu stendur. Sr. Guð-
mundur Karl Brynjarsson.
KÓPAVOGSKIRKJA: Barnastarf í safn-
aðarheimilinu Borgum kl. 11. Guðsþjón-
usta kl. 14. Kór Kópavogskirkju syngur og
leiðir safnaðarsöng. Guðrún S. Birgisdóttir
leikur á flautu. Organisti Julian Hewlett. Sr.
Ægir Fr. Sigurgeirsson.
SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Mikill söngur og lífleg fræðsla. Guðsþjón-
usta kl. 14. Sr. Valgeir Ástráðsson prédik-
ar. Organisti er Marteinn H. Friðriksson.
Kvöldguðsþjónusta kl. 20. Sr. Valgeir Ást-
ráðsson prédikar. Þorvaldur Halldórsson
leiðir tónlist. Sóknarprestur.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Morgunguð-
sþjónustan kl. 11. Fræðsla fyrir börn og
fullorðna. Friðrik Schram heldur áfram að
útskýra valda kafla úr Lúkasar guðspjalli.
Samkoma kl. 20. Mikil lofgjörð og fyr-
irbænir. Friðrik Schram prédikar. Allir hjart-
anlega velkomnir.
FRÍKIRKJAN VEGURINN: Bænastund kl.
16. Almenn samkoma kl. 16:30, Högni
Valsson predikar, lofgjörð, fyrirbænir og
mjög skemmtilegt aldursskipt barnastarf á
sama tíma. Athugið breyttan samkomu-
tíma. Allir hjartanlega velkomnir.
FÍLADELFÍA: Laugardag 21. september,
bænastund kl. 20. 12 spora kerfið kl. 21.
Sunnudag 22. september, almenn sam-
koma kl. 16:30. Ræðumaður Vörður L.
Traustason. Lofgjörðarhópur Fíladelfíu
syngur. Miðvikudag 25. september, fjöl-
skyldusamvera kl. 18. Föstudag 27. sept-
ember, unglingasamkoma kl. 20:30. Allir
hjartanlega velkomnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnudag kl.
19.30 bænastund, kl. 20 hjálpræð-
issamkoma. Umsjón majór Inger Dahl.
KEFAS, Vatnsendabletti 601: Samkoma
sunnudag kl. 14. Björg R. Pálsdóttir talar.
Bænastund fyrir samkomu kl. 13.30. Lof-
gjörð og fyrirbænir. Tvískipt barnastarf fyrir
1-5 ára börn og 6-12 ára. Þriðjudag, bæna-
stund kl. 20.30. Miðvikudag, sam-
verustund unga fólksins kl. 20.30. Lof-
gjörð, hugleiðingar, fróðleiksmolar og
vitnisburðir. Allir velkomnir.
KFUM og KFUK v/Holtaveg: Samkoma kl.
17. Yfirskriftin er „Nóttin sem öllu breytti“
og ræðumaður er Kjartan Jónsson. Krist-
ján Sigurðsson flytur upphafsorð. Stutt
bænastund korteri fyrir samkomu. Á sama
tíma verður barnastarf fyrir börn á öllum
aldri. Sýnt verður leikritið Málfríður og
Kuggur í flutningi Stopp-leikhópsins. Það
fjallar um fallega vináttu milli lítils drengs
og gamallar konu. Heitur matur á vægu
verði eftir samkomu. Vaka kl. 20. Mikill
söngur, lofgjörð, fyrirbæn, yndislegt sam-
félag. Allir eru innilega velkomnir.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Reykjavík - Kristskirkja í Landakoti, dóm-
kirkja og basilíka: Sunnudaga hámessa kl.
10.30. Messa á ensku kl. 18. Alla virka
daga messa kl. 18.
Reykjavík - Maríukirkja við Raufarsel:
Sunnudaga messa kl. 11. Laugardaga
messa á ensku kl. 18.30. Virka daga
messa kl. 18.30.
Riftún í Ölfusi: Sunnudaga messa kl. 16.
Miðvikudaga kl. 20.
Hafnarfjörður - Jósefskirkja: Sunnudaga
messa kl. 10.30. Frá júlí til sept.er fellur
messan á miðvikudögum kl. 18.30 niður.
Karmelklaustur: Sunnudaga messa kl.
08.30. Virka daga messa kl. 8.
Keflavík - Barbörukapella: Skólavegi 38:
Sunnudaga messa kl. 14. Fimmtudaga
skriftir kl. 19.30. Bænastund kl. 20.
Stykkishólmur, Austurgötu 7: Alla virka
daga messa kl. 18.30. Sunnudaga messa
kl. 10.
Ísafjörður: Sunnudaga messa kl. 11.
Flateyri: Laugardaga messa kl. 18.
Bolungarvík: Sunnudaga messa kl. 16.
Suðureyri: Sunnudaga messa kl. 19.
Akureyri, Kaþólska kirkjan: Péturskirkja,
Hrafnagilsstræti 2: Laugardaga messa kl.
18. Sunnudaga messa kl. 11.
BRAUTARHOLTSKIRKJA: Guðsþjónusta
sunnudag kl. 11 f.h. Sr. Kristín Þórunn
Tómasdóttir héraðsprestur messar. Gunn-
ar Kristjánsson sóknarprestur.
LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum: Kl. 11
barnaguðsþjónusta. Mikill söngur, sögur
og lofgjörð. Barnafræðararnir. Kl. 14
messa. Prófasturinn dr. Gunnar Krist-
jánsson setur sr. Þorvald Víðisson inn í
embætti prets við Landakirkju. Fjölmenn-
um til að fagna nýjum presti. Kaffi á eftir.
Sr. Kristján Björnsson. Kl. 16 innsetning-
armessunni útvarpað á ÚV FM04. Kl.
20.30 fundur í Æskulýðsfélagi Landa-
kirkju/KFUM&K í safnaðarheimilinu. Hulda
Líney, Ingveldur og leiðtogarnir.
LÁGAFELLSKIRKJA: Guðsþjónusta sunnu-
dag kl. 11. Kirkjukór Lágafellssóknar. Org-
anisti Jónas Þórir. Sunnudagaskólinn hefst
í safnaðarheimilinu, Þverholti 3, sama dag
kl. 13. Jón Þorsteinsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Guðsþjónusta
kl.11. Kirkjukórinn leiðir söng undir stjórn
Antoniu Hevesi. Prestur sr. Þórhallur Heim-
isson. Kaffi og safi í Strandbergi eftir
stundina. Sunnudagaskóli fer fram á sama
tíma í safnaðarheimilinu og Hvaleyr-
arskóla. Krakkar munið kirkjurútuna.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14.
Kirkjukór Víðistaðasóknar syngur undir
stjórn Úlriks Ólasonar. Allir velkomnir.
Sóknarprestur.
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Barnasamkoma
kl. 11. Umsjón hafa Sigríður Kristín, Edda,
Hera og Örn. Góð og uppbyggileg stund fyr-
ir alla fjölskylduna.
VÍDALÍNSKIRKJA: Guðsþjónusta og
sunnudagaskóli kl. 11. Yngri og eldri deild-
ir sunnudagaskólans með í upphafi en
starfa síðan sér. Foreldrar eru hvattir til að
fylgja börnum sínum og efla þau í kirkju-
starfinu. Kirkjukórinn og Jóhann Baldvins-
son organisti leiða safnaðarsönginn. Sr.
Friðrik J. Hjartar þjónar. Allir velkomnir.
Prestarnir.
BESSASTAÐASÓKN: Sunnudagaskóli kl.
11 í sal Álftanesskóla. Ásgeir Páll og Krist-
jana leiða stundina. Rúta ekur hringinn fyrir
og eftir. Foreldrar eru hvattir til að fylgja
börnum sínum og efla þau í kirkjustarfinu.
Prestarnir.
NJARÐVÍKURKIRKJA (Innri-Njarðvík) Guðs-
þjónusta sunnudag kl. 20. Arngerður María
Árnadóttir nýráðinn organisti kirkjunnar
verður þá sérstaklega boðin velkomin.
Kirkjukór Njarðvíkurkirkju syngur. Allir hjart-
anlega velkomnir. Sóknarprestur
KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnudagaskóli kl.
11 árd. Undirleikari Helgi Már Hannesson.
Guðsþjónusta kl. 14 í stærri sal Kirkjulund-
ar. Guðspjall: Lúkas 14:1-11. Jesús
læknar á hvíldardegi. Ræðuefni: Umfjöllun
um siðfræði og lífvísindi. Prestur Ólafur
Oddur Jónsson. Meðhjálpari Björgvin
Morgunblaðið/Sverrir
Kotstrandarkirkja.
Guðspjall dagsins:
Jesús læknar á
hvíldardegi.
(Lúk. 14.)
Velkomin í
Háteigskirkju
Á MORGUN, sunnudag, hefst dag-
skráin í Háteigskirkju með barna-
guðsþjónustu í umsjón sr. Helgu
Soffíu Konráðsdóttur. Brúðurnar
Kalli og Soffa koma í heimsókn og
er gaman að fylgjast með frá hverju
brúðurnar hafa að segja.
Í barnaguðsþjónustunum er lögð
áhersla á mikinn söng, bænir og
sögur. Allir velkomnir.
Minnum einnig á messu kl. 2 með
samveru eldri borgara á eftir, með
lifandi tónlist og ljóðalestri. Nánari
upplýsingar er að finna á heimasíðu
kirkjunnar hateigskirkja.is
Langholtssöfnuður
50 ára
HÁTÍÐARMESSA og barnastarf
sunnudaginn 22. september kl. 11
Opið hús í næstu viku.
Í tilefni af 50 ára afmæli Lang-
holtssafnaðar verður haldinn hátíð-
armessa í Langholtskirkju sunnu-
daginn 22. september kl. 11. Biskup
Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson,
predikar og prófastur, sr. Jón
Dalbú Hróbjartsson, þjónar fyrir
altari ásamt sóknarpresti og fleiri
prestum sem tengjast Langholts-
kirkju. Kór Langholtskirkju og
Gradualekór Langholtskirkju
syngja undir stjórn Jóns Stef-
ánssonar. Barnastarfið hefst í kirkj-
unni þar sem börnin syngja, en síð-
an fara börnin í safnaðarheimilið
og eiga þar stund.
Á þessum tímamótum lofar söfn-
uðurinn Drottin Guð fyrir trúfesti
sína og fagnaðarerindið sem hefur
hljómað í kirkjunni og uppörvað og
styrkt unga sem gamla og vísað lífs-
ins veg. Við messugjörðina þökkum
við þjónustu og fórnfús störf þeirra
fjölmörgu karla og kvenna sem
hafa lagt fram ómælda krafta fyrir
söfnuðinn á þessum 50 árum, byggt
upp myndarlegt húsnæði og fjöl-
breytt safnaðarstarf og annast
margþætta þjónustu. Einnig horf-
um við til framtíðar og þeirra verk-
efna sem bíða og biðjum Guð að
blessa og leiða söfnuðinn á hinum
góða vegi, að hann megi vaxa í trú,
von og kærleika.
Þess er vænst að sem flest sókn-
arbörn og velunnarar Langholts-
kirkju fjölmenni til hátíðarmess-
unnar og taki undir lofgjörð, bæn
og þakkargjörð. Eftir stundina
verður boðið upp á léttar veitingar í
safnaðarheimilinu.
Vikuna 22.-29. sept. verður opið
hús í Langholtskirkju í tilefni af-
mælisins og eru allir velkomnir að
líta inn og kynnast starfinu eða
njóta söngs og hljóðfæraleiks.
Þriðjudagurinn 24. september
kl. 12.10. Stuttir orgeltónleikar –
ókeypis aðgangur. Jón Stefánsson
leikur á Noack-orgel Langholts-
kirkju. Kl. 17-19 Opið hús hjá kór-
skólanum og Gradualekórum. Kl.
17.40 samsöngur Gradualekóra og
kórskóla í kirkjunni. Kl. 18 hátíð-
arsóknarnefndarfundur í tilefni
þess að þennan dag fyrir 50 árum
var fyrsti sóknarnefndarfundur
safnaðarins haldinn! Dagskráin
verður stutt, en væntanlega verður
hægt að kynna og taka ákvörðun
um mikilsvert hagsmunamál safn-
aðarins. Kaffiveitingar eftir fund-
inn. Allir eru velkomnir.
Miðvikudag 25. september
Kl. 12.10 bænagjörð með org-
elleik og sálmasöng. Kl. 12.30 súpa
og brauð í safnaðarheimilinu (kr.
300). Kl. 13-16 opið hús fyrir eldri
borgara; Söngur, harmonikku-
leikur, spjall og kaffisopi, tekið í
spil o.fl. Boðið verður upp á kaffi-
veitingar kl. 15. Allir velkomnir. Kl.
17-18.10 opin æfing hjá Krútta-
kórnum (4-7 ára). Kl. 20-22 opin
kóræfing hjá Kór Langholtskirkju.
Fimmtudag 26. september
Kl. 10-12 foreldra- og barna-
morgunn, opið hús. Kl. 12.10 stuttir
orgeltónleikar – ókeypis aðgangur.
Jón Stefánsson leikur á Noack-
orgel Langholtskirkju.
Föstudag 27. september
Kl. 12.10 stuttir orgeltónleikar –
ókeypis aðgangur. Guðmundur Sig-
urðsson leikur á Noack-orgel Lang-
holtskirkju.
Minnt er á að laugardaginn 28.
september heldur Langholtsskóli
upp á 50 ára afmæli skólans frá kl.
12-15.30.
Sunnudag 29. september
Kl. 11 fjölskylduguðsþjónusta;
börn og fullorðnir eiga saman stund
í kirkjunni.
Nánari upplýsingar eru veittar í
Langholtskirkju, Sólheimum 13-15,
104 Reykjavík. Sími 520 1300;
heimasíðan: www.langholts-
kirkja.is
Alfa-námskeið í
Digraneskirkju
ALFA-námskeið í Digraneskirkju
er nú haldið í fjórða sinn. Meira en
eitt hundrað þátttakendur hafa
komið á námskeiðin. Þau hafa tek-
ist afar vel. Um það vitna umsagnir
s.s.: Námskeiðið er uppbyggjandi
fyrir sálina og trúna. Það er mann-
bætandi. Kærar þakkir fyrir að fá
tækifæri til að taka þátt í svo góðu
og uppbyggilegu námskeiði. Þarna
kynnist maður trúnni, kærleik-
anum, samkennd og vináttu.
Meira en 15 leiðtogar undir
stjórn sr. Magnúsar Björns Björns-
sonar sjá um námskeiðið, bæði hóp-
starf, fræðslu og alla nauðsynlega
þætti, ekki síst kvöldverðinn, sem
er ómissandi hluti námskeiðsins.
Námskeiðið hefst þriðjudaginn 24.
sept. kl. 19 og stendur næstu 10
þriðjudagskvöld.
Enn er unnt að skrá sig t.d. á
www.digraneskirkja.is.
Göngumessa á
Þingvöllum
HAUSTFERÐ Kvennakirkjunnar
verður farin sunnudaginn 22. sept-
ember. Safnast verður saman við
Umferðarmiðstöðina kl. 10 og farið
á einkabílum til Þingvalla.
Samvera, umræður um starf
Kvennakirkjunnar og útivera er
megininntak haustferðanna. Há-
degisverður og miðdagskaffi verð-
ur keypt í Hótel Valhöll. Klukkan
16 hefst göngumessa, sem er öllum
opin, við Hakið þar sem gengið er
niður í Almannagjá. Í göngumessu
er áhersla lögð á að njóta umhverf-
isins, sem vart getur verið fegurra
á þessum árstíma, um leið og haldin
er glaðleg messa í anda Kvenna-
kirkjunnar. Stoppað verður á
nokkrum stöðum til messuhalds og
söngs og til á hlusta á prédikun séra
Auðar Eirar Vilhjálmsdóttur.
Kvöldguðsþjónusta
í Seljakirkju
SELJAKIRKJA hefur kallað til
kvöldguðsþjónustu þriðja sunnudag
hvers mánaðar yfir vetrartímann.
Fyrsta kvöldguðsþjónusta vetrarins
verður á morgun sunnudaginn 22.
september og hefst hún kl. 20. Sr.
Valgeir Ástráðsson prédikar og
Þorvaldur Halldórsson mun leiða
okkur í söng.
Í þessum guðsþjónustum er
kirkjugestum boðið að ganga til alt-
aris. Verið velkomin í Seljakirkju.
Geðheilsa og trú
ÞRIÐJUDAGINN 24. september kl.
20 hefst í Leikmannaskóla kirkj-
unnar námskeið um tengsl trúar og
ÆÐRULEYSISMESSA, til-
einkuð fólki sem leitar bata
eftir tólfsporaleiðinni, verður í
Dómkirkjunni sunnudaginn 22.
september kl. 20. Einhver mun
segja þar af reynslu sinni úr
baráttunni við áfengisýkina.
Anna Sigríður Helgadóttir,
Birgir og Hörður Bragasynir,
sjá um fjölbreytta tónlist. Sr.
Jóna Hrönn Bolladóttir prédik-
ar. Sr. Jakob Ágúst Hjálm-
arsson leiðir samkomuna og sr.
Anna Sigríður Pálsdóttir leiðir
fyrirbæn og altarisgöngu.
Prestarnir verða svo í Safn-
aðarheimili Dómkirkjunnar á
þriðjudögum kl. 20 með hug-
leiðingar um sporin tólf út frá
ritningunni. Þær eru einkum
ætlaðar fólki sem hefur náð
nokkrum bata en langar að
styrkja vitundarsamband sitt
við Guð. Þar er gefinn kostur á
fyrirspurnum og samræðum.
Kirkjustarf
Æðruleysis-
messa í
Dómkirkjunni
Morgunblaðið/Jim Smart