Morgunblaðið - 21.09.2002, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 21.09.2002, Blaðsíða 25
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2002 25 Guerrero er 22 ára og gramsar í ruslinu til að reyna að hjálpa fjöl- skyldu sinni. Þau eru 10 í heimili og faðir hans lést í maí síðastliðnum. Guerrero vann áður í kjötverslun en hún fór á hausinn. Almenningur hef- ur ekki lengur efni á slíkri mun- aðarvöru. Demitri vann áður við sauma en nú leitar hún í ruslinu við skrif- stofubyggingu í miðborginni um leið og jakkaklæddir menn ganga hjá. „Þetta er þó betra en að stela,“ segir hún og horfir undan. „Þetta er skammarlegt en hvað get ég gert? Ég hef fyrir börnum að sjá.“ Endurvinnsla farin að borga sig Félagsfræðingurinn Artemio Lop- ez telur, að 30 til 40.000 manns dragi fram lífið á því, sem finnst í sorpinu. „Þetta er ömurlegt,“ segir hann en bætir við, að fólkið njóti þess þó, að verð á notuðum pappa til endur- vinnslu hefur rokið upp á skömmum tíma. Eins og komið er í efnahagslíf- inu er það farið að borga sig vel að GUILLERMO Guerrero er atvinnu- laus og hungraður. Hann brettir upp skyrtuermarnar um leið og hann gramsar í ruslatunnunni í leit að ein- hverju ætilegu. Ekki langt frá eru þau mæðginin Marisa Demitri og Adrian, 11 ára sonur hennar, að róta í rusli, sem sett hefur verið út á götu. Í því eru matarleifar og kannski eitthvað, sem hægt er að selja. Þegar degi hallar í Buenos Aires, höfuðborg Argentínu, fara þúsundir manna eins og þau Demitri og Guerrero á kreik. Margir koma út úr yfirgefnum byggingum eða ryðg- uðum járnbrautarvögnum; aðrir koma alla leið frá niðurníddum út- hverfunum. Gangstéttirnar endur- óma skröltið í innkaupakerrum og vagnskriflum og stundum ber fyrir augu hestvagna með heilu fjölskyld- unum. Mikil umskipti á skömmum tíma Fyrir ekki svo löngu var Buenos Aires ein mesta velmegunarborg í Rómönsku Ameríku. Upplausnin í efnahagsmálum landsins síðustu fjögur ár hefur breytt því. Nú er at- vinnuleysi í Argentínu meira en 20%, gengi pesósins hefur fallið um 70% gagnvart dollara og nærri helmingur landsmanna, sem eru 36 milljónir alls, býr við fátækt. Þeim fjölgar dag frá degi, sem eiga ekki lengur þak yfir höfuðið. endurnýta pappa, flöskur og plast. Samkeppnin milli fólksins á götunni er hins vegar mjög hörð. Marcos Benitez er einn í þessum hópi, fyrrverandi háskólastúdent. Fyrir hálfu ári vann hann á heilsu- gæslustöð og lagði stund á lyfja- fræði. Þá hrundi gengi gjaldmiðils- ins og stöðinni var lokað. „Námið verður að bíða betri tíma,“ segir Benitez. „Nú snýst allt um að finna einhvern mat ofan í mig og mömmu og pabba. Þau eru líka atvinnulaus.“ Gramsað í ruslatunn- unum eftir sólsetur Vegna upplausnar í efnahagsmálum býr helmingur Argentínumanna við sára fátækt Buenos Aires. AP. AP Hópur manna, svokallaðra „pappasafnara“, bíður þess að komast með lestinni til Buenos Aires. BARÁTTA Bandaríkjamanna gegn hryðjuverkum hefur ekki orðið til að draga úr áhuga þeirra á alþjóðasam- starfi. Kemur það fram í könnun, sem kynnt var nýlega á ráðstefnu Al- þjóðaefnahagsráðsins (World Economic Forum) í Austurríki. Marshall Bouton, formaður Chic- ago-utanríkismálaráðsins, sagði að þótt Bandaríkjamönnum fyndist sér ógnað eftir hryðjuverkin fyrir ári væru þeir hlynntir alþjóðasamstarfi. Fram kemur, að 70% Bandaríkja- manna styðja Kýótó-bókunina um aðgerðir gegn gróðurhúsaáhrifum. Þá eru 65% hlynnt Alþjóðasakamála- dómstólnum, jafnvel þótt hætta kunni að vera á, að reynt verði að draga bandaríska hermenn fyrir hann. Könnunin sýnir, að 59% Evrópu- manna og 63% Bandaríkjamanna styðja Heimsviðskiptastofnunina, WTO, og 64% Bandaríkjamanna vilja, að stjórnin hlýði úrskurðum hennar þótt þeir gangi gegn henni. Styðja alþjóðlegt samstarf Salzburg. AFP. COLIN Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að Bandarík- in muni finna leið til að koma í veg fyrir að vopnaeftirlitsmenn Sam- einuðu þjóðanna (SÞ) fari til Íraks nema því aðeins að öryggisráð SÞ samþykki nýja ályktun um málið, að því er greint var frá á fréttavef breska ríkisútvarpsins, BBC, í gær. Powell sagði er hann ávarpaði bandaríska þingnefnd, að öryggis- ráðið verði að gera Írökum ná- kvæma grein fyrir því hvaða afleið- ingar það muni hafa ef þeir sýni eftirlitsmönnunum ekki samstarfs- vilja. Fréttaskýrandi BBC segir, að með þessu hafi Bandaríkin í raun sett SÞ úrslitakosti. Yfirmaður vopnaeftirlitsins, Hans Blix, hefur sagt öryggis- ráðinu að hann vonist til þess að geta sent framvarðarsveit eftirlits- manna til Íraks um miðjan næsta mánuð. Fréttastofan AFP greinir frá því að Powell hafi ítrekað nauðsyn þess að allar áætlanir um frekari aðgerð- ir fælu í sér að Írakar myndu gjalda þess ef þeir ekki yrðu samvinnu- þýðir. Mörg aðildarríki SÞ vildu taka orð Íraka trúanleg og senda eftirlitsmenn til landsins án nýrrar ályktunar frá SÞ, en slíkt væri ávís- un á að aðgerðin misheppnaðis og „við munum ekki taka þátt í slíku“, sagði Powell. Bandaríkin heimta nýja ályktun Hóta að hefta för eftirlitsmanna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.