Morgunblaðið - 21.09.2002, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 21.09.2002, Blaðsíða 36
UMRÆÐAN 36 LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ SJÓMENNSKAN býr yfirnokkuð sérstöku tungu-taki, enda er mjög mikiðaf orðum um skip, veið- arfæri og fiskileitar- og sigl- ingatæki fengið úr ensku. Oft er þar um tökuorð að ræða, sem hafa lagast býsna vel að málinu eins og troll, á ensku trawl. Í öðrum til- fellum er um hrein ensk tökuorð að ræða. Sé enn tekið dæmi af veiðarfærum má nefna til sög- unnar orðið rockhopper. Það er lengja úr gúmmíi sem hefur það hlutverk að halda trollinu opnu niðri við botninn. Að ofan halda trollkúlur höfuðlínunni uppi. Rockhopper-lengjan kemur þá í stað bobbinga, sem oftast eru not- aðir á stærri troll en fótreipi á þau minni. Hér er aðeins ætlunin að fjalla um enska orðið rockhopper. Eins og ráða má af orðinu á þessi lengja að hjálpa trollinu til að hoppa yfir stokka og steina sem á botninum kunna að vera, þegar það er dregið. Er það til að það festist eða rifni síður. Í ljósi þessa virðist augljóst að kalla þetta fyr- irbæri steinastiklu á íslensku. Er því hér með komið á framfæri. – – – Þættinum berast bæði bréf og ábendingar. Eftirfarandi bréf er frá Páli Bragasyni og birtist það nú, því miður eftir nokkra bið: „Ég þakka þættina um íslenskt mál í Morgunblaðinu, og langar um leið að nöldra örlítið um tiltekna orð- notkun, sem fer afar mikið í taug- arnar á mér. Þannig er, að ég er áhugasamur um knattspyrnu, og fylgist því gjarnan með íþróttafréttum. Af nógu er að taka, þegar að ambög- um og brengluðu orðafari íþrótta- fréttamanna kemur, enda oftlega verið að því fundið. Þó ýmis mis- mæli megi fyrirgefa í hita leiksins, verður að gera þá kröfu, að þeir, sem fjalla opinberlega um tiltekið sérefni, þekki helstu hugtök sér- efnis síns og merkingu þeirra, og fari rétt með. Tel ég ábyrgð íþróttafréttamanna ríkari en margra annarra, þar sem íþróttir njóta mikilla vinsælda og meiri hluti ungs fólks fylgist með íþróttafréttum. Því nefni ég þetta, að mér sýnist nefndir fréttamenn almennt lítinn eða engan grein- armun gera á hugtökunum ,,félag“ og ,,lið“. Virðast þeir reyndar vera á góðri leið með að leggja niður orðið ,,félag“ úr máli sínu. T.a.m. er þrástagast á, að lið séu að kaupa og selja leikmenn, lið ráði og reki þjálfara, og nú síðast tók steininn úr, þegar sjálft rík- isútvarpið, í fréttum síðast liðið fimmtudagskvöld, lét þau boð út ganga, að tiltekið franskt lið væri til sölu með manni og mús. Með sama áframhaldi styttist vænt- anlega í að KR verði Knatt- spyrnulið Reykjavíkur, FH verði Fimleikalið Hafnarfjarðar og öll ungmennafélög landsins með tölu verði ungmennalið. Kóróna þessa sköp- unarverks verður ugg- laust Glímu- liðið Ár- mann, það gamla og virðulega fé- lag.“ Umsjón- armaður þakkar Páli bréfið, tekur undir ábendingar hans og hyggst ganga í lið með honum. Liðið leikur fyrir hönd félagsins, en ekki öfugt. – – – Stefán Vilhjálmsson sendi þætt- inum einnig skemmtilega kveðju og bregst hann til varnar orðinu hundaklyfberi. Þar segir hann meðal annars: „Ég tek undir með þér, að leitt er ef hið sérkennilega orð hundaklyfberi hverfur úr mál- inu! Ég hef haldið upp á það síðan Þórgnýr vinur minn Þórhallsson notaði það eftirminnilega hér um árið. Þá vann ég við matvælaiðnað KEA að gæðamálum og vöruþróun og m.a. við Efnagerðina Flóru. Þar var bardúsað við margt, m.a. að flytja inn matarolíu á tunn- um og tappa henni á flöskur. Eitt sinn gerist það, að olían er menguð lífrænu leysiefni, ekki þó mjög eitruðu, og þurfti að innkalla vöru af markaði, því ekki uppgötvaðist þetta við áfyllingu. Skömmu síðar sendir sama danska fyrirtækið okkur olíu í gölluðum tunnum svo innihaldið var blandað ryð- og málningarflögum. Þórgnýr var þá fulltrúi kaupfélagsstjóra á iðn- aðarsviði og nú var honum öllum lokið og lét eftirfarandi orð falla í símtali við mig: „Helvítis ekkisen bölvaðir hundaklyfberarnir senda okkur sitt á hvað, eitur eða mis- indis merarhland!“ Því miður eru nú alltof fáir á dögum svo kjarn- yrtir!“ Umsjónarmaður þakkar kjarn- yrt bréf og leyfir hann sér jafn- framt að mæla með því, þurfi fólk að bölva á annað borð, að það geri það á íslensku. – – – Margrét Ríkharðsdóttir hafði fyrir nokkru samband við umsjón- armann og var ekki alveg dús við notkun hans á viðtengingarhætti, þegar hann ritaði: Umsjón- armaður er viss um að vegagerðin sé honum sammála … Umsjón- armaður viðurkennir að betra hefði verið að nota þarna fram- söguhátt og segja, að vegagerðin er. Hann tekur einnig undir með Margréti að sé-veikin í íslensku er orðin ansi útbreidd og gegn henni þurfi að hamla. Það fór líka í taugarnar á Mar- gréti hve hinn svokallaði síðasta- leikur er nú leikinn víða. „Það er alltaf verið að tala um síðasta ár, síðasta sumar, síðustu viku og svo framvegis. Mér finnst þetta full- endanlegt, því auðvitað var síðast- liðið ár ekki síðasta árið okkar,“ sagði Margrét og benti á að þessi orðnotkun væri augljóslega komin úr ensku samanber last week. Umsjónarmaður tekur heilshugar undir skoðun Margrétar og vonar að þessi þáttur verði ekki hans síð- asti. – – – Sagt var í Ríkisútvarpinu fyrir skömmu að Bandaríkjamönnum hefði mistekist að taka mark á að- vörunum um hryðjuverkin hinn 11. september í fyrra. Heldur er þetta klaufalega orðað því annaðhvort taka menn mark á aðvörunum eða ekki. Nafnorðastíllinn er vinsæll í fjölmiðlum um þessar mundir. Að undanförnu hafa menn fram- kvæmt húsleitir, gert verðsam- anburð og verðkannanir og gert hljóðritanir. Umsjónarmaður hvetur frétta- og blaðamenn til að draga úr þessari notkun og nota þess í stað þær sagnir, sem við eiga. Við leitum í húsum, við ber- um saman og könnum verð og hljóðritum tónlist. Sagt var í Rík- isútvarpinu fyrir skömmu að Bandaríkjamönn- um hefði mistek- ist að taka mark á aðvörunum um hryðjuverkin hjgi@mbl.is ÍSLENSKT MÁL Eftir Hjört Gíslason Í GÆRMORGUN hringdi í mig 78 ára gömul kona. Hún hafði lítið getað sofið vegna verkja og meinsemdar í annarri stóru tánni. Hún hafði leitað til nokkurra fótaaðgerða- fræðinga. Hún hafði einnig reynt að fá tíma hjá lýtalækni en ekki tekizt. Ég bauð henni að koma til mín í dag, þar sem ég tróð henni framan við minn full- bókaða móttökulista. Hún kom á tilsettum tíma og hafði aldraður slitinn eiginmaður fylgt henni í strætisvagni. Hár hennar og föt höfðu blotnað hressi- lega í rigningunni. Ég bauð henni að ganga inn og það gerði hún með miklum erfiðismunum. Að loknu ör- stuttu viðtali færðum við okkur yfir á skoðunarherbergi, þar sem ég hjálpaði henni að afklæðast og hóf síðan aðgerð á támeininu. Að því loknu hjálpaði ég gömlu konunni að klæða sig á ný. Þegar því var lokið bað hún mig að mæla blóðþrýstinginn úr því að hún væri nú komin. Að lokum þurfti ég að skrifa fyrir hana nokkra lyfseðla. Ég fylgdi síðan gömlu konunni fram á gang og sá þá að í þetta höfðu farið 35 mínút- ur. Um leið og gamla konan kvaddi mig inni- lega spurði hún: „Ætl- ar þú nokkuð að hætta líka?“ Aðalatriðið eftir Þegar þarna var komið var ég orðinn tveimur sjúklingum of seinn. Ég hafði þó hvergi nærri lokið við að afgreiða gömlu konuna. Aðalatriðið, skriffinnskan, var eftir. Ég átti enn eftir að skrá allt sem ég hafði fyrir hana gert. Ekki bara skrá heldur líka flokka allt og kóða vísindalega út í hörgul. Greiningar, aðgerðir, lyf o.s.frv. Það er vegna þess að gögnin fara í miðlægan gagnagrunn á heilbrigðissviði skv. valdboði rík- isstjórnarinnar. Heilbrigðisyfirvöld gera sér sýnilega enga grein fyrir þeim óhemju tíma og kostnaði sem þetta hefur í för með sér fyrir hið opinbera heilbrigðiskerfi. Á sjúkra- húsunum lendir þessi vinna fyrst og fremst á unglæknum og utan þeirra á heilsugæzlulæknunum. Sjálfstætt starfandi heimilislæknum og sér- fræðingum dettur auðvitað ekki í hug að sóa tíma sínum svo heimskulega. Til þeirra flykkjast sjúklingarnir eðlilega. Það er svo kaldhæðnislegt að það eru einmitt unglæknar og heilsugæzlulæknar sem hrópa hæst á bætt kjör og frelsi. Á dögunum hlýddi ég á viðtal í ríkisútvarpinu við aðstoðarmann þinn, Elínu Friðfinnsdóttur hjúkr- unarfræðing. (RÚV – Hér og nú 6. september). Þar ræddi hún um vinnubrögð okkar heilsugæzlu- lækna og fór mikinn. Aðstoðar- manninum varð tíðrætt um léleg af- köst okkar: „En allar þær upplýsingar … og þær skoðanir sem við höfum verið að gera í ráðu- neytinu … gefa til kynna að afköst- in hafi minnkað verulega við þessa breytingu á launakerfi.“ „Læknar komast ekki yfir að sinna nema 1.700 sjúklingum þótt kjaranefnd geri ráð fyrir að þeir sinni 2.400 sjúklingum.“ „Auðvitað verðum við að endurskoða þetta vinnulag. Það er ekki spurning.“ Þrátt fyrir að ærin ástæða væri til að fjalla nánar um þetta makalausa viðtal verður það að bíða. Í gíslingu Hins vegar er ástæða til að vekja athygli á þeirri ótrúlegu stöðu sem ríkisstjórnin hefur hneppt heil- brigðiskerfið í með miðlægum gagnagrunni og þjónkun sinni við hið ameríska fyrirtæki deCODE. Ekki aðeins er skriffinnskan vegna grunnsins að kaffæra heilsugæzl- una og sjúkrahúsin heldur miðast sjálft sjúkraskrárkerfið sem notazt er við mest við þarfir deCODE og gagnagrunnsins. Sjúkrakráin Saga er rekin af fyrirtækinu eMR sem nú er í meirihlutaeigu deCODE og fylgjenda þeirra og hefur flutt sig í Hlíðasmára þar sem Íslensk erfða- greining var til húsa. Stjórnarfor- maður eMR og einn aðaleiganda er Guðmundur Sigurðsson heilsu- gæzlulæknir, sem mjög hefur kom- ið við sögu gagnagrunnsmálsins og var áður tilsjónarmaður Tölvu- nefndar með ÍE. Í stjórninni situr einnig Kristján Erlendsson, fram- kvæmdastjóri gagnagrunnssviðs deCODE. Kristján var á sínum tíma skrifstofustjóri í heilbrigðis- ráðuneytinu og fékk á meðan hann starfaði þar 125 þúsund hluti í de- CODE. Auk framkvæmdastjóra- stöðunnar hjá deCODE er hann í 30% starfi á Landspítala – háskóla- sjúkrahúsi og í 50% starfi hjá læknadeild Háskóla Íslands. Það eru svona vinnubrögð og þessi einkafyrirtæki, sum raunar rekin inni á sjálfum Landspítala – há- skólasjúkrahúsi af prófessorum, sem eru að sliga heilbrigðiskerfið – ekki laun unglækna eða heilsu- gæzlulækna. Þetta er ríkisendur- skoðanda vel kunnugt um og hefur verið lengi. Opið bréf til Jóns Kristjáns- sonar heilbrigðisráðherra Jóhann Tómasson Heilbrigðiskerfi Ætlar þú nokkuð að hætta líka? hljóðaði fyr- irspurn til Jóhanns Tómassonar, frá öldr- uðum sjúklingi. Höfundur er læknir. ÉG ER með yngstu sérfræðingum í heim- ilislækningum á Ís- landi, starfa hjá heilsugæslustöðinni í Garðabæ og hef afar mikla ánægju af starfi mínu. Það er bæði fjölbreytt og gefandi og verkefnin óþrjót- andi. Það hefur vakið furðu mína að sem heimilislæknir er ég í þeirri undarlegu stöðu að hafa ekki sömu starfsréttindi og aðrir sérfræðilæknar á Ís- landi, þrátt fyrir sam- bærilegt nám. Aðrir sérfræðilæknar geta gert gjald- skrársamning við Tryggingastofn- un ríkisins og stundað sjálfstæðan rekstur. Eingöngu heimilislæknar eiga þess ekki kost að vinna sjálf- stætt. Heimilislæknar hafa ítrekað sett fram þá sjálfsögðu kröfu að þetta verði leiðrétt en yfirvöld heil- brigðismála hafa staðið í vegi fyrir því. Neikvæð íhlutun ráðuneytisins Yfirvöld heilbrigðismála hafa einnig endurtekið hlutast til um starfssvið og launakjör heimilis- lækna án nokkurs samráðs við læknana. Er nærtækast að minn- ast íhlutunar ráðuneytisins varð- andi vottorðamál um síðustu ára- mót sem hafði í för með sér launalækkun lækna og versnandi aðgengi almennings að heilsugæsl- unni. Slíkar aðfarir eru fáheyrðar innan fyrirtækja þar sem menn vilja nýta sérfræðiþekkingu og mannauð sem best. Auk þessa hef- ur aðstoðarmaður ráðherra látið ógætileg orð falla í garð heimilis- lækna og viðhaft rangfærslur um störf þeirra. Heimilislæknar flæmast burt Fjöldi heimilislækna hefur hætt störfum innan heilsugæslunnar undanfarin ár vegna óánægju með starfskjör og afskipti heilbrigðis- ráðuneytisins af innra starfi heilsu- gæslunnar. Sumir hafa hætt og haslað sér völl í öðrum sérgreinum læknisfræðinnar. Aðrir hafa farið í launalaust leyfi og víst er að stór hluti þeirra mun ekki koma til baka í heilsugæsluna að óbreyttu. Fjöldi heimilislækna hefur sagt upp störfum á síðustu mánuðum og koma þær uppsagnir til framkvæmda í vetur. Þeir vilja að gengið verði að þeirri sjálf- sögðu kröfu að þeir fái sömu starfsréttindi og aðrir sérfræðilæknar. Það er ekki þar með sagt að læknarnir muni allir kjósa að yf- irgefa heilsugæsluna til að stofna stofur úti í bæ, því fer fjarri. Flestir munu eflaust vilja starfa áfram inn- an sinna heilsugæslu- stöðva en þeir vilja hafa valkost. Minnisvarði um störf ráðherra Krafan um sömu starfsréttindi og aðrir sérfræðingar er réttlát og við núverandi aðstæður forsenda þess að heimilislækningar eigi sér framtíð á Íslandi. Það hrun sem nú blasir við í heilsugæslu á Íslandi er á ábyrgð hæstvirts ráðherra heil- brigðismála, Jóns Kristjánssonar. Þeir kostir sem ráðherrann stend- ur frammi fyrir er annars vegar að ganga að sjálfsagðri kröfu heim- ilislæknanna um jafnrétti sem skil- ar sér í meiri starfsánægju læknanna, betri þjónustu og greiðara aðgengi almennings. Hinn kosturinn, óbreytt ástand, felur í sér áframhaldandi flótta úr stétt- inni, heilsugæslunni til óbætanlegs skaða. Það þarf vissulega pólitískt hugrekki til að breyta núverandi ástandi, en ef ekkert er að gert líða heimilislækningar undir lok á Ís- landi og grunnþjónustan leggst af. Þann minnisvarða um hæstvirtan heilbrigðisráðherra vill ekkert okk- ar sjá. Framtíðarsýn ungs heimilislæknis Gerður Aagot Árnadóttir Heimilislæknar Eingöngu heimilis- læknar, segir Gerður Aagot Árnadóttir, eiga þess ekki kost að vinna sjálfstætt. Höfundur er læknir og móðir þroskahefts drengs.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.