Morgunblaðið - 21.09.2002, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 21.09.2002, Blaðsíða 47
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2002 47 Vikuna 21.-28. september Gerið góð kaup! • Aukahlutir • Fatnaður • Hjálmar o.fl. Opið í dag, laugardag kl. 10-16 Skútuvogi 12a s. 594 6000www.merkur.is dagarHjóla ÞÓ AÐ Norðurá í Borgarfirði sé toppá sumarsins með ótrúlega kú- vendingu frá fyrra sumri er hún ekki hástökkvari ársins. Það er Selá ekki heldur þótt hún hafi skil- að metveiði í sumar. Hástökkvari ársins er Hofsá í Vopnafirði, en lokatala úr henni er 1.912 laxar. Í fyrra veiddust 911 laxar í Hofsá, ásamt þveránni Sunnu- dalsá, þannig að stökkið er upp á 1.001 lax á milli ára. Hástökk Norðurár var upp á 973 laxa, en áin fór úr 1.337 löxum í 2.310. Í met- veiðiánni Selá var stökk upp á „að- eins“ 543 laxa, en áin fór úr 1.108 löxum í 1.651 stykki og er þar með leiðrétt um hundrað löxum lægri tala sem birt var fyrir slysni í nafni Selár í veiðipistli þessum fyrir fáum dögum. Fáeinar lokatölur Lokatala í Miðfjarðará er, sam- kvæmt upplýsingum frá leigutak- anum, fyrirtækinu Lax-á, 748 lax- ar. Það er gríðarlega góður bati, 300 löxum meira en í fyrra og var þó engin maðkveiði í ánni eftir mánaðamót júní–júlí. Þá eru loka- tölur í Blöndu og Laugardalsá samkvæmt Lax-á 818 laxar og 320 laxar. Þetta er fremur slök útkoma í Blöndu þar sem gruggugt yfir- fallsvatn frá Blönduvirkjun eyði- lagði mikið í ágúst. Aftur á móti var þetta mikil og góð uppsveifla í Laugardalsá, 64 löxum meira í þessari 3 stanga á heldur en í fyrra. Þá er Vatnsdalsá einnig komin vel yfir 700 laxa, en nákvæm loka- tala hefur ekki enn verið tekin saman þar eð afli í ánni er skráður í fleiri en eina bók og óvenjumikið af laxi hefur veiðst á svokölluðu sil- ungasvæði. Góður lokakafli í Svartá Svartá er að gera það gott á haustdögum, í vikulokin voru komnir 257 laxar á land að sögn Lofts Atla Eiríkssonar, eins leigu- taka árinnar. Sagði Loftur líflega veiði þessa daganna, þannig hefðu tvö síðustu holl veitt 26 laxa hvort, en það seinna lauk veiðum á mið- vikudaginn. Veiði lauk þar í gær og vantar því tölu lokahollsins. Morgunblaðið/Sigurður Sigmunds Vinnufélagar í kerskálanum í Straumsvík með góða veiði af svæði IV í Stóru Laxá. F.v. Jakob Jakobsson, Þórður Örn Gunnarsson, Stefán Kristjánsson, Hilmar Örn Gunnarsson og Tómas Sigurðsson. ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN? Hástökkv- ari ársins er Hofsá Framboðsfrestur rennur út 27. sept. Í frétt um prófkjör Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík fyrir komandi alþingiskosningar var farið rangt með framboðsfrest. Frestur til að til- kynna framboð rennur út föstudag- inn 27. september en ekki 27. nóv- ember eins og stóð í fréttinni. Beðið er velvirðingar á þessum mistökum. LEIÐRÉTT FULLTRÚAR frá nemendaráðum grunnskólanna í Reykjavík tóku ný- lega þátt í verkefninu Unglingar þinga. Þema þingsins var: Unglingar – kynlíf – fjölmiðlar. Unglingarnir sendu frá sér eftirfarandi ályktun um niðurstöður þingsins: „Okkur finnst gagnrýni á ungt fólk vera alltof mikil í fjölmiðlum. Í fjöl- miðlum kemur einungis fram nei- kvæð umfjöllun um unglinga. Okkur finnst vera vaxandi virðingarleysi gagnvart unglingum. Unglingum er ekki treyst. En það er gott að vera unglingur þegar hægt er að tjá sig og hlustað er á mann af alvöru og virð- ingu. Við viljum að fjölskyldur séu meira saman – og noti tímann til að gera eitthvað saman. Það flokkast ekki undir samverustund að sitja bara við sjónvarpið. Unglingar sem koma frá sterkum fjölskyldum falla síður fyrir áhrifum neikvæðra áhrifavalda. For- eldrar eiga að fá að vita ef börn þeirra drekka eða nota önnur vímuefni. Við gagnrýnum platið í auglýsing- unum þar sem tölvufígúrur eru fyr- irmyndir en ekki alvörufólk og þar sem gínur eru notaðar til að sýna hina fullkomnu konu sem er grindhoruð með stór brjóst. Við vitum að hlut- föllin í Barbie eru kolrugluð og að grindhoruð módel eru hvorki heil- brigð né eðlileg. Það er plat sem því miður alltof margir falla fyrir og reyna að líkjast þessum gervimódel- um. Okkur finnst rangt að gera litlar stelpur að kynverum í konufötum og að nota kynlíf til að ná athygli í aug- lýsingum. Okkur finnst líka rangt að hafa klámblöð þar sem börn sjá þau í búðum. Í mörgum skólum er kyn- fræðsla góð en hún verður að vera það í öllum skólum. Til dæmis þarf fræðslu um tilfinningalega þáttinn í kynlífi og um ábyrgðina sem fylgir kynlífi. Og svo geta foreldrar líka bætt sig mikið í því að fræða börn sín. Við gagnrýnum fordóma gegn hommum og finnst orðið hommi vera notað í niðrandi merkingu. En hins vegar eru næstum ekki neinir for- dómar í garð lesbía.“ Telja gagnrýni á ungt fólk of mikla Ályktun frá þátttakendum á unglingaþingi FJALLAÐ verður um starfsskyldur stjórnenda í hlutafélögum á nám- skeiði hjá Endurmenntun HÍ dag- ana 24. og 26. sept. kl. 16-19. Nám- skeiðið er ætlað lögfræðingum og öðrum sem taka þátt í stjórnun fyr- irtækja. Fjallað verður um mögulega ábyrgð stjórnenda gagnvart félag- inu, hluthöfum, viðsemjendum og opinberum aðilum fari eitthvað úr- skeiðis í rekstri félagsins. Bæði verð- ur fjallað um skaðabóta- og refsi- ábyrgð. Kennari er Áslaug Björgvinsdóttir, lektor við HÍ. Frekari upplýsingar um þetta námskeið eru á vefslóðinni www.endurmenntun.is og þar er jafnframt hægt að skrá sig á nám- skeiðið. Námskeið um ábyrgð stjórnenda í hlutafélögum MS-FÉLAG Íslands minnir á aðal- fundinn í dag, laugardag 21. septem- ber, kl. 11 árdegis í MS-heimilinu Sléttuvegi 5, Reykjavík. Félags- menn eru hvattir til að mæta. Aðalfundur MS-félagsins VILHJÁLMUR Egilsson fyrsti þingmaður Norðurlands vestra mun sækjast eftir 1. – 2. sæti á framboðs- lista Sjálfstæðisflokksins í nýju norðvestur-kjördæmi fyrir næstu al- þingiskosningar ef til prófkjörs kem- ur. „Búist er við að prófkjör verði notað til að raða á lista Sjálfstæð- isflokksins, en tillaga um slíkt verður lögð fram á kjördæmisþingi Sjálf- stæðisflokksins á Ólafsvík um aðra helgi. Ef til prófkjörs kemur mun Vilhjálmur þá formlega tilkynna framboð sitt á kjördæmisþinginu,“ segir m.a. í fréttatilkynningu. Vilhjálmur Egilsson stefnir á 1.– 2. sætið MÁNUDAGINN 23. september efn- ir Háskóli Íslands til fundar til að kynna opinberlega áætlun sína Upp- bygging Háskóla Íslands – markmið og aðgerðir 2002–2005. Áætlunin felur í sér fjölmörg ný- mæli og er þetta í fyrsta sinn sem sett er saman í eina heild áætlun af þessu tagi sem nær til allra helstu þátta í starfi skólans. Á fundinum mun Páll Skúlason háskólarektor, ásamt háskólaráði og deildarforsetum Háskólans, greina frá helstu atriðum áætlunarinnar og svara fyrirspurnum. Lagður verður fram nýr kynning- arbæklingur um efni fundarins. Kynningin fer fram í hátíðarsal á 2. hæð í aðalbyggingu Háskóla Ís- lands mánudaginn 23. september nk. kl. 11:00. Fundur um framtíðar- markmið Háskóla Íslands SUNNUDAGINN 22. september efnir Ferðafélag Íslands til göngu- ferðar um Hafnardal bak við Hafn- arfjall. Gangan hefst við félagsheim- ilið Ölver, sem stendur rétt við þjóðveginn vestan undir Hafnar- fjalli. Þaðan verður gengið upp Hafnardal og yfir í Grjóteyrardal og göngunni lýkur við Grjóteyri, um 5 km norðan við Borgarfjarðarbrúna. Þetta er áætluð um 5 tíma ganga, fararstjóri verður Sigurður Krist- jánsson. Brottför er frá BSÍ kl. 10:30 með viðkomu í Mörkinni 6. Verð kr 2600 kr. er fyrir félagsmenn og 2900 kr. fyrir aðra. Gönguferð um Hafnardal við Hafnarfjall FÉLAG ungra framsóknarmanna í Kópavogi hefur sent frá sér ályktun þar sem skorað er á þingflokk fram- sóknarmanna að leggja fyrir Alþingi nú í haust nauðsynlegar breytingar á lögum sem dragi úr áhrifum svo- nefndra jaðarskatta. „Framsóknar- flokkurinn sótti fylgi til ungs fólks við síðustu Alþingiskosningar meðal annars vegna stefnu sinnar í skatta- málum. Þótt nokkur árangur hafi náðst meðal annars með því að tekn- ar hafi verið upp ótekjutengdar barnabætur, skorar fundurinn á þingflokkinn að gera enn betur,“ segir í ályktuninni. Ungir framsóknarmenn Áskorun um að draga úr jaðarsköttum LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eft- ir vitnum að ákeyrslu á mannlausa bifreið á Grettisgötu við Barónsstíg þann 7. september. Atvikið varð milli klukkan 11 og 18.10. Ekið var á framenda blárrar Toyotu Camry með númerinu Ö-541. Tjónvaldur yf- irgaf vettvang án þess að tilkynna um tjónið til hlutaðeiganda eða lög- reglu. Er hann eða aðrir, sem geta gefið frekari upplýsingar, beðnir að snúa sér til umferðardeildar lögregl- unnar í Reykjavík. Lýst eftir vitnum SUNNUDAGINN 22. september verður farin skógarganga í Borgar- nesi. Þetta er haustganga í fræðslu- samstarfi skógræktarfélaganna og Búnaðarbanka Íslands. Skógræktar- félag Borgarfjarðar hefur veg og vanda af göngunni. Mæting er við Skallagrímsgarð kl. 16.00. Gangan er ókeypis og öllum opin. Áhugamenn um útivist og skóg- og trjárækt eru hvattir til þess að mæta. Skógarganga í Borgarnesi SAMFYLKINGIN í Hafnarfirði heldur félagsfund nk. mánudag 23. september kl. 20:00 í Alþýðuhúsinu. Á fundinum fer fram kjör fulltrúa fé- lagsins í kjördæmisráð Suðvestur- kjördæmis fyrir aðalfund ráðsins hinn 16. október. Félagsstarfið á haustmánuðum verður kynnt og önnur mál verða rædd. Félagsmenn eru hvattir til að mæta á fundinn. Samfylkingin í Hafnarfirði með félagsfund HAFIN er sala á tveimur geisladisk- um með hljómlist eftir Jóhann Helgason. Flytjendur eru: Signý Sæmundsdóttir, Bergþór Pálsson, Ólöf Kolbrún Harðardóttir og Egill Ólafsson. Jóhann Helgason hefur ætlað Leikfélagi Snúðs og Snældu, leik- félagi eldri borgara, allstóran hlut af söluhagnaði geisladiskanna. Geisladiskar til styrktar Snúði og Snældu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.