Morgunblaðið - 21.09.2002, Side 6
FRÉTTIR
6 LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
NEFND um réttindi og skyldur
starfsmanna ríkisins hefur komist að
þeirri niðurstöðu að ákvörðun
menntamálaráðuneytisins að veita
Þorfinni Ómarssyni lausn frá störf-
um um stundarsakir sem fram-
kvæmdastjóri Kvikmyndasjóðs Ís-
lands hafi ekki verið réttmæt.
„Í áliti nefndarinnar kemur fram
að hún telur að menntaráðuneytinu
hafi ekki verið heimilt að veita Þor-
finni Ómarssyni lausn frá embætti
um stundarsakir og í samræmi við
það hef ég sett hann inn í embætti
aftur með símatali í dag [í gær],“
sagði Tómas Ingi Olrich, mennta-
málaráðherra. Hann vildi ekki tjá sig
um hvort hann teldi að eftirmálar
yrðu af ákvörðun ráðuneytisins. „Ég
á eftir að fara yfir greinagerðina sem
fylgir álitinu og röksemdirnar sem
notaðar eru til að komast að þessari
niðurstöðu. Ég ætla ekki að tjá mig
um þetta fyrr en ég er búinn að því.“
Þorfinnur segist fagna þessari nið-
urstöðu, ,,enda teljum við, ég, lög-
maður minn og fleiri sem hafa skoðað
þetta mál, að þetta sé hin eina rétta
niðurstaða málsins og það hafi hvorki
verið efni til þess að grípa til þessara
aðgerða, né heldur með svona
skyndilegum hætti eins og gert var,“
segir hann.
Hefur störf hjá Kvikmyndasjóði
á nýjan leik
,,Ég fagna þessari niðurstöðu því
eins og nefndin segir þá er ekkert í
efni málsins sem má telja bókhaldsó-
reiðu eins og látið var í veðri vaka og
eru býsna alvarlegar ásakanir,“ segir
Þorfinnur ennfremur.
Þorfinnur hefur tekið við fram-
kvæmdastjórastarfi sínu á nýjan leik.
Að sögn hans hringdi Tómas Ingi Ol-
rich menntamálaráðherra í hann í
gærmorgun þegar niðurstaða nefnd-
arinnar lá fyrir og bauð honum að
koma strax til starfa.
Þorfinnur segir undanfarna tvo
mánuði ekki hafa verið þægilegan
biðtíma á meðan hann beið niður-
stöðunnar. Hann segist jafnframt
vona að sem minnst eftirmál verði
vegna málsins. ,,Ég er ekki langræk-
inn maður og vil helst ræða fram-
haldið við minn ráðherra þannig að
allir geti helst unað sáttir við sitt,“
segir hann.
Eðlilegra að kanna hvort rétt
væri að veita áminningu
Nefndin komst að þeirri niður-
stöðu að rannsókn Ríkisendurskoð-
unar hafi staðfest tilteknar ávirðing-
ar í embættisfærslu Þorfinns
Ómarssonar á árunum 2000 og 2001,
án þess þó að uppfyllt væru efnisskil-
yrði 3. mgr. 26. gr. starfsmannalaga
um óreiðu í bókhaldi eða fjárreiðum.
,,Nefndin telur að við þessar aðstæð-
ur hefði verið eðlilegra og í samræmi
við meðalhófsreglu 12. gr. stjórn-
sýslulaga að menntamálaráðuneytið
kannaði áfram hvort rétt væri að
veita Þorfinni áminningu fyrir brot á
starfsskyldum, eins og stefnt var að í
fyrstu, í stað þess að víkja honum úr
embætti um stundarsakir að fengn-
um niðurstöðum Ríkisendurskoðun-
ar. Í bréfi ríkisendurskoðanda frá 22.
júlí 2002 kom fram að gjörbreyting
hefði orðið til batnaðar í þeim þáttum
í rekstri stofnunarinnar sem sneru að
bókhaldi, afstemmingum og vörslu
gagna. Nefndin telur því að mennta-
málaráðuneytinu hafi ekki verið rétt
að veita Þorfinni Ómarssyni lausn frá
embætti um stundarsakir,“ segir í
áliti nefndarinnar.
Tekur undir að um misfellur
hafi verið að ræða
Nefndin tekur undir athugasemdir
Ríkisendurskoðunar um að Þorfinn-
ur hafi sýnt af sér hirðuleysi við að
halda bókhaldsgögnum til haga á
árinu 2000 og framan af árinu 2001
en tekur einnig fram að enginn vafi
hafi leikið á að allar greiðslur sem
fylgiskjöl vantaði fyrir hafi verið í
þágu Kvikmyndasjóðs, fyrir lá hver
var viðtakandinn og hvert tilefnið
var. Jafnframt telur nefndin að mis-
fellur hafi verið á uppgjöri ferð-
areikninga en nefndin fellst hins veg-
ar ekki á ávirðingar um að Þorfinnur
hafi í engu sinnt boðum um lagfær-
ingu á umræddum atriðum þrátt fyr-
ir ítrekaðar athugasemdir Ríkisbók-
halds, ráðuneytisins og Ríkisféhirðis.
,,Má meðal annars sjá af viðleitni
hans til þess að bera þessi vandamál
upp á fundi stjórnar Kvikmyndasjóðs
23. nóvember 1999 og tillögu hans um
að ráða fjármálastjóra til að halda ut-
an um fjármál stofnunarinnar að
hann gerði sér grein fyrir vandamál-
unum og leitaði leiða til að leysa þau.
Það firrir Þorfinn hins vegar ekki
ábyrgð að tillagan náði ekki fram að
ganga hjá stjórn Kvikmyndasjóðs,
heldur bar honum þegar að grípa til
ráðstafana innan þeirra fjárheimilda
sem stofnunin hafði,“ segir m.a. í nið-
urstöðu nefndarinnar.
Missti andmælarétt sinn
Þar segir einnig að á fyrrihluta
þessa árs hafi verið ljóst að enn voru
vanhöld á að Kvikmyndasjóður skil-
aði bókhaldsgögnum til ríkisbók-
halds fyrir árin 2000 og 2001 og upp-
gjöri ferðareikninga. ,,Nefndin telur
því að ráðuneytinu hafi verið bæði
rétt og skylt að kanna hvort rétt væri
að grípa til agaviðurlaga gagnvart
Þorfinni vegna brota á starfsskyld-
um hans í þessum efnum. Í samræmi
við það tilkynnti ráðuneytið Þorfinni
með bréfi dags. 22. mars 2002 að fyr-
irhugað væri að veita honum áminn-
ingu á grundvelli 21. gr. starfs-
mannalaga og var honum veittur
frestur til andmæla við þá ákvörðun
til 5. apríl. Engar haldbærar skýr-
ingar hafa komið fram af hálfu ráðu-
neytisins um ástæður þess að málið
var tekið úr þessum farvegi fimm
dögum síðar þegar Þorfinni var til-
kynnt að óskað hefði verið rannsókn-
ar Ríkisendurskoðunar og gæti nið-
urstaða hennar leitt til
brottvikningar hans um stundarsak-
ir. Með því að ráðuneytið skipti um
stefnu að þessu leyti missti Þorfinnur
jafnframt andmælarétt sinn sem
honum hafði verið veittur vegna fyr-
irhugaðrar áminningar. Hafði hann
þó réttmæta ástæðu til að ætla að
honum yrði veittur kostur á því að tjá
sig um niðurstöður Ríkisendurskoð-
unar áður en þær lægju fyrir í end-
anlegu horfi. Þótt Þorfinni væri gef-
inn kostur á að koma að andmælum
sínum við drög að endurskoðunar-
skýrslu og ársreikningi, liggur ljóst
fyrir að honum gafst ekki tækifæri til
að tjá sig um þær alvarlegu ávirð-
ingar sem reifaðar voru í bréfi rík-
isendurskoðanda og ráðuneytið reisti
ákvörðun sína á. Nefndin er þeirrar
skoðunar að þar sé kveðið mun fastar
að orði heldur en gert er í sjálfri end-
urskoðunarskýrslunni þar sem tæp-
lega er hægt að tala um alvarlegar
ávirðingar en ástandi mála er lýst og
ýmsar athugasemdir gerðar. Því
hefði verið rétt að gefa Þorfinni kost
á að koma að andmælum sínum við
ávirðingarnar áður en endanlegar
niðurstöður í bréfi Ríkisendurskoð-
unar voru afhentar ráðuneytinu,“
segir í áliti nefndarinnar.
Ekki náðist í Tómas Inga Olrich
menntamálaráðherra í gær vegna
þessa máls en hann er staddur er-
lendis.
Niðurstaða nefndar um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins
Rangt að víkja Þorfinni
Ómarssyni úr embætti
TÆPLEGA fjögur hundruð manns
mættu á borgarafund um samgöngu-
mál í Vestmannaeyjum í gærkvöldi.
Áhugahópur um bættar samgöngur
boðaði til fundarins. Hópurinn hefur
undanfarnar vikur verið með undir-
skriftalista í gangi þar sem mótmælt
er bágborinni stöðu í samgöngu-
málum Eyjanna. Kristján Vigfússon,
formaður samgönguhóps samgöngu-
ráðherra, tók á móti listunum fyrir
hönd ráðherra með nöfnum 2.190
óánægðra Eyjamanna, eins og það
var orðað.
Sveinn Ingi Þórarinsson skipa-
miðlari kynnti á fundinum skip, sem
mikið hefur verið í umræðunni að
undanförnu, sem færi til Þorláks-
hafnar frá Eyjum á rúmri klukku-
stund. Þingmenn Suðurlands og
Reykjaneskjördæmis mættu nokkr-
ir og tóku til máls. Drífa Hjartar-
dóttir sagði það mikilvægt að þeir
landsmenn sem gætu sest inn í bíl
sinn og keyrt á áfangastað settu sig í
spor Eyjamanna.
Lengi verið að
fara til Eyja
Arnar Sigurmundsson á sæti í
nefndinni sem ráðherra skipaði í maí
og benti hann á miklar aukningar
ferða Herjólfs síðustu ár og hvað
hefur áunnist með skipan nefndar-
innar. Kristján Pálsson og Kjartan
Ólafsson tóku einnig til máls og
bentu á mikilvægi Bakkaflugvallar
og að heimamenn styðji við bakið á
nefndarmönnum. Hjálmar Árnason
hefur barist mikið fyrir því að mögu-
leiki á notuðu skipi verði skoðaður.
Hjálmar byrjaði mál sitt á að segja
frá ferðatíma hans frá heimili hans í
Reykjanesbæ til Vestmannaeyja.
Það tók hann sex tíma. Hjálmar
benti á að ef hann langaði að fara á
fótboltaleik í London tæki það hann
þrjá og hálfan tíma alla leið á fínt
hótel í miðborg London. Hjálmar
hvatti til þess að kaup á skipinu yrðu
skoðuð með jákvæðum hætti og að
skipstjórnarmenn á Herjólfi ásamt
öðrum sérfræðingum yrðu sendir til
Gíbraltar að skoða skipið.
Lúðvík Bergvinsson sem ásamt
þingmannsstörfum á nú sæti í bæj-
arstjórn Vestmannaeyja lagði
áherslu á það að fundurinn myndi
skila af sér ályktun þar sem fram
kæmu skýr skilaboð frá Vestmanna-
eyingum hvað þeir vildu. Fjöldi ann-
arra fór í pontu, þar á meðal Andrés
Sigmundsson formaður bæjarráðs
Vestmannaeyja og Árni Johnsen
fyrrverandi alþingismaður sem með-
al annars sagði það ekki úr sögunni
að jarðgöng yrðu grafin til Eyja.
Árni sagðist ennfremur ekki ætla að
hætta afskiptum að pólitík fyrr en
ferjulag við Bakkafjöru yrði að veru-
leika.
Fundargestum gafst kostur á að
spyrja þingmenn í lokin og voru
flestar spurningar um gjaldtöku í
Herjólf. Einn benti á að ef hann færi
með bílinn sinn í Herjólf en fjarlægði
dráttarkrókinn áður, þá borgaði
hann þrjár einingar, sem er gjald
fyrir venjulega fólksbifreið. Ef hann
aftur á móti setti krókinn á aftur þá
kostaði það hann helmingi meira.
Vörubílstjórar borga 17.500 krónur
fyrir ferðina, eða sem svarar 2.000
kílómetra akstri að þeirra sögn.
Fram kom að með Herjólfsferð
spara Eyjamenn sér 70 kílómetra
akstur og verð er í samræmi við það.
Að lokum voru tvær ályktanir
bornar undir fundarmenn og þær
samþykktar. „Fundurinn mótmælir
harðlega því ófremdarástandi sem
nú ríkir í samgöngumálum Eyjanna.
Við krefjumst þess að ríkisvaldið
tryggi að minnsta kosti tvær ferðir á
dag allt árið með Herjólfi og geri nú
þegar ráðstafanir til að fá nýja og
hraðskreiða ferju til landsins.“
Seinni ályktunin fjallaði um ferju-
lægi við suðurströndina: „Fundurinn
leggur ríka áherslu á að rannsóknum
á ferjulægi við suðurströndina verði
hraðað svo niðurstaða um raunhæfa
möguleika á ferjulægi liggi fyrir sem
fyrst.“
Morgunblaðið/Sigurgeir
Tæplega 400 manns voru á borgarafundinum í Vestmannaeyjum í gærkvöldi.
Fjölmennur borgarafundur um samgöngumál í Vestmannaeyjum
2.190 einstaklingar kröfðust
úrbóta í samgöngumálum
SMÁM saman hefur dregið úr
Skaftárhlaupi og í gærkvöldi var
rennslið um 450 rúmmetrar á sek-
úndu en var 650 þegar það náði há-
marki. Mikil brennisteinsmengun
fylgir hlaupinu og hefur lyktin frá
því borist víða. Leiðni í ánni og
magn uppleystra efna jókst skyndi-
lega í Skaftá upp úr hádegi í gær.
Oddur Sigurðsson, jarðfræðingur
hjá Orkustofnun, segir að slíkt ger-
ist jafnan í kjölfar skjálftaóróa und-
ir Skaftárjökli sem mælast iðulega
þegar hámarki hlaups er náð.
Á fimmtudaginn töldu íbúar
Þórshafnar í Færeyjum sig finna
megna klóaklykt og segir vefur
dagblaðsins Dimmalætting frá því
að bæjarstarfsmenn hafi leitað
lengi að orsökinni en ekki fundið.
„Og vonda lyktin var ekki bara í
Höfn. Í Vestmanney og fleiri
byggðarlögum vestur af var sama
lyktin í loftinu og þar fundu menn
heldur enga skýringu. Það var
kannski ekki svo skrítið að leitin
varð árangurslaus, því lyktin kom
frá Íslandi,“ segir Dimmalætting.
Oddur telur að allar líkur séu á því
að lyktin sem Færeyingar fundu
stafi af Skaftárhlaupi. „Ég ræddi
þetta við Trausta Jónsson veð-
urfræðing. Hann gáði að veðurlagi
og sagði að þetta væri alveg rakið
að lyktin hefði farið þessa leið.“
Fregnir hafi einnig borist af því að
lyktin hafi fundist í Noregi en hann
hafði ekki fengið þær staðfestar.
Oddur segir að í hægviðri geti
lyktin borist víða og í stillum verði
mengunarinnar frekar vart. Tveir
menn sem fóru til rannsóknar við
útfall Skaftár í gær urðu að vera
með gasgrímur vegna þess hve
mikið brennisteinsvetni var í lofti
við ána. Oddur telur að mengunin
sé varasöm a.m.k. 10–15 km niður
með Skaftá og ræður fólki eindreg-
ið frá því að fara niður að henni.
„Gasið er eins og önnur á – sem
rennur ósýnileg ofan á hinni ánni,“
segir hann.
Vonda lykt-
in í Fær-
eyjum kom
frá Íslandi