Morgunblaðið - 21.09.2002, Síða 8

Morgunblaðið - 21.09.2002, Síða 8
FRÉTTIR 8 LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ fordmondeo Keyrðu og finndu að í Ford Mondeo færðu meira af öllu. Þú upplifir að nýr Mondeo gefur þér miklu meira en þú áttir von á. Komdu og keyrðu. Vertu undir það búinn að vilja ekki láta hann frá þér. Takmarkað magn. Pantaðu núna. Nýr Ford Mondeo kostar frá 1.995.000 kr. Br imborg Reyk jav ík - Br imborg Akureyr i - br imborg. is Keyrðu ... og upplifðu Á BÆNUM Dalbæ í Hreppum gera börnin kálfana spaka og leiðitama. Hjálpa nágrannabörnin þá gjarnan til og hafa þessir ungu dýravinir gaman af. Hér eru þau Sólveig Arna, Ásta, Björgvin Viðar og Kristín Eva með kálfana Busa, Depil og Lukku. Hundurinn heitir Kappi og er í sérstöku uppáhaldi hjá börnunum. Ljósmynd/Sigurður Sigmundsson Kálfarnir í Dalbæ eru spakir Hrunamannahreppi. Morgunblaðið. Starf fyrir aldraða í Seljakirkju Fræðsla og skemmtun SÓKNARSTARFIÐ íSeljakirkju í Breið-holti er nú að kom- ast aftur á fullan skrið eftir sumarið. Seljakirkja ætlar nú að brydda upp á þeirri nýjung að stofna til sér- stakra samkomna fyrir eldri borgara í sókninni. Samkomurnar verða milli kl. 18 og 20 á fjórða þriðju- degi hvers mánaðar og hefur Dóra Ingvarsdóttir, fjármálastjóri kirkjunnar, borið hitann og þungann af skipulagningu þeirra. Auk hennar munu prestarnir tveir, sr. Valgeir Ástráðs- son og sr. Bolli Pétur Bollason, sjá um samkom- urnar, ásamt Olgu Jóns- dóttur, öldrunarfulltrúa kirkjunnar. „Seljahverfið var í eina tíð hverfi barnafjölskyldna. Innan Seljasóknar eru rúmlega 8.500 manns og nú eru um 600 manns 67 ára og eldri í sókninni,“ segir Dóra Ingvarsdóttir. „Við ákváðum því að efna til samkomna í kirkjunni, sem við ætlum að hafa á menning- arlegum, félagslegum og trúarleg- um nótum. Fyrsta samkoman verður næstkomandi þriðjudag, 24. september, klukkan 18. Við höfum sent öllum sóknarbörnum, 67 ára og eldri, bréf þar sem við hvetjum þau til að koma.“ – Hvað verður gert á þessari fyrstu samkomu Seljakirkju fyrir eldri borgara? „Við ætlum að taka á móti gest- um með dynjandi harmonikkuleik Þórðar Marteinssonar. Svo verð- ur stutt kyrrðarstund í kirkjunni, en að því loknu höldum við fræðslufund um fjármál aldraðra. Hingað koma Edda Svavarsdóttir, markaðsstjóri Búnaðarbanka Ís- lands, og Ásgeir Jóhannesson, sem er þjónustufulltrúi aldraðra í bankanum, en Búnaðarbankinn hefur lagt sig sérstaklega fram um að veita öldruðum ráðgjöf í fjármálum. Að fræðslunni lokinni hlustum við á tónlist Þorvaldar Halldórssonar og kvartetts hans. Loks er svo boðið upp á veitingar í boði Búnaðarbankans.“ Dóra Ingvarsdóttir er á heima- velli þegar rætt er um fjármál, enda var hún útibússtjóri Búnað- arbankans í Mjódd í 16 ár. Hún hefur sjálf haldið námskeið um fjármál eldri borgara og segir að reynslan hafi kennt sér að efla þurfi slíka fræðslu og námstefnur um þetta efni hafi verið mjög vel sóttar. „Fólk þarf að huga vel að fjármálunum á meðan það hefur enn tækifæri til. Oft gerir það sér ekki grein fyrir að með því að end- urskipuleggja fjárhaginn getur það bætt afkomu sína verulega. Búnaðarbankinn hefur unnið gott fræðsluefni, þar sem þetta er skýrt vel, bæði í texta og með skýringarmyndum. Bæði Edda Svavarsdóttir og Ásgeir Jóhann- esson eru vön að fræða fólk um þá kosti, sem standa til boða. Fólk situr stundum í dýru húsnæði, en hefur mjög lítið fé milli handanna. Ásgeir hefur til dæmis nefnt dæmi af konu, sem bjó í 12–13 millj- óna króna íbúð, en hafði ekki efni á að kaupa áskrift að dagblaði. Slíkt er óþarft; nú er hægt að fara aðrar leiðir og njóta ávaxta eigna sinna og vinnu. Búnaðarbankinn fékk sérstaka viðurkenningu framkvæmdanefndar árs aldraðra og heilbrigðis- og tryggingarráðu- neytisins vegna átaks síns í þjón- ustu við aldraða viðskiptavini bankans.“ – Er dagskrá næstu samkomna þegar mótuð? „Þriðjudaginn 22. október ætlar Jón Böðvarsson að koma í heim- sókn og fræða okkur um fyrstu íbúa og umhverfi Breiðholtsins. Þá verður líka tónlistarflutningur. Þriðjudaginn 26. nóvember verð- ur kominn jólabragur á samkom- una og við heyrum meðal annars upplestur úr nýjum bókum. Við ætlum að hafa samkomurnar fjöl- breyttar og sameina alltaf fræðslu, skemmtun og samveru. Við viljum reyna að ná til sem flestra og bjóðum fólki til dæmis að sækja það á bíl, ef það treystir sér ekki til að komast sjálft í kirkj- una. Messurnar eru auðvitað há- punktur sóknarstarfsins, en hér, eins og í öðrum söfnuðum lands- ins, er fjölbreytt starf. Í Selja- kirkju eru bænastundir einu sinni í viku, unglinga- og fræðslustarf og mömmumorgnar, svo dæmi séu tekin. Þessi starfsemi er öll mjög lífleg og skemmtileg. Í sum- ar voru sérstök námskeið fyrir börn, en það var í fyrsta skipti sem slíkt var gert. Námskeiðin voru fyrir 6–10 ára börn og voru haldin á morgnana. Sunnudaga- skóli þjóðkirkjunnar hófst svo 8. september sl. og þá sóttu 275 börn og for- eldrar barnaguðsþjón- ustu í Seljakirkju. Fólk í sókninni er áhuga- samt um verkefnið sem sunnudagaskólar kirkjunnar taka að sér í vetur, en það gengur út á að safna fyrir og styðja Hjálpar- starf kirkjunnar og þau verkefni sem eru unnin á vegum þess í Afr- íku og á Indlandi. Með samkomum fyrir eldri borgara erum við að auka enn við starfsemina, enda er markmiðið að ná sem best til allra sóknar- barnanna.“ Dóra Ingvarsdóttir  Dóra Ingvarsdóttir er fædd í Reykjavík 30. október 1936. Hún lauk landsprófi frá Skógaskóla og nam síðar við Kennaraskól- ann. Stúdentsprófi lauk hún frá Menntaskólanum í Hamrahlíð ár- ið 1978 og las viðskiptafræði og hagfræði við Endurmenntunar- stofnun HÍ, þaðan sem hún lauk prófi 1993. Haustið 1991 sat hún námskeið hjá Barclays-banka í London. Hún vann hjá Búnaðar- banka frá 1977 og var útibús- stjóri í Mjódd í 16 ár. Hún var formaður Starfsmannafélags Búnaðarbankans í 3 ár og for- maður Rangæingafélagsins í Reykjavík í 5 ár. Eiginmaður hennar er Ólafur Oddgeirsson. Þau eiga eina dóttur og tvö barnabörn. 600 eldri borgarar í Seljasókn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.