Morgunblaðið - 21.09.2002, Qupperneq 22
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
22 LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
KJARTAN Gunnarsson, fráfarandi
stjórnarformaður Vátrygginga-
félags Íslands, ávarpaði hluthafa-
fund félagsins og starfsmenn í gær
og gerði grein fyrir aðdraganda þess
að Landsbanki Íslands seldi sinn
hlut í félaginu. Hann gerði m.a.
grein fyrir samkomulagi þeirra
tveggja hópa sem áttu meirihluta í
VÍS, um að skrá félagið á hluta-
bréfamarkað og að enginn einn aðili
færi með ráðandi hlut í félaginu.
„Samkomulag stærstu hluthaf-
anna Landsbankans og hins svokall-
aða „S“ hluthafahóps, Kers hf., Sam-
vinnulífeyrissjóðsins og Eignar-
haldsfélaganna Andvöku og
Eignarhaldsfélags Samvinnutrygg-
inga hafði snúist um, að með gagn-
kvæmum hætti yrðu hlutir þessara
aðila smám saman minnkaðir í félag-
inu og stefnt að því að enginn einn
aðili færi með ráðandi hlut í félaginu.
Í lok júlí sl. kom hins vegar í ljós að
gagnaðilar Landsbankans í hópi
stærstu hluthafanna vildu gera
breytingar á þessu samkomulagi og
höfðu frumkvæði að viðræðum um
Landsbankann um það. Það var nið-
urstaða stjórnar Landsbankans hf.
að ekki væri heppilegt að standa að
minniháttar breytingum á þessu
fyrrnefnda samkomulagi annar veg-
ar frá 25. júlí og hins vegar 25. mars
2001 svo skömmu eftir að það hafði
verið gert og ekki væri heldur væn-
legt fyrir Landsbankann að verða
áhrifalítill minnihlutaaðili í Vátrygg-
ingafélaginu og því væri hagsmun-
um allra best borgið, bæði Lands-
bankans og þeirra sem breyta vildu
áður gerðu samkomulagi, með þeirri
niðurstöðu að stærstu meðhluthafar
Landsbankans í Vátryggingafélag-
inu keyptu allan hlut bankans. Það
varð niðurstaðan og var gengið til
þeirra samninga í lok ágúst og er
hluthafafundurinn í dag haldinn í
beinu og eðlilegu framhaldi af þess-
um ákvörðunum,“ sagði Kjartan
m.a. í ávarpi sínu sem einnig var
bréf til starfsmanna VÍS.
„Skoðanir á þessu kunna að vera
skiptar eins og þær voru fyrir 5 ár-
um þegar Landsbankinn eignaðist
hlutinn í VÍS en þá gagnrýndu það
margir, bæði utan bankans og utan
VÍS, að ríkisviðskiptabanki væri
með þeim hætti að gerast svo virkur
þátttakandi í atvinnulífinu og starf-
semi sem ekki væri bein bankastarf-
semi. Margir spáðu illa fyrir þessu
samstarfi en sem betur fer rættust
þær hrakspár ekki og hefur báðum
fyrirtækjunum vegnað vel, hvort
sem verið hefur í samstarfinu eða í
sjálfstæðri starfsemi sinni. Samstarf
banka og vátryggingafélaga hefur
víða um heim verið reynt á undan-
förnum árum, oft með misjöfnum
árangri en okkar reynsla er vel við-
unandi. Upphaflega var það fyrst og
fremst áhugi Landsbankans á því að
taka þátt í líftryggingastarfsemi
sem réð því að hann réðst í þessi
kaup eftir að hafa kannað bæði
möguleika þess að stofna eigið líf-
tryggingafélag og kaupa starfandi
líftryggingafélag. Landsbankinn á
nú helmingshlut í Líftryggingafélagi
Íslands á móti 25% hlut Vátrygg-
ingafélagsins og sambærilegum hlut
Andvöku. Það má því segja að sú
niðurstaða, sem hluthafafundurinn í
dag er afleiðing af, skili Landsbank-
anum á þann stað sem hann upp-
haflega ætlaði að vera í trygginga-
starfsemi, virkur aðili að
líftryggingafélagi.“
Mikilvægt að staðið verði við
dreifða eignaraðild
„Að mínum dómi var það fráleitur
kostur eftir að óskir komu fram frá
helmingseigendum félagsins að
breyta því samkomulagi, sem nýlega
hafði verið gert, öðruvísi en að fram-
kvæma og standa að róttækri nið-
urstöðu sem uppfyllti óskir allra.
Það er hins vegar mikilvægt í mín-
um huga að staðið verði við yfirlýs-
ingar nýrra megineigenda Vátrygg-
ingafélagsins, en þeir hafa lýst því
yfir að þeir muni halda áfram að
stuðla að dreifðri eignaraðild í félag-
inu. Það er félaginu örugglega sem
viðskiptafyrirtæki fyrir bestu, eig-
endum þess og starfsmönnum.
Í þessu öllu tel ég að menn þurfi
auðvitað sérstaklega að hyggja að og
hafa í huga að stór hópur starfs-
manna Vátryggingafélagsins eru
hluthafar í félaginu og hafa fjárfest í
því, m.a. fyrir hvatningu frá stjórn
þess og stjórnendum, allt á þeim
grundvelli að stefnt væri að því að
gera félagið að öflugu og stóru al-
menningshlutafélagi. En ekkert hef-
ur komið fram annað en að þannig
verði þróunin og hafa nýir aðaleig-
endur félagsins raunar lýst því yfir
að þeir hafi áhuga á því að flýta
þeirri þróun.“
Kjartan þakkaði einnig starfs-
mönnum VÍS og fráfarandi forstjóra
fyrir ánægjulegt samstarf. „Eins og
menn þekkja hefur það orðið að ráði
að Axel Gíslason, forstjóri félagsins,
hefur sagt starfi sínu lausu frá og
með 1. október nk. Axel Gíslason
hefur verið forstjóri þessa félags frá
stofnun þess og lagt mikið á sig við
að vinna að hagsmunum þess. Félag-
ið hefur enda hafist frá því að vera
nauðvarnarsameining tveggja fé-
laga, sem bæði áttu í umtalsverðum
erfiðleikum á markaði og voru fyrstu
árin eftir sameininguna á mörkum
þess að uppfylla skilyrði laga um
gjaldþol tryggingafélaga í það að fé-
lagið er nú á öllum sviðum annað-
hvort í fyrsta eða öðru sæti íslensku
tryggingafélaganna og þar sem það
er í öðru sæti er nánast um pró-
sentubrot að ræða í mismun. Axel
getur litið ánægður og stoltur yfir
farinn veg svo og allir þeir sem
starfað hafa með honum að þessum
málum og lýk ég orðum mínum hér
með því að þakka honum einlæglega
fyrir ágætt samstarf og fórnfúst og
vel heppnað starf í þágu Vátrygg-
ingafélags Íslands hf. Jafnframt
þakka ég einlæglega öllum þeim sem
starfað hafa með mér í stjórn félags-
ins sl. fimm ár. Þau hafa bæði sem
einstaklingar og fulltrúar umbjóð-
enda sinna starfað af heiðarleika og
hreinlyndi að framgangi félagsins.
Starfsmönnum öllum og fjölskyldum
þeirra óska ég gæfu og gengis,“
sagði Kjartan Gunnarsson að lokum.
Axel Gíslason, fráfarandi forstjóri,
ávarpaði fundinn einnig og þakkaði
fráfarandi stjórn fyrir gott samstarf.
Kjartan Gunnarsson, fráfarandi stjórnarformaður Vátryggingafélags Íslands
Ekki vænlegt að
vera áhrifalítill
minnihlutaeigandi
Morgunblaðið/Kristinn
Kjartan Gunnarsson, fráfarandi stjórnarformaður VÍS, gerði grein fyrir
aðdraganda þess að Landsbankinn seldi hlut sinn í félaginu.
SAMEINING Hlutabréfasjóðs-
ins Auðlindar hf. og Kaupþings
banka hf. hefur vakið spurning-
ar um framtíð hlutabréfasjóða. Í
tilkynningu frá Kaupþingi var
niðurlagning skattaafsláttar til
einstaklinga vegna hlutabréfa-
kaupa nefnd sem ein megin-
ástæða sameiningarinnar.
Framkvæmdastjórar hluta-
bréfasjóða í vörslu Landsbank-
ans Landsbréfa og Búnaðar-
bankans verðbréfa eru sammála
um að óvissa ríki um framtíð
sjóðanna en telja ekki tímabært
að skera úr um hvort tími þeirra
sé liðinn fyrr en í ljós kemur
hvort skattaafsláttur verður
framlengdur.
Að mati Styrmis Bragasonar,
framkvæmdastjóra Íslenska
hlutabréfasjóðsins hf., sem er í
vörslu Landsbankans Lands-
bréfa, er skattaafsláttur vegna
hlutabréfakaupa einstaklinga
mikilvægur fyrir rekstur hluta-
bréfasjóða. Hann telur þó afnám
afsláttarins ekki þurfa að marka
endalok sjóðanna. Hann er
ósammála þeim sjónarmiðum
sem komu fram í frétt Mbl. í
gær um sameininguna. „Ég er
alls ekki sammála því sem þar
er sett fram. Ég myndi telja að
þetta sé ekki alveg það sem
hluthafar Auðlindar voru að ætl-
ast til. Þótt skattaafsláttur verði
afnuminn þá er ekki þar með
sagt að það sé óhagkvæmt að
kaupa í hlutabréfasjóði. Hluta-
bréfasjóðir eru til um allan heim
án þess að skattaafsláttur sé
veittur. Við ætlum þó að beita
okkur fyrir því hjá Landsbank-
anum að þessum skattaafslætti
verði haldið áfram.“ Sigurður
Óli Hákonarson, framkvæmda-
stjóri Hlutabréfasjóðs Búnaðar-
bankans hf. segir að verði lögum
um verðbréfa- og fjárfestinga-
sjóði breytt gætu þau gert
hlutabréfasjóðsformið skatta-
lega hagkvæmara. Hann telur
skattamálin skipta mestu hvað
varðar framtíð hlutabréfasjóð-
anna. „Við munum meta stöðuna
í ljósi þess hvernig lagaumhverfi
sjóðsins verður til frambúðar.
Það er mikil óvissa varðandi það
núna. Verði lögin í takt við þau
drög sem liggja fyrir gefst
hlutabréfasjóðum kostur á að-
breyta formi sínu þannig að þeir
geti staðið jafnfætis verðbréfa-
sjóðum að því leyti að þeir
þyrftu ekki að greiða tekjuskatt.
Þannig yrðu þeir ekki eins
skattalega óhagkvæmir og verið
hefur. Sjóðsfélagar ættu þannig
ekki að skaðast, jafnvel þótt
skattaafsláttur verði afnuminn,“
segir Sigurður Óli.
Hlutabréfasjóðir
geta starfað
þrátt fyrir afnám
skattaafsláttar